SunnudagsMogginn - 13.06.2010, Síða 10
10 13. júní 2010
H
ún kom ekki á óvart fréttin á forsíðu föstudagsblaðs
Morgunblaðsins um að Besti flokkurinn og Sam-
fylkingin hefðu boðið Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur, fráfarandi borgarstjóra, að verða forseti
borgarstjórnar. Þetta hefur reyndar legið í loftinu í heila viku,
eða allar götur frá hinum fíflalega blaðamannafundi á þaki
Æsufellsblokkarinnar, þar sem aðeins var tilkynnt um tvennt,
þ.e. að Besti flokkuinn og Samfylkingin ætluðu að starfa saman
í meirihluta og að Jón Gnarr yrði borgarstjóri og Dagur B. Egg-
ertsson yrði formaður borgarráðs. Engar efnislegar upplýsingar
voru veittar um samstarfið, heldur bara bullað og þvælt og
ekkert af því sem sagt var var einu sinni hið minnsta skemmti-
legt.
Hanna Birna er sá borg-
arfulltrúi sem nýtur lang-
mests trausts og vinsælda
meðal Reykvíkinga og nær
það traust langt út fyrir raðir
Sjálfstæðisflokksins. Hún
lagði til að allir í borg-
arstjórn störfuðu saman og
verkefnum og ábyrgð yrði
deilt út til borgarfulltrúa í
hlutfalli við niðurstöður
kosninganna.
Þessu hefði Jón Gnarr ugg-
laust getað unað, enda fékk
framboð hans 6 borgar-
fulltrúa, 34,7% atkvæða, 1,1
prósentustigi meira en Sjálf-
stæðisflokkurinn, sem var
með 33,6% fylgi og fimm
borgarfulltrúa. Öðru máli
gegnir um Dag og Samfylk-
inguna, sem hefðu séð fram á
takmörkuð áhrif í borgarstjórn ef um samstjórn allra hefði ver-
ið að ræða, með 19,1% fylgi og þrjá borgarfulltrúa.
Ég er ekki í nokkrum vafa um það að það var Jón Gnarr sem
átti hugmyndina að þessu tilboði til Hönnu Birnu og hann hefur
þröngvað Degi og Samfylkingunni til að samþykkja. Ef ekki var
um eitthvert svona útspil að ræða hjá hinum nýja meirihluta,
sem er víst að koma málefnasamingi sínum á koppinn, hefði
verið eðlilegt að tilkynna á fíflafundinum í Æsufelli hver yrði
forseti borgarstjórnar, enda um mun áhrifameiri valdapóst að
ræða í borgarkerfinu en þann sem Dagur fær, formennskuna í
borgarráði.
Líklega hefur Jón Gnarr verið manna fyrstur til þess að átta
sig á því að borgarbúar myndu fá sig mjög fljótt fullsadda á
trúðslátum. Hann hefur ugglaust séð að með því að gera Hönnu
Birnu að forseta borgarstjórnar, væri hann sem oddviti Besta
flokksins að stíga skref í þá átt sem Hanna Birna hafði talað fyrir
um samstarf og sameiginlega ábyrgð. Og nú leita þeir Jón Gnarr
og Dagur B. í smiðju til Sjálfstæðisflokksins, til þess að skreyta
sig með lánsfjöðrum. Ekki eru þeir og þeirra lið það fiðruð, að
slíkar skrautfjaðrir sem Hanna Birna leynist í þeirra röðum.
Þeir vilja húkka sér far á vinsældavagni Hönnu Birnu og er það
alveg skiljanlegt. En þarf ekki fleira að koma til?
Þarf það ekki að liggja ljóst fyrir að tilboðið um forsetastól í
nýrri borgarstjórn sé ekki einskorðað við það eina embætti?
Þurfa Besti flokkurinn og Samfylkingin ekki að stíga skrefinu
lengra og bjóða fulltrúum Sjálfstæðisflokks upp á raunverulegt
samstarf, sem feli það meðal annars í sér að fulltrúar flokkanna
fái formennsku í fagráðum borgarinnar í hlutfalli við kjörfylgi?
Hanna Birna er í þröngri stöðu að segja nei takk, sem væri
ugglaust það svar sem Dagur B. Eggertsson myndi helst vilja
heyra. Hún boðaði samstarf og samábyrgð allra borgarfulltrúa
og það tæki ugglaust ekki langan tíma fyrir andstæðinga henn-
ar í pólitík að útleggja neitun hennar á þann veg að hún hafi
ekki meint nokkurn skapaðan hlut með því sem hún sagði.
Hún væri bara í fýlu af því hún fengi ekki lengur að vera borg-
arstjóri. En vitanlega getur hún ekki heldur sagt já takk, nema
fleira komi til. Hún er oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík og
henni ber að tryggja að Besta flokknum og Samfylkingunni
takist ekki að reka fleyg á milli hennar og annarra borgarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins. Því ber henni að tryggja að því verði
hrint í framkvæmd sem hún boðaði sjálf, að samstarfið verði á
milli allra 15 borgarfulltrúa Reykjavíkurborgar.
