SunnudagsMogginn - 04.04.2010, Blaðsíða 44
44 4. apríl 2010
Það virðist ekki vera nóg fyrir tónlistarmann-
inn Beck Hansen að dæla út ábreiðuplötum
í stórum stíl þessa dagana, heldur hefur nú
verið tilkynnt að lög eftir hann verða í kvik-
myndinni Scott Pilgram Vs. The World sem
kemur í kvikmyndahús vestanhafs í ágúst.
Nigel Godrich sem unnið hefur með Ra-
diohead og Beck mun sjá um að velja tón-
listina í myndina og munu lög eftir hljóm-
sveitir á borð við Broken Social Scene,
Metric, and Cornelius, hljóma í henni. Með
aðalhlutverki í myndinni fara til dæmis Mich-
ael Cera og Jason Schwartzman.
Beck með tónlist
í nýrri kvikmynd
Tónlistarmaðurinn Beck er með næg járn í
eldinum þessa dagana.
Bankainnistæðan hjá Pete Doherty mun
stækka í sumar samkvæmt the Guardian.
Reuters
Sú saga flýgur nú um tónlistarheiminn að
ólátabelgirnir í hljómsveitinni The Libertines
muni koma aftur saman í sumar og spila á
tónlistarhátíðum á Englandi. Það eru komin
átta ár síðan fyrsta plata sveitarinnar Up the
Bracket kom út og síðan þá hefur ferill henn-
ar verið ansi skrautlegur, eiturlyfjaneysla og
slagsmál komið mikið við sögu, þá sér í lagi
hjá söngvaranum Pete Doherty.
Hátíðirnar sem um ræðir verða í Reading
og Leeds, helgina 27. til 29. ágúst. Og verð-
ur þetta í fyrsta sinn síðan 2004 sem sveitin
kemur saman. Samkvæmt dagblaðinu Gu-
ardian fá þeir félagar um eina og hálfa millj-
ón punda fyrir tónleikana tvenna.
The Libertines koma
saman í sumar
Það voru ekki til margir geisla-
diskar á heimilinu þegar komið
var heim með fyrsta geislaspil-
arann úr fríhöfninni fyrir um 18
árum. Einn diskur var með frá
byrjum og var það Greatest Hits
með ofurhljómsveitinni Queen.
Fáar hljómsveitir hafa sent frá
sér jafnmarga smelli á jafn stuttum tíma
og Queen gerði. Á árunum 1973 til 1981,
þegar Greatest Hits kom út, komst hver
rokksmellurinn á fætur öðrum á topp
vinsældalista í heiminum. Sendu þeir fé-
lagar Freddie Mercury, Brian May, John
Deacon og Roger Taylor frá sér alls tíu
plötur á þessum árum.
Diskurinn var ósjaldan spilaður í gegn á
stóra svarta Sony-spilaranum og oft
sungið með hástöfum. Þessi
endurtekna spilun hefur síðar
gert það að verkum að þegar
hlustað er á diskinn núna þá er
textinn raulaður með í nánast
hverju einasta lagi.
Þegar rennt ef yfir lagalistann
á þessari miklu safnplötu fer
ekki á milli mála að hér er þungavikt á
ferðinni, svoleiðis yfirfull af smellum.
„Another One Bites the Dust,“ „Killer
Queen ,“ „Crazy Little Thing Called Love“
og „Don’t Stop Me Now, “ eru bara nokkr-
ir þeirra smella sem finna má á plötunni og
ekki má gleyma lokalaginu „We Are The
Champions,“ sem er orðið þjóðsöngur sig-
urvegara í íþróttum um allan heim.
Það fór mikið fyrir söngvaranum
Freddie Mercury í laga- og textasmíðum
á plötunni, því af þeim 17 lögum sem
komust á plötuna er Mercury skrifaður
fyrir tíu þeirra. Hin eru eftir þá félaga
Brian May og John Deacon.
Ekki nóg með það að platan var hátt í
500 vikur á metsölulistum í Bretlandi,
heldur er þessi fyrsta safnplata sveit-
arinnar líka söluhæsta safnplata fyrr og
síðar á Bretlandseyjum. Óhætt að segja
að meðlimir Queen hafi í raun verið
konungarnir.
Hvernig getur plata sem byrjar á „Bo-
hemian Rhapsody“ og endar á „We Are
The Champions,“ lögum sem hvert
mannsbarn kann utan að, verið annað
en klassík?
