SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Blaðsíða 30
30 5. september 2010
F
rétt Morgunblaðsins bar yfirskriftina
„Endurskipulögð ríkisstjórn“. Þekkt er
erlendis frá að þegar halla tekur undan
fæti hjá starfandi ríkisstjórn er gjarnan
reynt að gera á henni útlitsbreytingu og halda
því fram að sú vítamínsprauta hafi gert hana
heila heilsu. Það á þó oftast við þegar stjórn
hefur setið óbreytt lengi og þreytu því mjög
tekið að gæta. Núverandi ríkisstjórn hefur að-
eins setið í rúmt ár en áður sat minnihluta-
stjórn sömu flokka í fáeina mánuði. Og það
hafði reyndar verið gerð breyting á henni þegar
Ögmundur lét af störfum og Álfheiður tók sæti
hans. Þannig að þreytumerkin hafa ein-
kennilega fljótt sótt á þessa stjórn. Reyndar er
ekki ofmælt að halda því fram að hún hafi allan
sinn stutta feril haft skýr einkenni svokallaðrar
síþreytu. Enda voru flokksformenn hennar
fyrstu mánuðina í síbylju að tala um hve starf-
samir þeir væru og hve verkefni þeirra væru
mikilfengleg og þar fram eftir götunum. Létu
þau einatt eins og aldrei áður hefði verið unnið
í ríkisstjórn á Íslandi.
Skrítið upplit
Hafi þreytan verið meginástæðan fyrir breyt-
ingunum sem gerðar voru var óneitanlega
skrítið að taka út af þann ráðherrann sem
skemmst hefur setið, svo knattspyrnumál sé
notað. Og svo áfram sé stuðst við það mál og
þekkta reynslu: Menn eru gjarnan teknir út af
þegar þeir hafa fengið gula spjaldið frá dóm-
aranum og ekki þykir hættandi á að leikmað-
urinn nái sér í það rauða. Gylfi Magnússon var
raunar kominn með rauða spjaldið og vitað var
að litlar líkur voru á að hann stæði af sér til-
lögu um vantraust á Alþingi. Af ýmsum ástæð-
um, sem áður hafa verið ræddar, var honum
sýnd sú mildi að fá að hanga inni á þessar fáu
vikur til viðbótar, þótt illa haltur væri, svo
ástæður hvarfs hans úr ráðherrastóli yrðu ekki
eins augljósar. Árni Páll Árnason hefur þegar
fengið svo mörg gul spjöld að varla sést í hann
og samkvæmt knattspyrnureglunum væri hann
kominn í sturtu fyrir langa löngu. Látið er
nægja að veita honum skriflega áminningu um
að hann sé ekki talinn valda hinu ofvaxna vel-
ferðarráðuneyti sem sagt er að verið sé að
stofna til. Kristján Möller er tekinn útaf líka,
þótt hann hafi tiltölulega flekklausan feril, ekki
síst í samanburði við þá sem nefndir voru hér
að framan. Og augljóst er að hann hvorki nýtur
virðingar né velvildar af hálfu formanns
flokksins síns. Ella hefði hann fengið að gegna
sinni stöðu að minnsta kosti fram yfir vígslu
Héðinsfjarðarganga.
Innkoma Ögmundar
Flestir virðast telja að innkoma Ögmundar Jón-
assonar muni styrkja ríkisstjórnina. Það er ekki
fráleit ályktun en væntanlega af öðrum ástæð-
um en þeim sem haldið er á lofti. Sagt er að
með nýskipun hans sé búið að færa andófið úr
opinberri umræðu þinghússins í leyndarsali
gagnsæju ríkisstjórnarinnar. Ögmundur sé
mýldur. Góðlátlega er sagt að villiköttur sé
tekinn inn fyrir heimiliskött og var þá verið að
vísa til Kristjáns Möllers annars vegar og
ógætilegra ummæla Jóhönnu Sigurðardóttur
um samstarfsflokkinn hins vegar. En aðrar at-
hugasemdir eru þó ekki svo góðlátlegar. Þing-
menn Samfylkingar koma fram fleiri en einn og
fleiri en tveir og lýsa því yfir að þeim sé það
þvert um geð að Ögmundur Jónasson komi á
ný inn í ríkisstjórnina. Og formaður Samfylk-
ingarinnar lætur sig hafa að setja upp fyrir þá
þingmenn leikþátt, sem á að gefa þá mynd að
Ögmundur og Jón Bjarnason hafi verið svín-
beygðir eða keyptir. Lýsingar Jóhönnu af þeim
fundum, sem fólust í hinti og hálfkveðnum vís-
um, áttu að ýta undir þetta. Og það vekur at-
hygli að ráðherrarnir tveir láta auðmýkinguna
yfir sig ganga. En þau útgjöld skiluðu engu.
Þau dugðu ekki samfylkingarþingmönnunum.
Þeir töluðu áfram niður til Ögmundar og gáfu
skýrt til kynna að hann ætti ekki þeirra stuðn-
ing vísan. Þeir þurftu ekki á þessu stigi að bæta
í árásirnar á Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra. Því var þó komið ræki-
lega á framfæri við fjölmiðlamenn að Jón færi
um áramótin. Er þar með búið að gera þann
ráðherra að andstuttri önd (lame duck). Það
hefði verið lágmarksjafnræði í því að Stein-
grímur J. hefði fengið yfirlýsingu um að Össur
Skarphéðinsson myndi láta af ósmekklegum
árásum á samráðherra sinn Jón Bjarnason.
Misheppnuð lýtalækning
Það er ekki margt sem bendir til að þessi til-
raun ríkisstjórnarinnar til andlitslyftingar hafi
heppnast vel. Sjálf aðgerðin var fremur klaufa-
leg og ótrúverðug og lýsti ekki af þeirri festu
sem iðulega hefur einkennt slíkar breytingar á
síðustu áratugum. Það er þó ekki þýðing-
armikið. Verra er að innri styrkur ríkisstjórn-
arinnar virðist ekki hafa aukist við þessa að-
gerð sem ekki var vanþörf á og augljóst er að á
sama tíma hefur óánægja aukist innan baklands
hennar en ekki minnkað. Steingrímur J. Sig-
fússon kveður burtrekinn samráðherra sinn
með yfirlýsingum um að sá fari með ósannindi
og síðasta embættisverk hans er afturkallað
með auðmýkjandi hætti. Hann gefur til kynna
að Kristján Möller hafi vísvitandi rangtúlkað
samþykki sitt og forsætisráðherra um aðstöðu
fyrir hollenskt fyrirtæki sem vill vera hér með
óvopnaðar herþotur til æfinga. Vinstri grænir
Reykjavíkurbréf 03.09.10
Ríkisstjórnin endurræst