Morgunblaðið - 05.02.2010, Síða 21
okkar. Hvar sem hún birtist lýsti
hún upp umhverfi sitt með gæsku
sinni og hlýju viðmóti.
Mínar fyrstu minningar um Erlu
voru úr æsku okkar í Breiðholtinu.
Þrátt fyrir nokkurn aldursmun þá
lékum við okkur oft saman. Sérstak-
lega kær í mínu hjarta er sú minn-
ing þegar Erla kenndi mér á hjóla-
skauta, með misjöfnun árangri í
fyrstu, en ekki missti hún trúna á
mér og tókst það svo að lokum. Það
lýsti gjafmildi hennar vel, sem var
einn af hennar mörgu kostum, þeg-
ar hún gaf mér gömlu hjólaskautana
sína.
Leiðir okkar skildust á tímabili en
við fundum hvor aðra aftur í gegn-
um hárgreiðsluna og urðum á ný
nánar og góðar vinkonur. Þeirra ára
sem ég vann hjá Erlu á hárgreiðslu-
stofunni Primadonnu mun ég ávallt
minnast með mikilli ánægju og
hlýju. Þegar ég lít til baka á sam-
veru okkar og samskipti var Erla í
raun eins og stóra systir mín sem ég
leit upp til og mun ávallt gera.
Elsku Ásta, Maggi, Gunni, Stef-
án, börn og fjölskylda, megi Guð
gefa ykkur styrk á þessum erfiða
tíma.
En nú er með miklum trega kom-
ið að kveðjustund þar sem þú ert
komin á Guðs fund. Minning þín lif-
ir. Þú varst sú eina og sanna Prima-
donna.
Með söknuð og sorg í hjarta.
Þín frænka,
Magna Huld.
Það er erfitt að lýsa því hvað mér
brá við að fá þær fréttir að hún Erla
frænka lægi þungt haldin á sjúkra-
húsi. Ég sem hitti hana kvöldið áður
og hver hefði trúað því að það yrði í
síðasta sinn sem við hittumst? Það
er stutt á milli gleði og sorgar í
þessu lífi og þau eru þung skrefin
mín í dag þegar ég kveð mína elsku-
legu frænku. Við sitjum eftir með
sorgina og reiðina því þú varst tekin
frá okkur allt of snemma, í blóma
lífsins.
Það er mikil sorg og eftirsjá sem
fyllir tilveru okkar á þessum tíma og
minningarnar um frábæra frænku
hrannast upp. Minningar þegar ég
var hjá ykkur í pössun í Jörfabakk-
anum, eða í Hólmgarðinum hjá
ömmu Gyðu þar sem margt var um
manninn flesta sunnudaga hér á ár-
um áður. Skemmtilegu stundirnar
sem við og fjölskyldur okkar áttum
saman á Spáni, eða kvöldið góða
þegar þú kenndir mér að meta Sushi
og allar góðu stundirnar sem við átt-
um saman í Ömmu Gyðu félaginu,
svo ekki sé talað um allar flottu
klippingarnar og góða spjallið sem
við áttum á hárgreiðslustofunni
þinni.
Það var svo gaman að hitta Erlu
og Stefán, hvar sem þau voru var yf-
irleitt strax farið að skipuleggja
næsta hitting og þar var Erla oftar
en ekki fremst í flokki. Hún Erla var
kröftug og lífsglaður frumkvöðull,
hennar verður sárt saknað og verð-
ur stórt skarð í lífi okkar sem ekki
verður að fullu fyllt. Elsku Erla
frænka, þakka þér fyrir þær stundir
sem við áttum saman og vildi ég að
þær hefðu orðið miklu fleiri.
Hún var einstök perla.
Afar fágæt perla,
full af kærleika,
skreytt gimsteinum
sem glitraði
og gerðu líf samferðamanna hennar
innihaldsríkara og fegurra.
Fáar perlur eru svo ríkulega búnar,
gæddar svo mörgum af dýrmætustu
gjöfum Guðs.
Hún hafði ásjónu engils
sem frá stafaði ilmur
umhyggju og vináttu,
ástar og kærleika.
Hún var farvegur kærleika Guðs,
kærleika sem ekki krafðist endur-
gjalds.