Vilja far hjá
Hönnu Birnu
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
’
Hanna Birna er
í þröngri stöðu
að segja nei
takk, sem væri ugg-
laust það svar sem
Dagur B. Eggertsson
myndi helst vilja
heyra.
Hanna Birna Jón Gnarr
Kóalabjarnarungi hangir á
kóalatuskudýri í dýragarðinum í
borginni Duisburg í vesturhluta
Þýskalands. Leikfangabjörninn
er notaður til þess að vigta hinn
enn ónefnda unga sem mældist
215 grömm og er við hesta-
heilsu. Þessi nýjasta stjarna
dýragarðsins fæddist fyrir 215
dögum en kom almenningi í
fyrsta skipti fyrir sjónir á föstu-
dag, dýragarðsgestum til
ómældrar ánægju eflaust.
Veröldin
Vinir
hanga
saman
Silja Úlfarsdóttir er nýbyrjuð
sem íþróttafréttamaður á Stöð
2 og Bylgjunni. Þá vinnur hún
líka við frjálsíþróttaþjálfun
samhliða því en Silja er gömul
frjálsíþróttakempa. Það er nóg
af verkefnum framundan hjá
stétt íþróttafréttamanna þessa
dagana enda heimsmeist-
aramótið í knattspyrnu nýhaf-
ið.
7.00 Vekjaraklukkan
hringdi og ég var viss um að
klukkan mín væri biluð, fannst
ég vera nýlögst á koddann …
Fór fram úr og klæddi mig og
heyrði þá í litla eins árs af-
reksmanninum mínum en
hann var vaknaður líka. Við
klæddum okkur og vöktum
pabbann.
7.30 Lagði af stað í vinnuna
en man eftir að fólk talaði allt-
af um traffíkina á leiðinni úr
Hafnarfirði til Reykjavíkur –
og ég veit bara ekkert hvað
fólk er að tala um?
8.30 Hleyp yfir á Bylgjuna
(hugurinn er svo hægur á
morgnanna – held ég kunni
ekki á klukku svona snemma).
Sagði þjóðinni íþróttafréttir –
handboltalandsliðið tapaði fyr-
ir Dönum daginn áður.
11.15 Hádegisfréttirnar til-
búnar á blaði og ég fer inn með
klipparanum og les inn frétt-
irnar, en Carter Seymore ætlar
að tilkynna í dag hvort hún má
keppa aftur í 800 metrunum
sem kona, en hún hafði verið
send í kynjapróf eftir að hún
varð heimsmeistari í 800 metra
hlaupa í fyrra. Eftir þetta
hentist ég á æfingu í Sporthús-
inu og tók vel á því. Fékk mér
góðan prótíndrykk eftir það.
13.00 Mætt upp í höf-
uðstöðvar KSÍ á blaðamanna-
fund, en þar var tilkynntur
landsliðshópur kvenna fyrir
næstu tvo leiki í undankeppni
HM.
14.00 Settist við tölvuna
ákveðin í að vera tilbúin með
kvöldfréttirnar klukkan fjögur
svo ég gæti æft mig fyrir
kvöldfréttirnar og jafnvel
planað þjálfun næstu daga, en
ég þjálfa á „frídögum“ mínum.
16.00 Oh, kvöldfréttirnar
ekki tilbúnar og blaðamanna-
fundurinn sem ég ætlaði að
fjalla um var blásinn af rétt
fyrir fundinn, ég veit því ekki
hvort Seymore er kona eða
karl ennþá!
18.00 Les inn útvarpsfrétt-
irnar hjá vinum mínum í Ís-
landi síðdegis. Þar ruddist Logi
Bergmann inn og stal athygli
minni þar sem hann vildi ólm-
ur tala um fína þáttinn sinn
HM 442! Eftir þetta hentist ég í
förðun hjá Stínu vinkonu
minni og skellti mér í útsend-
ingargallann, setti hljóðkút í
eyrað og æfði textann minn –
harðákveðin í því að negla
fréttatímann.
18.50 Negldi útsendinguna
(að mér finnst) og fór heim kát
yfir að hafa ekki mismælt mig.
Heima beið mín kvöldmatur,
svo dönsuðum við Sindri minn
við opnunartónleika HM, lék-
um okkur og æfðum hann í að
labba.
21.00 Horfði á HM-þáttinn
og er ánægð með Rögnu Lóu –
gaman að heyra sjónarmið
konu í þessum karlafótbolta-
heimi.
23.00 Búin að undirbúa
næsta dag. Lagðist á koddann
og hef örugglega verið sofnuð
mínútu síðar!
Silja Úlfarsdóttir íþróttafréttakona er önnum kafin enda að þjálfar samhliða fjölmiðlastarfinu.
Dagur í lífi Silju Úlfarsdóttur
Fréttatíminn negldur