Morgunblaðið - 05.02.2010, Síða 20
✝ Erla Magnúsdótirfæddist í Reykja-
vík 17. ágúst 1971.
Hún lést á Landspít-
alanum 27. janúar síð-
astliðinn.
Foreldrar Erlu eru
Magnús Theodórsson,
f. 16.4. 1949, og Ást-
ríður Ingadóttir, f.
30.11. 1948. Erla átti
tvo bræður. Gunnar
Magnússon, f. 9.9.
1977, eiginkona hans
er Salóme Huld Garð-
arsdóttir og eiga þau
tvö börn, Kristbjörgu Ástu og
Magnús Inga. Lárus Ingi Magn-
ússon, f. 22.2. 1979, d. 28.6. 1979.
Maður Erlu er Stefán Þór Bene-
diktsson, f. 7.11. 1972, hann er son-
ur Benedikts Stefánssonar og Mar-
grétar Árnmarsdóttur. Erla hóf
sambúð með Stefáni árið 1992.
Börn Erlu og Stefáns eru: 1) Inga
Lára, f. 18.4. 1997. 2) Ásta Margrét,
f. 25.3. 2001. 3) Bene-
dikt, f. 19.7. 2002. 4)
Sandra Líf, f. 17.8.
2005. 5) Birta, f. 17.8.
2005.
Erla ólst upp í
Reykjavík. Hún út-
skrifaðist sem hár-
greiðslumeistari frá
Iðnskólanum í
Reykjavík árið 1993.
Hún opnaði sína eigin
hárgreiðslustofu,
Primadonnu, 3. maí
árið 1994, og gegndi
hún því starfi alla tíð.
Hún byggði sína stofu upp frá
grunni af mikilli alúð og metnaði.
Erla vann til fjölda viðurkenninga
fyrir hinar ýmsu keppnir í grein-
inni. Hún helgaði sig fjölskyldu
sinni og heimili af mikilli alúð og
umhyggju.
Útför Erlu fer fram frá Selja-
kirkju í dag, föstudaginn 5. febrúar
2010, og hefst athöfnin kl. 13.
Elsku mamma okkar.
Við eigum mjög erfitt með að trúa
því að þú sért farin frá okkur.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
(Ásmundur Eiríksson.)
Takk fyrir allar frábæru stundirn-
ar sem við áttum saman og við mun-
um geyma þessar fallegu stundir í
hjarta okkar að eilífu.
Þín börn,
Inga Lára Stefánsdóttir,
Ásta Margrét Stefánsdóttir,
Benedikt Stefánsson, Sandra
Líf Stefánsdóttir
og Birta Stefánsdóttir.
Elsku hjartans Erla okkar, sorg
okkar er meiri en orð fá lýst.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins
blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann
allsherjardóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla
stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson.)
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífs þíns nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði nú sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku
Erla okkar.
Mamma og pabbi.
Með fátæklegum orðum langar
mig að minnast elskulegrar systur
minnar sem lést langt fyrir aldur
fram. Erla var ekki bara stóra systir
mín heldur líka einn minn besti vin-
ur. Hún var mín stoð og stytta og
mín fyrirmynd í öllu, nema kannski í
barneignum. Við höfum alla tíð verið
mjög náin og sumir hafa sagt að við
værum ekki eðlileg systkini því við
rifumst aldrei. Þegar við vorum lítil
misstum við Lárus Inga, bróður okk-
ar, aðeins 4 mánaða gamlan. Eftir
það verndaði Erla mig af mikilli alúð
og passaði alltaf vel upp á mig.
Erla var fjörugur unglingur, sem
betur fer man ég ekki mikið eftir
gelgjuskeiðinu hennar, en ég gleymi
aldrei þegar hún var að passa mig á
sínum unglingsárum. Þegar vinirnir
komu í heimsókn hafði hún gott lag á
að plata mig í hin ýmsu hlutverk. Ég
var annað hvort í uppvaskinu eða
plötusnúður, já, hún kunni sko að
nýta litla bróður. Eftir að Erla fór að
læra hárgreiðslu þurfti hún að æfa
sig reglulega heima, auðvitað var
það hausinn á mér sem var fórnar-
lamb þeirra æfinga. Að æfingu lok-
inni fór hún með mig í klippingu og
bannaði mér að segja frá því hver
hefði verið að klippa mig. Ég hef allt-
af sagt það að fórnfýsi mín eigi stór-
an þátt í því hversu fær fagmaður
hún var.
