Morgunblaðið - 05.02.2010, Side 6

Morgunblaðið - 05.02.2010, Side 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010 Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is MARGIR hafa leitað til Ráðgjafar- stofu heimilanna eftir fjármálaráð- gjöf beinlínis vegna þess að þeir treysta ekki ráðgjöf bankanna. Þetta segir Ásta S. Helgadóttir, forstöðu- maður Ráðgjafarstofu heimilanna. Á síðasta ári afgreiddi Ráðgjafarstofan yfir 2.000 mál, en Ásta segir að það sé eins og hún hafi afgreitt á þremur árum fyrir hrun bankanna. „Það er mikið vantraust á bönk- unum ennþá,“ segir Ásta og bætir við að það sé ekki óeðlilegt miðað við það sem gerst hafi með hruni banka- kerfisins. Það þurfi að byggja upp traust að nýju. „Fólk vill gjarnan fá álit hjá okkur á þeim úrræðum sem bankarnir eru að bjóða fólki. Fólk vill fá álit á því hvort bankinn sé að gera rétt og hvort þetta sé allt í lagi. Ráðgjafarstofan gegnir heilmiklu hlutverki sem hlutlaus aðili. Við reynum að stuðla að því að fólk nái samningum við bankana.“ Starfsmönnum fjölgaði úr sjö í 30 Fyrir hrun bankakerfisins haustið 2008 voru starfsmenn Ráðgjafar- stofu heimilanna sjö, en þeir urðu flestir 31 á síðasta ári. Fljótlega eftir hrunið lengdust biðlistar, en í maí, þegar um 400 manns voru á biðlista, var tekin upp ný þjónusta sem fólst í því að fólk gat strax fengið viðtal við ráðgjafa. Ásta segir að þetta hafi gefist vel og fólk sé mjög þakklát fyrir þessa þjónustu. Með þessu móti sé hægt að greina málin strax í upp- hafi og leiðbeina fólki um næstu skref. Ásta segir að mjög mikið álag hafi verið á Ráðgjafarstofunni frá hruninu haustið 2008. Febrúar sé að jafnaði mjög erfiður mánuður hjá heimilunum. Um 17 þúsund manns eru núna án vinnu og Ásta segir að þetta mikla atvinnuleysi sé mikið áhyggjuefni. Æ fleiri leita til Ráðgjafarstofunn- ar vegna greiðsluaðlögunar. Ráð- gjafarstofan hefur brugðist við þessu með því að ráða fleiri lögfræð- inga til starfa. Ásta segir að þetta úr- ræði sé að slípast til. Reynt sé að hraða afgreiðslu þessara mála eins og hægt er og því sé mikilvægt að vanda undirbúning þessara mála t.d. til að koma í veg fyrir að dómstólar vísi málum frá vegna þess að gögn vanti til að mál séu dómtæk. Fólk vantreystir bönkunum  Ráðgjafarstofa heimilanna afgreiddi á síðasta ári um 2.000 mál sem er svipaður fjöldi og Ráðgjafarstofan afgreiddi á þremur árum fyrir bankahrunið » 870 fjölskyldur fengu ráðgjöf árið 2008 » Árið 2007 voru 612 mál afgreidd » Á síðasta ári fékk Ráðgjafarstofan yfir 2.000 mál NAUTHÓLSVEGUR var opnaður fyrir umferð í gær en hann hefur hingað til gengið undir heit- inu Hlíðarfótur. Vegurinn liggur frá Hringbraut út í Nauthólsvík. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri sá um að klippa á borðann en henni til halds og trausts voru Kristján Möller sam- gönguráðherra, Gísli Marteinn Baldursson, for- maður umhverfis- og samgönguráðs borg- arinnar, og Óskar Bergsson, formaður framkvæmda- og eignaráðs. Heildarkostnaður við verkið er áætlaður um 480 milljónir króna. NAUTHÓLSVEGUR OPNAÐUR FYRIR UMFERÐ Morgunblaðið/Árni Sæberg UNNIÐ hefur verið að því að endurskipuleggja skattaeftirlit á vegum ríkisskatt- stjóra. Þetta er gert í kjölfar þess að lögum var breytt um ára- mót, en breyting- arnar fólu í sér að landið var gert að einu skattumdæmi. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri sagði að skattaeftirliti á vegum ríkisskatt- stjóra, skattstofunnar í Reykjavík og skattstofunnar á Reykjanesi yrði steypt saman í eina 30 manna deild. Hún tekur til starfa í lok þessa mán- aðar. Auk þess koma fjórir menn á Akranesi og fjórir menn á Akureyri til með að sinna skattaeftirliti. Það verða því 38 menn í skattaeftirliti á vegum ríkisskattstjóra. Skúli Eggert sagði að skattaeft- irlitið myndi beina spjótum sínum sérstaklega að aðilum í atvinnu- rekstri og meðal þess sem yrði skoð- að væru svokölluð aflandsfélög. egol@mbl.is 38 menn í