Morgunblaðið - 05.02.2010, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.02.2010, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Enginn á Ís-landi vissiað íslenski forsætisráð- herrann ætlaði að heimsækja ESB. Þó hafði dagsetning fundarins legið fyrir frá því í desember. Fundurinn datt óviljandi inn á heimasíðu Evrópusambands- ins. Þá varð mikið pat. Gegnsæisríkisstjórnin neitaði að gefa upplýsingar um nokk- urn fund. Þegar á var gengið var sagt að um einkaheimsókn væri að ræða. Talsmaður ESB upplýsti á blaðamannafundi að heimsókn íslenska for- sætisráðherrans væri ekki einkaheimsókn, heldur ein- hvers konar óformleg opinber heimsókn. Þá varð aftur mikið pat. Nú hefur utanrík- isráðherrann aðspurður í þinginu fullyrt að heimsókn Jóhönnu Sigurðardóttur sé víst einkaheimsókn. Gott og vel. En af hverju? Hefur ein- hver annar forsætisráðherra farið í einkaheimsókn til Brussel, nema þá sem túristi að skoða kirkjuturna og kaupa súkkulaði? Aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur bætti svo um betur og segir að heimsóknin sé ekki bara einkaheimsókn heldur einnig leyniheimsókn. Er það virki- lega? Af hverju? Er þetta það sem Ísland þarf helst á að halda núna, að gera venjuleg- an fund milli forystumanna landsins og hátt settra útlend- inga að einhverju furðuverki? Það er óhjákvæmilegt að for- sætisráðuneytið gefi taf- arlaust frambærilegar skýr- ingar á öllum þessum ruglanda. Hinar óform- legu skýringar sem hvíslað er að mönnum eru þær að íslenski forsætisráð- herrann vilji með öllum ráðum komast hjá að hitta erlenda fréttamenn. Hefði tekist að halda heimsókninni leyndri eins og að var stefnt þá hefði enginn erlendur blaðamaður frétt neitt. Eftir að Bruss- elskrifræðið missti tilkynn- ingu inn á heimasíðu, sem var síðar kippt út aftur í hasti af óútskýrðum ástæðum, þurfti að bregðast við. Leyniheim- sókninni var breytt í einka- heimsókn, vegna þess að þá er ekki skylt að halda blaða- mannafund. Nú vill þannig til að Ísland þarf að nota hvert tækifæri sem gefst til að koma sjónarmiðum sínum á fram- færi. Þau gefast ekki alltof mörg. Eitt af því fáa sem tryggir íslenskum tals- mönnum athygli er fundur af því tagi sem haldinn var í Brussel. Á þessum tíma brennur sú skylda á sér- hverjum Íslendingi að halda málstað þjóðarinnar fram. Heitast brennur þessi skylda á ráðherrum landsins, og þá einkum þeim ráðherra sem mesta athygli getur fengið stöðu sinnar vegna. Því er þessi uppákoma algjörlega fráleit og með öllu óskiljanleg. Fróðlegt verður að fylgjast með því hvernig alþingismenn muni taka á þessari undarlegu framgöngu íslenskra stjórn- valda. Glutrað niður tæki- færum og það af ráðnum hug } Ekki þetta sem við þurftum helst Það vakti at-hygli að for- sætisráðherrann gaf til kynna í Kastljósi Sjón- varps að Svavar Gestsson hefði ekki ráðið við verkefni sitt sem samningamaður. Vegna þessa urðu nokkrar umræður í þinginu svo sem vonlegt var. Voru þær stillilegar allt þar til Steingrímur J. blandaði sér í þær. Honum var ekki skemmt. Hann skammaði stjórnarandstöðuna í orði en öllum mátti vera ljóst hvert skeytin voru send. Þau voru stíluð á samráðherrann, Jó- hönnu Sigurðardóttur. Gerð- ist Steingrímur æ þungorð- aðri eftir því sem á umræðuna leið. Að lokum lýsti hann þessum atburði sem „mannaveið- um“. Hann frábað sér allar „manna- veiðar“. Þeir, sem fylgst hafa með ferli Steingríms J. Sigfússonar frá því að hann tók við embætti fyrir einu ári geta margvíslegar skoðanir haft á embættisfærslu hans. Þeir vita að fáir eru honum málgefnari, hvort sem er á þingi eða í fjölmiðlum utan þess. Það kæmi ekki á óvart þótt nokkuð góð samstaða gæti náðst um eitt orð sem þessi málglaði ráðherra ætti að forðast að nota. Það er af einhverjum ástæðum þannig að honum fer