SunnudagsMogginn - 04.04.2010, Blaðsíða 47
4. apríl 2010 47
LÁRÉTT
1. Steikir brá með áverka (10)
4. Ekki nýtur sjór er mattur. (8)
8. Með Loft ræ og sting að lokum með sérstöku
tæki. (11)
12. Ærð í kaffi færði undir vatn. (8)
13. Gef unglegri glas mjög óskipulega. (12)
15. Haf fær einfalt yndi út af sársauka. (7)
16. Horfi á hús hjá prestinum. (6)
17. Snjókoma með litlum boltum er lífshættuleg. (9)
19. Stór hæstaréttarlögmaður á al eða eitthvað í þá
áttina. (6)
21. Meitt bak hjá sorgmæddum. (10)
23. Karfa fær mið á banka. (8)
25. Hluti af örgjörva sem gefur okkur sársauka af
stærðfræði. (10)
27. Háð í Íran gefur ekkert til að flækjast fyrir. (6)
28. Var menntaskóli með pumpur sem pumpuðu
hita. (10)
30. Virki sönghóps er útbygging kirkju. (8)
31. Æ, illvígt vegna ómerkilegrar. (8)
32. Dillar sér um gull, ennþá að reyna að finna illa
lyktandi. (9)
33. Grassvörður gerir einhverja erfiða brjálaða. (8)
LÓÐRÉTT
1. Endalok á félagsskap iðnaðarmanna er hvenær
eitthvað er útrunnið. (9)
2. Bruna í bardaga að tilhlaupi. (7)
3. Ég lit rósar sé í plöntu (7)
5. Aumingjar og Nanna fúslega koma í ljós. (7)
6. Meiðsli flytur skapvonda. (9)
7. Er hálfvegis að eyðast að sögn við að skeyta
skapi. (7)
9. Fælir jarm frá því að þvælast í mælitæki. (9)
10. Skamm, sjór flýgur. (7)
11. Gunnar og blaut fá agn í röksemdafærslu. (7)
14. Fullyrða að hafi hitt pláss. (8)
18. Hannes ekki einfaldlega festi vel með höggi
þessa maskínu. (11)
19. Gull, kakí og lóin eru ekki góð fyrir líkamann. (10)
20. Lík var bál í villuljósi. (11)
21. Maskínan sem er stigin framleiðir skófatnaðinn
(9)
22. Gefum hérum gap svona sirka. (3,2,3)
24. Horfnir þurrka út fuglana. (8)
26. Viðloðun afhendir gegn greiðslu dýr. (8)
29. Örlagastund nær að batna. (6)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn með nafni og heim-
ilisfangi ásamt úrlausninni í um-
slagi merktu: Krossgáta
Morgunblaðsins, Hádegismóum 2,
110 Reykjavík. Frestur til að skila
úrlausn krossgátu 4. apríl rennur
út fimmtudaginn 8. apríl. Nafn
vinningshafans birtist í blaðinu 11. apríl. Heppinn
þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafar
krossgátunnar 28. apríl sl. eru Helga og Bryndís
Brynjólfsdætur. Þær hljóta í verðlaun bókina Kirkja
Hafsins eftir Ildefonso Falcones. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
Sagt er að á yngri árum hafi Vasily
Smyslov, sem lést þann 27. mars
sl. 89 ára gamallm, alið með sér
mikinn metnað á sviði óperu-
söngs og jafnvel reynt að komast
að hjá Stóra leikhúsinu í Moskvu,
Bolshoi. En skákin varð ofan á.
Smyslov kvaddi sér hljóðs aðeins
17 ára gamall þegar hann varð
efstur á Skákþingi Moskvu. Um
það leyti var helsta stjarna Sovét-
ríkjanna Mikhael Botvinnik. Sá
varð heimsmeistari árið 1948 í
keppni fimm stórmeistara sem
haldin var eftir að Alexander Alj-
ékín féll frá.
Það átti fyrir Smyslov og Botv-
innik að liggja að halda skákunn-
endum víða um heim spenntum á
sjötta áratugnum. Botvinnik
tefldi lítið á þessum árum en hélt
þeim mun fastar um heimsmeist-
aratitilinn. Eftir sigurinn í áskor-
endamótinu í Zürich 1953 tefldi
Smyslov við Botvinnik í Moskvu
1954. Þeir skildu jafnir, 12:12.
