SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Side 39

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Side 39
5. september 2010 39 Þ egar rætt er um vín frá Bordeaux er gjarnan talað um hægri bakkann og vinstri bakkann. Árnar Gar- onne og Dordogne skipta héraðinu upp og norður af borginni Bordeaux renna þær saman og mynda fljótið Gir- onde. Hugtökin hægri bakki og vinstri bakki vísa til austur- og vesturbakka Gironde þar sem það rennur til norðurs þótt þekktustu svæði hægri bakkans séu í raun við norðurbakka Garonne. Verulegur munur er á þessum svæðum. Öll vín Bordeaux byggjast á blöndu nokk- urra þrúgna en samsetningin er ólík milli svæða. Á vinstri bakkanum, Médoc- skaganum, er þrúgan Cabernet Sauvignon yfirleitt ríkjandi í vínunum og þar er að finna þekktustu þorpin og frægustu vínhúsin. Á vinstri bakkanum er það aftur á móti Merlot sem er meginþrúgan í vínunum og þrátt fyrir að hallirnar séu ekki jafnglæsi- legar og „hinum megin við ána“ er mörg eftirsóttustu og dýrustu vín Bordeaux að finna á þessum slóðum. Þekktustu þorpin á vinstri bakkanum eru St. Emilion og Pomerol skammt frá borginni Libourne og þar eru flest af bestu vínhúsum vinstri bakkans. Pomerol er minnsta víngerðarsvæði Bordeaux-héraðs í Suðvestur-Frakklandi og vínhús og ekrur eru mun fyrirferðarminni en á öðrum svæðum Bordeaux. Vínekrur þekja einungis um 800 hektara samtals en til samanburðar má nefna að ekki er óal- gengt að vínekrur þekktra vínhúsa á hægri bakkanum séu á annað hundrað hektarar. Þegar kemur að vínunum sjálfum er Pomerol hins vegar með stærstu vínum Bord- eaux. Það fer lítið fyrir Pomerol og þegar ekið er um flatlent svæðið er fátt sem bendir til að maður sé staddur í einu allra besta víngerðarsvæði veraldar. Vínhúsin eða Chat- eau-in eru alla jafna látlaus, jafnvel þau allra bestu, og engar glæsilegar hallir að sjá líkt og t.d. í Médoc. Þetta er bara ósköp venjuleg frönsk sveit. Vínhúsin í Pomerol hafa vissulega sum hver fengið myndarlega andlitslyftingu enda hefur velgengni svæðisins verið gífurleg á síðustu áratugum. Nokkur húsanna hafa löngum verið talin með þeim bestu í Bordeaux og þarna er t.d. Chateau Pétrus, þar sem framleitt er vín sem að jafnaði er það dýrasta í heimi. Þar sem engin opinber flokkun er á vínhúsum líkt og á flestum öðrum svæðum Bordeaux (þekktust er Grand Cru Classé-flokkun Médoc frá 1855) eru öll vínin ein- föld Pomerol. Stóru nöfnin eru hins vegar í huga manna flokkuð með Grand Cru Classé-vínunum og má þar nefna Vieux-Chateau-Certan, Petit-Village, la Conseill- ante, Gazin, l’Evangile, la Fleur Pétrus, Nenin, Clinet og Trotanoy. Það var líka í Pomerol sem „bílskúrsvínahreyfingin“ eða garagiste-vínin spruttu upp, vín í allra hæsta gæðaflokki ræktuð á mjög afmörkuðu og yfirleitt agnarsmáu svæði. Frægast þeirra er Le Pin en nokkur til viðbótar hafa bæst við í Pomerol og St. Emilion, s.s. Valandraud, La Mondotte og Le Dome. Leyndarmálið á bak við Pomerol-vínin er fyrst og fremst einstakur jarðvegurinn. Í efsta lagi hans er mölsandur í bland við sand og leir en þegar neðar dregur tekur við jarðvegur ríkur af járnoxíði sem heimamenn kalla crasse de fer. Vínin eru einstaklega kraftmikil, langlíf en hafa jafnframt mikla mýkt og eru aðgengileg mun fyrr en bestu vín Médoc. Þrátt fyrir að ekki sé langt frá Pomerol til St. Emilion er yfirbragðið allt annað. Í hjarta vínsvæðisins er að finna samnefnt þorp, sem hefur verið miðstöð svæðisins um aldabil og er á heimsminjaskrá UNESCO vegna miðaldabygginga sinna. St. Emilion er eitt helsta víngerðarsvæði Bordeaux en vínin þaðan náðu aldrei sömu alþjóðlegu útbreiðslu og Médoc-vínin þar sem framleiðendur voru fjær höfn- inni í Bordeaux og áttu óhægt með útflutning. Jarðvegurinn í St. Emilion er kalksteinsríkur, ekki síst á hæðunum í kringum sjálft þorpið og vínin þaðan eru ekki eins kraftmikil og vínin frá Pomerol. Á sléttunum fjær þorpinu er jarðvegurinn sendnari og á litlu belti er mikil möl í jarðveginum og þar nýtur Cabernet Sauvignon sín til fulls líkt og á ekrum Chateau Cheval Blanc. Mörg af bestu vínunum koma hins vegar af hæðunum í kringum St. Emilion. Mer- lot-vínin þaðan eru kannski ekki eins mögnuð og tannísk og Médoc-vínin en þau eru þykk og djúp og mun aðgengilegri þótt ung séu fyrir neytandann. Mörg vínhúsanna eru líka farin að beita svipuðum aðferðum og gerðu „bílskúrsvínin“ fræg: Draga verulega úr uppskerumagni til að þjappa ávextinum saman og beita háþróuðum að- ferðum