SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Side 26

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Side 26
26 7. febrúar 2010 S íðastliðinn mánudag fengu tæp- lega 16 þúsund einstaklingar greiddar út atvinnuleysisbætur. Þetta er mjög há tala og erfitt að skilja hversu lítið er um þetta mikla at- vinnuleysi rætt. Alveg sérstaklega á það við um forystumenn verkalýðshreyfing- arinnar, sem láta lítið til sín heyra af þessu tilefni. Á sama tíma og þessi mikli fjöldi fólks gengur um atvinnulaus notar Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hvert tækifæri sem býðst til þess að tefja fyrir og þvælast fyrir nýjum virkjunarfram- kvæmdum. Það er erfitt að skilja hvað veldur. Nú er ekki rætt um virkj- anaframkvæmdir, sem stofna miklum náttúruverðmætum í hættu. En kannski hafa Vinstri grænir fjarlægzt uppruna sinn svo mjög að atvinnulaust fólk skiptir þá engu máli. Þótt rúmt ár sé liðið frá bankahruninu eru engin áþreifanleg merki þess að upp- bygging atvinnulífsins sé að hefjast á ný. Ríkisstjórnin situr föst í kviksyndi Ice- save, sem hún hefur sjálf komið sér í, um- sóknin um aðild Íslands að ESB, sem öllu átti að breyta og bjarga, er andvana fædd. Ný sókn í uppbyggingu stórvirkjana og stóriðju er eini raunhæfi möguleikinn sem við blasir til atvinnuuppbyggingar, sem skilar skjótum árangri í aukinni atvinnu og umsvifum. Þau erlendu fyrirtæki, sem áhuga hafa á að fjárfesta í orkufrekum iðnaði á Íslandi, eiga nú margra kosta völ. Fjármálakrepp- an og samdráttarskeiðið, sem fylgt hefur í kjölfar hennar í efnahagsmálum um allan heim, þýða að þessum fyrirtækjum standa nú allar dyr opnar. Mörg ríki eru tilbúin til að bjóða þeim gull og græna skóga. Þess vegna er sú fyrirstaða sem þau mæta hér hættuleg. Það er jafnvel svo illa komið, að sum þessara fyrirtækja kvarta undan því, að ráðuneyti svari ekki bréfum. Innan stjórnarflokkanna beggja er and- óf í gangi gegn stórvirkjunum og stóriðju. Það á ekki bara við um Vinstri græna heldur líka Samfylkingu. Hins vegar er þessi hópur minni innan Samfylking- arinnar og hefur ekki jafn mikil áhrif og skoðanabræður þeirra hjá Vinstri græn- um. Þegar þessir hópar í báðum stjórn- arflokkunum taka höndum saman er engu að síður ljóst, að sameiginlega geta þeir haft mikil áhrif og þvælst fyrir eins og dæmin sanna. Nú fara sveitarstjórnarkosningar í hönd og þar á meðal til borgarstjórnar Reykja- víkur. Síðasta skoðanakönnun Gallup bendir til að Samfylking og Vinstri grænir gætu náð meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Gerist það má nánast telja fullvíst, að lítið verði úr frekari virkj- anaframkvæmdum á vegum Orkuveitu Reykjavíkur. Mesti styrkur atvinnulífsins nú er í sjávarútvegi. Möguleikarnir eru miklir í ferðaþjónustu og öðrum atvinnugreinum, sem byggjast á tekjuöflun í útlöndum. Ekkert af þessu er þó líklegt til að draga svo um munar úr atvinnuleysi nema grundvallarákvarðanir um stórvirkjanir og stóriðju. Verði Samfylking og Vinstri grænir ráðandi bæði í ríkisstjórn og borg- arstjórn Reykjavíkur eru yfirgnæfandi lík- ur á því, að engin hreyfing sem máli skiptir komist á uppbyggingu atvinnulífs- ins vegna þess, að andófsöflin innan flokkanna beggja eru nægilega sterk til þess að koma í veg fyrir það. Samfélagið getur ekki sætt sig við, að öfgahópar í röðum bæði Samfylkingar og Vinstri grænna komi í veg fyrir, að raun- hæfar ákvarðanir verði teknar í atvinnu- málum. Ég hef ekki verið talsmaður sam- starfs Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar og tel það ekki eftirsóknarvert eins og reynslan sýnir. Og efast ekki um, að innan Samfylkingar eru margir sömu skoðunar. Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir eiga samleið í grundvallarmálum um þessar mundir og þá ekki sízt í afstöðu til ESB. En í stjórnmálum verður að gera fleira en gott þykir. Við núverandi aðstæður skiptir mestu að leysa atvinnulífið úr þeim fjötrum, sem það er í og hefja nýja uppbyggingu í at- vinnumálum og skapa þar með mikinn fjölda nýrra starfa. Þetta er ekki bara spurning um efnalega afkomu fólks held- ur og ekki síður um sálarheill þess. Það er ekki hægt að una við óbreytt ástand. Þess vegna kann vel að vera tíma- bært að fólk innan bæði Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, sem er tilbúið til þess að horfa raunsætt á aðkallandi vandamál líð- andi stundar, tali saman. Það verður að koma hreyfingu á bæði Helguvík og Bakka og virkjanir í neðri hluta Þjórsár og við Þeistareyki. Mikill hluti hinna atvinnulausu gengur um götur Reykjavíkur. Sjálfstæðisflokk- urinn í borgarstjórn Reykjavíkur hlýtur að heyja kosningabaráttu sína í vor m.a. á þeirri forsendu að það verði að koma í veg fyrir að sama lamandi ástand í atvinnu- málum ráði ríkjum í borgarstjórninni og nú blasir við í ríkisstjórninni. Og jafnframt þarf flokkurinn að skerpa á forystu Orku- veitu Reykjavíkur. Forseti Alþýðusambands Íslands getur ekki verið þekktur fyrir að sitja þegjandi hjá og láta flokkspólitíska hagsmuni Sam- fylkingarinnar ráða afstöðu sinni. Hann og verkalýðshreyfingin í heild verða að leggjast á þá sveif að hér verði gripið til raunhæfra aðgerða í atvinnumálum. Rödd hinna atvinnulausu verður að heyrast. Er verkalýðshreyfingin líka búin að gleyma uppruna sínum? Það skyldi þó ekki vera, að hún sé líka komin í hendur hinnar pólitísku yfirstéttar háskólafólksins í Samfylkingunni? Eftirminnilegt samtal Þóru Arnórs- dóttur við Jóhönnu Sigurðardóttur í Kast- ljósi sl. þriðjudagskvöld sýndi að í þessum efnum hefur forsætisráðherrann ekkert fram að færa. Jóhanna veitir þjóðinni ekki pólitíska forystu. Það er mesti veikleiki hennar. Það er kominn tími á ný umskipti í póli- tíkinni. Andóf gegn atvinnuuppbyggingu Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is F ranska rithöfundinum Émile Zola varð að ósk sinni þegar hann var dreginn fyrir dóm á þess- um degi árið 1898 fyrir meint meiðyrði í „merkustu blaðagrein allra tíma“, eins og hún hefur oft verið kölluð. Greinin birtist á forsíðu dagblaðs- ins L’Aurore tæpum mánuði áður undir yfirskriftinni J’accuse …! eða Ég ásaka …! Greinin hafði ekki einungis meitlað orðfæri að geyma, heldur hefur því verið haldið fram að blaðagrein hafi ekki í annan tíma haft eins mikil áhrif á lög, réttlæti og samfélagið í heild. Forsaga málsins er sú að Alfred Dreyfus, liðsforingi í franska hernum, var tekinn höndum árið 1894, grun- aður um njósnir fyrir Þjóðverja. Í kjölfar réttarhalda var hann dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir landráð. Herinn stóð á þeim tíma í þeirri meiningu að Dreyfus væri sek- ur. Tveimur