Morgunblaðið - 05.02.2010, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
ELDRI BORGARA FERÐIR
um fornar byggðir á Suður-Grænlandi.
Fjögurra daga ferðir í júlí og ágúst. Allt innifalið.
Allar upplýsingar veitir Emil Guðmundsson í síma 898 9776.
Einnig hægt að senda tölvupóst á emil@flugfelag.is
REYKJAVÍK
Grænland
Narsarsuaq
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
49
00
0
01
.2
01
0
flugfelag.is
SIGSTEINN Pálsson,
fyrrum bóndi á Blika-
stöðum í Mosfellsbæ,
er látinn 104 ára að
aldri. Hann var því elsti
karlmaður Íslands.
Sigsteinn var fædd-
ur í Tungu á Fáskrúðs-
firði 16. febrúar 1905
en fluttist þaðan um
miðjan fjórða áratug-
inn til Mosfellssveitar.
Sigsteinn kvæntist
Helgu Magnúsdóttur
frá Blikastöðum árið
1939 og hófu þau bú-
skap þar árið 1942 þegar faðir Helgu,
Magnús Þorláksson bóndi þar, féll
frá.
Sigsteinn var hreppstjóri Mos-
fellshrepps í tvo áratugi og tók virk-
an þátt í félags- og uppbygging-
arstarfi Mosfellssveitar. Hann var
einn af stofnfélögum
Lionsklúbbs Mosfells-
bæjar og elsti starfandi
Lionsfélagi í heimi.
Jafnframt var hann
einn af stofnfélögum
karlakórsins Stefnis og
heiðursfélagi kórsins.
Sigsteinn og Helga
eignuðust tvö börn,
Magnús f. 1944 og
Kristínu f. 1945. Barna-
börnin eru 7 talsins og
barnabarnabörnin 15.
Sigsteinn og Helga
hættu kúabúskap árið
1973 en bjuggu áfram á Blikastöðum
til ársins 1992 en þá fluttu þau að
Hlaðhömrum, dvalarheimili aldraðra
í Mosfellsbæ. Helga lést árið 1999 en
Sigsteinn dvaldi síðustu mánuði sína
á dvalarheimilinu Eir, en hann lést
þar að morgni 4. febrúar.
Andlát
Sigsteinn Pálsson
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
JÓHANNES Jónsson getur eignast
tíu prósenta hlut í Högum við skrán-
ingu þeirra í Kauphöllina og aðrir
stjórnendur fyrirtækisins samtals
fimm prósent. Jóhannes verður
áfram stjórnarformaður Haga.
Stjórn Arion banka, sem eignaðist
hlut í Högum við yfirtöku á móð-
urfélagi þess, 1998 ehf., hefur ákveðið
að óska eftir skráningu Haga í kaup-
höll og verður almenningi og fagfjár-
festum boðið að kaupa hluti í félaginu.
Munu Jóhannes og aðrir stjórn-
endur Haga geta keypt sína hluti á
sama gengi og aðrir fjárfestar, en
ekki er enn vitað hvert skráning-
argengi hlutabréfanna verður. Segir í
tilkynningu frá stjórn Arion banka að
þessi leið þjóni hagsmunum bankans,
viðskiptavina og starfsfólks Haga.
Með skráningu fari félagið í gagnsætt
og opið söluferli, þar sem dreift eign-
arhald verði tryggt og Hagar muni
lúta lögboðnum kröfum um upplýs-
ingagjöf.
Í sátt við stjórnendur
Í tilkynningunni segir einnig að
markmið bankans við skuldaúrlausn
félagsins hafi verið og sé að hámarka
endurheimtur í lánasafni og tryggja
rekstur Haga til framtíðar. Því hafi
bankinn talið mikilvægt að vanda
undirbúning málsins og taka sér
nauðsynlegan tíma til að gaumgæfa
alla kosti í stöðunni. Þá segir að
ákvörðun Arion banka hafi verið tek-
in í sátt og samvinnu við núverandi
stjórnendur félagsins.