ekki vel að saka aðra menn um „mannaveið- ar“. Menn undruðust hversu ókyrr Steingrímur varð í þinginu} Mannaveiðar bannaðar Þ að getur stundum verið erfitt að halda svartsýninni í skefjum, einkum á tímum eins og þeim sem við upplifum núna. Það getur ver- ið lýjandi að fylgjast daglega með fréttum af stjórnmálum, efnahagsmálum, at- vinnumálum og öðru því sem aðeins virðist til þess fallið að fella fólk í þunglyndi. Ég er sjálfur gjarn á að verða svartsýni að bráð, enda er ekki margt núna sem vekur bjartsýni. Skattkerfið verður núna flóknara og skattbyrðin þyngri fyrir almenning og fyr- irtæki. Skuldir ríkisins hafa aukist gríðarlega og hallarekstur þess sömuleiðis. Þrátt fyrir þetta virðist lítill vilji til þess að draga nægi- lega úr útgjöldum hins opinbera. Atvinnuleysi er mikið á íslenskan mælikvarða og nú, tæpu einu og hálfu ári eftir hrun, eru enn að koma upp hneykslismál um aðdraganda þess. Eins og áður segir er auðvelt að vera svartsýnn núna. Maður verður þó að vera gagnrýninn á sjálfan sig hvað varðar slíka svartsýni eins og aðra hluti. Málið er að reynslan og kannanir sýna að almenningur er iðulega svartsýnni á ástand hvers tíma og framtíðina en efni standa til, og er ég sjálfur engin undantekning þar á. Í stórkostlegri bók sinni, The Myth of the Rational Vo- ter, skrifar Bryan Caplan meðal annars um ýmsar rang- hugmyndir og fordóma í hagfræði. Ein þeirra eru svokallaðir svartsýnisfordómar, þ.e. áð- urnefnd trú á að staðan sé verri en hún er og að fram- tíðin sé svartari en hún í raun verður. Þegar horft er tuttugu, fimmtíu eða hundrað ár aft- ur í tímann er í raun erfitt að skilja þá sem voru á hverjum tíma sannfærðir um að allt væri á leiðinni í hundana. Þrátt fyrir efna- hagshrun hafa nær allir það miklu betra nú en á nokkrum öðrum tíma Íslandssögunnar. Það kann að vera gömul og klisjukennd saga að telja upp allar þær breytingar sem orðið hafa til góðs á undanförnum hundrað árum. Einfaldir hlutir eins og kæliskápar og frystikistur gera það að verkum að ferskur matur er á færi hvers sem er. Súrmeti er nú aðeins borðað af þeim sem raunverulega finnst það gott. Framfarir í læknavísindum hafa leitt til þess að meðalaldur hefur hækkað, en það sem meira er um vert er að fólk er heilbrigð- ara og heldur heilsunni lengur en áður. Hús á Íslandi eru vel byggð og heilsusamleg, ólíkt þeim híbýlum, sem furðumargir bjuggu í hér á landi um þarsíðustu aldamót. Í bókinni vitnar Caplan í Gregg Easterbrook, sem skrifaði eftirfarandi orð í bókinni The Progress Paradox: „Forfeður okkar, sem unnu sleitulaust og fórnuðu miklu í þeirri von að afkomendur þeirra myndu einhvern dag- inn verða frjálsir, heilbrigðir, vel menntaðir og lifa þægi- legu lífi, gætu farið að örvænta sæju þeir með hve miklu vanþakklæti við höldum því nú fram að við búum ekki við þessi gæði.“ Mikið til í þessu. bjarni@mbl.is Bjarni Ólafsson Pistill Það er hægt að vera of svartsýnn STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Meiri afli og lengri tími til strandveiða FRÉTTASKÝRING Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is J ón Bjarnason sjávarútvegsráðherra kynnti frumvarp til laga um strandveiðar á ríkisstjórn- arfundi á þriðjudag. Þing- flokkar stjórnarinnar hafa samþykkt það. Samkvæmt því verða aflaheim- ildir auknar, veiðitímabilið lengt og strandveiðar verða ekki aðeins bráða- birgðaákvæði í lögum um stjórn fisk- veiða. Strandveiðar með handfæri voru fyrst leyfðar í fyrrasumar og reru fyrstu bátarnir 28. júní eftir að reglu- gerð um veiðarnar hafði verið gefin út 25. júní. Nú verður heimilt að hefja veiðarnar 1. maí og lýkur tímabilinu í lok ágúst. Í fyrra var heimilt að veiða 3.995 tonn af þorski, óslægðum. Bátarnir komu með 3.452 tonn af þorski að landi og 650 tonn af öðrum afla, mest ufsa. Nú verður heimilt að veiða sex þúsund tonn af óslægðum botnfiski, en reiknað er með að þorskur geti orðið um fimm þúsund tonn af þessum afla í stað 3.995 tonna eins og heimildin kvað á um í fyrra, en ufsi og aðrar botnfiskteg- undir um eitt þúsund tonn. Veiðisvæðum verður áfram skipt upp í fjögur hólf og með því að byrja 1. maí ættu möguleikar suðursvæðis að aukast því þar er alla jafna meiri fisk- gengd í maímánuði en þegar kemur fram á sumarið. