Morgunblaðið - 05.02.2010, Side 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
NI
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
10
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is
NULÚT ÖS
LÝKUR SUNNUDAGINN
7. FEBRÚAR
YFIR 1000 VÖRUNÚMER
Á LÆKKUÐU VERÐI
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„EFTIR að ég ræddi við kollega minn
og hann hafði tjáð mér að nokkrum
mánuðum áður hefði hann varað [ís-
lensku ríkisstjórnina] við taldi ég að
logið hefði verið að okkur,“ sagði No-
ut Wellink, hollenski seðlabankastjór-
inn, en hann kom fyrir rannsókn-
arnefnd hollenska þingsins í
gærmorgun. Þar átti hann við fund
sinn með Davíð Oddssyni, þáverandi
seðlabankastjóra, í svissnesku borg-
inni Basel 8. september 2008.
Wellink sagði áhyggjur sínar af
Icesave í Hollandi hafa aukist mikið í
júlí 2008. Þá þeg-
ar hafi hann kraf-
ið Fjármálaeft-
irlitið íslenska um
upplýsingar.
Hann hafi fengið
þau svör 24. ágúst
að bankarnir
stæðust álagspróf.
Hinn 3. sept-
ember hafi hann á
ný spurt Fjármálaeftirlitið út í stöðu
bankanna. „Svarið sem ég fékk var:
frábær! Og í kjölfarið ræddi [viðmæl-
andinn] um íslenska efnahagslífið,
gríðarlega möguleika þess, um hveri,
vatnið og fiskinn,“ sagði Wellink sem
áður tjáði nefndinni að Íslendingar
beittu ávallt því herbragði að tefja
málin stæðu þeir frammi fyrir vanda-
málum. „Þeir gerðu það þá og þeir
gera það í dag í deilunni um fjár-
munina sem þeir skulda okkur.“
Því má við bæta að í seinni fréttum
RÚV í gærkvöldi var greint frá því að
15. ágúst hefði hollenska seðlabank-
anum borist tölvupóstur frá íslenska
Fjármálaeftirlitinu. Í honum væri lýst
undrun vegna þess að hollenski seðla-
bankinn hefði rætt um að frysta starf-
semi Landsbankans í Hollandi. Engin
ástæða væri til þess því bankinn væri
við góða heilsu.
Var afar áhyggjufullur
Hollenski seðlabankastjórinn segir upplýsingagjöf íslenska Fjármálaeftirlitsins
um stöðu bankanna til þess fallna að valda töfum Það sé herbragð Íslendinga
» Sendi fulltrúa sína til Íslands í ágúst 2008
með þau fyrirmæli að beita hótunum
» Þeir voru sendir heim til Hollands með þau
skilaboð að aðeins yrði rætt við Wellink
Nout Wellink
ÞÆR kvörtuðu ekki yfir veðrinu, stúlkurnar þrjár sem
dunduðu sér við að kríta myndir á stéttina við frí-
stundaheimili Laugarnesskóla. Og skal engan undra, á
meðan veturinn hefur verið jafn mildur og raun ber
vitni getur ungviðið leikið sér í hinum ýmsu leikjum
sem oftar eru bundnir við sumartímann.
VEÐRIÐ HENTAR TIL SUMARLEIKJA
Morgunblaðið/Golli
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„HANN gekk mjög vel. Við útskýrð-
um okkar mál og svo hlustuðum við
á þingmennina. Það voru tveir á
okkar bandi, annar frá Miðflokknum
og hinn frá Sósíalíska vinstriflokkn-
um, en jafnaðarmaðurinn var óhagg-
anlegur eins og þeir eru heima,“
sagði Einar Már Guðmundsson rit-
höfundur um fjölsóttan fund Attac-
samtakanna um Icesave-málið í Ósló síðdegis í gær.
Með Einari Má í för voru Bjarni Guðbjartsson og
Gunnar Skúli Ármannsson, sem einnig eru í Attac, en
rithöfundurinn var kominn með annan fótinn í mynd-
ver norska ríkissjónvarpsins þar sem hann var á leið í
„Kastljósviðtal“ þegar Morgunblaðið náði tali af hon-
um í gær.
Hann segir fundargesti á bandi Íslands.
„Algerlega. Almenningur skilur vel okkar sjónarmið
þegar hann heyrir hvað þetta er
há upphæð í norskum krónum ef
hún væri yfirfærð á hvern Norð-
mann.“
Inntur eftir áhuga norskra fjöl-
miðla kvaðst Einar Már hafa farið
í viðtöl hjá fimm til sex blöðum í
gær og að frekari viðtöl væru í bí-
gerð í dag.
