SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Side 49

SunnudagsMogginn - 07.02.2010, Side 49
7. febrúar 2010 49 Regnbogi Þegar ég græt gráta himnarnir með og þú kemur sem regnbogi til að minna mig á að birtan er ávallt nærri. Raddir Sólin vermir krossana kyssir steinana gælir við sum- arblómin. Örlítill blær leikur sér í snögg- klipptu grasinu kitlar fölnandi kransa. Ómur frá umferð í grennd. Leggirðu eyra upp að moldinni heyrir þú hvíslandi raddir. Ljóðin eru úr nýútkominni ljóðabók höfundar, Að jörðu. Tvö ljóð Ása Marin ljósmyndara og kennimanni Otto Stein- ert í Essen í Þýskalandi. Hann starfaði einnig sem aðstoðarmaður Steinerts um tíma. Hann hefur rekið ljósmyndast- údíóið Ímynd síðan 1972 og tekið ljós- myndir af ýmsum toga. Undanfarin ár hefur hann skrásett byggingar í og við Reykjavík og hefur einnig myndað landslag á mörkum náttúru og hins manngerða. Hann hefur um langt árabil verið einn fremsti ljósmyndari þjóð- arinnar. Á ljósmyndunum í Listasafni ASÍ opnast innviðir mannvirkja sem margir hafa fyrir augunum alla daga. „Þessi hlið á þeim er fólki ekki beint kunnugleg, enda er nokkuð mál að komast inn í tankana. Það heldur fólki frá, ekki síst þegar vatn er í þeim. Þá þarf að vera í stígvélum,“ segir Guð- mundur. „Ég veit um einn ljósmyndara, kunningja minn erlendan, sem myndaði í tanki í Djúpuvík sem ég hafði þegar myndað. Hann var svolítið kindarlegur þegar hann sýndi mér myndirnar, það var eins og hann hefði hnuplað ein- hverju frá mér,“ segir hann og hlær. „Höllu konunni minni var ekki sama í haust þegar ég fór inn í tank á Hjalteyri, því þá var hnédjúpt vatn í honum. Hún hélt það gæti eitthvað komið fyrir, en ég hefði í mesta lagi blotnað og orðið drullugur.“ Guðmundur lýsir hverja mynd í tvær til fjórar mínútur. Þá tekur filman inn birtuspilið og öll smáatriðin, og ljós- myndarinn segir það oft heillandi upp- lifun að vera innan í þessum víðu og miklu rýmum. „Þarna stendur maður og horfir á allt breytast ef birtan úti breyt- ist. Ljósið kemur oft inn um eitt eða tvö göt og ef ský dregur fyrir sólu breytist allt. Þessir tankar eru svipað fyrirbæri og Pantheon-hofið í Rómarborg. Þar er eitt gat á þakinu sem lýsir upp salinn. Birtan er stöðugt að breytast, því stefna ljóssins tekur sífelldri breytingu. Þegar ský dregur fyrir sólu hverfur þessi eini harði geisli sem féll inn um gatið.“ Þannig að þessir lýsis- og olíu- tankar eru íslensk Pantheon? „Það má segja það,“ svarar Guð- mundur og hlær. ’ Hann var svolítið kindarlegur þegar hann sýndi mér myndirnar, það var eins og hann hefði hnuplað ein- hverju frá mér. Gamall svartolíutankur. Ljósmynd frá árinu 2001. Guðmundur segir að þessi tankur sé nú horfinn. Rokkarinn og ljóðskáldið Patti Smith hefur sent frá sér ævisögu; minningar sem hún kallar Just Kids. Hún beinir þar einkum sjónum að þroskaárum sínum í listinni, og samverunni með unnustanum í eina tíð, Robert Mapple- thorpe, sem varð einn kunnasti ljósmyndari samtíma síns; alræmdur og dáður fyrir hómóerótískar ljósmyndir. Titill bókarinnar vísar til þeirra á framabrautinni. Gagnrýnendur vestanhafs hafa borið lof á Just Kids. Í The New York Times skrifar Tom Carson að þetta sé besta frásögn af stemningunni í listalífinu í New York á síðari hluta sjöunda áratugarins og fyrri hluta þess áttunda sem nokkur þátttakandi í þeirri senu hafi sett á prent. Smith og Mapplethorpe einsettu sér að slá í gegn og tókst það báðum. Hann kom út úr skápnum og tók saman við sýningarstjórann og safnarann Sam Wagstaff en ekki dró úr vináttunni við það. Smith lýsir þessum tíma á hisp- urslausan og á tíðum heillandi hátt, að sögn gagnrýn- enda. Patti Smith skrifar um mótunarárin Patti Smith lýsir stemningunni í New York.

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.