Morgunblaðið - 05.02.2010, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
Í gærmorgun átti sér stað athygl-isvert spjall á Bylgjunni. Þar
voru saman komnir þingmennirnir
Pétur H. Blöndal frá Sjálfstæð-
isflokki og Atli Gíslason frá Vinstri
grænum og ræddu meðal annars
um störf þingmanna á öðrum vett-
vangi.
Pétur viðraðiþá skoðun að
æskilegt væri að
þingmenn kæmu
að atvinnurekstri
og hefðu þannig
skilning á því
sem þar fer
fram.
Atli var öf-ugrar skoðunar og um þetta
sagði hann: „Þegar ég fór inn á
þing 2007 ákvað ég að draga mig
út úr mínum rekstri.“
Atli sagðist hafa gert þetta vegnaþess að þingmannsstarfið væri
miklu meira en fullt starf og að
þjóðin ætti rétt á því að menn
sinntu ekki öðru á meðan.
Til að leggja áherslu á orð sínbætti Atli við: „Við skulum líka,
Pétur, hugsa svolítið um siðferði,
pólitískt siðferði. Ekki alltaf að
velta okkur upp úr því hvort þetta
sé löglegt eða ekki löglegt.“
Fyrst Atli vill leggja þessaáherslu á siðferði málsins má
minna á að í desember síðast-
liðnum, mitt í Icesave-afgreiðslunni
á þingi, tók hann sér frí frá þing-
störfum.
Skýringin sem hann gaf var sú aðhann væri að flytja og að svo
hefði „verið mikið vinnuálag á
þinginu þannig að ég hef ekki get-
að sinnt verkefnum sem ég er með
á lögfræðiskrifstofu minni“. Í
svarinu kom fram að hann hefði
einnig gert þetta árin 2007 og
2008.
Atli Gíslason
Siðaboðskapur Atla Gíslasonar
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 0 skýjað Lúxemborg 5 skýjað Algarve 17 skýjað
Bolungarvík -1 snjókoma Brussel 9 heiðskírt Madríd 8 skýjað
Akureyri -5 heiðskírt Dublin 8 súld Barcelona 10 skúrir
Egilsstaðir -12 þoka Glasgow 4 skýjað Mallorca 15 skúrir
Kirkjubæjarkl. 1 skýjað London 9 heiðskírt Róm 12 léttskýjað
Nuuk 3 léttskýjað París 9 heiðskírt Aþena 10 heiðskírt
Þórshöfn 3 léttskýjað Amsterdam 8 skýjað Winnipeg -18 upplýsingar bárus
Ósló -5 skýjað Hamborg 1 þoka Montreal -11 léttskýjað
Kaupmannahöfn 0 þoka Berlín 1 skúrir New York -1 heiðskírt
Stokkhólmur -1 snjókoma Vín 0 þoka Chicago -2 alskýjað
Helsinki -4 skýjað Moskva -10 heiðskírt Orlando 21 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
5. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4.40 0,7 10.51 3,5 17.00 0,8 23.24 3,4 9:56 17:29
ÍSAFJÖRÐUR 0.36 2,0 6.49 0,5 12.48 1,9 19.10 0,5 10:15 17:19
SIGLUFJÖRÐUR 3.02 1,2 8.57 0,2 15.26 1,1 21.29 0,3 9:59 17:02
DJÚPIVOGUR 1.48 0,3 7.46 1,8 13.55 0,4 20.16 1,9 9:29 16:54
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á laugardag, sunnudag,
mánudag og þriðjudag
Austlæg átt, 10-15 m/s við S-
ströndina, en annars hægari
vindur. Dálítil él við S- og A-
ströndina. Annars víða bjart-
viðri, en skýjað og úrkomulítið
A-lands fram að helgi. Frost-
laust með suðurströndinni og
allvíða á annesjum, en annars 1
til 13 stiga frost, kaldast inn til
landsins.
Á miðvikudag
Útlit fyrir suðaustlæga átt með
rigningu eða slyddu vestan til
með hlýnandi veðri, en áfram
kalt og bjart fyrir austan.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Heldur hægari en í gær og léttir
til sunnanlands, annars svipað
veður. Frost 1 til 14 stig, kaldast
inn til landsins, en hiti víða ná-
lægt frostmarki við ströndina.
ÍBÚÐAREIGANDINN sem hefur staðið í deilum
við nágranna sína í fjölbýlishúsi á Fornhaga, við
húsfélagið og Húseigendafélagið, segir að deilurn-
ar snúist ekki um samskiptaerfiðleika heldur um
fjármálaóreiðu í rekstri húsfélagsins.
Fjallað var um málið í Morgunblaðinu í gær og
kom m.a. fram að maðurinn hefði stefnt húsfélag-
inu þrisvar á rúmlega einu ári.
Maðurinn bendir á að húsfélagið hafi einnig
stefnt honum þrisvar. Í eitt skipti hafi stefna verið
dregin til baka, í annað skipti hafi lögmaður hús-
félagsins ekki mætt til þinghalds og hann fengið
dæmdan málskostnað en þriðja málið sé skulda-
mál. Þá greiði hann samviskusamlega húsgjöld inn
á vörslureikning en þó ekki eftir útreikningum
húsfélagsins því þeir séu kolrangir.
Húseigendafélagið ekki hlutlaust
Maðurinn gerir margvíslegar athugasemdir við
fjármál húsfélagsins sem hann segir í mikilli
óreiðu og telur ýmsar ákvarðanir þess ólögmætar.
Húseigendafélagið sé ekki hlutlaus aðili í þessari
deilu enda fái félagið aðildargreiðslur frá hús-
félaginu. runarp@mbl.is
Húsfélagið einnig stefnt þrisvar
Gerir margvíslegar athugasemdir við fjármál og einstakar ákvarðanir húsfélagsins
Morgunblaðið/Heiddi
MÁLÞINGIÐ Kyn og loftslags-
breytingar verður haldið í Háskóla
Íslands, stofu 101 í Lögbergi, kl.
14.30-16.45 í dag. Rannsóknastofa í
kvenna- og kynjafræðum, Jafnrétt-
isstofa, Stofnun Vilhjálms Stef-
ánssonar og EDDA –öndvegissetur
standa að málþinginu.
Á málþinginu verður fjallað um
ýmsar hliðar umræðunnar um lofts-
lagsbreytingar út frá kynjasjónar-
horni, frá heimskautsbaugi til heitra
Afríkulanda. Svandís Svavarsdóttir
umhverfisráðherra flytur ávarp og
að loknum erindum Kristínar Ást-
geirsdóttur, Sólveigar Önnu Bóas-
dóttur, Önnu Karlsdóttur og Magn-
fríðar Júlíusdóttur verða
pallborðsumræður.
Irma Erlingsdóttir, forstöðumað-
ur RIKK og framkvæmdastjóri
EDDU, verður fundarstjóri.
Kyn og loftslagsbreytingar