SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Síða 12

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Síða 12
12 5. september 2010 Sunnudagur Margrét H. Blöndal hrærir egg við klukknahljóm. Mánudagur Gerður Kristný bað kjötkaupmanninn í Söbeck afsök- unar í gær fyrir að hafa brotið lýs- isflösku við mjólkurkælinn. Hon- um létti stórum þegar hann áttaði sig á því að þetta hefði gerst árið 1973 eða ’74. Þriðjudagur Sigga Víðis Jónsdóttir veit sem fyrr ekki hvort hún er að koma eða fara en var allavega í himnaríki um helgina. Það er við Selvatn og þar eru englar sem borða hum- mus og pönnukökur og þar er líka appelsínugul birta og norðurljós. Fimmtudagur Bragi Guðmundsson Sprarar okru, þessi statsu er uppfræðrur á vitrél í mykri. Fjadnas Okru- veiatn! Föstudagur Vigdís Grímsdóttir er á leið í feisbókarfrí með nesti og nýja skó, arkar þangað sem vindurinn hvín og veggina ber. Fésbók vikunnar flett M argvísleg rök hníga gegn þessu „mikilvæga“ máli í endurreisn íslensks efna- hagslífs: Að banna með öllu auglýsingar á áfengum vörum. Sagan hefur að geyma fjölmörg dæmi þess að vandi áfengisfíkla er ekki leystur með boðum og bönnum heldur er honum einungis sópað undir borð. Sala og neysla áfengis hefur verið lögleg frá því á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar en algjört bann ríkti við sölu og neyslu á bannárunum svoköll- uðu. Það eru þó ekki nema rúm tutt- ugu ár síðan bjórinn var leyfður en hann hafði verið löglegur fyrir 1915, áður en áfengisbannið var sett. Þrátt fyrir þessi boð og bönn var áfeng- isvandinn enn til staðar. Það er betra að umræða um áfengi sé á yfirborðinu og að almenningur sé meðvitaður um áfengar vörur. Áfeng- isneysla verður aldrei stöðvuð og það er mikilvægur liður í því að bæta vín- menningu þjóðarinnar að fólk sé upp- lýst um þær vörur sem standa til boða og hver áhrif þeirra eru m.t.t. styrk- leika og fleiri þátta. Með vitneskju og fróðleik vinnum við bug á áfeng- isvandanum en ekki með fordómum eins og sést í hugmyndum um bann við áfengisauglýsingum. Á undanförnum árum hefur íslensk- um frumkvöðlum í bjórframleiðslu farið fjölgandi og nú er svo komið að fjöldi íslenskra sprotafyrirtækja eru starfandi í greininni. Algjört bann við auglýsingum á áfengi gerir þessum að- ilum gífurlega erfitt fyrir í samkeppni við erlenda framleiðendur sem geta komið skilaboðum sínum áleiðis í kvikmyndum, á íþróttaviðburðum og með öðrum hætti. Þá er vörumerkjum þekktra áfeng- isframleiðenda gert hærra undir höfði með banni sem þessu enda vandséð hvernig nýir aðilar á markaði eiga að skáka þeim sem fyrir eru þegar þeim er meinað að kynna vörur sínar. Til lengri tíma litið er því verið að ýta undir einokun á markaðnum. Bann við auglýsingum er samkeppn- ishamlandi og mun því til lengri tíma hækka áfengisverð enn frekar. Það hefur sýnt sig að bein tenging er á milli sölu á landabruggi og aðgerða sem miða að því að stýra áfengisneyslu almennings. Þegar ríkisvaldið grípur til aðgerða sem hækka áfengisverð er eins og við manninn mælt að sala og neysla á ólöglegu bruggi eykst í kjöl- farið. Með algjöru banni við auglýsingum á áfengi er ríkisvaldið að segja við fólkið í landinu að því sé ekki treystandi að taka ákvarðanir um neysluvenjur sínar út frá eigin forsendum. Þess fyrir utan er þetta mál lagt fram í þeirri trú að það leysi einhvern vanda. Með boðum