Ný fimm manna stjórn verður
skipuð í Högum, en í henni verða
Guðbrandur Sigurðsson, Erna Gísla-
dóttir, Steinn Logi Björnsson, Svana
Helen Björnsdóttir og Jóhannes
Jónsson, stofnandi Bónuss, sem verð-
ur áfram starfandi stjórnarformaður
Haga. Undirbúningur Arion banka að
kauphallarskráningu og sölu Haga
hefst nú þegar og er gert ráð fyrir að
söluferlinu ljúki fljótlega upp úr
miðju ári.
Ljóst má vera af þessu að áform
stjórnenda og fyrrverandi eigenda
1998 ehf. og Haga um að draga að
nýtt erlent fjármagn hafa ekki borið
árangur. Allt frá því í ágúst í fyrra
hefur töluvert verið rætt um mögu-
lega aðkomu erlendra fjárfesta, eink-
um breskra fjárfesta, en vissulega er
ekki útilokað að slíkir erlendir fjár-
festar kaupi hlutabréf í Högum á
markaði.
Kauphallarskráning og útboð
verða kynnt ítarlega þegar samþykki
Kauphallarinnar liggur fyrir.
Hagar skráðir í Kauphöllina
Jóhannes Jónsson og stjórnendur Haga munu geta keypt samtals 15 prósent í félaginu Almenningi
og fagfjárfestum boðið að kaupa Tryggja á dreifða eignaraðild Söluferli ætti að geta lokið um mitt ár
Morgunblaðið/Heiddi
HAGAR eru umsvifamesta verslunarfyrirtæki landsins. Það rekur margar
verslanir og keðjur, á dagvöru- og tískumarkaði, ásamt dreifingarfyr-
irtækjum. Bónus, Hagkaup, 10-11, Debenhams, Karen Millen og Top shop
eru dæmi um verslanir sem eru innan vébanda Haga.
Stærsta verslunarfyrirtækið
JÓHANNES Jónsson, stjórn-
arformaður Haga, segir að óvissu
um framtíð Haga hafi verið eytt
með þeirri ákvörðun Arion banka
að óska eftir skráningu fyrirtæk-
isins í íslensku Kauphöllina og setja
það þar með í söluferli.
Segir hann það einlæga von sína
að nú skapist vinnufriður í kringum
Haga, svo starfsmenn geti einbeitt
sér að því að reka fyrirtækið og
þjóna viðskiptavinum sínum.
„Nú sitja allir við sama borð og
söluferlið eins opið og gegnsætt og
hægt er,“ er haft eftir Jóhannesi í
tilkynningu frá Högum.
Í tilkynningu Haga segir að
margir fjárfestar, bæði innlendir
og erlendir, hafi
sýnt áhuga á fé-
laginu, enda sé
hér um að ræða
eitt öflugasta
verslunarfyr-
irtæki landsins.
Stjórnendur
Haga vonist til að
skráning félags-
ins verði til þess
að auka áhuga á íslensku Kauphöll-
inni og ekki síður íslensku atvinnu-
lífi. Rekstur Haga hafi gengið vel á
erfiðum tímum og félagið hafi stað-
ið við allar sínar skuldbindingar.
Staðan sé því sterk á þessum tíma-
mótum.
Óvissu eytt um framtíð Haga
Jóhannes Jónsson
ARION banki hefur það markmið að
selja eins mikið af hlut sínum í Hög-
um og mögulegt er við skráningu fé-
lagsins í kauphöll. Finnur Svein-
björnsson bankastjóri segir líklegt
að bankinn annist viðskiptavakt með
hlutabréf Haga og muni þess vegna
þurfa að eiga áfram lítinn hlut í fé-
laginu.
Arion banki eignaðist 95,7% í Hög-
um þegar hann tók yfir eignarhalds-
félagið 1998 ehf. Finnur segir að fé-
lagið sjálft eigi hluta af þeim
eignarhlut sem eftir er og lyk-
ilstjórnendur eigi um 2% vegna
kaupréttaráætlunar. Hann tekur
það fram að þessi 2% verði hluti af
þeim 15% eignarhlut sem stjórn-
endum verður gefinn kostur á að
kaupa.
