SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Qupperneq 10
10 5. september 2010
A
rion banki er enn við sama heygarðshornið og dælir
fjármunum í hítina sem kostað hefur okkur lands-
menn stórkostlega í lífskjörum. Þar á ég að sjálfsögðu
við sjötugsafmælisbarn vikunnar, Jóhannes Jónsson,
sem hét Jói í Bónus, allt til síðasta mánudags, og allt hans hyski.
Nú ákveður bankinn að losa sig við Jóhannes og gerir við hann 12
mánaða starfslokasamning, pungar út 90 milljónum króna í ein-
greiðslu, til þess að losna nú við karlinn fyrir fullt og fast, selur
honum á 41 milljón króna bíl, íbúð og sumarhús, sem Höskuldur
H. Ólafsson, nýr bankastjóri Arion banka, sagði hér í Morg-
unblaðinu sl. þriðjudag að væri eðlilegt matsverð á eignunum.
Eðlilegt matsverð að mati hverra? Að mati Jóa sjálfs? Eða var
karlinn bara að kaupa Trab-
ant, kjallaraíbúð og húskofa
fyrir austan? Og meðal ann-
arra orða, hvernig réttlætir
bankastjórinn að Jóhannes fái
tvær milljónir króna á mánuði í
12 mánuði eftir um tíu mánaða
setu sem stjórnarformaður
1998 ehf.? Starfslokasamn-
ingur Jóhannesar nemur því
114 milljónum króna samtals.
Er þetta eðlilegt? Myndu ekki
einhverjir telja að bankinn væri
að kaupa sig dýru verði frá Jó-
hannesi, án þess þó að hafa
nokkra tryggingu fyrir því að
karlinn reyni ekki aftur að eign-
ast Haga? Hvað hefur Jóhannes
greitt í skatt af þeim hlunn-
indum sem hann hefur haft frá
Arion banka í formi þess að hafa
haft afnot af íbúð, sumarhúsi og
bíl í eigu Haga frá því hann tók
við stjórnarformennskunni og
líkast til miklu lengur?
Svo færir Arion banki Jóhannesi á silfurfati Top Shop, Zöru og
All Saints auk helmings eignarhlutar í færeysku verslanakeðj-
unni SMS fyrir 1.237,5 milljónir króna, sem áðurnefndur Hösk-
uldur segir að Jóhannes muni greiða fyrir með peningum. „Ef
hann greiðir ekki með peningum fær hann ekki hlutabréfin.
Þetta eru engin lán frá bankanum. Hann kemur með peningana
einhvers staðar annars staðar frá, ég veit ekki hvaðan,“ sagði
bankastjórinn. Eins og kunnugt er yfirtók Arion banki Haga í
október sl. vegna tugmilljarða skulda félagsins við bankann.
Samkvæmt álagningarskrá frá því í sumar voru framtaldar
eignir Jóhannesar áætlaðar 386 milljónir króna. Er það nema von
að spurning vikunnar meðal fólks hafi einmitt verið þessi: Hvað-
an koma peningarnir?
Er eitthvert samhengi á millli þess að Jóhannes fær að yfirtaka
Top Shop, Zöru og All Saints, að helstu umboð þeirra verslana
eru í eigu viðskiptafélaga Jóns Ásgeirs Jóhannessonar til margra
ára, Philips Green og Kevins Stanford? Opnast kannski með
þessum samningi lítill gluggi fyrir Jóhannes karlinn að flyta illa
fengið fé úr felum á aflandseyjum á nýjan leik inn til landsins,
kannski í skjóli þeirra Stanford og Green?
Hvenær ætla þeir sem eiga að gæta þess og hafa eftirlit með að
fjármagnsflutningar séu lögum samkvæmt, að fara af alvöru í það
sem Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara, lagði ofuráherslu á
þegar hún var fengin til verkefnisins, að rekja slóð peninganna?
Er það ekki einmitt með því sem fyrst verður hægt að varpa
raunverulegu ljósi á það hvert fjármagnið fór?
Vitanlega ætti hið sama að gilda um Sigurð nokkurn Einarsson,
sem var í slíku makalausu sjálfsupphafningar-, sjálfsréttlæt-
ingar-, sjálfsvorkunnar- og hrokaviðtali við Fréttablaðið fyrir
réttri viku, að ég neyddist til þess að lesa það í áföngum. Það
sama á að gilda um alla aðra útrásarvíkinga og bankamenn sem
grunaðir eru um að hafa flutt fjármagn í stórum stíl í skattaskjól
erlendis. Það er lágmarkið að þessir menn, sem hafa með græðgi
sinni, ábyrgðarleysi og subbuskap ráðist eins og hryðjuverka-
menn á lífskjör heillar þjóðar, sem hafði það bara skratti gott
fyrir útrás, skili ránsfeng sínum óskiptum til þjóðarinnar sem
sínu lítilsiglda framlagi til endurreisnar í þessu Guðs volaða
landi. Hvað segið þið, lesendur góðir? Er þetta til of mikils
mælst?!
