SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Side 39

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Side 39
7. febrúar 2010 39 Eins kom í heimsókn hópur umboðs- manna og stjórnenda sænsku Norma- skotfæraverksmiðjanna. Umboðsmenn- irnir voru víða að úr heiminum. „Þeir fylltu heila rútu og sýndu safninu mikinn áhuga og velvilja. Í kjölfarið sendi Norma okkur mikið af vörum sem við er- um að nota. Það segir sína sögu að í kvöld- verðarboði síðasta kvöldið sem þeir voru hér á landi var hvorki minnst á Gullfoss né Geysi en bara talað um Veiðisafnið!“ Villidýraveiðar á stórafmælum Um 15-20 Íslendingar hafa stundað villi- dýraveiðar í Afríku á undanförnum árum. Páll segir að eini Íslendingurinn sem hann viti til að hafi farið til villidýraveiða í Afr- íku á undan honum hafi verið flugmaður sem bjó í Lúxemborg. Mögulega hafi einn annar Íslendingur stundað veiðar í Afríku á undan honum, en það sé óstaðfest. Páll fór í fyrstu veiðiferð sína til Afríku árið 1996. „Ég var að veiða landsel norður í Víkum á Skaga vorið 1995 og var að bíða eftir að selurinn opnaði kjaftinn. Ég ætlaði nefni- lega láta stoppa hann upp með opinn munn og vildi sjá að tennurnar væru í lagi. Það liðu tveir dagar þar til ég sá upp í hann. Þar sem ég beið eftir því að selurinn glennti upp ginið hét ég því að vera í Afr- íku nákvæmlega ári síðar og skjóta sebra- hest klukkan þrjú daginn sem ég yrði fer- tugur. Það klikkaði. Ég skaut hann klukkan hálffimm!“ Páll segist hafa reykt á yngri árum en hætt reykingum 9. mars 1993 – „níu þrír níu þrír“ eins og hann orðar dagsetn- inguna. Reykingapeningana ákvað hann að spara og safna fyrir veiðileyfi á ljóni. „Ég var ákveðinn í að skjóta ljón með skammbyssu á fimmtugsafmælisdaginn minn – klukkan þrjú. Það klikkaði líka. Ég skaut það klukkan hálfníu um morg- uninn. Það er ekki öll vitleysan eins,“ sagði Páll. Hann kvaðst ekki vera búinn að ákveða hvað hann ætlar að skjóta daginn sem hann verður sextugur. „Það verður kannski fíllinn,“ sagði Páll vongóður. „Eigum við ekki að reikna með því að það verði klukkan þrjú?“ Páll Reynisson veiðimaður og María Björk Ásbjarnardóttir vinkona hans við leirbukk (nyala) sem verður til sýnis á Veiðisafninu líkt og önnur dýr sem veidd voru í ferðinni. Páll með strút sem hann veiddi með skammbyssu. Strúturinn verður settur upp í fullri stærð. Ljósmynd/María Björk Ásbjarnardóttir ’ Karldýr sem ekki eru lengur í blóma lífsins státa oft af stærstu hornunum eða tönnunum og eru því eftirsótt þeirra vegna. Við að fella þau komast yngri og frískari dýr að. Páll skaut krókodíl á 28 metra færi. Krókodíllinn verður settur upp í fullri stærð. Ljósmynd/María Björk Ásbjarn

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.