Morgunblaðið - 05.02.2010, Page 1
F Ö S T U D A G U R 5. F E B R Ú A R 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
29. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
DAGLEGT LÍF
GLÆSILEGAR SÖNGKONUR Á GRAMMY
OG RÓMANTÍSKUSTU ÁFANGASTAÐIRNIR
«MENNINGFÓLK
Geir Ólafsson fer
til Hollywood
6
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
STJÓRNARMENN 365 hf. sem
samþykktu söluna á fjölmiðlahluta
fyrirtækisins til Rauðsólar í nóvem-
ber 2008 gætu borið persónulega
skaðabótaábyrgð vegna gjörnings-
ins. Eftir að 365 hf. seldi fjölmiðla-
hlutann til Rauðsólar var nafni fé-
lagsins breytt í Íslensk afþreying, en
það félag er gjaldþrota í dag. Þeir
sem áttu skuldabréf á 365 hf., sem
var skráð félag, eiga því núna kröfu í
þrotabú Íslenskrar afþreyingar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins kannar Landsvaki, sem átti
skuldabréf á 365 hf., hvort hægt
verði að krefja stjórnarmenn per-
sónulega um skaðabætur fyrir dóm-
stólum.
Þeir sem sátu í stjórninni sem
samþykkti að selja fjölmiðlahluta 365
til Rauðsólar voru þeir Jón Ásgeir
Jóhannesson, Pálmi Haraldsson,
Þorsteinn M. Jónsson, Magnús Ár-
mann og Árni Hauksson. Árni
greiddi atkvæði gegn því að selja fjöl-
miðlahlutann og sagði sig í kjölfarið
úr stjórninni. Árni hafði jafnframt
selt öll sín hlutabréf í 365 í júlí sama
ár, en á þeim tíma var yfirstandandi
yfirtökutilboð til allra hluthafa fé-
lagsins, sem átti að taka af markaði.
Samkvæmt lögum um gjaldþrota-
skipti er þeim skuldara sem getur
ekki staðið skil á skuldbindingum
sínum og sér ekki fram á að geta það í
náinni framtíð skylt að gefa bú sitt
upp til gjaldþrotaskipta. Vegna þess
að stjórn 365 hf. ákvað að selja fjöl-
miðlahlutann eftir að fyrirtækið varð
ógjaldfært, og þar með skylt að gefa
það upp til gjaldþrotaskipta, geta
stjórnarmenn borið persónulega
skaðabótaábyrgð.
Stjórnarmenn 365 líklega | 13
Stjórn 365 gæti borið skaða-
bótaábyrgð vegna sölu
» 365 hf. var ógjaldfært í nóvember 2008
» Skylt var að gefa búið upp til gjaldþrotaskipta
» Einn stjórnarmaður á móti sölunni
MYRKRIÐ gefur smám saman eftir fyrir dagsbirtunni, þótt enn sé langt í
að hún nái undirtökunum. Þess verður sérstaklega vart þegar bjart er, eins
og verið hefur síðustu daga. Þau ský sem slæðast inn á himininn eru falleg
á litinn við sólarlag og dagrenningu. Spáð er svipuðu veðri en þó hægara.
MYRKRIÐ LÆTUR UNDAN SÍGA
Morgunblaðið/RAX
ALLS voru um
2.000 erindi af-
greidd hjá Ráð-
gjafarstofu um
fjármál heim-
ilanna á síðasta
ári. Það er ámóta
mikið og var síð-
ustu þrjú árin
fyrir fall bank-
anna. Brugðist
var við þessu
með fjölgun starfsmanna stofunnar
sem urðu flestir um þrjátíu á síð-
asta ári. Þeir voru sjö fyrir hrun.
„Fólk vill gjarnan fá álit á því
hvort bankinn sé að gera rétt og
hvort þetta sé allt í lagi,“ segir Ásta
S. Helgadóttir, forstöðumaður ráð-
gjafarstofunnar. Hún segir áber-
andi að fólk vantreysti bönkunum
sem ekki sé óeðlilegt miðað við það
sem gerðist með hruni bankakerf-
isins haustið 2008. »6
Skuldararnir vantreysta
bönkunum og vilja ráðgjöf
Ásta S.
