Morgunblaðið - 05.02.2010, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.02.2010, Blaðsíða 32
þegar Randi hringdi í hann og bauð honum að troða upp hjá sér með fjölskipaðri hljómsveit í mars næstkomandi. „Það vildi svo skemmtilega til að ég var nýbúinn að ráða mig í spilamennsku fyrir Ís- lendingafélagið í Los Angeles og því gat þetta ekki passað betur,“ segir Geir og bæt- ir við brosandi: „Þetta er mikið skref fyrir mig þó það sé kannski lítið fyrir mann- kynið. Ég hef verið að stúdera þessa tónlist árum saman, og mörg þessara laga eru lög sem ég hef sungið hér heima. Ég þarf samt að leggjast yfir þau að nýju, nánast læra þau upp á nýtt og stúdera líka lög sem ég hef lítið eða ekkert sungið áður, en ég er búin að fá listann yfir þau lög sem þeir vilja að ég syngi og líka upptökur af útsetning- unum. Þetta er mér mjög PÍANÓLEIKARINN Don Randi hefur leikið með grúa tónlistarmanna á ferlinum, þar á meðal þeim Sinatra-feðginum Frank og Nancy, en hann er þó einna þekktastur fyr- ir klúbbinn Baked Potato í Holly- wood vestur í Kaliforníu. Þar hafa fjölmargir fremstu lista- menn Bandaríkjanna komið fram og eins tónlistamenn víða það og í mars bætist Geir okkar Ólafsson í þann hóp, því honum var boðið sérstaklega að koma þar fram 12. mars næstkomandi. Geir segist hafa komist í kynni við Don Randi þegar hann var að reyna að fá Nancy Sinatra hingað til lands fyrir átta árum og svo vel varð þeim til vina að Geir falaðist eftir því að Randi myndi sjá um upptökur á spilamennsku fyrir síðustu plötu hans. Geir segir að þeir Randi hafi oft spjallað saman, en þó hafi það komið honum í opna skjöldu mikilvægt og verður ekki bara mikill heiður heldur líka mjög lærdómsríkt, mikill skóli fyrir mig, að fá að spila með Randi og þeim lista- mönnum sem hann er með í hljómsveitinni hjá sér. Ég hef fylgst með honum vinna áður og veit að það er gríðarleg fagmennska og einbeit- ing í gangi þó það sé létt yfir mönnum,“ segir Geir. Hann segir það ekkert hafa verið rætt hvort af frekara samstarfi verði, en hann býr svo vel að eiga þegar upptökur af nokkrum lögum sem Randi vann fyrir hann og ekki hafa komið út. „Næsta plata verður með klassísku sniði og ég vinn hana með Kristján Jóhannssyni, en ég nota þessi lög frá Randi örugglega einhvern- tímann.“ Þó Geir hafi í nógu að snúast fyrir tón- leikana þar ytra, er hann líka á fullu í spila- mennsku hér heima og þannig verður hann með sérstaka þorradansleiki á Kringlukránni yfir helgina, en þar koma fram meðal annars söngvararnir Egill Ólafsson, Helga Möller, Ótt- ar Felix Hauksson og Ari Jónsson auk Geirs og Furstanna hans. arnim@mbl.is Geir Ólafs heldur til Hollywood Lærdómur Geir Ólafs treður upp í Hollywood. 32 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010  Þriðji Afleggjari Xins 977 fer fram á morgun á Sódóma Reykja- vík. Uppstilling sveita er af dýrara taginu eins og sagt er en rokksveit- irnar kimono, Mammút, Úlpa og Morðingjarnir koma fram. Kimono eru mikið í umræðunni hjá neðanjarðarhundum um þessar mundir en plata þeirra sem út kom fyrir síðustu jól þykir vera mikil snilld. Sömu sögu má segja um Morðingjanna, sem snöruðu og út miklum gæðagrip fyrir hátíðarnar. Mammút er eitt frambærilegasta tónleikaband landsins og hin góða og gegna hafnfirska rokksveit Úlpa sneri aftur á síðasta ári með hina prýðilegu Jahiliya. Miðaverð er að- eins 1000 kall og húsið opnar kl. 23. Mammút, kimono, Úlpa og Morðingjarnir Fólk  Meistari Bubbi Morthens hefur verið duglegur við að skrifa á Fas- bókina að undanförnu, svo við not- um þýðingu Páls Bergþórssonar veðurfræðings á fyrirbærinu. Í gær tilkynnti hann að hann væri radd- laus vegna veirusýkingar og hann yrði því að aflýsa tónleikum í þess- ari viku. Eitthvað þarf nú að láta undan stundum hjá slíkum ham- hleypum greinilega og var hann t.a.m. með sjálfan Ómar Ragn- arsson hjá sér í Færibandinu á mánudaginn, þætti sem best væri lýst sem „kraftmiklum“. Það er vonandi að Bubbi verði orðinn frískur og fjörugur fyrir laug- ardaginn því að þá verður skorið úr um hvort kóngurinn fer út í Evr- óvisjón eður ei. Bubbi með veirusýk- ingu en ber sig vel  Hönnunarmiðstöð Íslands stóð fyrir HönnunarMars í fyrsta skipti í mars 2009. Dagskráin skartaði yfir 130 atriðum um alla borg, sumum litlum – öðrum risastórum og fjöl- sóttum. HönnunarMars er ætlað að vekja athygli á íslenskum hönn- uðum sem hafa verið að sækja mjög í sig veðrið undanfarin ár sem sést á þeirri miklu grósku sem er í ís- lenskri hönnun