Ég man vel eftir því þegar Erla
kynnti mig fyrir Stebba í fyrsta
skiptið, ég verð að viðurkenna það að
ég var frekar fúll í fyrstu því mig
dreymdi alltaf um að Erla ætti
íþróttastjörnu sem kærasta. Þrátt
fyrir að Stebbi hafi hvorki verið í
handbolta né fótbolta þá var hann
ekki lengi að sanna sig fyrir mér og
urðum við strax góðir vinir. Betri
lífsförunaut gat Erla ekki fengið og
geisluðu þau af hamingju og ást. Þau
eiga fimm yndisleg börn sem hún var
svo stolt af. Það voru ófá samtölin
sem við áttum um gullmolana okkar
og okkur fannst svo gaman hvað
börnin hennar voru góð við börnin
mín.
Erla var ekki bara með stóra fjöl-
skyldu heldur rak hún hárgreiðslu-
stofu sem hún byggði upp frá grunni.
Ég hef aldrei skilið hvar hún fékk
allan þennan kraft og orku sem hún
var með. Það er svo erfitt að skilja og
sætta sig við að þú sért farin, sökn-
uðurinn er meiri en orð fá lýst. Eftir
standa ógleymanlegar minningar
sem við áttum saman. Þú munt alltaf
eiga stað í hjarta mér og ég mun
segja börnunum okkar sögur af þér
þegar þau verða eldri. Ég mun segja
þeim frá konunni sem vissi alltaf öll
svörin þegar maður leitaði eftir að-
stoð. Konunni sem kvartaði aldrei
þótt álagið væri mikið á heimilinu og
í vinnu. Konunni sem stóð eins og
klettur bak við vini sína og var alltaf
tilbúin að hjálpa þeim ef á þurfti að
halda. Konunni sem var svo stolt af
bróður sínum. Konunni sem var svo
góð við foreldra sína og ömmur.
Konunni sem var með hjartað úr
gulli. En fyrst og fremst konunni
sem elskaði manninn sinn og börnin
sín af öllu sínu hjarta.
Elsku Erla, þér er örugglega ætl-
að stórt hlutverk á nýjum stað. Ef ég
þekki þig rétt þá ertu komin með
Lárus Inga í fangið og farin að
greiða ömmu Gyðu.
Hvíl í friði, elsku systir.
Þinn bróðir,
Gunnar Magnússon.
Í dag er kvödd hinstu kveðju ung
kona í blóma lífsins og mikill harmur
er kveðinn að fjölskyldu og vinum
vegna ótímabærs fráfalls hennar.
Ég vil þakka þér, kæra Erla, fyrir
þær notalegu samverustundir sem
ég hef átt með þér og fjölskyldu
þinni, þær minningar eru mér dýr-
mætar.
Hvað fær betur lýst Erlu okkar en
þessar ljóðlínur skáldsins.
Fegurðin er frá þér barst
fullvel þótti sanna
að yndið okkar allra varst,
engill meðal manna.
Hlutverk þitt í heimi hér
þú hafðir leyst af hendi,
af þeim sökum eftir þér
Guð englahópa sendi.
Sú besta gjöf er gafst þú mér
var gleðisólin bjarta
sem skína skal til heiðurs þér
skært í okkar hjarta.
(B.H.)
Elsku Stefán, Inga Lára, Ásta
Margrét, Benedikt, Birta, Sandra
Líf og aðrir aðstandendur, Guð vaki
yfir ykkur.
Megi minningin um góða konu lífa
í hjörtum okkar allra að eilífu.
Kveðja frá
Unu Sigríði (Siggu)
ömmu á Reyðarfirði.
Elsku Erla, ég kveð þig með sorg
og söknuði í hjarta. Það er ekki hægt
að skilja tilganginn með þessu öllu.