Betur gekk Smyslov í annarri til-
raun og vann hann þá 12 ½ : 9 ½.
Hann varð þá sjöundi heims-
meistarinn. En ríki hans stóð
stutt – í aðeins eitt ár. Botvinnik
hafði laumað inn klásúlu í einvíg-
isskilamála: ef hann tapaði ætti
hann rétt á öðru einvígi.
Í þriðja einvíginu sem fram fór
1958 vann Botvinnik 12 ½ : 10 ½
og endurheimti titilinn. Smyslov
reyndi nokkrum sinnum fyrir sér
eftir það en lengst komst hann í
áskorendakeppninni 1984 þá 63
ára gamall og tefldi hann við
Kasparov um réttinn til að skora á
heimsmeistarann Karpov – en
tapaði.
Smyslov kom þrisvar til Ís-
lands, á Reykjavíkurmótinu 1974
varð hann efstur með 12 vinninga
af 14 mögulegum. Hann virtist
ekkert hafa fyrir hlutunum, sett-
ist framarlega við sviðið eftir að
hafa leikið og virti fyrir sér stöð-
una á sýningarborðinu. Þegar
komið var að honum að leika
studdi hann hönd undir kinn og
lék án átaks.
„Stíllinn minnir helst á fljót
sem streymir lygnt og vatns-
mikið og eirir engu á leið sinni,“
skrifaði Friðrik Ólafsson í tíma-
ritið Skák eftir mótið. Skákir
hans frá þessu móti fóru víða, t.d.
sigrar hans yfir Friðrik Ólafssyni
og Guðmundi Sigurjónssyni.
Næst kom Smyslov árið 1977 og
var aðstoðarmaður Spasskís í
einvíginu við Vlastimil Hort. Þá
tefldi hann á 60 ára afmælismóti
Friðriks árið 1995. Vasily Smyslov
er minnst sem mikils heið-
ursmanns sem jók virðingu
hverrar keppni sem hann tók
þátt í. Ef hann lagði eitthvað til
málanna fannst aðdáendum hans
jafnan eins og mikill spámaður
lyki þar uppi munni.
Af mörgu er að taka þegar
rennt er yfir skákferil Smyslov. Í
London 1983 mætti hann Ung-
verjanum Zoltan Ribli, 30 árum
yngri manni og vann 6 ½ : 4 ½.
Þar blómstruðu taktískir hæfi-
leikar hans. Tveir leikir, 23. Rh5
og 26. d5! setja af stað eftir-
minnilega leikfléttu:
London 1983; 5. skák:
Smyslov – Ribli
Tarrasch vörn
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 d5 4.
Rc3 c5 5. cxd5 Rxd5 6. e3 Rc6 7.
Bd3 Be7 8. O-O O-O 9. a3 exd4
10. exd4 Bf6 11. Dc2 h6 12. Hd1
Db6 13. Bc4 Hd8 14. Re2 Bd7 15.
De4 Rce7 16. Bd3 Ba4 17. Dh7+
Kf8 18. He1 Bb5 19. Bxb5 Dxb5
20. Rg3 Rg6 21. Re5 Rde7 22.
Bxh6 Rxe5
23. Rh5 Rf3+ 24. gxf3 Rf5 25.
Rxf6 Rxh6 26. d5! Dxb2 27.
Dh8+Ke7 28. Hxe6+! fxe6 29.
Dxg7+ Rf7 30. d6+! Hxd6 31.
Rd5+! Hxd5 32. Dxb2 b6 33. Db4+
Kf6 34. He1 Hh8 35. h4 Hhd8 36.
He4 Rd6 37. Dc3+ e5 38. Hxe5!
Hxe5 39. f4 Rf7 40. fxe5+ Ke6 41.
Dc4+
– og Ribli gafst upp.
Helgi Ólafsson | helol@simnet.is
Vasily Smyslov – sjöundi heimsmeistarinn fallinn frá
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang