Morgunblaðið - 05.02.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.02.2010, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010 SKÁTAFÉLAGIÐ Vogar og Skátafélagið Hraunbúar hafa gert með sér samkomulag um að endurvekja skátastarf í Vogum. Lögð verður áhersla á barna- og ungmennastarf og verður starf- semin rekin undir merkjum Voga- búa. Samkomulagið stendur út þetta ár. Skátastarf á sér nokkuð langa sögu í Vogunum en hefur legið niðri undanfarin ár. Skátafélagið Hraunbúar munu standa fyrir reglubundnu skáta- starfi auk þess að vera með úti- lífsnámskeið og mun mögulega hafa aðkomu að verkefnum á veg- um Félagsmiðstöðvarinnar Bor- unnar. Róbert Ragnarsson bæj- arstjóri og Guðjón Rúnar Sveinsson félagsforingi undirrit- uðu samkomulagið Skátastarf í Vogum Í DAG, föstudag, kl. 13:00, standa samgönguráðuneytið, Samband ís- lenskra sveitarfélaga og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, fyrir kynningarfundi um nýjar leiðir til að efla sveitarstjórnarstigið, í Du- us-húsum í Reykjanesbæ. Fundurinn er haldinn í tilefni þess að skipuð hefur verið sam- starfsnefnd til að ræða og meta sameiningarkosti fyrir sveitarfélög í hverjum landshluta. Nefndin mun síðan leggja drög að sameining- arkostum fyrir næsta landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga til umræðu og álits. Fundurinn er öllum opinn. Fundur um eflingu sveitarstjórnarstigs FÉLAG einstæðra foreldra hefur ákveðið að úthluta fjórum styrkjum úr námssjóði félagsins fyrir vorönn 2010. Félagið úthlutaði styrkjum til félagsmanna á árunum 1996-2005. Sjóðurinn hefur síðan þá legið niðri vegna fjárskorts, auk þess sem bankahrunið hafði þær afleiðingar að ekki reyndist unnt að úthluta á tilsettum tíma. Umsóknareyðublöð eru á netinu, www.fef.is, en einnig er hægt að nálgast eyðublöð á skrifstofu fé- lagsins að Vesturgötu 5, 101 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar. Styrkir í boði ÍSLANDSMÓT í fagsmökkun á kaffi verður haldið í fimmta sinn í húsnæði Kaffismiðju Ís- lands, Kárastíg 1, sunnudaginn 7. febrúar kl. 13. Íslandsmótið í fagsmökkun á kaffi gengur út á að greina á milli mismunandi tegunda í svonefndri „þríhyrnings- smökkun“, þar sem tveir af þremur kaffibollum eru af sömu tegund en sá þriðji er öðruvísi. Markmið kepp- andans er að finna út, með hjálp bragð- og lyktarskyns, hver þess- ara þriggja er öðruvísi. Allir sem vilja geta fylgst með keppninni. Íslandsmótið í kaffismökkun STUTT Eftir Hlyn Orra Stefansson hlynurorri@mbl.is ÖSSUR Skarphéðinsson og Árni Þór Sigurðsson voru meðal þeirra sem seldu stofnfjárhluti í SPRON rétt áður en fyrirtækið var skráð á mark- að. Lögmaður segir ýmislegt gruggugt við sölu stofnfjárhluta í sjóðnum. Mikið hefur verið fjallað um sölu stjórnenda og stjórnarmanna í SPRON, og maka þeirra, á stofn- fjárhlutum í sparisjóðnum á tímabilinu júlí til ágúst 2007 eða frá því tekin var ákvörðun um að skrá sparisjóðinn á markað og þar til lokað var fyrir viðskipti með stofnfjárhluti. Ýmsir þeir, sem keyptu stofnfjárhluti á þessum tíma, telja stjórnendur og stjórnarmenn hafa not- fært sér innherjaupplýsingar til að losa sig við hlutina, en verðmæti SPRON hríðféll strax eftir skráningu. Samrýmdist ekki ráðherrasetu Viðskiptablaðið greindi frá því í gær að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefði selt stofnfjárhluti sína í SPRON á umræddu tímabili. Hann segir fráleitt að hann hafi haft innherjaupp- lýsingar um stöðu sparisjóðsins. „Ég hafði engar upplýsingar um SPRON, eða nokkra aðra banka- stofnun, sem ekki var á vitorði allra í gegnum fjöl- miðla.“ Ástæða þess að Össur seldi hlutinn hafi verið sú að hann taldi það ekki samrýmast setu í ráðherra- stól að eiga í SPRON. Því segist hann hafa selt skömmu eftir að hann varð iðnaðaráðherra í maí 2007. „Ég hafði alltaf trú á þessari stofnun og taldi að þetta væri mín bankastofnun,“ segir Össur. Hagnaður Össurar af viðskiptunum nam um 30 milljónum, þar sem hann keypti í nokkrum lotum fyrir samanlagt 33 milljónir, en seldi fyrir 63 millj- ónir. Bréfin keypti hann fyrir lán sem hann segist hafa greitt. Stofnfjárhlutina hefur Össur átt síðan seint á níunda áratugnum þegar hann var aðstoðarfor- stjóri Reykvískrar tryggingar. „Við áttum í mikl- um og góðum samskiptum við SPRON og var mér þá boðið að gerast stofnfjáreigandi.“ Vildi ekki eiga í sparisjóði á markaði Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna, segir pólitískar ástæður einnig hafa ráðið því að hann seldi stofnfjárbréf sín í SPRON stuttu áður en fyrirtækið var skráð á markað. Hann seg- ir að alveg frá því hann sat í stjórn sparisjóðsins, árin 1998 til 2004, hafi hann verið mótfallinn því að sjóðurinn væri skráður á markað. „Ég var alltaf þeirrar skoðunar að sparisjóðirnir ættu að vera sparisjóðir, en ekki einhver útrásar-fjármálafyr- irtæki í hlutafélagaformi.“ Þegar stjórn sjóðsins tók ákvörðun um að skrá hann á markað ákvað Árni Þór því að losa sig við megnið af sínum hlut, um 1,3 milljónir að nafn- virði. Hann hafi ekki haft neinar upplýsingar inn- an úr SPRON eftir að hann fór úr stjórninni. Eins og áður sagði seldu ýmsir stjórnendur, stjórn- armenn og aðilar þeim tengdir stofnfjárbréf sín í SPRON eft- ir að tekin var ákvörðun á stjórnarfundi SPRON um að skrá félagið á markað en áður en lokað var fyrir viðskipti með stofnfjárbréf. Þórarinn V. Þórarinsson hæstaréttarlögmaður segir þó- nokkra sem keyptu stofn- fjárbréf á þessum tíma hafa haft samband við sig vegna gruns um að þeir hafi keypt bréf stjórn- enda og stjórnarmanna á óeðlilega háu verði. Hann segir ýmislegt í málinu vera gruggugt. Í fyrsta lagi hafi stjórnendur SPRON aldrei gefið til kynna að á sama tíma og þeir hvöttu aðra til að kaupa stofnfjárhluti hafi stjórnendur og stjórn- armenn þess selt sína hluti. Í öðru lagi sé spurning hvort þeir sem seldu á þessum tíma hafi gert það á grundvelli inn- herjaupplýsinga. Loks sé spurning hvort eðlilegt og sanngjarnt sé að misjafnlega reynslumiklir viðskiptamenn, sem keyptu stofn- fjárhluti með lánsfé frá SPRON, beri allan skað- ann af viðskiptum sem stofnað var til með þessum hætti. Segjast ekki hafa haft innherjaupplýsingar  Össur og Árni Þór segja pólitískar ástæður hafa ráðið því að þeir seldu í SPRON Morgunblaðið/RAX Sala Ýmsir stjórnendur, stjórnarmenn og aðilar þeim tengdir seldu stofnfjárbréf sín í SPRON eftir að tekin var ákvörðun um að skrá félagið á