Morgunblaðið - 05.02.2010, Page 15
ÞÓ hápunktur Grammy-verðlaunahátíð-
arinnar felist í því að vita hverjir hljóta þessi
virtu tónlistarverðlaun ár hvert er ekki síður
spennandi að fylgjast með kjólum, skóm, fylgi-
hlutum og hárgreiðslu stjarnanna.
Hér verður fjallað um fimm tónlistarkonur
sem slógu allar í gegn á síðasta ári og hlutu
sumar hverjar verðlaun á hátíðinni sem fram
fór um síðustu helgi.
Beyonce Knowles
Söngkonan Beyonce Knowles hlaut sex
Grammy-verðlaun um liðna helgi. Hún á því
aurana til að breyta reglulega til í hárgreiðsl-
unni og gerir það ítrekað. Stundum leyfir hún
krullunum að njóta sín en á hátíðinni um
helgina bætti hún við slatta af hárlengingum,
hafði lýst hárið töluvert og sléttað frá rót til
enda. Til að toppa þetta allt bætti hún nokkr-
um þunnum, glitrandi silfurþráðum í hárið
sem settu punktinn yfir i-ið.
Miley Cyrus
Ungstirnið Miley Cyrus hafði ekki fyrir því
að setja hárið upp en þessi kæruleysislega hár-
greiðsla kemur engu að síður vel út. Hárið er
með rauðum tón og þunnum gylltum strípum.
Miley er þekkt fyrir að hafa hárið slegið á
rauða dreglinum og leyfa liðunum að njóta sín
í síðu hárinu.
Carrie Underwood
Sveitasöngkonan vinsæla Carrie Underwo-
od gætti hófs í hárgreiðslunni á Grammy-
hátíðinni. Hárið er millisítt og í styttum og tók
hún toppinn til hliðar með dökkri spennu sem
kom vel út í ljósu hárinu. Hér er blásturinn
lykilatriði. Hárið er þurrkað vel og síðan farið
í gegnum það með rúllubursta frá rót og að-
eins rúllað upp á það í endunum.
Pink
Þó hárið sé stutt er ýmislegt hægt að gera til
að breyta til. Þetta sannar rokkarinn Pink aft-
ur og aftur. Hárið var uppsett með spennu hátt
á höfðinu og ljósgrái liturinn fer vel við per-
sónuleika hennar. Með þessu móti er líka hægt
að láta stóra eyrnalokka njóta sín.
Taylor Swift
Breiðskífa Taylor Swift var valin besta plata
ársins á Grammy hátíðinni en stúlkan var þó
róleg í fasi þegar hún mætti til hátíðarinnar
með hárið skemmtilega kæruleysislega upp
sett. Við vitum þó að það er meira en að segja
það að setja hár svona glæsilega upp! Gald-
urinn er að hafa hárið laust upp sett og leyfði
Taylor nokkrum lokkum að falla fram á ennið.
Leit hún út eins og kvikmyndastjarna frá fyrri
hluta 20. aldarinnar á rauða dreglinum.
Carrie Underwood
Reuters
Glæsilegar söngkonur á Grammy- hátíðinni
Beyonce Knowles Miley Cyrus Pink Taylor Swift
Oft er þeirri skemmtilegu
spurningu velt upp hvað
maður myndi gera fyndi
maður veski troðfullt af
seðlum á förnum vegi.
Myndir þú hafa uppi á eig-
andanum og skila veskinu?
Myndirðu láta veskið
kyrrt? Yrkja jafnvel klúra
drápu og draga ýsur? Eða kalla til lögreglu? Myndirðu
máske hirða seðlabúntið og spreða í mellur, sprútt og
fíknilyf? Þessi spurning hefur herjað á manninn síðan ein-
hver forfaðir okkar hrópaði upp yfir sig „Fjandinn fjarri
mér að ganga með alla þessa peninga í vasanum!“ Gróf-
lega má skipa fólki í nokkra meginflokka eftir því hvernig
það svarar þessari áleitnu siðferðisspurningu. Í fyrsta lagi
eru þeir sem láta veskið eiga sig. Þeir eru leiðinlegir og
verða ekki til frekari umfjöllunar.
Næst ber að minnast þeirra sem signa sig og jesúsa og
leggja sig í líma við að koma veskinu í hendur rétts
eiganda. Eftir atvikum hringja hinir réttsýnu á
pólití og njóta fulltingis þess við rannsókn máls-
ins. Þeir vænta engrar umbunar, aðeins ær-
unnar og stoltsins af sjálfum sér. Í Dun-
geons & Dragons borðspilinu nefnist
þessi grúppa lawful-good, einnig þekkt
sem lawful-stupid. Ekki spyrja af
hverju ég veit það.
Þriðja sortin er sú sem tekur
veskið og slær eign sinni á
það. Innihaldinu sólundar
þessi síðasta sort í hvað það
sem hugurinn girnist þann
daginn, með samviskubiti eða
án þess. Ekki eru glögg skil
milli flokkanna, þau óskýrast af ýmsum
smáatriðum. Stærstu faktorarnir eru hve
miklir peningar eru í spilinu og hve mikið
vesen er fyrirsjáanlegt af því að koma veskinu í hendur
réttmæts eiganda. Milljónkall í fjólurauðum og hættara er
við að fólk falli flatt í freistingu. Félagsskírteini Línu Dís-
ar, þokkadísar í Salsaklúbb Alþýðunnar með heim-
ilisfangi, hæð og skónúmeri í veskinu er víst til að stýra
finnanda í átt að því að þefa uppi eiganda.
