SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Page 45

SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Page 45
5. september 2010 45 Menningarstarf í Kópavogi � �� � �� � �� �� � �� � � ��� � � � � � Lista- og menningarráð Kópavogs auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna/viðburða á sviði menningar og lista í Kópavogi. Einstaklingar, félagasamtök og stofnanir geta sótt um styrki úr sjóðnum. Styrkþegum ber að skila greinargerð um nýtingu styrks eigi síðar en 6 mánuðum eftir úthlutun. Umsóknum skal skilað á þar til gerðum umsóknareyðublöðum fyrir 1. október nk., ásamt fylgiskjölum. Eyðublöðin fást í Þjónustuveri Kópavogsbæjar, Fannborg 2, og á heimasíðu Kópavogs, www.kopavogur.is Lista- og menningaráð Kópavogs veitir styrki til verkefna/viðburða í Kópavogi tvisvar á ári, í nóvember og maí en styrkir til félaga og stofnana í formi rekstrarstyrkja eru veittir einu sinni á ári, í maí. Umsóknum skal skilað til: Lista- og menningarráð Kópavogs Verkefna- og viðburðastyrkir Fannborg 2 200 Kópvogi Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri menningarmála, Linda Udengård í síma 570- 1500 eða linda@kopavogur.is F átt er nokkuð betra en íslenska lambakjötið. Læri og hryggur með Ora grænum, kart- öflum og rabarbarasultu er með því besta sem hægt er að bjóða upp á,“ eins og vinur minn Villi Naglbítur segir iðulega og ég er honum svo sannarlega sam- mála. En nú finnst mér við hæfi þar sem sláturtíðin er hafin og blá- berjatíðin í blóma að gefa ykkur uppskrift af fersku bláberja lambalæri. Ég mæli með því að þið eldið ferskt lamb sem ekki hefur frosið á þessum árstíma og svo náttúrlega að taka slátur sem er fallegur þjóðlegur fjöl- skyldusiður sem aftur er að komast í tísku. Sá siður, alveg eins og laufa- brauðsbaksturinn, er okkur gríðarlega verðmætur þar sem hefðir og sérviska hverrar fjöl- skyldu lærist á milli ættliða, hugsanlega er það líka að gerast í sultugerð sem er aftur að kom- ast í tísku. Mér finnst lamba- kjötið aldrei sóma sér betur en með íslensku hráefni. Nú er lag þar sem við höfum nýuppteknar kartöflur, nýupptekið græn- meti, bláberin og kryddjurt- irnar. Ofnbakað bláberja lambalæri með sætri sósu Athugið að það tekur u.þ.b. 5 klukkustundir að elda þennan rétt. fyrir 4 til 8 manns 1 lambalæri af nýslátruðu, fituhreinsað Marinering á lambalæri 200 g nýtínd bláber ½ dl góð ólífuolía 1 msk. sjávarsalt 2 msk. krydd edik u.þ.b. 4-5% 2 msk. hunang Svartur pipar Aðferð Maukið saman berin, olíuna, edikið og hunangið smakkið til með salti og pipar, hellið yfir lærið og geymið yfir nótt eða frá morgni fram á kvöld í lokuðu íláti í kæli. Gott er að snúa því nokkrum sinnum. 2 gulrætur 1 laukur 2 sellerýstilkar 1,5 l kalt vatn 100 g smjör 3 dl nýtínd bláber 1 dl maltöl Komið lærinu fyrir á grind með ofnskúffu fyrir neðan og setjið neðarlega í 120°C heitan ofninn, bakið í hálfa klukkustund. Skerið lauk, gulrætur og selleri gróft niður. Setjið í skúffuna undir lærinu og eldið með því í 30 mínútur en takið þá út og setjið í pott, hellið vatninu yfir og látið suðuna koma hægt upp. Geymið lærið á meðan, gott er að setja álfilmu yfir. Þegar soðið fer að sjóða er gott að fleyta allri fitu og gruggi sem flýt- ur upp á yfirborðið af strax, lækkið hitann undir soðinu og lát- ið sjóða í hálfa klukkustund við vægan hita. Sigtið soðið í gegnum fínt sigti, þvoið pottinn, setjið soðið aftur í hann ásamt berjunum og maltölinu, látið sjóða í 15-20 mín jafnið ef með þarf smakkið til með salti, pipar, smjöri e.v.t. kjötkraft. Hækkið hitann á ofninum í 175°C og bakið lærið í 15 mínútur áður en það er tekið út og látið standa í 20 mín. áður en það er borið fram með nýsoðnu kartöflusmælki og soðnu eða pönnusteiktu nýju ís- lensku grænmeti. Gott í grendinni Friðrik V Íslenska sauðkindin er ekki aðeins hugguleg skepna á velli, heldur þykir hún einnig ljúf undir tönn. Siðir sem lærast milli kynslóða Golden North Hotel í Skagway í Alaska er einna þekktast fyrir draugagang í herbergjum 14 og 23. Ung kona, sem starfsfólk hótelsins hefur nefnt Mary, gisti þar fyrir mörgum áratugum og beið eftir eiginmanni sínum sem var að grafa eftir gulli. Það fór lítið fyrir Mary og hafði hún hljótt um sig enda mikið af misindismönnum í nágrenninu sem vildu eignast gull án þess að þurfa að grafa eftir því. Áður en eiginmaður Mary sneri aftur lést hún úr lungnabólgu og hefur vofa hennar sést reglulega síðan í herbergi 23. Yfirleitt hefur það verið starfsfólk hótelsins sem hefur séð hana vafra um en einnig hefur hún sést horfa út um gluggann, væntanlega að bíða eftir eiginmanninum. Sumir þeirra sem hafa gist í herbergi 23 á hótelinu hafa kvartað undan því að þeim líði illa í herberginu, eins og þeir séu veik- ir og það sé að fara að líða yfir þá. Aðrir hafa átt í erfiðleikum með að anda, svipuð tilfinning og fólk með lungnabólgu kannast við, og jafnvel vaknað upp um miðja nótt og liðið eins og þeir væru að kafna. Þá er eitthvað undarlegt talið vera á seyði í herbergi 14. Margir hafa séð þar undarlegan ljóshnött sem svífur um herbergið að nóttu til. Hvort Mary hafi eitthvað með það að gera er ekki vitað. Golden North Hotel Gestir þar hafa kvartað yfir draugnum Mary sem bíður eftir eiginmanni sínum. Draugagangur á Golden North Hotel

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.