markað en áður en lokað var fyrir fyrir viðskipti með bréfin. Saga SPRON á hlutabréfamark- aði er, eins og frægt er orðið, síður en svo glæsileg. Gengi hlutabréfa sparisjóðsins við skráningu í október 2007 var 18,5. Verðmæti hans hríðféll strax í kjölfar skráningar og hélt áfram að falla þar til spari- sjóðurinn var úrskurðaður gjaldþrota í mars á síðasta ári. Þegar SPRON var skráður á markað var þeim, sem áttu stofnfjárhluti, boðið að skipta þeim í hlutafé. Eftir að tekin var ákvörðun um að skrá sparisjóð- inn á markað fylgdu ýmsar full- yrðingar um að hlutafélaga- formið hentaði sparisjóðnum vel, bendir Þórarinn V. Þór- arinsson hrl. á, og því töldu margir að bjartir tímar væru framundan hjá sjóðnum. Þeir sem keyptu stofnfjár- hluti stjórnenda og stjórn- armanna SPRON eru að vonum ekki ánægðir í dag, enda margir hverjir í erfiðri stöðu vegna lána sem þeir tóku fyrir hlutunum. Efnahagsbrotadeild ríkislög- reglustjóra hefur haft sölu stjórnenda og stjórnarmanna á stofnfjárhlutunum til rann- sóknar. SPRON var í frjálsu falli frá skráningu og fram að gjaldþroti NOTKUN á vefnum mbl.is hefur nánast verið óbreytt undanfarna mánuði samkvæmt nýrri fjöl- miðlakönnun Capacent. Lestur Morgunblaðsins hefur minnkað en Fréttablaðsins aukist. Sameig- inlegur lestur á Morgunblaðinu, prent- og netútgáfu, var 67,7% á dag og 89,4% þegar uppsöfnuð notkun á viku er skoðuð. 78,2% þátttakenda heimsóttu vefinn mbl.is í hverri viku á könnunartímanum frá nóvember 2009 til janúar 2010. Er það ná- kvæmlega sama hlutfall og mæld- ist í könnun sem birtist í nóv- ember. Hlutfall þeirra, sem heimsóttu vefinn daglega, lækkaði í 56,3% úr 58,3%. Vefurinn mbl.is er sá eini, sem mældur er í netmiðla- könnun Capacent. Meðallestur á tölublað á Morg- unblaðinu mældist 32,2% á tíma- bilinu frá 1. nóvember til 31. jan- úar samkvæmt könnun Capacent. Á sama tíma lásu 62,7% að með- altali hvert tölublað Fréttablaðs- ins. Þegar mæld var uppsöfnuð dekkun yfir vikuna mælist Morg- unblaðið með 57,8% og Frétta- blaðið 82,1%. Á sama tíma fyrir ári lásu 42,7% landsmanna að jafnaði hvert tölublað Morgunblaðsins og 63,7% hvert tölublað Fréttablaðs- ins. Í síðustu könnun, sem birtist í nóvember, mældist meðallestur á tölublað 37,3% á Morgunblaðinu en 59,8% á Fréttablaðinu. Samkvæmt könnuninni var meðallestur á Morgunblaðinu 36,5% á höfuðborgarsvæðinu en 30% á landsbyggðinni. Fréttablað- ið mældist á höfuðborgarsvæðinu með 76,4% lestur að meðaltali en á landsbyggðinni með 42%. Þessi tvö dagblöð eru þau einu sem taka þátt í dagblaðamælingu Capacent. Um var að ræða samfellda dag- blaða- og netmiðlamælingu í nóv- ember 2009 til janúar 2010. Í úr- takinu voru 4.200 Íslendingar á aldrinum 12 til 80 ára, valdir með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá. Endanlegt úrtak var 4.019 og fjöldi svara var 2.414. Nettó svar- hlutfall var 60,1%. Notkun á mbl.is helst stöðug Lestur á Morgunblaðinu prent- og netútgáfu, á árinu 2009 (hlutfall) Feb.-apríl 2009 Maí-júlí 2009 Ágúst-okt. 2009 Nóv.2009 -jan. 2010  Sameiginlegur lestur Morgunblaðsins og mbl.is er 67,7% að meðaltali á dag Össur Skarphéðinsson Árni Þór Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.