Hún var vitnisburður
um bestu gjafir Guðs,
trúna, vonina, kærleikann og lífið.
Blessuð sé minning einstakrar perlu.
(Sigurbjörn Þorkelsson.)
Elsku Stefán, Inga Lára, Ásta
Margrét, Benedikt, Birta, Sandra
Líf, Ásta, Maggi, Gunni, Salóme,
Kristbjörg Ásta og Magnús Ingi,
Guð veri með ykkur og gefi ykkur
styrk á þessum erfiða tíma, hugur
minn er hjá ykkur.
Ásta Kristín.
Í dag kveðjum við Erlu, kæra
frænku. Erla átti og rak hár-
greiðslustofuna Primadonna, af
mikilli röggsemi og dugnaði, og var
hún ein sú besta í faginu og átti mik-
ið af tryggum viðskiptavinum, sem
nú munu sakna hennar þegar henn-
ar nýtur ekki lengur við á hár-
greiðslustofunni.
Erla var mikil driffjöður í ömmu
Gyðu-félaginu, þar sem allir ætt-
ingjar ömmu Gyðu hittust alltaf
reglulega og var þá oft glatt á hjalla
. Erla var skemmtileg og alltaf var
hún svo glaðleg og kát. Hún var allt-
af til í allt og hafði gaman af hinum
ýmsu uppátækjum, hún hafði mjög
gaman af að ferðast. Erla hafði
ótrúlega gaman af Sálinni hans
Jóns míns og fór tvær ferðir til Kö-
ben til að hlusta á þá og sjá á tón-
leikum. Auk þess að vera með sinn
eigin atvinnurekstur var Erla með
stórt heimili og áttu þau Stefán 5
yndisleg börn, það segir okkur hvað
hún var mikill dugnaðarforkur að
reka fyrirtæki og vera með stórt
heimili og allt gekk þetta upp.
Við biðjum góðan Guð að styrkja
Stefán og börnin í þessari miklu
sorg.
Kveðjum þig, kæra frænka, að
lokum með texta úr laginu „Lestin“
með Sálinni hans Jóns míns,
Standið klár á stöðinni
ekki missa af lestinni.
Engar töskur þurfum vér
aðeins það sem innra er.
Þér er boðið upp í ferð,
andlegt fæði af bestu gerð.
Hvergi heyrist orðið „nei“
– Field er fararstjórinn May.
Lestin er að fara
hún leggur upp í kvöld
í langferð milli tveggja heima
með í för er sálnafjöld.
Lestin er að fara,
ég og þú við förum með,
hún kemur við í hverju landi,
leiðarlok ófyrirséð.
Kveðja,
Hilmar frændi og Unnur Elva.
Dökkan skugga dró fyrir sólu
þegar okkur bárust þær harma-
fréttir að Erla Magnúsdóttir væri
látin. Manni verður orða vant og
finnst erfitt að sætta sig við að kona
í blóma lífsins sé hrifin burt úr
þessu lífi, burt frá maka, ungum
börnum og ástkærri fjölskyldu.
Á erfiðum tímum er gott til þess
að hugsa hve samheldnar fjölskyld-
ur þeirra Stefáns og Erlu eru, það
er gæfa Stefáns og barnanna.
Á þessari sorgarstundu kemur
upp í hugann hluti af ljóði eftir
Andrés Eyjólfsson, afa okkar, sem
hann orti við fráfall eiginkonu sinn-
ar:
Allt í tímans ólgusjó hverfur,
allt sem lifnar og sést ekki meir.
Þungbær harmur að hjartanu sverfur
þá horft er eftir vini sem deyr.
Já vinir heilsast og vinir kveðjast
vinir njótast stutt æviskeið.
Vinir gráta og vinir hér gleðjast
og vinir hverfa á ævinnar leið.
Elsku Stebbi frændi, Inga Lára,
Ásta Margrét, Benedikt, Birta,
Sandra Líf og aðrir ástvinir, við
sendum ykkur okkar innilegustu
samúðarkveðjur,
Guðný Fjóla, Anna Jóna
og fjölskyldur.
