SunnudagsMogginn - 04.04.2010, Blaðsíða 30

SunnudagsMogginn - 04.04.2010, Blaðsíða 30
30 4. apríl 2010 N úverandi forsætisráðherra flutti furðuræðu á dögunum. Er raunar nán- ast sama hvar niður er borið, und- arlegar lýsingar á hinni stjórnmálalegu tilveru eru þar um allt. Undarlegast var þó að heyra forsætisráðherrann lýsa ástandi eigin stjórnarmeirihluta. Villuráfandi valhoppandi hjörð var matið á þeim stuðningsmönnum sem stuðst er við til að stjórna landinu. Samanburður sögunnar Sjá menn Ólaf Thors, Bjarna heitinn Benedikts- son eða Ólaf Jóhannesson tala þannig um sitt fólk í stjórnarliði? Sá síðasttaldi var stundum ósáttur við sundurlyndi stjórnarþingmanna vinstri- stjórnar á árunum 1978-1979 enda sprakk sú stjórn ársgömul. En hann var grandvar og gætti sín þótt hann lægi ekki á skoðunum sínum. Her- mann Jónasson virtist í líkastri stöðu árið 1958 og Jóhanna Sigurðardóttir nú. Hann sagði hrein- skilnislega að ekki væri sátt meðal stjórnarliða um nauðsynlegar aðgerðir. Því hlyti hann að segja af sér. Hann tók hagsmuni fólksins í landinu fram yfir sína eigin og síns flokks. Fram- angreindir menn gerðu sér allir grein fyrir því að forsætisráðherraembættið gerir ríkar kröfur um ábyrgð og leiðsögn og þess hlutur hlýtur að vera mestur við lausnir á viðkvæmustu málum á ör- lagatímum. Skiptir þá engu undir hvaða ráðherra málaflokkur er að formi til færður. Nú virðist það flokkast undir fíflskap og spé hvort það er stjórn- arhæfur meirihluti í landinu eða ekki, þegar mestu varðar að festa og forysta sé í fyrirrúmi. Þegar þannig er haldið á málum fýkur allt traust út í veður og vind. En ef einn þáttur getur öllu skipt um þessar mundir þá er það traust. Fundir ráðherra hjá AGS Tveir ráðherrar héldu vestur um haf á fund í Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum, húsbænda okkar og um- sjónarmanna. Þetta voru fjármálaráðherrann og viðskiptaráðherrann. (Sá fyrrnefndi sagði um þann síðarnefnda í vikunni að sá væri kominn á uppsagnarfrest. Hann heyrði það í útvarpinu eins og við hin). En heimkomnir voru tvímenning- arnir brattir. Strauss-Kahn, forstjóri AGS, hefði fullvissað þá félaga um að „endurskoðun“ AGS væri komin á beinu brautina. Það þótti heima- mönnum ekki verra að heyra. En varla höfðu fyr- irmennin lokið sínum huggunarríka boðskap en Kahn sagði þetta sennilega verulega orðum aukið því það vantaði stuðning við „endurskoðunina“ í stjórn AGS. Steingrímur J. var óðara mættur aftur opinmynntur í útvarpið til að segja mönnum að hafa ekki áhyggjur. Þeir félagar hefðu í viðræðum vestra tryggt sér stuðning bæði valdamikilla ríkja og samanlagðan meirihluta í stjórninni og „þá væri hefð fyrir því í AGS að minnihlutinn léti í minnipokann“ í stjórninni. Þarna var sem sagt fengin enn ein „glæsileg“ niðurstaða. Steingrímur þarf ekki nema tvo daga til að smala saman meiri- hluta í stjórn AGS. Það er allt annað að eiga við þetta erlenda kattakyn en þá Brand og Brúsa uppi á Íslandi. Fréttamaður RÚV spurði varlega hvaða þjóðir þetta væru aðallega sem hefðu heitið þeim Steingrími og Gylfa sterkum stuðningi. Það sagð- ist Steingrímur ekki vilja segja honum og sá fréttamaðurinn strax eftir að hafa spurt svona erfiðra spurninga. Hann hefði átt að vita að þetta gætu til dæmis verið sömu þjóðirnar og tryggðu okkur ríflegan meirihluta í kosningum til Örygg- isráðsins í sama mánuði og bankarnir voru að hrynja á Íslandi, sællar minningar. En hvernig skyldi standa á því að ekki má segja frá því hvaða þjóðir hafa heitið Íslandi stuðningi í stjórn AGS? Bréfritara þykir einsýnt að á því sé aðeins ein skýring og hún svo dapurleg að ekki sé ástæða til að ræða hana frekar. Prófessor Johnson gefur einkunnir Enginn þessara atburða er líklegur til að auka trú- verðugleika eða efla traust manna. Paul Johnson er kunnur breskur sagnfræðingur og höfundur margra áhugaverðra bóka. Honum er tamara en flestum öðrum að setja fram sagn- fræðilegan fróðleik eða stjórnmálalegar ádrepur á grípandi hátt. Stíll hans er leikandi og læsilegur, þótt hvergi sé slakað á kröfum um góðan texta. Um miðjan síðasta mánuð skrifaði Paul Johnson grein í tímaritið Forbes, undir heitinu „The Sick- ness of the West.“ Þar segir hann m.a. í lauslegri þýðingu: „Heimurinn stynur nú þungan undan fjallháum skuldum. Samt er það ekki hinn raun- verulegi vandi sem við er að fást. Sagan hefur ítrekað sýnt að skuldir má greiða hratt niður um leið og traust og tiltrú hefur fengist á ný og vilja- sterkir karlar og konur hafa verið sett til verka. En forsenda þess að slíkt geti gerst er að við höf- um traust og trú á leiðtogum okkar. Slíkt traust vantar. Við treystum ekki, og ekki að ástæðulausu, hvorki okkar kjörnu leiðtogum né forystumönnum atvinnulífsins, eðlilegri for- ystusveit hvers þjóðfélags. Í nútímasögu er fátítt að finna slíkt vantraust, sem nú jaðrar við fyr- irlitningu, svo djúpstætt, útbreitt og skiljanlegt sem það er.“ Johnson nefnir helstu leiðtoga vestrænna ríkja til sögunnar sem hann telur dapurlegan hóp gall- aðra miðlungsmanna. Nokkrum þeirra gefur hann sérstakar einkunnir og skefur ekki af. Sjálf- sagt er þar ekki endilega allrar sanngirni gætt. Til Reykjavíkurbréf 02.04.10 Um skörunga og skuldir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.