árum síðar komu hins vegar fram sönn- unargögn sem staðfestu að svo var ekki. Annar liðsfor- ingi, Ferdinand Esterhazy, hafði í raun framið glæpinn. Í stað þess að leysa Dreyfus úr haldi og rétta yfir Est- erhazy stungu nokkrir hershöfðingjar sönnunargögn- unum undir stól af ótta við að málið myndi skaða orð- spor hersins. Émile Zola, einn fremsti rithöfundur og hugsuður Frakka á þessum tíma, hafði spurn af málinu og ritaði grein Dreyfus til varnar. Í greininni, sem birt var sem opið bréf til forseta Frakklands, lýsti hann málsatvikum og færði rök fyrir því að Dreyfus hefði verið dæmdur saklaus og að Esterhazy væri í raun sekur. Þá fjallaði hann fjálglega um yfirhylminguna innan hersins og nafngreindi hershöfðingjana sem hann sagði bera ábyrgð á „einu mesta óréttlæti aldarinnar“. Tilgangur Zola með skrifinu var tvíþættur: Annars vegar að veita almenningi yfirsýn yfir staðreyndir máls- ins og freista þess þannig að snúa álitinu á sveif með Dreyfus og hins vegar, eins og fram kom hér að ofan, að knýja yfirvöld til að ákæra sig. Með þeim hætti mætti draga ný gögn í málinu fram í dagsljósið. Þetta gekk eftir. Almenningsálitið snerist Dreyfus í vil, auk þess sem málið vakti óskipta athygli utan Frakklands. Heimskunnur rithöfundur að saka franska herinn um svik og pretti. „Sekt Zolas er í því fólgin að hafa kjark til að verja sannleikann og borgaralegt frelsi. Menn munu bera hann á höndum sér hvarvetna sem mannssálin er frjáls,“ sagði The London Times. Réttarhaldið, sem stóð í tvær vikur, var fjölleikahúsi líkast. Dómendur komu hranalega fram við Zola og lög- fræðing hans og ringulreið ríkti í salnum. Það kom til handalögmála. Æstur múgurinn æpti á Zola og reyndi að leggja hendur á hann. Skyndilega snerist málið um þá staðreynd að Dreyfus var gyðingur. „Niður með Zola“ og „niður með gyðinga“ voru vinsæl slagorð stjórn- arsinna sem skemmdu eigur þeirra í skjóli nætur. Enda þótt málsatvik væru afdráttarlaus var Zola fund- inn sekur og dæmdur í eins árs fangelsi. Í stað þess að taka út refsingu sína flúði hann til Englands, þar sem hann dvaldist í tæpt ár í útlegð. Hann sneri aftur sum- arið 1899, skömmu eftir að áfrýjunardómstóll gaf fyr- irmæli um að aftur yrði réttað í máli Dreyfus. Öllum á óvörum var hann aftur fundinn sekur. Skömmu síðar var hann þó náðaður og leystur úr haldi. Hæstiréttur Frakklands lýsti hann formlega sýknan saka árið 1906. Dreyfus sneri aftur í herinn og málinu lauk endanlega sumarið 1906 með athöfn honum til heiðurs. Émile Zola var þá fjarri góðu gamni en hann lést á heimili sínu haustið 1902, 62 ára. Banameinið var reyk- eitrun. Sumir sagnfræðingar eru sannfærðir um að Zola hafi verið myrtur af hægri öfgamönnum fyrir þátt hans í Dreyfus-málinu. Þeir hafi stíflað skorstein hússins. Ferdinand Esterhazy hlaut aldrei dóm fyri gjörðir sín- ar. Hann hrökklaðist hins vegar úr landi árið 1898 og bjó í Bretlandi til dauðadags árið 1923. orri@mbl.is „Ég ásaka …!“ Greinin fræga á forsíðu L’Aurore. Í stað þess að leysa Dreyfus úr haldi og rétta yfir Esterhazy stungu nokkrir hershöfðingjar sönnunargögnunum undir stól af ótta við að málið myndi skaða orðspor hersins. Rithöfundurinn Émile Zola. Á þessum degi 7. febrúar 1898 Alfred Dreyfus liðsforingi.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.