skatta- eftirlitinu Skúli Eggert Þórðarson Skattstofur samein- uðust um áramót SKIPAN fimm efstu sæta á framboðslista Samfylkingar á Akureyri fyrir bæjarstjórn- arkosningar í vor verður með sama hætti og nið- urstaða í próf- kjöri um sl. helgi. Í kjölfar próf- kjörs fyrir fjórum árum var settur upp fléttulisti karla og kvenna til skiptis. Var Ásgeir Magnússon sem lenti í 5. sæti færður í það fjórða. Reglur prófkjörs um síðustu helgi voru þær að í fimm efstu sætum skyldi hlutfall annars kynsins aldrei vera minna en 40%. Jafnframt var kveðið á um að frambjóðendur af sama kyni skyldu aldrei skipa meira en tvö sæti í röð. Var niðurstaða prófkjörsins eftir þessu. Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri náði efsta sæti en fékk aðeins 64,9% greiddra atkvæða í það. sbs@mbl.is Listi eins og niðurstaðan Hermann Jón Tómasson BJÖRN Jónsson, fyrrverandi skóla- stjóri Hagaskóla, lést á líknardeild Land- spítalans á Landakoti í fyrradag. Hann varð 77 ára. Björn fæddist 3. júlí 1932 á Ytra-Skörðu- gili í Skagafirði. For- eldrar hans voru Agnes Guðfinnsdóttir húsmóðir og Jón Jó- hannesson bóndi. Björn lauk stúd- entsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri og cand. mag.-prófi í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands 1959. Hann var um tíma bóndi á Ytra- Skörðugili. Björn var kennari við Hagaskóla í Reykjavík frá 1960, yfirkennari frá 1963 og skólastjóri Hagaskóla frá 1967 til 1994. Hann þýddi fjölda bóka. Björn stundaði skógrækt á jörðinni Sólheimum í Land- broti um áratugaskeið og vann að fræðslu- starfi um skógrækt á vegum Skógrækt- arfélags Íslands. Hann fékk viðurkenn- ingu Skógrækt- arfélags Íslands fyrir framlag til skógrækt- ar, viðurkenningu umhverfisráðuneyt- isins fyrir störf að umhverfismálum og riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu. Eiginkona Björns, Guðrún Sig- ríður Magnúsdóttir, cand. mag., lést 2005. Börn þeirra eru Heiður Agnes viðskiptafræðingur og Magnús Jón tannlæknir. Útför Björns verður gerð frá Neskirkju næstkomandi mánudag. Andlát Björn Jónsson skólastjóri ÞRJÚ tilvik hafa komið upp á síðustu vikum þar sem far- tölvum nemenda sem sitja við lestur Þjóðarbókhlöðunni hefur verið stolið. Síðast gerðist þetta nú á þriðjudag. Hin tilvikin voru í sl. viku og hið þriðja um áramótin. „Þetta hefur verið ákveðið vandamál hér og okkur hefur ekki tekist að hafa hendur í hári þeirra sem tölvurnar tóku. Svona mál komu upp fyrir tveimur árum og þá var hægt að finna hina brotlegu með myndum úr öryggismyndavélum bókhlöðunnar. Nú hafa slík gögn ekki komið okkur að neinu gagni og því eru þessi þrjú síðustu mál óupplýst,“ sagði Edda G. Björgvinsdóttir, sviðsstjóri rekstrarsviðs Landsbókasafnsins, í samtali við Morgunblaðið. Brugðist hefur verið við þessum vanda með merkingum á borðum í bókhlöðunni þar sem fólk er hvatt til þess að skilja ekki lausa hluti svo sem fartölvur við sig. Í þeim þremur tilvikum sem hent hafa á síðustu vikum hefur fólk brugðið sér frá stundarkorn. Og á meðan er tölvan gripin. „Við getum fátt gert í svona málum nema hvetja fólk til að fara varlega,“ segir Edda. Hjá tryggingafélögum gildir sú regla að skilji fólk við sig lausa hluti í opnum rýmum eins og til dæmis í Þjóðarbók- hlöðunni er stuldur á þeim ekki bættur. Tölvueigendur í umræddum málum sitja því eftir með sárt ennið. sbs@mbl.is Fartölvum er stolið í far- aldri í Þjóðarbókhlöðunni  Þremur stolið  Eigendur sitja eftir með sárt enni „Eins og milljón sinnum áður stóð ég upp frá borðinu mínu,“ segir háskólaneminn Ása S. Otte- sen á bloggsíðu sinni. Segist hún hafa verið fjarverandi í um fimm mínútur. „Þegar ég kom til baka var búið að taka tölvuna mína sem er hvít MacBook, símann minn, sem er glænýr Nokia sem ég fékk í jólagjöf, og námsbók sem var 10 þúsund króna virði. Ég er ekki að djóka en ég hélt ég myndi deyja.“ Stálu tölvu og glænýjum síma Ása S. Ottesen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.