Helgadóttir
ÖSSUR Skarp-
héðinsson utan-
ríkisráðherra og
Árni Þór Sig-
urðsson alþingis-
maður segjast
ekki hafa haft
innherjaupplýs-
ingar þegar þeir
seldu stofnfjár-
hluti í SPRON skömmu áður en
fyrirtækið var skráð á markað.
Hagnaður Össurar nam um 30
milljónum króna en hann segist
hafa fengið lán fyrir kaupunum.
Þórarinn V. Þórarinsson hæsta-
réttarlögmaður segir ýmislegt
gruggugt við sölu stofnfjárhluta í
SPRON. Þó nokkrir sem hafi
keypt stofnfjárbréf eftir að ákveð-
ið var á stjórnarfundi SPRON að
skrá félagið á markað, en áður en
lokað var fyrir viðskipti með
stofnfjárbréf, hafi haft samband
við sig vegna gruns um að þeir
hafi keypt bréf stjórnenda og
stjórnarmanna á óeðlilega háu
verði. »12
Hagnaður Össurar af sölu
stofnfjárbréfa 30 milljónir
STJÓRN Arion banka hefur ákveðið að óska
eftir skráningu verslunarfyrirtækisins Haga í
kauphöll og selja hlut sinn í félaginu. Al-
menningi og fjárfestum gefst kostur á að
kaupa hlutabréfin. 15% hlutafjárins eru tekin
frá fyrir núverandi stjórnendur fyrirtækisins,
þar af getur Jóhannes Jónsson stjórnar-
formaður keypt 10%.
„Eftir að hafa vegið og metið kosti og galla
við hinar ýmsu leiðir var það niðurstaðan að
þetta myndi þjóna hagsmunum bankans best,
starfsfólki fyrirtækisins, fyrirtækinu sjálfu
og einnig frekari uppbyggingu hlutabréfa-
markaðar hér á landi,“ segir Finnur Svein-
björnsson bankastjóri. Hann telur þetta far-
sælustu leiðina í þeirri stöðu sem upp var
komin en bankinn eignaðist yfir 95% hluta-
fjár Haga með yfirtöku eignarhaldsfélagsins
1998 ehf. sem skuldar bankanum háar fjár-
hæðir.
Finnur segir ekki ljóst hversu mikið bank-
inn fái upp í skuldir 1998 ehf. við sölu hluta-
bréfanna. „Það fylgir því að fara í opið sölu-
ferli að niðurstaðan er ekki alveg ljós
fyrirfram,“ segir Finnur. Verð hlutabréfanna
hefur ekki verið gefið upp.
Undirbúningur Arion banka að skráningu
Haga í kauphöll og sölu hlutabréfanna hefst
nú þegar. Gangi allt samkvæmt áætlun gerir
bankinn ráð fyrir að ferlinu ljúki fljótlega
upp úr miðju ári.
Ný stjórn verður skipuð í Högum til að
vinna að undirbúningi málsins. Jóhannes
Jónsson, stofnandi Bónuss, verður áfram for-
maður stjórnar. Hann segir í tilkynningu
sem Hagar sendu frá sér í gær að óvissu um
framtíð Haga hafi nú verið eytt og lætur í
ljós þá einlægu ósk sína að nú skapist vinnu-
friður í kringum fyrirtækið.
Arion selur hlutabréf í Högum
Hagar skráðir í kauphöll Jóhannes Jónsson og núverandi stjórnendur fá forkaupsrétt að 15%
hlutabréfanna Ekki ljóst hversu mikið bankinn fær upp í skuldir eignarhaldsfélagsins 1998 ehf.
Hagar skráðir í kauphöllina | 4 Morgunblaðið/Golli
STAÐREYNDIR
»Hagar eru markaðsráðandi fyrir-tæki á matvörumarkaði. Þeir eru
með um 60% markaðshlutdeild á höfuð-
borgarsvæðinu og um 50% á landinu
öllu.
»Auk stórra matvörukeðja rekur fyr-irtækið fjölda tískuverslana í versl-
anamiðstöðvum.