SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Blaðsíða 11
5. september 2010 11
Hattar gegna margvíslegu hlutverki. Þeir
eru skjól gagnvart veðri og vindum og þeir
eru tískuyfirlýsing. Höfuðfatnaður getur
líka veitt annars konar skjól en það sem
varðar hitastig því hann skýlir eiganda
sínum líka andlega, til dæmis getur stór
hetta veitt ákveðna verndandi þæginda-
tilfinningu.
Við ákveðin tækifæri er ómissandi að
nota hatt eins og á Ascot-veðreiðunum, í
brúðkaupum í sumum löndum og fyrir
nokkrum áratugum varð að bera hatt við
öll hátíðleg tækifæri og á sunnudögum.
Stundum þykir það alls ekki við hæfi að
bera hatt eins og við matarborðið og svo
ættu karlmenn að muna eftir því að taka
ofan fyrir dömunum.
Fallegur hattur getur lífgað upp á gaml-
an klæðnað og er gaman prófa sig áfram í
þeim efnum. Einnig getur barðastór hatt-
ur veitt gott skjól fyrir haustrigningunni,
svo eitthvað sé nefnt.
Fatahönnuðir hafa alltaf gaman af því að
leika sér með hattformið og í vetur er hægt
að nota ýmsar útgáfur af höfuðfatnaði.
Meðfylgjandi myndir eru allar frá Par-
ísarhönnuðum og sýna komandi tísku.
ingarun@mbl.is
Hlýtt á toppnum
Hátískuklæðnaður frá Jean Paul Gaultier.
Dýr eða veiðimaður? Hönnun Jean-
Charles de Castelbajac.
Þessi frá Gaultier er tilvalinn til
notkunar í fínar veislur.
Reuters
Afslappað frá japanska hönn-
uðinum Tsumori Chisato.
Líflegt frá Chisato, eitthvað fyrir
þá yngri og skapandi.
•
•
•
•
•
•
•
•