SunnudagsMogginn - 13.06.2010, Side 23
13. júní 2010 23
A
ð kvöldi 20. mars og nóttina þar á eftir var mjög skuggsýnt
og lágskýjað. Flestir sem búa á vindasömum syðsta hluta
landsins steinsváfu. Um kl. 22:30 þetta kvöld rifnaði jörð
á Fimmvörðuhálsi, sem tengir tignarlegan Eyjafjallajökul
við enn stærra eldfjall, sjálfa Kötlu.“ Þannig hefst ljósmynda- og
fræðibókin „Eyjafjallajökull: Stórbrotin náttúra“ sem nýlega kom
út. Er hún verk ljósmyndarans Ragnars Th. Sigurðssonar og jarðeðl-
isfræðingsins Ara Trausta Guðmundssonar og spannar hún tímabilið
frá því eldgos hófst á Fimmvörðuhálsi í mars fram til 15. maí.
Ari Trausti segir að ekki sé hægt að fullyrða að eldsumbrotunum
sé lokið þó að Eyjafjallajökull hafi haft hægt um sig undanfarið.
Ástandið núna gæti allt eins verið hlé sem varir í vikur eða mánuði
líkt og í gosinu 1821-23. „Nú er hægt að fylgjast með skjálftavirkni
undir jöklinum en hún hefur verið að fjara út, sem er jákvætt. Þá er
einnig hægt að fylgjast með lágtíðni óróa. Hann er eðlilegur núna
líkt og þegar ekki gýs en það koma toppar, nokkurs konar hóstar,
vegna gas- og gufusprenginga. Það myndi því enginn jarðvís-
indamaður fullyrða að gosinu væru lokið,“ segir Ari Trausti.
Öskufok er vandamál sem hefur verið viðvarandi í kringum gos-
svæðið og hefur nýverið látið á sér kræla í Reykjavík og höfuðborg-
arbúar urðu óþægilegar varir við. Ari Trausti segir að það öskulag
sem liggur í grennd við gossvæðið muni að mestu hverfa ofan í jarð-
veginn eða skolast burt með vatni. Ástandið á stöðum eins og Þórs-
mörk, þar sem þunnt öskulag liggur yfir, muni stórbatna við hressi-
lega rigningu. „Fínasta askan á svæðinu næst jöklinum mun hins
vegar halda áfram að fjúka burt og öskufok verður líklega viðvarandi
vandamál í sumar og jafnvel allt fram á það næsta, öllum til ama og
leiðinda,“ segir Ari Trausti.
Bókina segir hann vera margþætta. Hún gefi gott yfirlit um gosið
frá A til Ö en veiti einnig almennan og áhugaverðan fróðleik. „Hún
fjallar um gosið í Eyjafjallajökli en einnig um eldvirkni almennt og
ekki síður um Kötlu sem mikið er rætt um í samhengi við gos í jökl-
inum.“
kjartan@mbl.is
Hóstandi
eldgos