á Íslandi í dag. Dag- ana 18. – 21. mars 2010 stendur Hönnunarmiðstöðin öðru sinni fyrir HönnunarMars og nú þegar hefur fjöldi erlendra blaðamanna boðað komu sína á HönnunarMars 2010. Þeir íslensku hönnuðir sem áhuga hafa á að vera með, finna allar nauðsynlegar upplýsingar á heima- síðu Hönnunarmiðstöðvar Íslands, www.honnunarmidstod.is HönnunarMars haldin öðru sinni í ár Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÞETTA er ein stærsta fjöl- skylduskemmtun heimsins í dag, a.m.k. Evrópu. Ég hef verið að syngja við sýninguna í fullu starfi nú í um sjö ár og er með þann frábæra titil að vera rödd sýningarinnar, The Voice of Apassionata, og er ákveðið vörumerki hennar,“ segir óp- erusöngkonan Arndís Halla Ásgeirs- dóttir um Apassionata fjölskyldusýn- inguna sem hún starfar við. Apassionata er mikil skrautsýning þar sem hestafólk, dansarar og tón- listarfólk koma saman. „Við erum með hesta í grunninn en þetta er ekki bara hestasýning, heldur líka listasýning. Þetta er sambland af skemmtun og list, með flottri leik- mynd og ljósasýningu, en samt ekki sirkus,“ segir Arndís Halla. Um síðustu helgi var Appasionata sýnt fjórum sinnum í Berlín fyrir um þrjátíuþúsund áhorfendur. Fyrir lokasýninguna á sunnudag var að- standendum sýningarinnar veitt gull- og platínuplata fyrir útgefið efni af sýningunni. Til marks um hve vinsæl og virt þessi sýning er komu á mánudaginn, myndir og greinar um Berlínar-sýninguna og plötuafhend- inguna í yfir tvöþúsund og níuhundr- uð blöðum og tímaritum, allt frá Norðurlöndum til Ítalíu. „Gullplöt- una fengum við fyrir mynddisk af sýningunni í fyrra og platínuplötuna fyrir pakka með mynddisk, með bestu atriðum Apassionata, og geisladiski mínum, Óður, sem ég gaf líka út heima,“ segir Arndís Halla. Gaman að vera út og suður Arndís Halla syngur nokkur lög í hverri sýningu og nú orðið eru þau flest frumsamin. „Ég ræð því svolítið sjálf hvað ég flyt, það er misjafnt eftir árum en ég er bæði með óperuaríur og mína eig- in tónlist. Í sýningunni í ár hef ég bara verið með frumsamið efni. Stundum fæ ég gestasöngvara með mér og undanfarið hefur Maríus Hermann Sverrisson verið við sýn- inguna og sungið með mér.“ Spurð hvort hún verði aldrei leið á þessu flandri svarar Arndís Halla neitandi. „Þetta er gaman og mér finnst ekki leiðinlegt að vera alltaf út og suður. Frá nóvember og fram í maí ár hvert erum við með sýningar um hverja helgi í hinum ýmsum borgum Evrópu. Reyndar verð ég að segja að í apríl er ég oft farin að hlakka til að vera heima hjá mér. Mér finnst þetta meira skapandi vinna en að vera föst við óperuhús, þó það sé líka alltaf gaman að stíga á óperusviðið og ég geri það af og til.“ Apassionata-sýningin hefur hing- að til bara farið um Evrópu en að sögn Arndísar Höllu stefnir allt í það að þau fari í sýningarferðir til Kína og Bandaríkjanna bráðlega. Óður til náttúrunnar Arndís Halla vinnur nú að bók með Emil Þór Sigurðssyni ljósmynd- ara. Bókin á að koma út hér á landi í vor en þýskt forlag hefur tryggt sér dreifingu á henni á alþjóðamarkaði í haust. „Við ætlum að gefa út nokk- urskonar hljóðbók með landslags- myndum. Það verður bæði geisla- diskurinn minn nýi, sem er ekki kominn út heima, og svo mynddiskur með ljósmyndum Emils af íslenskri náttúru og minni tónlist undir. Þetta er óður til náttúrunnar enda fæ ég mikinn innblástur úr íslenskri nátt- úru í mína tónlist. Í Apassionata hef ég alltaf verið pínu að kynna Ísland, það heyrist stundum í laglínunni og eitt lagið í sýningunni núna er mitt lag með ís- lenskum texta. Ég reyni að hafa að minnsta kosti eitt númer á íslensku á ári. Ég hef fengið góð viðbrögð við því, enda mikill áhugi á Íslandi í Þýskalandi,“ segir Arndís Halla. En hvað með íslenska hestinn? „Íslenski hesturinn hefur komið við sögu í sýningunni og á næsta ári er stefnt að því að hafa stórt númer með íslenska hestinum og það verður vonandi aftur Styrmir Árnason sem sér um það.“ Ljósmynd/Emil Þór Sigurðsson Apassionata Atriði með hestum eru aðalsýningaratriði Apassionata þó söngvarar, loftfimleikafólk og dansarar spili líka þar stórt hlutverk. Rödd Apassionata-sýningarinnar  Arndís Halla Ásgeirsdóttir óperusöngkona syngur við eina stærstu fjölskyldu- sýningu heims  Vinnur að bók með Emil Þór Sigurðssyni ljósmyndara Ljósmynd/Emil Þór Sigurðsson Farsæl Arndís Halla Ásgeirsdóttir tók við gull- og platínuplötunum á sunnudaginn. Apassionata er mjög vinsæl fjölskyldusýning.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.