Elsku Erla, það er erfitt að skilja
atburðarás síðustu daga og að horf-
ast í augu við að þú hafir verið tekin
frá okkur, langt fyrir aldur fram.
Tekin svo skjótt frá fjölskyldu þinni
sem raun ber vitni. Lífið er enda-
laus barátta, það er ekki alltaf sann-
gjarnt og það erum við öll að upplifa
í dag. Það er fátt sem kemur manni
meira niður á jörðina en staðreynd-
ir lífsins. Við ætlum ekki að reyna
að skilja hvernig það er að missa
maka sinn, barn eða systkini. Hugs-
unin ein fær mann til að gráta, mað-
ur fær ekki skilið hvað lífið er
grimmt. Líklegast verður það þitt
hlutverk að kenna okkur hinum að
berjast áfram og gefast aldrei upp
þó á móti blási. Að vera ævinlega
þakklát fyrir það sem við höfum, því
við vitum aldrei hvenær það hverfur
okkur úr hendi. Hvað er hægt að
segja? Við höfum varla meðtekið
þetta almennilega ennþá. Svona
læðast örlögin aftan að manni.
Elsku Erla, við vonum svo inni-
lega að þú hafir vitað hve vænt okk-
ur þótti um þig og hvað við erum þér
ævinlega þakklát fyrir þær stundir
sem við áttum með þér. Þú hefur
staðið þig svo vel, búið þér og þínum
svo vel í haginn og þannig munum
við minnast þín. Það var aðdáunar-
vert hversu dugleg þú varst, rakst
fyrirtækið og með svona stóra og
fallega fjölskyldu. Það geislaði alltaf
af þér, þú reyndist krökkunum okk-
ar svo vel og taldir það aldrei eftir
þér að bæta fleirum við á heimilið,
þó þið hefðuð fimm börn fyrir. Það
varst svolítið þú, að vilja hafa fjör í
kringum þig, sama hvað gekk á.
Þegar maður leitaði til þín þá kom
maður aldrei að tómum kofunum, þú
varst okkur sannur vinur, alltaf
tilbúin til að hlusta og ráðleggja.
Það var svo bjart í kringum þig og
andrúmsloftið svo skemmtilegt, því
þú vildir vita svo margt. Það var oft
ótrúlegt hvað þú komst yfir margt á
einum degi. Hvernig þú hreinlega
hafðir orku í þetta allt saman, en
svona varstu.
Elsku Erla, við eigum eftir að
sakna þín um aldur og ævi. Við vit-
um að nú ert þú komin á góða stað-
inn og það er ljós í myrkrinu.
Hver minning dýrmæt perla að liðn-
um lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Elsku Stebbi, Inga Lára, Ásta
Margrét, Benni, Sandra Líf, Birta,
Magga, Benni, Ásta, Maggi, Gunni,
Salóme og Erla amma, hugur okkar
er hjá ykkur og þið eigið alla okkar
samúð.
Ásta og Árni.
Hver hefði trúað því þegar aðal-
skvísan á Primadonnu kvaddi okkur
föstudaginn 22. janúar að það væri í
síðasta sinn. Hún var full tilhlökk-
unar, geislandi glöð og kvaddi með
orðunum: Bless stelpur, við
sjáumst! Þetta var í síðasta skiptið
sem hún labbaði út af Primadonnu,
fyrirtækinu sínu sem hún hafði
byggt upp af elju og dugnaði í 16 ár.
Erla var skvísa, töffari, gleðigjafi,
fagurkeri, hörkutól, leiðtogi, dugleg,
sanngjörn og treysti fólkinu sínu.
Hún var vinur vina sinna og alltaf
var gott að leita til hennar, hvort
sem það var vegna vinnu eða per-
sónulega. Alltaf var stutt í hláturinn,
hún var forvitin, þurfti að vita allt
um alla og fylgdist með öllum, enda
vildi hún að allir hefðu það gott og
væru sáttir við lífið eins og hún var
með Stebba sínum. Hún kvartaði
aldrei þó álagið væri mikið, hvort
heldur í vinnunni eða heima. Betri
yfirmann er ekki hægt að hugsa sér,
hún var allt í senn stjórnandi, vinur
og hlustandi. Einkunnarorð Erlu
voru: Ekkert mál – minnsta mál.
