SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Page 48

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Page 48
48 7. febrúar 2010 Í slenskan er, eins og öll tungumál, rík af orðum. Að opna orðabók er eins og komast í ómetanlegan fjársjóð – en rétt eins og fjársjóðir verða engum til gagns ef þeir gleymast undir gömlu viðargólfi, mega orð ekki daga uppi í bókum. Við auðgum og dýpkum tjáningu okkar með því að nota flest þeirra sem oftast. Mörg orðanna eru ævaforn og slípuð af alda- langri notkun, sum hverfa hljóðlega úr málinu vegna breyttra lífshátta en önnur eru spriklandi fersk þó að óvíst sé um langlífi þeirra. Öll ganga þau hins vegar í endurnýjun lífdaga þegar þau spreyta sig í nýju samhengi í mæltu máli eða riti. Sumar orðabækur geyma orð sem hljóta að úreldast, eins og slangur, en þær góðu fréttir bárust í vikunni að nú væru tveir ungir menn að efna til nýrrar slangurorðabókar á netinu enda þarf hver kynslóð að eiga sína. Það kemur á óvart hve orðaforði ís- lenskra fornsagna, eins og Íslend- ingasagna, er lítill og hve mjög orða- sjóðurinn þyngist þegar skáldskaparmálinu er bætt í. Skáldin höfðu ástríðu fyrir orðum. List drótt- kvæðanna fólst í ríku myndmáli, margbreytilegu orðfæri og sífelldri ný- breytni í kenningasmíð. Orðasmíðin var skáldunum auðvitað til skemmt- unar og yndisauka en hún end- urspeglar einnig þankagang þeirra og hugarheim. Í Þulum sem varðveittar eru með Skáldskaparmálum Snorra Eddu er beitt alkunnri aðferð minn- islistarinnar, að festa fróðleik eins og orðaromsur í minni í bundnu máli. Þetta gerum við enn. Þulurnar geyma lista yfir samheiti eða heiti eins og þau eru kölluð í skáldskaparfræði, aragrúa nafnorða yfir svo til sama fyrirbærið: sverð, spjót, hræfugla, eyjar, fiska og svo mætti lengi telja. Þessir listar vekja aðdáun einmitt vegna þess að af þeim geislar brennandi áhugi á orðum og þvermóðskulegt viðnám gegn allri kyrrstöðu. Það er gaman að kenna börnum endalausar þulur og láta þau búa til nýjar. Leyfa þeim að ríma, hugsa um fjölbreytni orðanna, íhuga hvernig ólíkt hljómfall breytir blæbrigðum málsins og hvernig örlítil viðskeyti umturna merkingunni. Ungir krakkar hafa unun af orðaleikjum og leynd- ardómum tungunnar enda sprettur hér fram eðlislæg þörf þeirra fyrir að tjá sig. Við öðlumst ekki leikni í tungu- málinu eða þjálfun í tjáningu nema með æfingu og þá ekki aðeins með því að vanda framsetningu, heldur með því að ræða saman og skrifa um allt milli himins og jarðar. Jafnvel þó að fæst okkar séu skáld eða orðasmiðir langar mig að nota tækifærið til að hvetja alla til að nota eitt nýtt orð á hverjum degi eða jafnvel eitt nýtt í hverri viku. Lesa má nýjan orðapistil vikulega á heimasíðu Stofn- unar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (www.arnastofnun.is). Lyftum upp hálfgleymdu lýsingarorði, sögn eða nafnorði sem sokkið hefur djúpt ofan í orðasjóðinn og leyfum því að leika aftur á tungunni. Ég er viss um að við verðum öll þreytt á því að heyra sömu orðin hrjóta aftur og aftur af munni okkar, þegar við vitum að svo mörg snjöll eintök eru geymd í orða- forðanum. Slík tilbreytni í máli er ekki aðeins leikur að orðum og skreytni heldur þroskar fjölbreytni í tungutaki hugsun okkar og nákvæmni í tjáningu, eins og Hrafnhildur Ragnarsdóttir pró- fessor lýsti svo vel í útvarpsviðtali við Pál Skúlason og Ævar Kjartansson fyrir réttum hálfum mánuði (hlustið á ruv.is). Og um leið njótum við unaðar orðanna. Unaður orðanna ’ Ég er viss um að við verðum öll þreytt á því að heyra sömu orðin hrjóta aftur og aftur af munni