SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Qupperneq 31

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Qupperneq 31
5. september 2010 31 Morgunblaðið/RAX eru á móti þeirri starfsemi af því að þeir eru af gömlum vana á móti her og sérstaklega í Kefla- vík. Nú er hæpið að halda því fram að í þessu tilviki væri um hernaðarlega starfsemi að ræða. En Vinstri grænir láta sér ekki segjast. Þeir gætu eins verið á móti því að tindátar væru seldir í leikfangabúðum við Laugaveg. Sjálfsagt eru þeir það. Desjavú En svona ágreiningur er reyndar alþekktur í svokölluðum vinstristjórnum. Steingrímur Sig- fússon sagði að Kristján Möller hefði ekki haft pólitískt umboð til sinnar gjörðar. Hinn 2. október 1990 voru fréttir heitar innan úr rík- isstjórninni, sem þá var, og minna mjög á her- þotumálið: „Það er pólitískt útilokað að ráð- herra í þessari ríkisstjórn skrifi undir með fullu pólitísku umboði í þessari viku. Það hlýtur að vera misskilningur að hann sé með í hönd- unum álsamning tilbúinn til undirritunar. Við munum leggja áherslu á að ræða málin og breyta því sem er ekki fullnægjandi að okkar mati, segir Svavar Gestsson við DV. Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra segir að ekki hafi heldur náðst neitt samkomulag um skatta- málin á fundi viðræðunefndar iðnaðar- og fjár- málaráðuneytanna með Atlantsálshópnum í síðustu viku. En Jón Sigurðsson iðnaðarráð- herra segir hins vegar að gott samkomulag sé um skattamálin.“ Svona var það þá og menn vita hvernig það er núna. Þau Jóhanna og Steingrímur sátu í þessari ríkisstjórn sem gat ekki þá fremur en nú komið sér saman um hvað var samþykkt innan hennar og hvað ekki. Þau eru enn að. Og hinir leikendurnir, sem nefndir voru til sög- unnar, Ólafur Ragnar, Svavar Gestsson og Jón Sigurðsson, eru reyndar ekki langt undan. E va Joly hefur haft afgerandi áhrif á það hvernig að rannsókninni á banka- hruninu hefur verið staðið. Óhætt er að fullyrða að embætti sérstaks saksókn- ara hefði orðið mun máttlausara og kraftminna hefði hún ekki sett fram skýra sýn á það hvernig ætti að hátta málum. Nú hefur Joly lýst yfir því að hún ætli í forsetaframboð í Frakklandi árið 2012 undir merkjum nýs stjórnmálaafls, sem hefur látið að sér kveða í Evrópukosningum og héraðsstjórnarkosningum í landinu í fyrra og á þessu ári. Umhverfismál verða lykilatriði í framboði Joly. Hún segir í viðtali í Sunnudagsmogg- anum brýnt að fólk breyti hegðun sinni, en ætlar ekki að vera með hræðsluáróður. Klukkuna vanti ekki fimm mínútur í miðnætti, en engu að síður sé orðið áliðið. Í viðtalinu segir Joly að ekki hafi staðið til að ráðgjafarhlutverk hennar hér á landi myndi „vara að eilífu og störfum mínum mun ljúka með eðlilegum hætti“. Hluti þess var að ræða við 24 nýliða hjá embætti sérstaks saksóknara á föstudag og gera þeim grein fyrir því starfi, sem væri í vændum. Joly vill ekki ræða efnisatriði rannsóknarinnar, en er ánægð með uppbygginguna, þá þekkingu, sem safnað hefur verið saman, og útkomuna þegar margir hugir leggjast á eitt. „Einnig höfum við smám saman áttað okkur á ferli af- brotanna,“ segir hún. „Hlutirnir eru mun skýrari nú en þeir voru í upphafi.