Erla var ótrúlega félagslynd og
laðaði að sér fólk. Þann stóra og fjöl-
breytta hóp vina og viðskiptavina
hefði hún ekki átt nema fyrir það
hver hún var.
Ekki má gleyma frábærum stund-
um sem við áttum saman utan vinn-
unnar, árshátíðir, jólaveislur, grill-
partí og ýmislegt annað. Henni var í
mun að allir væru sáttir og ánægðir
og hefðu gaman af og var hún þegar
farin að leggja drög að fjölskyldu-
ferð í Þórsmörk á komandi sumri.
Eftir frábæra samveru í starfi og
vináttu, allt upp í 16 ár, kveðjum við
góðan vin og félaga. Fjölskyldu Erlu
vottum við okkar dýpstu samúð á
þessum erfiða tíma og sendum þeim
styrk til að halda áfram og halda vel
utan um Stebba og börnin þeirra,
sem voru henni allt.
F.h. starfsfólks Primadonnu,
Linda.
Það er föstudagur og helgin að
ganga í garð, Stefán félagi minn
hringir í mig rétt til að heyra í mér
hljóðið. Hann og Erla eru á leið á ár-
legt þorrablót um kvöldið með vina-
fólki og eftirvæntingin liggur í loft-
inu. Við ræðum sameiginlegt
áhugamál okkar – golfið, hvenær sé
best að byrja að undirbúa það fyrir
sumarið og jafnvel skoða möguleika
á skemmtilegri golfferð til útlanda
áður en tímabilið hefst í vor. Tæpum
sólarhring síðar fæ ég símtal þar
sem mér er tjáð að Erla hans Stebba
liggi þungt haldin á spítala og sé vart
hugað líf. Í einu vettvangi er eins og
heimurinn hrynji, ótal spurningar
sækja að og maður finnur fyrir al-
gjörum vanmætti. Erla barðist
hetjulega fyrir lífi sínu í nokkra daga
en sárin reyndust of stór. Hvað get-
ur réttlætt að taka ástríka, um-
hyggjusama og yndislega konu frá
eiginmanni sínum og fimm ungum
börnum? Þeirri spurningu hefur
maður velt fyrir sér fram og til baka
síðustu daga en engin svör fengið.
Eftir stendur minning um einstaka
konu sem ég kynntist fyrir tæpum 20
árum þegar þau Erla og Stebbi
kynntust í fyrsta sinn. Það var eng-
inn í vafa um að þarna fundu tveir
einstaklingar það sem þau leituðu að,
ást við fyrstu sýn lýsir því best.
Erlu minnist ég sem ótrúlegs
dugnaðarforks, ósérhlífinnar, elsku-
legrar, umhyggjusamrar og
skemmtilegrar konu sem var vinur
vina sinna. Það var sama hvenær
maður hitti Erlu, maður naut alltaf
nærveru hennar, sem oftast var í
klippistólnum á Primadonnu þar
sem við ræddum allt milli himins og
jarðar. Stundum þurfti að hvísla en
oftast var hlegið og sagt frá
skemmtilegum hlutum og uppákom-
um. Tíminn þar leið alltaf of fljótt og
mörg mál náðum við ekki að ræða til
enda. Síðustu dagar hafa verið geysi-
lega erfiðir og margar minningar
runnið í gegnum hugann. Söknuður-
inn er mikill en þó mestur hjá Stef-
áni, börnunum þeirra fimm og fjöl-
skyldum þeirra. Stefán og Erla hafa
alltaf verið fyrirmynd vina sinna,
ástin og umhyggjan fyrir börnunum
hefur verið aðdáunarverð og getur
verið okkur öllum til eftirbreytni.
Kæri Stefán, Inga Lára, Ásta
Margrét, Benedikt, Birta og Sandra
Líf, ég votta ykkur mína dýpstu
samúð, hugur minn er hjá ykkur í
sorg ykkar og missi. Foreldrum
Erlu, tengdaforeldrum, Gunnari
bróður Erlu og fjölskyldu sendi ég
einnig mína dýpstu samúð.