Matthías Árni Ingimarsson
PoppklassíkGreatest Hits – Queen
Mest selda safnplatan og 500 vikur á toppnum
Þ
egar nafn Imeldu Marcos ber á góma
bregst það ekki að allir fara að tala
um skó. Það kemur ekki á óvart í
sjálfu sér því þegar hún hrökklaðist
úr landi með eiginmanni sínum, einræðisherr-
anum Ferdinand Marcos, í ársbyrjun 1986
skildi hún eftir sig 3.000 skópör. Ferdinand er
löngu dauður en Imelda lifir og er enn jafn for-
vitnilegt fyrirbæri og forðum; hvað er það sem
knýr fólk eins og hana áfram? Þetta er spurn-
ing sem ýmsa fýsir að vita svarið við og þar á
meðal tónlistarmanninn David Byrne. Hann lét
sér þó ekki duga að spyrja, því hann hófst
handa um að leita að svari og sú leit endaði sem
söngleikurinn Here Lies Love sem kemur út á
diski á þriðjudaginn.
Here Lies Love er reyndar ekki eiginlegur
söngleikur, heldur söngvasafn sem fjallar um
Imeldu frá ýmsum hliðum. Byrne leitaði til
Norman Cook, eða bara Fatboy Slim, um að
setja leikinn saman, enda vildi hann hafa tón-
listina danskennda, eiginlega hreint diskó eða
því sem næst, því Imelda hafði dálæti á diskói,
var tíður gestur á þeirri frægu búllu Studio54
og setti meira að segja upp diskótek á einu
heimila sinna í New York á áttunda áratugnum
og þar dunaði dansinn þegar Imelda drap þar
niður fæti á innkaupaleiðöngrum sínum.
Þeir Byrne og Fatboy Slim eru ekki þeir einu
sem koma við sögu, heldur kallaði Byrne á ýmsa
söngvara til þess að gefa skífunni sem líflegast
yfirbragð og þannig syngja á henni meðal ann-
arra Florence Welch (Florence and the Mach-
ine), St. Vincent, Tori Amos, Martha Wainw-
right, Nellie McKay, Steve Earle, Cyndi Lauper,
Sharon Jones (Sharon Jones & The Dap Kings),
Santigold (áður Santogold) og Natalie Merchant,
en Byrne syngur sjálfur eitt lag og eitt með öðr-
um.
Heiti skífunnar er fengið frá væntanlegri graf-
skrift eftir Imeldu sem hún valdi sjálf og text-
arnir eru byggðir á tilvitnunum í Imeldu. Hvergi
örlar á gagnrýni í textunum eða framsetningu
þeirra, enda segist Byrne ekki vera að gera
þennan tíma upp: „Mér fannst forvitnileg sú
spurning hvað það væri sem knýr valdamikið
fólk, hvað heldur því gangandi,“ segir hann í
inngangi að skífunni, en henni fylgir ríflega 100
síðna bók.
Annað sem vakti fyrir Byrne, ef marka má
viðtöl sem hann hefur veitt í tilefni af útgáfunni,
er að hann langaði til að búa til söngvasafn sem
styngi í stúf við þann sið nútímamannsins að
tína stök lög af skífum og skeyta ekki um heild-
ina; „því fleiri lög sem maður heyrir í slíkum
lagaflokki, þeim mun meiri dýpt og saga birtist“.
Sönglagasafn um Imeldu Marcos er nýjasta verkefni
David Byrne og Fatboy Slim, en á skífunni er rýnt í
lífssögu Imeldu við svellandi diskótakt.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Byrne og
Marcos
David Byrne er þekktur fyrir að fara
eigin leiðir í músík, en hefur sjald-
an tekið eins sérkennilegan krók.
Imelda Marcos er ríflega áttræð.
Fjölskylda hennar var þokkalega
stæð, þó Imelda hafi síðar haldið
því fram að hún hafi alist upp í
fátækt.
Þegar Marcos-hjónin voru
hrakin úr landi skildi Imelda eftir
sig 3.000 skópör, eins og frægt
varð, en einnig 1.200 gala-kjóla,
35 loðfeldi, 1.500 handtöskur og
500 brjóstahaldara svo fátt eitt sé
nefnt. Fataherbergi hennar var
ríflega 500 fermetrar.
Imelda er enn í fullu fjöri og
hún er meðal annars í framboði
til þings í kosningum á Filipps-
eyjum sem haldnar verða í næsta
mánuði.
Imelda Marcos er enn í fullu fjöri.
Skór, pelsar
og kjólar
Tónlist
Ókrýndur konungur ný-hippanna, tónlist-
armaðurinn Devendra Banhart, hefur neyðst
til að aflýsa tónleikaferðalagi sínu í Banda-
ríkjunum sökum fótbrots. Banhart tilkynnti á
heimasíðu sinni í vikunni að hann hefði slas-
ast á hjólabretti stuttu fyrir tónleika. Ætlaði
hann að reyna allt til að spila á tónleikunum,
jafnvel rúmliggjandi, en læknar hafa ráðið
honum frá því. Banhart mun þó koma fram á
Isle of Wright-hátíðinni í júní og fylgja eftir
síðustu plötu sinni, What We Will Be.
Devandra slakar á baksviðs fyrir tónleika.
Aflýsir tónleikum