“ Hún svarar yfirlýsingum Sigurðar Einarssonar, fyrrverandi stjórnarformanns Kaup- þings, í Fréttablaðinu fyrir viku um óskiljanlegan yfirgang og valdníðslu sérstaks sak- sóknara með því að þessi viðbrögð hafi verið fullkomlega fyrirsjáanleg. Það sé dæmigert í efnahagsbrotamálum að þeir, sem böndin berast að, reyni að „láta rannsakendurna líta út fyrir að vera jafn miklir glæpamenn og þeir sjálfir“ og þeir muni beita öllum brögðum til að reyna að hefta framgang rannsóknarinnar. Joly horfir á efnahagsbrot í alþjóðlegu samhengi. Hún hefur skorið upp herör gegn skattaskjólum, sem hún segir að séu ekkert annað en skálkaskjól. Þar geti spilltir ráða- menn í þriðja heiminum falið peninga sem þeir eiga ekki og glæpamenn komið peningum undan. Í viðtalinu veltir hún fyrir sér valdi peninganna og spyr hvers vegna í ósköpunum einstaklingar, sem hafi farið á tveggja vikna námskeið um verðbréf og geti talið það eitt sér til tekna að geta keyrt flókin tölvuforrit, eigi rétt á yfirgengilegum launum miðað við fólk, sem vinni í þágu almannahagsmuna. Forsetaframbjóðandinn gagnrýnir spillingu í Frakklandi og segir stjórn Nicolas Sarkozy forseta hafa gert sig seka um kynþáttafordóma á vegum ríkisins með því að flytja sígauna úr landi. Joly gagnrýnir hjarðhugsun og hvetur einstaklinginn til dáða. Það geti verið þægilegt að fela sig í skjóli fjöldans, en það sé hættulegt þegar það er á kostnað hugrekk- isins. Hún vill berjast gegn spillingu valdhafanna og það verði aðeins gert með því að bjóða þeim byrginn. „Það hefur verið grafið undan einstaklingsábyrgðinni og við þurfum að snúa aftur til hugrekkisins, hafa sýn á framtíðina og eitthvað til að trúa á,“ segir Eva Joly. Þegar Joly er spurð hvernig hún telji að málflutningi sínum verði tekið þegar út í kosn- ingaslaginn kemur kveðst hún ekki vita það og bætir við: „Og mér er sama.“ Eva Joly ætl- ar greinilega ekki að láta skoðanakannanir ráða því hvað hún segir, heldur fylgja sinni sannfæringu. Gagnrýni hennar fylgir ferskur blær. Áhrif Evu Joly „Segðu frænda þínum að hoppa upp í rassgatið á sér“ Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður þingflokks Samfylkingarinnar, eftir viðtal á Rás tvö þegar hún hélt að útsendingu væri lokið. „Má bílstjórinn skutla mér heim?“ Kristján Möller við Ögmund Jónasson, eftir að hafa afhent honum lyklana að samgöngu- og sveitarstjórnarmálaráðuneytinu. „Ég sat eiginlega bara og grét út í eitt“ Björk Guðmundsdóttir eftir að hún tók við Polar-verðlaununum, sem stundum eru kölluð Nóbels-verðlaun tónlistarinnar. „Það er búið að þurrka út krata og kvennalistakonur. Það eru bara gamlir kommar eftir.“ Viðmælandi Morgunblaðsins um breyting- arnar á ríkisstjórninni. „Ég hef eiginlega ekki vilj- að yfirgefa bygginguna, hún hefur einhvern veginn allt, maður þarf ekki einu sinni að fara út til að njóta náttúrunnar.“ Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari eftir nokkra daga í menningarhúsinu Hofi á Akureyri. „Strákarnir í liðinu væru tilbúnir að hlaupa fyrir steypubíl fyrir þessa stuðningsmenn“ Páll Gíslason, þjálfari Þórs, hrósar áhorf- endum eftir sigur á KA í 1. deildinni í fót- bolta. „Ef ég hefði lagt það til að eftirlaunavandinn yrði leystur með því að þröngva líknardrápi upp á fimmta hvern líf- eyrisþega, þá hefði það ekki valdið mér jafn miklum erf- iðleikum“ Tony Blair fv. forsætis- ráðherra Breta um hve hörð viðbrögð voru við hugmyndum um banni á refaveiðar í landinu. Ummæli vikunnar Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Stofnað 1913 Útgefandi: Óskar Magnússon Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.