SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Síða 28

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Síða 28
28 7. febrúar 2010 O pinber rannsóknarnefnd, svokölluð Chilcot-nefnd, hefur verið að fara yfir Íraksstríðið og aðdraganda þess í Bret- landi. Sjónvarpað hefur verið frá yf- irheyrslum og þær fengið töluverða athygli. Meira að segja nóga til þess að hermikrákur hafa krunkað hér uppi á Íslandi, svo merkilegt sem það nú er. Tilgangurinn með hinni bresku rannsókn hefur verið nokkuð óljós. Þrýstingur á að láta hana fara fram hefur einkum komið frá óbreyttum þing- mönnum Verkamannaflokksins, sem þorðu ekki í Blair meðan hann var enn á staðnum og vissu einnig að þeir áttu honum flestir þingsætið sitt að þakka.Nú hefur Blair verið frá um hríð og kosn- ingar framundan innan fárra mánaða og margt bendir til að flestir þessara manna muni missa þingsæti sitt. Þeir hafa því engu að tapa. Auðvitað vilja menn vita hvort „stríðið“ hafi verið í sam- ræmi við alþjóðalög. Slíkar spurningar komast sjaldan af vangaveltustiginu, enda er þessi þáttur lögfræðiumgjörðar í heiminum hvað minnst í ætt við nákvæmnisvísindi. Ágreiningurinn snýr ein- vörðungu að stríðinu sjálfu, því ekki er deilt um að hersetan sem á eftir fór og enn stendur fer fram með fullu samþykki öryggisráðsins. Öll stríð eru viðurstyggileg, en sum þeirra er hægt að réttlæta. Adolf Hitler réðst inn í Pólland og Bretar fóru í stríð við hann og fleiri fylgdu síðar. Það stóð í fimm ár og varð eitt það blóðugasta sem sagan þekkir. En það var óhjákvæmilegt engu að síður. Ella hefði nasisminn hirt heiminn með öllum þeim skelfingum sem því fylgdu. Spurningin um Íraksstríðið snýst einnig að hluta um þetta sama. Var það nauðsynlegt, þrátt fyrir hryllinginn sem stríðum fylgir, jafnvel óhjákvæmilegt? Bandaríkja- menn og Bretar beittu mjög fyrir sig að þeir væru fullvissir um að Saddam Hussein byggi yfir gereyð- ingarvopnum eða væri að koma sér þeim upp. Vit- að var að hann hafði beitt eiturefnavopnum gegn Kúrdum og myrt yfir 300 þúsund þeirra. Það eitt hefði átt að duga til að alþjóðasamfélagið tæki í taumana, en það hafðist ekki að. Gereyðingarvopnin fundust ekki í Írak eftir her- námið. Miklar rannsóknir, til að mynda fyrir og eftir stjórnarskipti í Bandaríkjunum, hafa ekki leitt í ljós að þarlend yfirvöld hafi ekki verið i góðri trú um að slík vopn væri þar að finna. Sama gildir í Bretlandi, a.m.k. enn sem komið er. Í yfirheyrslunum þar í landi kom fram að Blair er enn jafn sannfærður og fyrr um réttmæti þess að leggja í stríðsreksturinn. Hussein hefði þegar verið orðinn ábyrgur fyrir dauða yfir milljón manna, hann hafði í sífelldum hótunum og hefði fyrr eða síðar komið sér upp gereyðingarvopnum einsog eiturgasi á ný og jafnvel enn skæðari vopnum. Áhættan af slíku væri yfirþyrmandi og yrði að bregðast við. Áleitnar spurningar um eftirleikinn En það sem vakið hefur hvað mesta athygli við þessa rannsókn er að hún hefur í raun snúist meira um eftirleikinn en stríðið sjálft. Það er athyglisvert því naumast er um það deilt að eftirleikurinn hefur verið í fullu samræmi við alþjóðalög. Stríðsþjóðunum (ekki þarf að taka fram að Ís- lendingar voru ekki ein af þeim eins og til dæmis Danir voru á hinn bóginn) var mikið í mun að stríðið gæti tekið fljótt af og því var beitt ofurefli liðs og búnaðar og þetta tvennt var ekki í neinu hlutfalli við varnarviðbúnaðinn. Samgöngu- mannvirki, rafmagnsveitur, vatnsveitur og stjórn- unarmiðstöðvar ríkisins voru sprengdar í loft upp til að lama óvininn. Allt innra kerfi Íraks var því í rúst þegar sigurvegararnir drógu sína fána að húni í höfuðborginni eftir fárra vikna bardaga og væntu þess að fjöldinn fagnaði þeim. Lítill vafi var á að stærsti hluti Íraka syrgði ekki fall stjórnar Saddams Husseins og böðla hans. En eymdin sem stríðs- aðgerðunum fylgdi og framkvæmd hernámsins ýtti strax undir andúð og hatur. Því þykir mörgum sem réttlæta megi stríðið með þeim rökum m.a. sem Blair færði fram í rannsókninni. En skipulagn- ing þess og hin algjöra og tilgangslausa eyðilegging og fullkominn skortur á raunhæfum uppbygging- aráætlunum sé sá þáttur sem fái stærsta áfell- isdóminn. Skoskur leikritahöfundur, David Greig, hefur skrifað leikritið Dunsinane, sem fjallar um at- burðarás um og eftir dauða Macbeths. Þegar hann var spurður hvers vegna hann sótti í þetta efni svaraði hann á þessa leið: „Dunsinane leitaði á mig fyrir svo sem fimm árum, þegar allmargar Mac- beth-sýningar voru settar á svið, kannski sem eins konar viðbrögð við Íraksstríðinu. Macbeth snýst jú um konung sem steypt er af stóli. Það sem kveikti áhuga minn var spurningin um hvað gerist eftir að konungi er steypt af stóli. Hvernig er friði komið á í konungsríki með hervaldi?“ Þessi spurning var einmitt sú sem herveldunum, sem unnu svo auðveldan sigur á Írak, láðist að spyrja sig í tíma. Því hefur eftirleikurinn orðið svo miklu erfiðari en þurft hefði. Auðvitað er óend- anlega mikilvægt fyrir Írak og umheiminn að hinn grimmi óútreiknanlegi harðstjóri er ekki lengur við völd. Þar hafa farið fram kosningar og í mörgu hef- ur vel miðað. En markvissari undirbúningur hefði þurft að fara fram og skilningur vera fyrir hendi á því að meira að segja stríði þarf að stilla í hóf. Skortur á þessu tvennu hefur orðið dýr. Hvernig eru ákvarðanir teknar? Um það leyti sem íslenska bankakerfið var að hrynja var öll forystusveit ríkisins stödd í New York og hafði góðar vonir um að Ísland væri að hljóta sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Var búið að kosta miklu til. Allir vita að engin stofnun Sameinuðu þjóðanna fær alvarlegri mál inn á sitt Markvissari undirbúningur hefði þurft að fara fram fyrir Íraksstríðið og skilningur að vera fyrir hendi á því að meira að segja stríði þarf að stilla í hóf. Reykjavíkurbréf 05.02.10 Um rannsóknarnefndir og Öry Horft yfir Tígrisfljót í Bagdad, hinn 20. mars 2003.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.