okkar, þegar við vitum að svo mörg snjöll eintök eru geymd í orða- forðanum. Ungir krakkar hafa unun af orðaleikjum og leyndardómum tungunnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tungutak Guðrún Nordal gnordal@hi.is M yndefnið minnir á dóm- kirkjur, þarna birtast miklar hvelfingar, og í þeim súlur og glæsilegt birtuspil. „Þegar menn byggja musteri og skrautrými þá hafa þeir oft hátt til lofts og láta súlur bera rýmið uppi. Svo leikur ljósið um salinn,“ segir Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari. Við erum að ræða um myndirnar á sýningu hans, Heimild um horfinn tíma, sem er opnuð nú um helgina í Arinstofu Listasafns ASÍ. Á ljósmyndunum eru samt engar hefðbundnar kirkjur eða musteri. Frá árinu 1993 hefur Guðmundur af og til skriðið með stóra blaðfilmuvél inn í af- lagða lýsis- og olíutanka og tekið þar þessar tignarlegu svarthvítu myndir. Á sýningunni birtist úrval myndanna. „Þetta eru rými, arkitektúr í sínu hreinasta formi. Ljós, rými og yfirborð,“ segir Guðmundur þegar ég spyr hann um myndefnið. „Hér áður voru þetta hrein praktísk rými, með klárt nota- gildi, ýmist úr stáli eða steypu.“ Í steyptu tönk- unum eru margar súlur og sums staðar grindur sem hituðu vökvann, en í stáltönkunum draga hnoð myndir í veggina. Öll smáatriði sjást ofurvel þar sem Guðmundur notast við 8x10 tommu blaðfilmu sem leynir engu. „Þessir olíutankar eru margir svo veigalitlir að ein súla heldur þakinu uppi. Þeir eru eins og plastpoki, ganga sundur eða saman eftir því hvort þeir eru tómir eða fullir,“ segir Guðmundur. Hann hefur leitað þessa tanka uppi og hefur séð suma þeirra hverfa eftir að hann tók myndir innan í þeim. „Stált- ankur sem ég myndaði í er farinn, ég held hann hafi fokið um koll. Búið er að taka hlið úr öðrum og koma þar fyrir fiskeldi.“ Á árunum 1968 til 1971 lærði Guð- mundur ljósmyndun hjá hinum kunna Uppljómaðar hvelfingar úr stáli og steypu Eitt sinn var olía eða lýsi geymt í tönkunum sem hafa á síðustu árum orðið Guðmundi Ingólfssyni ljósmyndara að myndefni. Í Arinstofu Listasafns ASÍ sýnir hann nú úrval glæsilegra mynda innan úr þessum stóru mannvirkjum. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Guðmundur Ingólfsson Lesbók Nígeríski rithöfundurinn og Nóbels- verðlaunahafinn Wole Soyinka er þekktur fyrir einarða afstöðu í pólitík og eins fyrir að vera ófeiminn við að láta skoðanir sínar í ljós. Mörgum Bretum þótti þó nóg um þegar Soyinka lét þau orð falla að Bret- land væri rotþró íslamskrar öfgamennsku. Þessi yfirlýsing Wole Soyinka er svar hans við fréttum af því að Nígería hafi ver- ið sett á lista yfir lönd sem fóstra hryðju- verkastarfsemi, en skemmst er að minn- ast þess að ungur nígerískur maður, Umar Farouk Abdulmutallab, reyndi að sprengja farþegaþotu vestur í Bandaríkjunum á jóla- dag. Soyinka benti á að ungi maðurinn hefði fengið sína innrætingu í trúarskóla í Bret- landi og lagði til að Bretland yrði sett á listann í stað Nígeríu, því þar væri ein helsta upp- spretta múslímskra öfga- manna nú um stundir og trúarskólar þeirrar gerðar myndu til að mynda aldr- ei fá að blómstra vest- anhafs með sama móti og gerist á Bretlands- eyjum. Auk þessa kenndi Soyinka dauðadómi eða fatwa Ayatollah Khomeini yfir Salman Rushdie vegna Söngva Satans um það trúarofstæki sem glímt væri við í dag: „Upphafið var þegar [Khomeini] tók sér vald lífs og dauða yfir rithöfundi. Það voru vatnaskil milli kenn- ingalegs ofbeldis og líkamlegs ofbeldis.“ arnim@mbl.is Segir Bretland vera rotþró Wole Soyinka

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.