Og ruglið
heldur áfram
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Höskuldur H.
Ólafsson
Jóhannes
Jónsson
’
Það er lág-
markið að
þessir menn,
sem hafa ráðist eins
og hryðjuverkamenn
á lífskjör heillar
þjóðar, skili ránsfeng
sínum óskiptum til
þjóðarinnar.
7:00 Vakna við að frúin læðist
fram úr og heyri í henni í sturt-
unni. Nýt þess að dorma aðeins
áfram.
7:10 Heyri í litlum fótum
trítla upp á efri hæð. Þriggja ára
dóttir mín komin á ról og þá er
víst mál að vakna.
7:20 Stekk hinn hressasti
fram úr, tek stigann í tveimur
stökkum eða þannig. Ræsi
verðandi unglinginn, þann 11
ára, í leiðinni.
8:10 Nýt þess að hjóla með
dótturina á leikskólann í mildu
og góðu haustveðri.
10:10 Stutt nágrannaspjall
um daginn og veginn áður en ég
legg af stað út í umferðina á leið
niður í dansskóla.
10:30 Mættur á skrifstofu
Dansskóla Jóns Péturs og Köru.
Fæ mér langþráðan kaffibolla og
byrja að grúska í hinum og
þessum málum sem lúta að
stjórn og rekstri dansskóla.
Meðal annars þarf að skipu-
leggja kennslu á landsbyggðinni
sem við reynum að þjóna sem
best, svo þarf að skrá nemendur
í skólann, gera danssalina klára
og annað slíkt. Það er nóg að
gera í undirbúningi fyrir kom-
andi kennsluár.
12:00 Léttur snæðingur á
hlaupum. Í þetta sinn vínber og
Ab-mjólk en finn að mig langar
helst í SS-pylsu með öllu. Læt
það ekki eftir mér því ég verð að
halda áfram að vinna.
15:40 Heyri í konunni minni
og eigum stutt spjall um atburði
dagsins.
16:15 Fer í útréttingar fyrir
dansskólann og vel að sjálfsögðu
versta tíma til þess, því umferð-
in er skelfileg. Enda á því að
þræða hinar ýmsu götur til að
sleppa við helstu bílaraðirnar.
17:15 Undirbý dansæfingu
keppnispara dansskólans. Í
kjölfarið byrja pörin að mæta á
svæðið og innan skamms dunar
dansinn í sal skólans.
19:15 Æfingu lýkur og skelli
mér í að hringja nokkur símtöl
áður en ég held heim.
21:00 Allt komið í ró og
börnin komin upp í rúm og það
yngsta löngu sofnað þegar ég
kem heim. Skelli mér í sturtu og
næ seinnifréttunum og smá
tíma með konunni minni þar
sem heimilismálin eru rædd og
heimsmálin leyst.
23:20 Góða nótt!
Dagur í lífi Jóns Péturs Úlfljótssonar, dansara og danskennara
Morgunblaðið/Golli
Dansinn dunar
Pandabjörninn, einnig kallaður risa-
pandan, er í bráðri útrýmingarhættu af
mannavöldum og talið er að aðeins um
1.500-2.000 pöndur lifi villtar í fjall-
lendi í Kína en um 250 pöndur má finna
í dýragörðum og á verndarsvæðum víða
um heim.
Þessi litli pönduhúnn kom í heiminn í
dýragarðinum í Vín 23. ágúst síðastlið-
inn. Ekki er enn hægt að greina hvers
kyns hann er en hann vegur tveggja
vikna gamall aðeins 200 grömm og er þó
orðinn helmingi þyngri en hann var við
fæðingu. Hann liggur ennþá í boxinu
þar sem hann fæddist á meðan mamm-
an hefur skroppið frá til að finna sér
eitthvað að éta.
Veröldin
Í bráðri út-
rýmingar-
hættu
Litli pandahúnninn liggur og bíður eftir mömmu sinni. Strax má
greina svörtu skellurnar sem einkenna tegundina en enn er
óljóst af hvoru kyninu hann er.
Reuters