SunnudagsMogginn - 04.04.2010, Síða 2
2 4. apríl 2010
4-9 Vikuspeglar
Oft er etið egg á páskum, Veldi Google, bréf Jóhanns Jónssonar
skálds og fyllir Own Goal skarð Waynes Rooneys?
27 Stafrænir frumbyggjar
Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi, fór um
landið og kynnti hugmyndir sínar um nýsköpun á landsbyggðinni.
28 Reyndi að halda Eastwood-lúkk-
inu
Ragnar Axelsson rifjar upp söguna á bak við myndina af Ronald Reag-
an og Mikhail Gorbachev í Höfða.
32 Bak við tjöldin í Aachen-óperunni
Hrólfur Sæmundsson gerir það gott í óperuheiminum í Þýskalandi.
42 Kvikmyndir
Allt um páskamyndir sjónvarpsstöðvanna.
43 Súkkulaði út
um allan skrokk
Stigið í vænginn með Kristínu Heiðu.
44 Tónlist
David Byrne með sönglagasafn um Imeldu Marcos.
Lesbók
48 Hátíð allra listgreina
Farið yfir dagskrá Listahátíðar í Reykjavík í vor en hátíðin fagnar fer-
tugsafmæli sínu um þessar mundir.
52 Englar og menn
Fyrst voru það bækur um galdra, þá komu bækur um vampírur og nú
virðist röðin komin að englum.
36
Efnisyfirlit
Forsíðumyndina tók Nick Haddow af leikonunni Emmu Thompson. Hvít Musl-
in-blússa: Chanel. Delft Porcelain-hálsmen: Wunderkind. Stílisti og förðun:
Fraggle Jury. Hár: James Brown. © 2010 Universal Studios.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudags-
moggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Jónsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Hólmfríður Gísladóttir, Ingveldur Geirs-
dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristján Jónsson, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir , Skapti Hallgrímsson, Ylfa Kristín K. Árnadóttir.
40
Augnablikið
Þ
að standa nokkrir ferðbúnir fjallajeppar á
hlaðinu við Sólheimahjáleigu. Til stendur
að fara á Mýrdalsjökul að fylgjast með
eldgosinu á Fimmvörðuhálsi. Í því rennir
lítill blæjujeppi í hlað.
„Það var einmitt hérna sem ég lenti í rosalegu,“
segir Ómar Ragnarsson og stígur út úr jeppanum.
Hann er með bindi, í Nokia-stígvélum og með six-
pensara, sem hann breiðir yfir eyrun.
Og hann haltrar. Hann fótbrotnaði nýverið og
sagan segir að hann hafi átt eftir hálfan mánuð í
gifsi þegar eldgosið braust út. Er hann heyrði af því
fór hann upp á spítala og lét taka gifsið af sér,
þannig að hann kæmist að gosinu.
Það gefst ekki tími til að hlusta á söguna, því
hersingin heldur af stað – Ómar á blæjujeppanum.
„Ég á annan betri bíl, en hann eyðir svo miklu.“
Það er sjón að sjá litla jeppann skauta yfir snjóinn,
helmingi léttari en stóru trukkarnir. „Ómar getur
aldrei tekið farþega – það er svo mikið drasl í bíln-
um,“ segir Ragnar Axelsson ljósmyndari og hlær.
Fallegt er að horfa yfir Vestmannaeyjar af Mýr-
dalsjökli. Árni Johnsen fær ekki orða bundist: „Það
eru hlunnindi að sjá heila heimsálfu blasa við.“
Hann situr í framsætinu, en Ragnar aftast, og þeir
skiptast á um að segja sögur hvor af öðrum.
Benedikt Bragason er við stýrið og bölvar jeppa,
sem ekur utanvega og ekki 50 sm slóð ofan á. „Það
er nóg af vitleysingum að þvælast,“ segir Breki
Árnason, sem lendir á forsíðu daginn eftir. „Já,
síðasta fíflið er ekki mætt,“ segir Ragnar.
Þegar jeppinn spólar í þurrum snjónum í brekk-
unni fer Benedikt út til að hleypa úr dekkjunum.
„Það er bara ferðin sem dugar í þetta helvíti,“ segir
hann og stígur aftur upp í bílinn. Í þeim orðum
siglir Ómar fram úr.
Það gengur á ýmsu. Í mestu látunum fer hosa í
túrbínunni. „Nú er ég eins og gamall kall með
staf,“ kvartar Benedikt. En áfram skröltir hann þó.
Annað en segja má um Econoline sem er fastur
uppi á jökli, eftir að millikassinn fór.
Heiðskírt. Og stórkostleg fjallasýn að fjallabaki.
Stjörnubjart. Eldtungurnar teygja sig upp í him-
inhvelfinguna. Logn. En ellefu stiga frost bítur
fljótt. Ekki er hægt að taka vettlinga lengi af sér í
einu og fljótlega er blaðamaður kominn í tvöfalt lag
af ullarsokkum. Svo förum við að hraunfossinum
niður í Hrunagil. Þar stendur Ómar á brúninni og
myndar. Gifsið í Reykjavík. Það kemur bólga í
hraunið, eins og rofnað hafi haft. Tilkomumikið
þegar stórir hnullungar skoppa niður hlíðina.
Það rökkvar á gónhæðinni við gosstöðvarnar
sjálfar. Ólýsanleg stemmning. Drunurnar í eldgos-
inu hverfa næstum því í vélardyni frá þyrlum,
flugvélum, jeppum og snjósleðum.
Og hvílík ljósasýning!
„Það er ekkert mál að lenda hérna,“ segir Ragn-
ar. Blaðamaður hristir hausinn, en Árni tekur und-
ir: „Grjóthart hérna.“
Nánast óslitin keðja bílljósa niður af jökli um
nóttina. Svartklæddur maður birtist í bílljósunum.
Hann er í stórhættu innan um spólandi bryndreka.
Nú þarf endurskinsvesti uppi á jökli.
pebl@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Hérna lenti ég í rosalegu
9.-10. apríl
Hin frábæra hljómsveit Hjaltalín efnir til tónleika næstkomandi föstu-
dags- og laugardagskvöld. Sveitin spilaði á dögunum á afmælistónleikum
Páls Óskars á Nasa við mikinn fögnuð viðstaddra og stendur í ströngu,
því í maí stendur til að gefa út aðra plötu þeirra, Terminal, í Evrópu. Tón-
leikarnir hefjast kl. 22 bæði kvöldin og miðar verða seldir við dyrnar.
Hjaltalín spilar á Rósenberg
Við mælum með…
9. apríl
Kl. 20 verða settir stórtónleikar á
Nasa þar sem 6
helstu rokkbönd Ís-
lands stíga á stokk í
boði Localice og hins
virta tónlistartímarits
Kerrang. Meðal þeirra verður
hljómsveitin Sign sem kemur fram
í fyrsta skipti í rúmlega ár, en tón-
leikunum verður netvarpað í Bret-
landi á heimasíðu Kerrang.
10.-11. apríl
Á lokatónleikum
Kirkjulistahátíðar
verður flutt stórverkið
Þýsk sálumessa eftir
Brahms. Sópransöngkonan Birg-
itte Christensen og barítónsöngv-
arinn Andreas Schmidt syngja með
Mótettukórnum og 50 manna
hljómsveit. Tónleikarnir hefjast kl.
17 báða dagana.
Gleðilega páska
Grísalundir
, erlendar1559k
r.
kg
verð áður 2
598
40%afsláttur