Engin skýr svör liggja þannig fyrir um hvar fólki skal
skipað í flokk því eitt er um að tala, annað í að komast.
Nema hvað, ég fann auðvitað veski á förnum vegi nú rétt
fyrir síðustu jól. Spennan helltist yfir mig þegar ég sá það,
rauðbrúnt, niðurrignt og tælandi á gangstéttarbrúninni.
Ég leit í kringum mig til að sjá hvort eigandinn væri
mögulega ekki farinn langt. Eða var það til að athuga
hvort nokkur myndi sjá mig stinga því á mig? Það var eng-
an að sjá þannig að ég teygði mig eftir veskinu. Strax og
fingurnir námu við það sá ég fyrir mér hvernig allir pen-
ingarnir í þessu þykka veski myndu afgreiða jólin á einu
bretti og áramótin líka. Ég gæti splæst í eitthvað sætt
handa mömmu, látið gera við bíl systu, gert upp við
pápa, keypt mér þetta blessaða úr, fest kaup á auka-
nýra á svarta markaðnum, kíkt á Grillið í hádeginu og
til Hondúras í kveldmat. Og svo videre og svo vid-
ere. Já og svo enn videre!
Púkinn á öxl mér og ég lögðum á ráðin,
neyslufyllerí í vændum. Kannski fimmþús-
undkall í mæðrastyrksnefnd, engillinn hin-
um megin höfuðs míns kom því að. Mig
myndi hvort eð er ekki muna um það.
Á endanum fór það svo að ég skilaði
veskinu í nálægan banka, kortin í
veskinu voru merkt honum. Ekki
varð af stórtækum, hedónískum
áformum mínum og púkans;
engillinn hafði betur, ég fetaði
hinn þrönga og beina veg. En það
var líka enginn peningur í veskinu. Og gaurinn
á kreditkortinu var ekkert líkur mér.
Skúli Á. Sigurðsson | skulias@mbl.is
’Engillinnhafði betur, ég
fetaði hinn
þrönga og
beina veg.
HeimurSkúla
Daglegt líf 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
Á þessum árstíma er rómantíkin
allsráðandi, enda bundin í dagatalið
bæði á bónda- og konudegi að
ógleymdum Valentínusardegi.
Marga dreymir um að stinga af á
sólríkari stað með elskhuganum og
nú hafa notendur síðunnar Tripad-
visor.com valið 10 rómantískustu
áfangastaði í heimi:
1. Moorea í Frönsku-Pólýnesíu
Hjartalaga paradísareyja með
hvítar strendur við Kyrrahafið.
2. Santorini á Grikklandi
Kríthvít hús umlukin dimmbláu
hafi og ógleymanlegu sólsetri.
3. Brugge, Belgíu.
Sjarmerandi miðaldahús og skipa-
skurðir, mjóar götur og góður bjór.
4. Dubaí, arabísku furstadæmin
Endalaus sól, lúxushótel, lúx-
usmatur, tax free og almennt dek-
ur.
5. New York, Bandaríkjunum
Hvergi er betra að hverfa í mann-
hafið og drekka í sig stórborgarlífið
6. Key West, Flórída
Aldrei frost og á veturna rignir nán-
ast ekkert. Sól og vatnasport.
7. Bath, Englandi
Eins og sögusafn undir beru lofti á
slóðum Jane Austen og heitra hvera.
8. Búdapest, Ungverjalandi
Drottning Dónár þykir ein sú falleg-
asta Evrópu og svo er verðlagið
gott.
9. Marrakech, Marokkó
Iðandi af framandi lífi og lykt. Æv-
intýraleg en samt svo nálæg.
10. Punta Cana,
Dóminíska lýðveldið
Karabískur draumur með 40 km
langri hvítri strönd og pálmatrjám.
10 rómantískustu áfangastaðirnir
Þær sem vilja mála sig á hlutlausan og nátt-
úrulegan hátt geta óhikað leitað í nýju „Warm &
Cozy“ línuna frá Mac. Litirnir eru hlýlegir en lág-
stemmdir og henta vel fölri vetrarhúð. Óhætt er að
mæla sérstaklega með hinum s.k. „shadestick“,
mjúkum augnskuggastiftum í fjórum litum. Það er
mjög auðvelt að bera skuggann á með stiftinu, frá-
bært fyrir þær sem ná ekki að mála sig fyrr en í
bílnum á morgnana. Hann er vatnsheldur og helst
að því er virðist að eilífu. Stiftin virka mjög vel sem
smá krydd með öðrum, mattari skuggum.
Þegar kemur að vörunum er húðlitir (e. nude)
eða hlutlausir litir alveg málið þetta misserið. Mac
er með þrjár ágætar útgáfur en „Warm and cozy“
er sérstaklega fallegur í daufbleikum, algjör klass-
ík.
Shadestick skuggastiftið kostar 4.490 kr, varalit-
irnir eru á 3.990 og mattir augnskuggar á 3.490 kr.
Hlýtt og notalegt
á varir og augu
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Listmunauppboð
í Galleríi Fold
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
fer fram mánudaginn 8. febrúar,
kl. 18.15 í Galleríi Fold,
á Rauðarárstíg
Gunnlaugur Blöndal
Á uppboðinu er úrval góðra verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna
Verkin verða sýnd:
í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17, sunnudag 12–17 og mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is