SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Síða 35
7. febrúar 2010 35
É
g hef haft áhuga á hönnun frá
því ég var 12 ára og ég saumaði
mína fyrstu tösku úr gömlum
gallabuxum af mömmu minni,“
segir prjónatextílhönnuðurinn Álfheiður
Björg Egilsdóttir, kölluð Alla. Hún út-
skrifaðist af hönnunarbraut Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ og flutti í kjölfarið til
London. 15 ára gömul einsetti Alla sér að
læra hönnun í Central Saint Martins og
það gekk eftir. Hún fór í grunnnám sem
tók eitt ár og að því loknu hóf hún B.A.
nám í textílhönnun sem hún lauk síðasta
vor.
Eftir útskrift stofnuðu Alla og vinkonur
hennar, sem voru að útskrifast með
henni, hönnunarhóp sem kallast Here’s
One I Made Earlier. „Við prjónuðum fyrir
þekktan stílista sem er einnig hönnuður
og svo bjuggum við til leðurgrímur fyrir
söngkonu sem er með hljómsveitina
Marina and the Diamonds. Hópurinn er
ekki mjög virkur núna þar sem allir eru
svo uppteknir.“
Síðan í haust hefur Alla unnið sem lær-
lingur hjá hönnuðinum Christopher
Kane. „Ég er að gera allt; hjálpa til við
sniðagerð, sauma smá og hjálpa til í
framleiðslunni. Það verður sýning 22.
febrúar þannig að álagið er að aukast,“
segir hún. „Ég var ein af fyrstu lærling-
unum sem byrjuðu fyrir þetta „season“
en núna erum við komin upp í tíu.“
Stuttu eftir sýninguna fer Alla ásamt
Kane og öðru starfsfólki á tískuvikuna í
París til að aðstoða við að selja línuna í
búðir. „Ég er bundin í lærlingsstöðunni
þangað til við komum til baka frá París.
Svo veit maður aldrei hvað gerist.“
Bjagaði gömul íslensk munstur
Lokaverkefni Öllu í textílnáminu var
byggt á gömlum íslenskum munstrum.
„Ég var í raun að bjaga gömlu munstrin.
Ég leit á kreppuna og íslensku sjálfs-
myndina eftir kreppu og fannst hún dá-
lítið brotin niður. Ég notaði íslenskan
lopa og bjó til kraga. Í raun átti bara að
gera flatar prufur en ég ákvað frekar að
gera prufurnar mínar á krögum. Ég end-
aði á að gera prjónaða kraga sem eru allir
heima því ég tími ekki að láta þá frá mér.
Mér var boðið að selja þá en það er
ógjörningur að framleiða þá því það tek-
ur 1-2 daga að gera einn kraga. Þetta er
svo rosalega mikil handavinna. Ég var
líka komin með nóg af verkefninu. Ég
eyddi svo löngum tíma í það að ég vildi
frekar snúa mér að öðru.“
Lenti í 1. sæti í prjónakeppni
Síðasta sumar tók Alla þátt í prjóna-
keppninni Þráður fortíðar til framtíðar.
Þar áttu keppendur að nýta íslenska ull-
ina á nýjan hátt. Alla sendi inn þrjá kraga
úr lokaverkefninu sínu og fór með sigur
af hólmi. Þetta var í fyrsta skipti sem
keppnin var haldin og Alla segist vona að
henni verði haldið áfram. „Þetta er mjög
sniðugt og það var gaman að sjá hug-
myndaauðgina í fólkinu sem var að senda
inn tillögur,“ segir hún. „Ég lít rosalega
upp til íslenskrar prjónahefðar og það er
gaman að sjá hvað allir eru duglegir að
prjóna og eru hugmyndaríkir í því.“
Spurð hvað sé framundan segist Alla
ætla að sækja um meistaranám í prjón-
aðri fatahönnun, að öllum líkindum í
Central Saint Martin. „Ég er ekki á leið
heim. Ég ætla að reyna að þrauka hér úti
og sjá hvað gerist. Það eru miklu meiri
möguleikar hér en heima.“
ylfa@mbl.is
Lopakragarnir hennar Öllu eru litríkir og byggja á gömlu íslensku munstrunum. Hún sendi nokkra þeirra í prjónakeppnina Þráður fortíðar til framtíðar og vann fyrstu verðlaun.
Lítur upp til íslenskrar prjónahefðar
Prjónatextílhönnuðurinn Alla Björg.
’
Ég lít rosalega upp
til íslenskrar
prjónahefðar og
það er gaman að sjá
hvað allir eru duglegir
að prjóna og eru hug-
myndaríkir í því.
Hönnun