SunnudagsMogginn - 13.06.2010, Page 9
13. júní 2010 9
G
uðmundur Guð-
bjarnason, formaður
Landssambands sum-
arhúsaeigenda, segir
sambandið hafa miklar áhyggjur
af innbrotum í sumarbústaði
undanfarin misseri. Innbrotin
séu oft harmleikur fyrir þá sem
verða fyrir þeim. „Þetta eru
ekki bara innbrot, eins og fólk
hefur lýst þessu fyrir mér er
þetta svo sóðalegt. Þetta er
okkar kæri reitur og hann er
saurgaður. Það er kannski ekki
bara búið að taka sjónvarps-
tæki eða rest af einhverju
áfengi eða eitthvað slíkt. Það
er aðkoman að þessu,“ segir
Guðmundur.
Ímyndin eyðilögð
Guðmundur segir að fólk viti
jafnvel ekki af því að brotist
hafi verið inn í sumarbústaðina
þess fyrr en það mætir á stað-
inn, þá hugsanlega til þess að
gera sér glaðan dag með ætt-
ingjum og vinum, og kemst þá
að því að einhver eða einhverjir
hafi verið þar innandyra og jafn-
vel í talsverðan tíma. Þetta geti
hæglega svipt fólk mun meiru
en aðeins veraldlegum eigum
þess. „Það er jafnvel búið að
eyðileggja þá hugmynd sem
fólk hafði um þennan stað. Því
finnst hann vera orðinn
óhreinn,“ segir Guðmundur.
Málið mikið rætt
Guðmundur segir að innbrotin
hafi verið rædd á vettvangi
Landssambands sumarhúsaeig-
enda en aðkoma þess að mál-
inu til þessa hafi aðallega falist
í því að upplýsa félagsmenn um
það og viðbrögð við því.
Þannig komi t.a.m. á næst-
unni út árlegt blað sambandsins
sem dreift er til félagsmanna
þar sem finna megi ýmislegt
efni þessu tengt. Fyrst og
fremst sé það einstakra sum-
arhúsafélaga að bregðast við
innbrotunum að öðru leyti.
Endurtekin innbrot
Guðmundur segir að sum-
arbústaðaeigendur hafi verið að
reyna að bregðast við þessari
óværu, t.a.m. með því að koma
upp hliðum og dýrum örygg-
iskerfum. Hann segir að það sé
eins og svona innbrot komi í
bylgjum og séu skipulögð af
einhverjum einstaklingum í
þjóðfélaginu sem virðast end-
urtaka þau aftur og aftur.
„Ef þeim gengur vel í fyrsta
skiptið fara þeir aftur. Þeir láta
ekki eitt skipti duga. Eins og
núna var komið upp um 30-40
innbrot eins hóps. Það er eins
og þeir eiri engu þar til það
bara kemst upp um þá. Þetta er
alveg plága,“ segir Guðmundur.
„Þetta er
plága“
Guðmundur Guðbjarnason
Ásdís segir að miðað við að-
stæður megi segja að þau hafi
verið heppin. Bæði að þau skyldu
endurheimta mest af því sem stol-
ið var en einnig vegna þess í
hversu stuttan tíma þjófarnir hafa
að öllum líkindum verið í bústaðn-
um. Fyrir vikið hafi þau ekki feng-
ið neina óþægindatilfinningu við
að vera í bústaðnum eins og
sennilega hefði verið raunin ef
þjófarnir hefðu verið í honum í
lengri tíma og jafnvel sofið þar. Þá
hafi þau ekki uppgötvað innbrotið
við það að koma í bústaðinn eins
og sjálfsagt ýmsir heldur verið til-
kynnt það af lögreglunni.