Við erum mörg sem höfum misst svo
mikið við sviplegt fráfall þitt. Þú
varst kletturinn í hafinu sem allir
gátu leitað skjóls hjá. Það var sama
hvort það var lítið eða smátt, alltaf
varst þú tilbúin til þess að hjálpa til.
Þú tókst mér opnum örmum þeg-
ar við Gunni byrjuðum að vera sam-
an. Okkur tókst vel að skipta honum
á milli okkar. Við urðum strax góðar
vinkonur enda ótrúlega gott að tala
við þig og þú alltaf tilbúin til að
hlusta. Ég man þegar við ræddum
tvíburana í fyrsta skipti, þá vorum
við saman að styðja við bakið á okk-
ar manni á handboltaleik þegar þú
sagðir mér fréttirnar. Þú varðst líka
fyrst til að sjá það á mér þegar ég
var ólétt og studdir vel við bakið á
mér í bæði skiptin. Velferð barnanna
minna skipti þig miklu máli. Ef þau
urðu veik þá hringdir þú oft á dag til
að athuga með þau og í eitt skiptið
pantaðir þú tíma hjá barnalækni fyr-
ir okkur. Allt saman gert til þess að
hjálpa til. Þú varst alltaf til í að
passa fyrir okkur, þig munaði ekkert
um eitt eða tvö börn í viðbót.
Börnin þín voru líf þitt og yndi, þú
varst afskaplega stolt af þeim og
hafðir mikinn metnað til að þeim
gengi sem allra best í því sem þau
voru að taka sér fyrir hendur og
fengju allan þann stuðning sem þau
þurftu að fá. Það voru ófá símtölin
sem við áttum varðandi nám
barnanna og alltaf hringdir þú stolt í
mig þegar börnin þín höfðu fengið
einkunnirnar sínar.
Við höfum eytt löngum tíma sam-
an á Spáni í húsi foreldra þinna. Það
hefur verið frábær tími og við hvor-
ugar í rónni fyrr en búið var að
panta sumarfrí til Spánar. Við nut-
um þess báðar að vera þar og slappa
af og leyfa börnunum að leika sér í
sundlauginni. Það verður skrítið að
fara þangað án þín.
Hvernig er hægt að halda áfram
og horfa fram á veginn án þín? Ekki
veit ég það. En eitt er víst að minn-
ingin um góða og glæsilega konu lifir
áfram. Takk fyrir allt, elsku Erla.
Þín mágkona,
Salóme Huld Garðarsdóttir.
Snöggt og óvænt var eins og ský
drægi fyrir sólu við fráfall elskulegr-
ar tengdadóttur okkar og stórt
skarð hefur myndast í okkar fjöl-
skyldu.
Orð fá ekki lýst, elsku Erla,
hversu allt er tómlegt án þín. Þegar
við sitjum hér buguð af sorg er gott
að eiga trú, trú á lífið og að dauðinn
marki aðeins þáttaskil í lífinu í átt til
meiri þroska. En dauðinn er sár og
erfitt að sættast við hann. Líkt og nú
þegar hann tekur frá okkur yndis-
lega manneskju í blóma lífsins, burt
frá ungum börnum, manni, ástkær-
um foreldrum, vinum og ættingjum-
.Við spyrjum en fáum ekki svör,
hvers vegna þér, elsku Erla, var ætl-
uð svo fljótt önnur tilvera?
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(Hallgr. J. Hallgr.)
Það var fyrir 17 árum sem þú
komst inn í líf okkar þegar þið Stef-
án fóruð að vera saman. Frá fyrstu
kynnum litum við ekki bara á þig
sem tengdadóttur heldur varst þú
okkur líka sem dóttir og góð vin-
kona. Við sáum hvað Stefán var lán-
samur að kynnast þér, þú sem varst
allt í senn, kröftug, lífsglöð,
skemmtileg og góð kona. Allt sem þú
tókst þér fyrir hendur einkenndist
af dugnaði, samviskusemi og ósér-
hlífni. Nærvera þín var einstök, og
þó að þú hefðir nóg á þinni könnu
varstu ávallt tilbúin að hjálpa til og
gleðja aðra. Þú varst fyrirmyndar-
móðir sem ræktaðir þína eigin fjöl-
skyldu af miklum myndarskap og
við vorum stolt af því hvað þið Stef-
án voruð samstiga í að ala upp
barnahópinn ykkar og búa þeim fal-
legt og gott heimili. Sú umhyggja og
metnaður sem þið hafið lagt í upp-
eldi þeirra frá fyrstu tíð mun áfram
verða þeim gott veganesti. Á þessari
sorgarstundu leitar hugurinn til lið-
inna samveru- og gleðistunda, þær
minningar munum við geyma í hjört-
um okkar um ókomin ár.