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að ráðherra hafi reglugerð- arheimild við framkvæmd veiðanna m.a. til að ákveða veiði innan svæða og tímabila. Þannig væri t.d. heimilt að leyfa meiri afla á suðursvæði í upphafi veiðitímabilsins. Eins og áður þurfa veiðimenn að velja svæði í upphafi og geta ekki fært sig eftir það á milli svæða. Meðal breytinga í frumvarpinu er að hver umsækjandi getur aðeins fengið leyfi á eitt skip. Sjómenn geta hætt veiðum í krókakerfinu og haldið til strandveiða, en þeir komast hins vegar ekki til baka aftur í krókakerfið fyrr en að strandveiðitíma loknum. Takmarkanir vegna leigu Nýtt ákvæði er í frumvarpinu þess efnis að sjómenn geta ekki fengið leyfi ef þeir eru búnir að leigja meira frá sér en þeir hafa tekið til sín. Þetta ákvæði kemur hins vegar ekki til framkvæmda fyrr en á næsta ári þar sem talið er að það feli í sér afturvirkni og of langt sé liðið á fiskveiðiárið til að það standist. Samkvæmt ákvæðinu verður gengið frá því um leið og sjó- menn hafa fengið strandveiðileyfi að möguleikar lokist á að þeir geti leigt frá sér kvóta. Í fyrrasumar kvað reglugerð á um að heimilt væri að veiða 800 kíló á hverjum degi, en núna er þessu ákvæði breytt og miðað verður við 650 kíló af þorskígildum. Þetta er gert til að minnka brottkast og hugsað sem hvati til að koma með allan afla að landi. Miðað er við að þrjú kíló af ufsa séu í einu þorskígildiskílói og er reikn- að með að hámarksdagsafli geti verið svipaður og áður. Skylt verður að landa öllum afla í lok veiðiferðar. Loks er samhliða þessu frumvarpi gerð tillaga um breytingu á lögum um veiðieftirlit, sem felur í sér að auk 17.500 króna leyfisgjalds, greiði sjó- menn sérstakt 50 þúsund kr. gjald. Það á að renna beint til löndunarhafna báta sem hafa strandveiðileyfi og er ætlað til að styrkja rekstur þeirra al- mennt. Strandveiðar 2009 Fjöldi veiðileyfa 595 Fjöldi báta með afla 554 Fjöldi löndunardaga 57 Afli samtals 4.106.437 kg Þar af m.a.: Þorskur 3.452.314 kg Ufsi 574.342 kg Gullkarfi 39.774 kg Ýsa 21.455 kg Lýsa 13.294 kg Mestum afla var landað á þessum stöðum síðasta sumar: Höfn Landaður afli (kg) Bolungarvík 219.027 Grímsey 207.551 Patreksfjörður 195.808 Rif 195.247 Ólafsvík 186.692 Dalvík 176.972 Húsavík 168.788 Sandgerði 168.685 Siglufjörður 157.670 Stöðvarfjörður 157.475 Veiða má meira og á lengri tíma en í fyrra samkvæmt frumvarpi um strandveiðar. Skerpt er á ýmsum atriðum og greiða þarf meira fyrir leyfi til strandveiða. TALSVERÐ fríðindi felast í leyfum til strandveiða þar sem þau eru ut- an aflamarks. Samkvæmt tilboðum sem voru á heimasíðum kvótamiðl- ara í vikunni myndi leiga á 50 tonn- um af aflamarki í þorski kosta tæp- lega 14 milljónir króna í stóra kerfinu og 12,3 milljónir í króka- aflamarkskerfinu. Hvort leiguverð á eftir að hækka eða lækka í sumar er ómögulegt að spá fyrir um. Námskeið um meðferð afla Landssamband smábátaeigenda hyggst í samvinnu við Matís skipu- leggja námskeið í meðferð afla fyr- ir strandveiðisjómenn áður en veið- arnar hefjast í vor. Sótt hefur verið um styrk til AVS-sjóðsins til að taka þátt í kostnaði. Fyrirhugað er að þessi námskeið verði haldin víða um land og tilgangur þeirra er að auka gæði aflans. MIKILS VIRÐI ››

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.