SunnudagsMogginn - 05.09.2010, Side 49
5. september 2010 49
Á sýningunni Með viljann að
vopni – Endurlit 1970-1980,
eru verk 27 listakvenna.
Þær eru:
Anna Þóra Karlsdóttir,
Ása Ólafsdóttir,
Ásgerður Búadóttir,
Ásta Ólafsdóttir,
Björg Þorsteinsdóttir,
Borghildur Óskarsdóttir,
Edda Jónsdóttir,
Edda Óskarsdóttir,
Elísabet Haraldsdóttir,
G. Erla (Guðrún Erla Geirs
dóttir),
Hildur Hákonardóttir,
Jóhanna Bogadóttir,
Margrét Jónsdóttir,
Messíana Tómasdóttir,
Ragnheiður Jónsdóttir,
Róska (Ragnhildur Ósk
arsdóttir),
Rúna (Guðrún Þorkels
dóttir),
Rúna (Sigrún Guðjónsdóttir),
Rúrí, Sigrún Eldjárn,
Sigrún Sverrisdóttir,
Steinunn Bergsteinsdóttir,
Steinunn Marteinsdóttir,
Svala Sigurleifsdóttir,
Valgerður Bergsdóttir,
Þorbjörg Höskuldsdóttir og
Þorbjörg Þórðardóttir.
lega upp undir hundrað. Þetta er því
ekki endanleg úttekt á listrænni starf-
semi íslenskra kvenna á þessum tíma.
En þetta er sögulegt yfirlit því það er
komin ákveðin tímafjarlægð á myndlist
kvenna frá þessu tímabili og hægt er
að skoða hana af meira hlutleysi en
áður.
Ég hef lagt áherslu á að flestar list-
greinar séu sýnilegar: málverk, vefn-
aður, grafík, ljósmyndir, gjörningar.
Þarna eru til dæmis ljósmyndir af
gjörningi sem Rúrí framdi árið 1974 í
Lækjargötunni, þegar hún braut niður
gylltan Benz með sleggju. Hins vegar
eru engar höggmyndir á sýningunni og
það væri vert að gera höggmyndagerð
kvenna skil á sérstakri sýningu.“
Kvennapólitísk list
Eru verkin á sýningunni áberandi
pólitísk?
„Ég var ekkert sérstaklega að leita
eftir pólitískum verkum. En þar sem
konurnar unnu undir áhrifum frá fem-
ínismanum þá er list þeirra kvenna-
pólitísk. Rauðsokkurnar voru að berj-
ast fyrir afar merkilegum málum þótt
þær væru mjög umdeildar. Í dag teljast
baráttumál þeirra til sjálfsagðra mann-
réttinda. Þessi barátta skilaði sér í list-
sköpun kvenna og inn í hana blandast
oft heimspólitík og barátta gegn her-
stöðinni á Miðnesheiði. Þannig skír-
skotun má til dæmis sjá hjá Hildi Há-
konardóttur í teppinu hennar, Ísland
úr NATÓ.“
Hvernig er staða íslenskra lista-
kvenna í myndlist nútímans?
„Hún er sterk. Í dag eru konur um
75 prósent af listamönnum í SÍM, en
kannski eru þær ekki eins sýnilegar og
þær ættu að vera. Safneign Listasafns
Íslands og Listasafns Reykjavíkur ætti
vitaskuld að endurspegla þetta hlutfall
en gerir það ekki, sem er mjög miður.“
Róska, Lifi frelsið, 1973
Hrafnhildur Schram „Þetta er sögulegt yfirlit því það er komin ákveðin tímafjarlægð á myndlist kvenna frá þessu tímabili og hægt er að skoða hana af meira hlutleysi en áður.“
27
lista-
konur