Það sem stendur upp úr núna er
þakklæti fyrir að hafa orðið þeirrar
gæfu aðnjótandi að eyða síðustu jól-
um með ykkur.
Við erum þakklát fyrir þau ár sem
þú hefur verið hluti af lífi okkar og
minningar um góða konu munu lifa í
hjörtum okkar að eilífu. Samtaka-
máttur stórfjölskyldunnar er mikill
og saman munum við vinna úr þeirri
sorg sem skall svo fyrirvaralaust á
við fráfall þitt.
Margrét og Benedikt.
Erla frænka hefur alltaf reynst
mér vel, enda verið mér eins og hin
besta systir. Hún hjálpaði mér og
studdi alla tíð og fannst mér gott að
leita til hennar, sama hvað það var.
Maður hefur alltaf verið meira en
velkominn í Lækjarselið, þar sem
Erla og Stefán boðuðu ekkert nema
hlýju og gestrisni.
Erla var falleg kona, með stórt
hjarta og vildi öllum vel. Hún var
einstaklega góð móðir sem rak stórt
heimili og fyrirtæki og ól upp fimm
yndisleg börn. Sýndi það dugnað
hennar og styrkleika.
Þegar ég hugsa um Erlu frænku
streyma fram minningarnar. Allt
sem við höfum gert og upplifað sam-
an frá því ég fæddist, enda var ég
litla frænka hennar. Efst er mér í
huga dvölin á Spáni síðastliðið sum-
ar þegar öll fjölskyldan var þar sam-
an komin til að eiga góðar stundir.
Einnig minnist ég allra gamlárs-
kvöldanna og allra skemmtilegu
stundanna sem við áttum saman í
Lækjarselinu.
Áfallið var mikið en söknuðurinn
er enn meiri og erfitt er að trúa því
að Erla frænka sé ekki lengur með
okkur. Ber ég með mér mikinn tóm-
leika. Stefán minn, megi Guð vera
með þér og börnunum, hugur minn
mun alltaf verða hjá ykkur.
Erla María.
Það er með erfiðismunum að ég
sit hér og skrifa minningarorð um
frænku mína sem var tekin á brott
frá okkur.
Ég á margar góðar minningar um
Erlu frænku frá okkar æskuárum.
Það fyrsta sem kemur í huga mér er
mynd af Erlu og mér nýkomin úr
baði í Hófgerðinu. Þessi mynd hefur
alltaf fylgt mér þegar ég hef hugsað
um þig.
Minnist þess að við bjuggum í
Noregi og við heimsóttum ykkur í
Svíþjóð og við dönsuðum við öll
ABBA lögin sem voru svo vinsæl.
Það er mér líka mjög minnisstætt
þegar mamma og pabbi fóru til út-
landa, við systkinin fengum að vera
hjá ykkur í Jörfabakkanum ein-
hverja daga. Við komum heim úr
skólanum og fengum ristað brauð
með osti og djús að drekka hjá Ástu
frænku sem var alltaf svo gaman.
Já, þær eru margar minningarnar
um Erlu frænku mína og þær lifa
allar áfram í mér.
Elsku Stefán, Inga Lára, Ásta
Margrét, Benedikt, Birta og Sandra
Líf, ég votta ykkur mína dýpstu
samúð. Megi ljós Erlu lýsa yfir ykk-
ur alla tíð.
Elsku Maggi, Ásta, Gunni og
amma Erla. Sendi ykkur mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
Megi Guð vera með ykkur öllum
og gefa ykkur styrk í þessari sorg.
Elsku frænka, hvíl í friði.
Theodór Ólafsson
(Teddi frændi).
