SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Blaðsíða 25

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Blaðsíða 25
5. september 2010 25 unnið mikið í öðrum verkefnum. Söngvarar hafa viljað fara með mér til útlanda af því ég er ekki bara hár- greiðslumaður heldur líka förðunarmeistari. Ég hef farið nokkrum sinnum með söngvurum á Júróvisjón, Einari Ágústi, Birgittu, Jónsa, Selmu og Eiríki Hauks- syni. Allir halda að við séum þarna á fylliríi á kostnað ríkisins. Það er ekki þannig, þetta er mikil vinna og miklar æfingar en það er samt gaman. En keppnin er alltaf að verða umfangsmeiri. Ég hætti að fara með á Júróvisjón þegar þetta fór að vera hálfur mánuður í útilegu. Ég hafði ekki efni á því.“ Hvaða kúnnar eru mestu vinir þínir? „Það er erfitt fyrir mig að gera upp á milli þessa fólks. Ég á svo margar góðar vinkonur. Bára „bleika“ Sigurjónsdóttir var mikil vinkona mín, stórkostleg kona sem kenndi mér margt. Ég var bara barn þegar ég byrjaði að greiða henni. Við urðum gríðarlega miklir mátar og ég erfði eftir hana fallegan stól sem ég held mikið upp á. Þegar maður talar reglulega við fólk í mörg ár, eins og ég hef gert, þá kynnist maður því mjög vel. Sumir viðskiptavinir koma vikulega, flestir á sex vikna fresti. Þessi nána vinátta er mjög sérstök, bæði er þetta sterkt trúnaðarsamband og kært vinasamband. Ég hitti þetta fólk jafnvel oftar en nána ættingja enda lít ég á marga viðskiptavini sem fjölskyldu mína. Ef ég fer í frí í tvær vikur kem ég til baka og segi við sjálfan mig: Mikið er gott að vera kominn aftur í rútínuna og hitta allt þetta dásamlega fólk.“ Stóra ástin Þú ert hommi, var erfitt að koma út úr skápnum á sínum tíma? „Það var eiginlega litið svo á að ég hefði meiri rétt en aðrir til að vera hommi af því ég var í hárgreiðslu- námi. Fólk sagði: Æ, hann er í hárgreiðslunni. Og þeg- ar ég var spurður í hvaða skóla ég væri og ég svaraði Iðnskólanum var viðhorfið oft: Æ, hann er sennilega með lesblindu, athyglisbrest eða eitthvað svoleiðis, allavega hlýtur eitthvað að vera að honum. Ég fann ekkert fyrir því að ég hefði verið í skápnum eða að ég hefði komið út úr skápnum. Fjölskyldan vissi ekki að ég væri hommi fyrr en ég byrjaði að vera með Daníel sem ég bý með í dag. Fjölskyldan tók sambandi okkar mjög vel, það voru kannski einhver aukaslög hér og þar og hjartaflökt í einn eða tvo daga, en svo var það búið. Fjölskylda Daníels er algjörlega yndisleg og það er mín líka. Ef fólk sér að maður er hamingju- samur þá skipta svona hlutir engu máli.“ Hvernig kynntust þið Daníel? „Ég var að vinna hjá Simba vini mínum hjá Jóa og félögum og Simbi réð Daníel í vinnu. Ástin bankaði fljótlega upp á. Núna vinnur Daníel með mér í fyr- irtækinu. Við erum líkir en samt ólíkir. Við höfum áhuga á svipuðum málum en hann er algjört nátt- úrubarn, gefinn fyrir útveru, meðan ég kann af- skaplega vel við mig á Jómfrúnni með rauðvínsglas og smurbrauð. Við höfum verið saman í átta ár og okkar sambúð hefur verið mjög farsæl. Það er alltof mikið um að fólk hlaupi úr einu sambandi í annað, eins og ekkert sé. Það er ekki mikil ást í þannig samböndum.“ Er Daníel stóra ástin í lífi þínu? „Það var eiginlega ekki neinn áður en ég kynntist honum. Ég var mjög upptekinn af sjálfum mér og langaði alltaf í eitthvað sem ég fékk ekki. En svo kom Daníel. Þá kynntist ég því hversu mikill munur er á því að vera ástfanginn og vera spenntur fyrir ein- hverjum. Það er alveg gjörólíkt. Ég er reiðubúinn að ganga í gegnum eld og brennistein til að viðhalda þeirri tilfinningu sem við Daníel berum hvor til ann- ars.“ Langar ykkur til að eiga börn? „Já, okkur langar að eiga börn. Við erum svo heppn- ir að búa í yndislegu þjóðfélagi þar sem stjórnvöld hafa komið því áleiðis að samkynhneigðir megi ættleiða en það vill svo til að ekkert land vill ættleiða til samkyn- hneigðra. Þannig að fara verður alls kyns krókaleiðir. En við myndum taka barni opnum örmum.“ Þú virðist vera mjög glaðsinna og áhyggjulaus, er það rétt mynd af þér? „Ég er svo heppinn að vinna innan um fólk og tala við mjög marga. Sumir hafa það miklu verra en ég, margir eru miklu glaðlyndari en ég, margir hafa meiri ábyrgðartilfinningu og aðrir eru kærulausari en ég. Það góða við þetta er að maður tekur hverjum eins og hann er og það hvarflar ekki að manni að dæma nokkurn mann. Ef ég er dapur einn daginn get ég alltaf talað við viðskiptavininn og á eftir líður mér betur og sömuleið- is get ég hjálpað öðrum með því að tala við þá. Mér finnst jafn gaman núna og í góðærinu. Allt er orðið miklu mannlegra en áður, en ég er samt ekki að gera lítið úr versnandi fjárhag. Sjálfur hef ég aldrei átt jafnlitla peninga. Ég þarf að hafa fyrir hverri einustu krónu en ég borga skattana mína með bros á vör. Ég veit að ég hef ekkert upp úr því að hafa áhyggjur. En ég er líka að verða miklu andlegri. Það hefur gerst ósjálfrátt. Ég veit að ef allir færu eftir boðorðunum tíu þá væri ekkert að. Þá væri líka miklu skemmtilegra að lifa, þótt það sé gaman að lifa. Ég trúi því líka að ef maður kemur fram við aðra eins og maður vill að komið sé fram við mann sjálfan þá verði lífið yndislegt.“ Morgunblaðið/Ernir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.