og bönnum er vandinn hins vegar færður þangað þar sem enginn sér hann. Er markmiðum þeirra sem allt vilja banna þá ef til vill náð? MÓTI Ólafur Örn Nielsen formaður Sam- bands ungra sjálf- stæðismanna Í vikunni barst tilkynning um að herða ætti 20. gr. áfengislaga um auglýs- ingar á áfengi og þykir eflaust mörg- um það löngu tímabært. Án efa þykir þó einhverjum vegið að frelsi til að auglýsa vöru en aðgreina verður áfengi frá öðrum vörum; áfengi er engin venjuleg neysluvara og það ber að umgangast hana sem slíka. Ég geri ráð fyrir að flestir séu sammála um að koma beri í veg fyrir að börn og ungmenni undir áfengiskaupaaldri (20 ára) drekki áfengi og að beita eigi til þess öllum til- tækum ráðum. Ein af þeim leiðum er að draga úr væntingum þeirra til áfengis. Gíf- urleg aukning á markaðssetningu áfengis hefur átt sér stað undanfarin ár. Í auglýs- ingum í prent- og ljósvakamiðlum er gefið til kynna að jákvæður ávinningur sé af því að neyta áfengis. Áfengi er þannig gert að eftirsóttri vöru, með beinum eða óbeinum hætti, án þess að fram komi nokkrar við- varanir um þau skaðlegu áhrif sem neysla áfengis getur haft, sérstaklega á þroskaferil ungs fólks. Í ráðleggingum Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunarinnar, um samræmdar að- gerðir á heimsvísu vegna áfengisneyslu, eru aðildarþjóðir hvattar til aðgerða, sem taldar eru vera árangursríkastar, til að draga úr skaðlegum áhrifum áfengisneyslu. Meðal aðgerða sem metnar eru sem árangursrík- astar, og um leið með minnstum tilkostn- aði, eru aðgerðir sem snerta aðgengi að áfengi og verðlagning. Lykilatriði til að draga úr skaðlegum áhrifum áfengis að sögn helstu sérfræðinga í áfengismálum snúa að stefnumörkun stjórnvalda í áfengismálum, þá er átt við einkasölu áfengis, takmörkun á fjölda sölustaða og sölutíma, lágmarksaldur til áfengiskaupa, lág viðmið vegna leyfilegs magns áfengis í blóði, skimun og stutt inngrip, t.d. heilsu- gæslu, og gott aðgengi að meðferð. Auk ofantalinna aðgerða er takmörkun á markaðssetningu á áfengi, þ.m.t. auglýs- ingar, metin sem góður kostur til að sporna við áfengisneyslu ungs fólks. Í framhaldinu er vert að rifja upp yf- irlýsingu Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar um ungt fólk og áfengi frá árinu 2001. Þar kemur m.a. fram að markmiðið með yfirlýsingunni sé að vernda ungt fólk gegn þrýstingi til að neyta áfengis og að draga úr þeim skaða sem það getur orðið fyrir, beint eða óbeint, af völdum áfengis. Eitt af þeim atriðum sem dregin eru sér- staklega fram er að börn og ungmenni eigi rétt á því að alast upp í umhverfi þar sem þau eru vernduð gegn neikvæðum afleið- ingum áfengis og, eins og hægt er, að vernda þau fyrir áreiti og markaðs- setningu áfengis, s.s. auglýsingum og kostun. Tillaga ríkisstjórnarinnar um hertar aðgerðir gegn áfengisauglýsingum er því í takt við ályktanir Alþjóðaheil- brigðismálastofnunarinnar og til þess fall- in að draga úr eða koma í veg fyrir skaðleg áhrif vegna áfengisneyslu ungmenna. Frá lýðheilsusjónarmiði ber því að styðja við allar þær aðgerðir sem þykja vænlegar til árangurs og hertar aðgerðir gegn áfengisauglýsingum eru mikilvægt skref í rétta átt. MEÐ Rafn M. Jónsson verkefnisstjóri áfengis- og vímu- varna hjá Lýð- heilsustöð Ert þú fylgjandi breytingum á lögum um áfengisauglýsingar?

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.