SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Blaðsíða 29

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Blaðsíða 29
5. september 2010 29 kjusvín þegar þannig ber undir. Ég g ætti að taka passamynd af Len- m og það væri bara leyndarmál: a og reyndi að færa sig úr röðinni, ara eða hvaða fyrirbrigði ég eig- kvaðandi og setti hann strax í umalfingurinn upp í loftið í átt að annað munnvikið. „Ertu brjál- buxunum. „Þeir taka af þér úrið ef m í köflóttu buxunum öllum lokið, njósnarar, skalf eins og lauf í nn. Sveinn var að missa sig úr itnaði maðurinn æ meira. Í hvert til að leggja áherslu á leynd- armálið. Við innganginn í grafhýsið var blátt bann við myndavélum. Ég faldi hana undir frakkanum. Það sá hana enginn. Það var svolítið skrítið að sjá Lenín liggja þarna á börum í glerbúri frekar lágvaxinn og líta mun betur út en þegar hann var á lífi. Það hefur sennilega verið búið að sparsla hann allan til að gera hann flottari. Ég sneri mér snögglega við inni í grafhýsinu og sagði við Ameríkanann glottandi: „Hann er að missa hárið.“ Ég vissi að það mundi enginn skilja það sem ég sagði hvort sem var nema hann. Ég held að maðurinn hafi end- anlega orðið vatnslaus af hræðslu og strunsaði út eins hratt og hann komst. Ég var nú eiginlega með smámóral yfir þessu öllu á þessari stundu, haga mér yfirleitt aldrei svona, en honum var nær að vera með þessa endalausu stæla og hótanir. Við gengum frá grafhýsinu og horfðum á eftir manninum í köflóttu bux- unum strunsa niður götuna og framhjá litlu barni sem spilaði á harm- onikku í göturennunni. Hann leit ekki á barnið, það var eins og litla stúlk- an væri ekki til. Við komum að barninu, sem hefur ekki verið eldra en fimm til sex ára. Augun voru brostin. Því var kalt og barnið reyndi að spila á harmonikkuna með köldum litlum fingrum í von um að einhver gæfi smápening fyrir mat. Það er fátt eins átakanlegt og lítið barn sem er kalt og svangt, líður illa og kvíðir framtíðinni. Hjartað nánast stöðvaðist og ómurinn úr hljóðfærinu undirstrikaði andrúmsloftið á götunni. Inni í grafhýsinu lá Lenín, sem átti stóran þátt í að búa til kerfi sem kom þessu litla barni í þá stöðu sem það var í eða foreldrum þess, og framhjá strunsaði ríkur maður í köflóttum buxum sem tímdi ekki að gefa því fyrir mat. Hún var ein og afskiptalaus á milli þessara tveggja and- stæðu póla. Mórallinn yfir því að hafa strítt þessum manni í köflóttu buxunum hvarf eins og dögg fyrir sólu þegar hann gekk framhjá litlu stelpunni. Við Sveinn tæmdum alla vasa og gáfum henni alla peningana sem við vorum með á okkur. Við borðuðum bara óætið á hótelinu og í flugvélinni á leiðinni heim, það varð að duga. Ég hef aldrei framkallað þessa mynd áður og því hefur hún ekki birst fyrr, en hún hefur alltaf setið í huga mér til umhugsunar um hvað heim- urinn er í raun grimmur. Kannski breytist aldrei neitt, það er öllum ein- hvern veginn alveg sama um allt og alla, hugsa bara um sjálfa sig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.