Finnur segir að ekki sé ætlunin að
lána kaupendum hlutabréfanna fyrir
þeim. Tekur hann sérstaklega fram í
samtali við mbl sjónvarp að það sé
alls ekki í umræðunni að lána stjórn-
arformanni Haga eða starfsfólki.
„Hann hefur átt mestan þátt í að
byggja upp þetta félag,“ segir Finn-
ur þegar hann er spurður hvers
vegna Jóhannesi Jónssyni hafi verið
boðið að kaupa 10% hlut. „Við teljum
mikilvægt að skapa sátt um þessa
lausn, meðal stjórnenda, starfsfólks
félagsins og bankans líka vegna þess
að bankinn hefur mikla hagsmuni af
því að reksturinn gangi vel og útboð-
ið heppnist vel. Aðkoma Jóhannesar
mun eiga þátt í að skapa þessa sátt,“
segir Finnur en leggur jafnframt
áherslu á að ekki sé verið gefa Jó-
hannesi neitt, hann þurfi að greiða
fyrir hlutabréfin sama verð og aðrir.
Stefnt er að
dreifðri eign-
araðild að Hög-
um. Finnur segir
að reglur Kaup-
hallarinnar gildi,
til dæmis um yf-
irtökuskyldu, ef
einhver eignast
tiltekinn hlut.
Engar aðrar tak-
markanir verði í
útboðinu um það hverjir megi kaupa
eða hversu mikið.
Finnur segir ekki ljóst hvað bank-
inn fái mikið upp í skuldir félgsins
1998 ehf. við sölu hlutabréfanna. Til-
gangur sölunnar sé að fá sem mest
upp í þessar skuldir. „Það fylgir því
að fara í opið söluferli að nið-
urstaðan er fyrirfram ekki alveg
ljós,“ segir Finnur. Spurður að því
hvort gengið verði að ábyrgðum sem
eru á hluta skulda 1998 ehf. segir
bankastjórinn að ákvörðun um það
sé seinni tíma mál sem ráðist af því
hvað bankinn fái mikið fyrir eignina.
Hann segist hafa trú á því að útboðið
heppnist vel.
Finnur segir, þegar hann er
spurður hvers vegna ákvörðun um
sölu hlutarins í Högum hafi tekið
þetta langan tíma, að bankinn hafi
viljað vanda vel til verka. Hann hafi
mikla hagsmuni af því að reksturinn
verði fyrir sem minnstum skakka-
föllum. Aðalatriðið sé að komast að
góðri niðurstöðu.
Arion vill selja sem mest
Finnur
Sveinbjörnsson
VEFVARP
Mun styrkja hlutabréfamarkað
SALA áfengis í vínbúðum ÁTVR
dróst saman í janúar um 9% í lítr-
um talið miðað við sama mánuð ár-
ið 2009. Alls seldust 1.168 þúsund
lítrar í mánuðinum samanborðið
við 1.284 þúsund lítra í fyrra.
Sala dróst saman í öllum flokk-
um áfengis. Sala á lagerbjór dróst
saman um 8,5%, sala rauðvíns um
tæplega 8%, hvítvíns um 6,8%, á
ókrydduðu brennivíni og vodka
um 25,6% og blönduðum drykkjum
um 36%. Lagerbjórinn er sem fyrr
uppistaðan í sölunni, en alls seld-
ust 931 þúsund lítrar í mán-
uðinum.
Samkvæmt upplýsingum ÁTVR
er ekki er hægt að draga ályktanir
um mikinn samdrátt út frá þessum
tölum einum saman. Langflestir
viðskiptavinir komi í Vínbúðirnar
á föstudögum og hafa verði í huga
að í janúar 2010 voru fjórir föstu-
dagar en í janúar 2009 voru föstu-
dagarnir fimm. sisi@mbl.is
Samdráttur í
sölu áfengis