Thomas Vermes, blaðamaður
hjá ABC Nyheter, sat fundinn en
hann segir hafa mátt skilja af mál-
flutningi Steinars Gullvåg, þingmanns Verkamanna-
flokksins, að stjórnin hafi ekki gengið lengra í Ice-
save-málinu vegna þess að hún hafi ekki fengið
beiðni um slíkt frá Íslandi.
Þá sagði Per Olaf Lundteigen, þingmaður Mið-
flokksins, í samtali við Morgunblaðið að stjórnin
myndi koma Íslandi til hjálpar færu samninga-
viðræður um Icesave út um þúfur í kjölfar þjóð-
aratkvæðagreiðslunnar.
Norskur almenningur
hefur samúð með Íslandi
Dagblöð í Noregi sýna Icesave-málinu mikinn áhuga
Einar Már
Guðmundsson
Per Olaf
Lundteigen
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
DAVÍÐ Odds-
son, ritstjóri
Morgunblaðsins,
staðfesti í sam-
tali í gær að
hann hefði sem
formaður banka-
stjórnar Seðla-
banka Íslands átt
fund með Nout
Wellink, seðla-
bankastjóra Hollands, í fyrri hluta
september árið 2008. Fundurinn
var haldinn í Basel að frumkvæði
Wellink. Um trúnaðarfund var að
ræða en þar sem Wellink hefur nú
greint frá þessu samtali opin-
berlega fyrir þingnefnd hollenska
þingsins segist Davíð geta staðfest
ummæli hans.
„Hann spurði mig álits á stöðu
bankakerfisins á Íslandi,“ segir
Davíð um samtal hans og Wellinks.
„Ég sagði honum að ég hefði af því
mjög miklar áhyggjur, sem lægi í
augum uppi, því þá höfðu allir að-
drættir að endurfjármögnun banka-
kerfisins verið stíflaðir í 13 mán-
uði,“ segir hann.
Ekki talsmaður ríkisstjórnar
„Þá spurði hann mig að því hvort
ég hefði greint ríkisstjórninni frá
þessari skoðun minni. Ég sagði
honum að ég hefði gert það. Ég
hefði þegar í febrúar á því ári og
oft síðar, greint forsætisráðherra
og eftir atvikum öðrum ráðherrum
frá því að ég hefði þungar og vax-
andi áhyggjur af stöðu bankakerf-
isins. En ég tók fram að það væri
ekki mitt að segja til um hvort rík-
isstjórnin deildi minni skoðun því
ég væri ekki talsmaður hennar.“
Lýsti
þungum
áhyggjum
Davíð Oddsson
Sagði Wellink frá viðvör-
unum vegna bankanna
UM 350 fulltrúar koma erlendis frá
á ferðakaupstefnuna Mid-Atlantic
2010 sem sett var í gærkvöldi og
hefst formlega í dag. Alls verða 500
fulltrúar frá 14 löndum á kaup-
stefnunni sem er sú fjölmennasta
sem hér hefur verið haldin. Sam-
koman er í Laugardalshöll.
Fjölmenn kaupstefna
EFTIRLITSNEFND með fjár-
málum sveitarfélaga hefur lagt til
við Kristján Möller, samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra, að Sveitar-
félaginu Álftanesi verði skipuð fjár-
haldsstjórn sem hafi forystu um
endurskipulagningu fjármála sveit-
arfélagsins. Ákvörðun ráðherra
verður kynnt í dag eða fljótlega eftir
helgi.
Nefndin segir að fjárhaldsstjórnin
muni hafa forystu um end-
urskipulagningu fjármála sveitarfé-
lagsins og leita allra tiltækra leiða til
lausnar á vanda þess. Gerður verði
samningur um samskipti og verka-
skiptingu fjárhaldsstjórnar og sveit-
arstjórnar um fjárhaldslegar að-
gerðir á skipunartíma stjórnarinnar.
Ef ráðherra tekur ákvörðun í
samræmi við tillögu eftirlitsnefnd-
arinnar er sveitarstjórnin í raun
svipt fjárræði. Pálmi Þór Másson,
bæjarstjóri Álftaness, segir það ekki
koma sér á óvart og tekur fram að
eftir sem áður myndi bæjarstjórnin
starfa áfram og stjórnkerfið vera
með hefðbundnum hætti.
Fram hefur komið að sveitarfélag-
ið er komið í greiðsluþrot og hefur
þegar fengið fyrirframgreiðslur úr
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til að
greiða brýnustu útgjöld og skammt
er í næstu bráðagreiðslur.
Taka ber
fjárráð af
bæjarstjórn