Það er erfitt að sitja hér og skrifa
minningarorð um frænku sína, unga
konu sem tekin var burt í blóma lífs-
ins. Ég hef þekkt þig allt mitt líf og
þó svo að samskipti okkar hafi
minnkað á fullorðinsárunum vorum
við mikið saman á okkar yngri árum
og á ég margar góðar minningar frá
því í Jörfabakkanum og þegar við
fórum saman í skemmtilega ferð til
Hollands með fjölskyldum okkar.
Alltaf hefur þó verið haldið í þá
hefð að vera saman á jóladag og
þegar við vorum orðin of mörg fyrir
íbúðina hjá ömmu Erlu fannst þér
ekki mikið mál að taka að þér að
bjóða okkur öllum til þín í íbúðina
niðri í Lækjarselinu. Já, þú varst
ávallt kröftug kona og kletturinn í
því að halda saman fjölskyldunni þó
að það væri ekki nema þennan eina
dag á ári. Fyrir það þakka ég þér
mikið og nú sér maður hvað það er
mikilvægt að halda tengslunum.
Þegar pabbi var nýdáinn var ég í
klippingu hjá þér og töluðum við
mikið um að við þyrftum að hittast
meira og þá sérstaklega með börnin
okkar.
Þú varst alltaf tilbúin að bjóða
okkur heim ef eitthvað var og gerðir
það nokkrum sinnum. Þú studdir
okkur mikið þegar pabbi var veikur
og líka þegar hann dó. Mér er svo
minnisstæð góða kvöldstundin sem
við frændsystkinin ég, þú, Teddi og
Björg áttum saman með ömmu Erlu
heima hjá þér þegar pabbi var far-
inn. Þú vildir endilega fá okkur í
mat, við pöntuðum okkur kínversk-
an og sátum og rifjuðum upp góðar
minningar. Ég man líka þegar þú
hringdir í mig þegar pabbi lá bana-
leguna til að spyrja hvernig mér liði.
Þér fannst svo óréttlátt að fólk
þyrfti að missa foreldri sitt svona
ungt og þú talaðir líka um það að þú
vissir ekki hvað þú myndir gera ef
þú misstir mömmu þína eða pabba
og það á besta aldri.
Já, Erla mín, þetta símtal situr í
mér og nú hugsa ég til barnanna
þinna fimm sem þurfa að ganga í
gegnum það erfiða verkefni að
missa foreldri sitt, mömmu sína sem
var alltof ung til að vera tekin frá
þeim, klettinn í lífi þeirra.
Þetta er erfitt líf og óréttlátt
stundum. Það er sagt að þeir deyi
ungir sem Guðirnir elska en maður
hugsar með sér af hverju þú, svona
ung og kröftug kona tekin frá fimm
börnum og eiginmanni, það finnst
manni óskiljanlegt.
Elsku Erla frænka, nú er komið
að kveðjustund. Ég veit að þú ert
komin á fallegan stað núna og það er
tekið vel á móti þér. Ég bið góðan
Guð að geyma þig og vernda.
Elsku Stefán, Inga Lára, Ásta
Margrét, Benedikt, Birta og
Sandra. Votta ykkur mína dýpstu
samúð og megi ljós Erlu og minning
hennar lýsa ykkur áfram í lífinu.
Elsku Ásta, Maggi, Gunni og
amma Erla. Mínar dýpstu samúðar-
kveðjur til ykkar. Stórt skarð er
höggvið í okkar litlu fjölskyldu.
Guð geymi ykkur og gefi ykkur
styrk í sorginni.
Hvíl í friði, elsku frænka,
Kristín Ásta Ólafsdóttir (Kiddý).
Svo snögglega féll Erla frænka
mín frá að ég á enn mjög bágt með
að trúa því. Eflaust mun það taka
langan tíma að sætta mig við það að
þessi undurfallega og brosmilda
frænka mín sé ekki lengur meðal
Erla Magnúsdóttir HINSTA KVEÐJA
Þakklæti fyrir vinskapinn
þakklæti fyrir trúnaðinn
þakklæti fyrir hláturinn
þakklæti fyrir jákvæðni þína.
Dugnaður þinn verður mér
leiðarljós inn í framtíðina.
Hanna Birna.
20 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010