við víngerðina. Bestu St. Emilion-vínin eru stórkostleg og má nefna vín á borð við Troplong- Mondot, Angelus, Figeac, Tertre-Roteboeuf, Canon og Pavie sem dæmi. Í algjörum sérklassa eru svo Ausone og Cheval Blanc. St. Emilion styðst við eigin gæðaflokkun sem var tekin upp árið 1955 og eru á ann- an tug vína flokkuð sem Premier Grand Cru Classé og nokkrir tugir sem Grand Cru Classé. Flokkunin er endurskoðuð reglulega sem hefur valdið hörðum deilum og dómsmálum. Næst: Vinstri bakkinn Konungsríki Merlot-þrúgunnar Vín 101 24.hluti Steingrímur Sigurgeirsson Chateau Petit Village í Pomerol Fyrir 4-6 Innkaupalisti 1 kjúklingur, sirka 1,5 kg 3 meðalstórir laukar 3 stórar gulrætur 3 sellerí-stilkar 1 heill hvítlaukur 1 sítróna 1 rauður chili handfylli af fersku rósmarín (hálfur pakki) handfylli af timían (hálfur pakki) ólívuolía salt og pipar 1 lítri af soði (úr kjúklinga- eða nautaten- ingum) 2 glös af rauðvíni (eða púrtvíni eða sérrýi) 2 msk af hveiti 1 msk rifsberjasulta 1 kg kartöflur 1 kg annað rótargrænmeti (rófur, sætar kartöflur, gulrætur, hvaðeina) Kjúklingurinn Þerrið kjúklinginn með eldhúspappír og nuddið síðan með blöndu af salti, pipar og ólívuolíu. Saxið eina handfylli af krydd- jurtum og chili. Stingið 20 göt á sítrónuna og setjið inn í kjúklinginn ásamt helmingi kryddjurta og chilis. Troðið afganginum var- lega milli skinns og kjöts bringumegin. Saxið grænmetið gróflega og raðið í hrúgu í ofnskúffu eða eldfast mót. Losið geirana frá hvítlauknum. Óþarft er að flysja græn- metið. Setjið kjúklinginn ofan á og látið hann þekja grænmetið að mestu, því það kemur í veg fyrir að það brenni. Forhitið ofn á hæsta hita, setjið kjúkling- inn inn í og lækkið hitann strax í 180 gráður. Eldið í 70 mín. Látið kjúklinginn hvíla undir álpappír og viskustykki í 10 mín. fyrir framreiðslu. Það tryggir safaríkt kjöt. Sósan Meðan kjúklingurinn hvílir sig eftir eldun er hentugt að ráðast til atlögu við sósuna. Takið grænmetið og safann úr kjúklingafat- inu og setjið á pönnu eða pott á eldavél. Stappið vandlega í mauk. Bætið hveiti, sultu og einu glasi af rauðvíni út í. Hellið soðinu saman við. Hrærið vel og látið malla í 10 mín. Ofnbakað rótargrænmeti Saxið kartöflurnar með hýði í 3 sm þykka bita. Setjið þær í stóran pott með köldu vatni og látið suðuna koma upp. Saxið rót- argrænmetið á svipaðan hátt. Fallegt fyrir augað er að skera sumt á langveginn, annað á þverveginn, osfrv. Blandið síðan öllu grænmetinu saman, dreifið ólívuolíu yfir, setjið hálfa lúku af rósmarín og timían á herlegheitin, saltið og piprið. Setjið í ofnskúffu, smellið inn í ofn og bakið á 180 gráðum í 40-50 mín (eða þangað til kartöflurnar eru gullnar og tilbúnar). Dreifið hinum helmingnum af kryddjurtunum yfir við framreiðslu. Meðfram matreiðslunni er við hæfi að sötra 1 glas af góðu rauðvíni, helst ítölsku. Fullkominn sunnudagskjúklingur – með ofnbökuðu rótargrænmeti og sósu Ekki gera hlutina of flókna Þegar Stefán fer utan tekur hann mat- arástina með sér í handfarangri en eitt af því skemmtilegasta sem hann gerir er að ganga um grænmetismarkaði erlendis. „Ég var til dæmis svo heppinn að fá lánaða íbúð hjá vini mínum til að dvelja í þegar ég var úti í London um daginn. Þá gat ég farið út á hverjum degi á mark- aðina og eldað síðan heima og þvílíkt himnaríki í gæðum, úrvali og verði! Matarkarfan á Íslandi er svo ofboðslega dýr og ég held að það hljóti að gera Evr- ópusambandssinna úr hverri manneskju að þurfa að versla hér í matinn,“ segir hann og hlær við. Hann er einnig þekktur í sínum vina- hópi fyrir að setja uppskriftir og hug- leiðingar um matreiðslu sem status- færslur á samskiptasíðuna Facebook og segist hafa gert það alveg frá upphafi. „Það er líka frábært að sjá hvað margir eru farnir að hafa áhuga á eldamennsku. Maður sér það bara á heimasíðum, Fa- cebook og matarbloggum hvað það eru margir að elda og af ótrúlegum metn- aði.“ Stefán segir flotta matreiðslu alls ekki þurfa að vera flókna né tímafreka og hvetur fólk til að vera duglegra að bjóða hvert öðru í mat. „Þetta kom mér kannski mest á óvart þegar ég fór að elda af krafti; hversu einfalt það er. Eftirlætis réttirnir mínir taka til dæmis ekki nema nokkrar mínútur í matreiðslu.“ Og hann segir alls ekki nauðsynlegt að eiga eld- hús fullt af græjum. „Ef ég er með góðan hníf, góða pönnu og gott, þykkt tré- skurðarbretti, þá er ég góður í allt.“

x

SunnudagsMogginn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.