Morgunblaðið - 05.02.2010, Qupperneq 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
www.rita.is
Ný sending
Eddufelli 2, sími 557 1730
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Hvítar skyrtur frá
bómull m/stretch
str. 38-54
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Nýjar vörur
frá
Str. 40-56
Laugaveg 53 • sími 552 3737 • Opið virka daga 10-18 • laug. 10-17
Verðhrun
síðustu dagar útsölunnar
Buxur . . . . . 2.000 kr
Peysur 2.000-4.000.kr
Bolir . . . . 800-1500 kr
Joggingbuxur .1.000 kr
Leggings . . . 1.000 kr
Skyrtur . . . . . 2.000 kr
Kjólar . . . . . 2.500 kr
Nýjar vörur streyma inn
Hæðasmára 4 · 201 Kópavogur
- Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind
Símar 555 7355 og 553 7355 - www.selena.is
25-50% afsláttur
af völdum vörumÚtsala
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær tvo
karlmenn, Jónas Inga Ragnarsson
og Tind Jónsson, í tíu og átta ára
fangelsi fyrir að hafa staðið saman að
fíkniefnaframleiðslu í Hafnarfirði á
árinu 2008. Jónas Ingi hlaut þyngri
refsingu þar sem hann var að auki
sakfelldur fyrir að hafa í vörslum sín-
um rúm átján kíló af marijúana og
tæp 700 grömm af amfetamíni.
Mennirnir neituðu sök og sögðust
aðeins hafa framleitt upphafsefni
sem ekki teldust til fíkniefna. Fjöl-
skipaður héraðsdómur og svo Hæsti-
réttur taldi sannað að um amfeta-
mínframleiðslu hefði verið að ræða.
Fylgst með þeim um hríð
Lögregla hleraði og fylgdist með
mönnunum í nokkra mánuði áður en
látið var til skarar skríða og þeir
handteknir í október 2008. Í tölvum
þeirra fundust meðal annars ítarleg-
ar greinar um framleiðslu amfeta-
míns; sama skráin hjá báðum sem
bar heitið Stórfelld framleiðsla me-
tamfetamíns.
Tveir starfsmenn lyfjadeildar
Europol aðstoðuðu við rannsókn
málsins. Í skýrslu þeirra kemur fram
að búnaðurinn hafi verið sérhæfður
og gæði hans mjög mikil. Talið var að
hægt hefði verið að framleiða rúm-
lega 14 kíló af hreinu amfetamíni og
með því að drýgja efnið hefði mátt fá
úr því allt að 353 kíló.
Mennirnir voru báðir á reynslu-
lausn þegar þeir voru handteknir.
Jónas Ingi var dæmdur í tveggja
og hálfs árs fangelsi árið 2005 fyrir
aðild sína að líkfundarmálinu svo-
nefnda og Tindur var vorið 2006
dæmdur í sex ára fangelsi fyrir til-
raun til manndráps með sveðju og
fjórar aðrar líkamsárásir.
Amfetamínframleiðendur
í tíu og átta ára fangelsi
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur
Hjúkrunarfræð-
ingarnir Lilja
Steingrímsdóttir
og Maríanna
Csillag eru á leið
til Haítí þar sem
þær munu starfa
á tjaldsjúkrahúsi
þýska Rauða
krossins. Tjald-
sjúkrahúsið sinn-
ir 700 sjúklingum
á dag, og er stað-
sett við íþróttaleikvang í Carrefour,
einu fátækasta hverfi höfuðborg-
arinnar Port-au-Prince, en þar hafa
tugþúsundir manna leitað skjóls við
mjög slæmar aðstæður.
Lilja heldur til Haítí næsta sunnu-
dag, 7. febrúar. Hún starfar sem
hjúkrunarfræðingur á gjörgæslu-
deild Landspítalans. Lilja hefur
tvisvar áður starfað fyrir Rauða
krossinn, á Taílandi og í Pakistan.
Maríanna er einn reynslumesti
sendifulltrúi Rauða kross Íslands og
hefur starfað við fjölmargar neyð-
araðgerðir Rauða kross hreyfing-
arinnar í Afríku, Asíu og Evrópu.
Maríanna fer til Haítí 15. febrúar.
Fara til
Haítí til
hjálparstarfa
Vinna Neyðarað-
gerðir á Haítí
verða æ meiri.
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt fyrrverandi
starfsmann á meðferðarheimilinu
Árbót í Aðaldal í tveggja og hálfs árs
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
tveimur stúlkum á heimilinu. Honum
var að auki gert að greiða stúlkunum
bætur, annars vegar 1,25 milljónir
króna og hins vegar 500 þúsund
krónur.
Brot mannsins gegn stúlkunum
voru fyrst til rannsóknar árið 2008
en málið fellt niður með vísan til þess
að fram komin gögn væru ekki talin
nægileg eða líkleg til að leiða til sak-
fellingar í refsimáli. Hann var í kjöl-
farið fluttur til starfa á öðru með-
ferðarheimili en hóf svo aftur störf í
Árbót.
Hafði samræði við aðra
Maðurinn var sakfelldur fyrir að
hafa látið aðra stúlkuna fróa sér,
eiga við sig munnmök og hafa haft
samræði við hana tvívegis. Á hinni
stúlkunni káfaði maðurinn, m.a. á
brjósti og rassi, lét hana fróa sér og
hafa við sig munnmök.
Fram kemur í dóminum að önnur
stúlkan hafi meira og minna verið
undir handarjaðri barnaverndaryfir-
valda alla ævi og var hún vistuð á
meðferðarheimilinu á árunum 2005
til 2006 og aftur á árunum 2007 til
2008.
Hin stúlkan var vistuð á meðferð-
arheimilinu á árunum 2007 til 2008
að undangenginni innlögn á barna-
og unglingageðdeild Landspítala.
Braut gegn tveimur stúlk-
um í meðferðarstarfi
Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisafbrot
HRAFNINN er sérlega áberandi í byggð yfir veturinn
og mikið ber á hröfnum innan borgarlandsins. Svífa
þeir iðulega í hnapp vængjum þöndum eins og sjá má á
myndinni sem tekin var við olíutankana í Örfirisey.
HRAFNAÞING Í ÖRFIRISEY
Morgunblaðið/Árni Sæberg
AÐALFUNDUR Lögreglufélags Norðurlands vestra mótmælir sinnuleysi
samninganefndar ríkisins gagnvart samninganefnd Landssambands lög-
reglumanna í ályktun. Lögreglumenn hafi verið án kjarasamnings í á ann-
að ár. „Lögreglumenn hafa sýnt mikið langlundargeð en þolinmæði þeirra
er á þrotum. Við skorum á samningsaðila að setjast niður og ná sam-
komulagi um nýjan kjarasamning fyrir lögreglumenn. Lögreglumenn hafa
ekki verkfallsrétt og þurfa því að beita óhefðbundnum aðferðum til að
leggja áherslu á stöðu sína,“ segir í ályktun lögreglumannanna.
Þolinmæði lögreglumanna á þrotum