Að lokum vil ég minnast orða Stef-
áns við okkur vinina, „við verðum
bara að halda áfram, það er ekkert
annað í boði“. Þessi orð hefði Erla
viljað heyra.
Megi minning um einstaka konu
lifa um ókomna tíð.
Óskar Sveinsson.
Elsku Erla. Það er sárara en
nokkur orð fá lýst að standa frammi
fyrir þessari kveðjustund og horfast
í augu við að þú hafir verið hrifin á
brott í blóma lífsins. Þú sem áttir svo
bjarta framtíð og lífið lék við. Við
spyrjum hvers vegna, en fáum engin
svör og hugurinn fyllist vanmætti,
sorg og söknuði en jafnframt þakk-
læti fyrir að hafa kynnst þér og notið
þinnar vináttu.
Þú varst einstök kona, bæði falleg
og glæsileg svo eftir var tekið og
margir áttu erfitt með að trúa því að
þú værir fimm barna móðir. Fas þitt
var ljúft og bros blíðlegt og ávallt
geislaðir þú af lífskrafti og glaðværð.
Með heilsteyptum persónuleika,
hjartahlýju og einlægni snertir þú
fólk hvar sem þú komst og nærvera
þín var alltaf notaleg. Þú hafðir
þennan óútskýrða neista, kraft og
dugnað og aldrei skorti þig kjark til
þess að takast á við ný verkefni.
Hvort sem það var að ala börn, sinna
heimili, reka fyrirtæki, fara í ferða-
lög eða halda matarboð og í hugann
koma myndir af þér í Lækjarselinu
þar sem þú eldaðir hvern veislurétt-
inn á eftir öðrum með eitt og stund-
um tvö börn í fanginu. Við spurðum
þig oft hvernig þú kæmist hreinlega
yfir þetta allt saman og þá stóð ekki
á svari: „Elskan mín, þetta er ekkert
mál“. Alltaf stóðstu eins og klettur
með jákvæðnina að leiðarljósi og
þótt álagið væri mikið léstu það ekki
aftra þér frá því að rækta fjölskyldu
þína og vini og alltaf varstu tilbúin að
leggja þitt af mörkum við að aðstoða
aðra. Oftar en ekki áttir þú frum-
kvæðið að vinafundum og utanlands-
ferðum og naust þín í skipulagningu
þeirra og þær eru margar ljúfar
minningarnar sem við eigum úr
skíða-, verslunar- og dekurferðum
þar sem þú varst mikill gleðigjafi. Já,
það var einstaklega gaman að um-
gangast þig og kynnast þeim lífsgild-
um sem þú hafðir tileinkað þér. Þú
varst sannur og traustur vinur, elsk-
aðir mann þinn og börn og barst hag
þeirra alltaf fyrir brjósti. Þú getur
svo sannarlega verið stolt af þínu
ævistarfi. Þú byggðir fallegt heimili,
stofnaðir fjölskyldu, fyrirtæki og
eignaðist yndisleg börn sem eru um-
vafin ást og umhyggju í örmum föður
síns.
Elskulega fjölskylda, Stefán, Inga
Lára, Ásta Margrét, Benedikt, Birta
og Sandra Líf. Við vottum ykkur
okkar dýpstu samúð og megi góður
Guð veita ykkur styrk og trú á þess-
um erfiðu tímum. Elsku Erla, minn-
ingin um þig mun ávallt lifa í hugum
okkar og hjörtum.
Með saknaðarkveðju,
Ásdís og Jóhann.
Elsku vinkona.
Við erum algjörlega lömuð í djúpri
sorg. Sár og reið. Stunum er eins og
lífið sjálft sé stærra í sniðum en
nokkurn hefði órað fyrir. Á auga-
bragði erum við neydd til að horfast í
augu við vanmátt okkar gagnvart
gangi lífsins. Og við sitjum eftir al-
gjörlega orðlaus og ráðþrota.
Það að þú skulir kveðja þetta líf
núna, aðeins 38 ára gömul, er okkur
algjörlega óskiljanlegt. og ef tilgang-
urinn er einhver, eigum við erfitt
með að finna hann. Æskuvinátta
Stefáns og Inga leiddi okkur saman
og betri vinkonu gat ég ekki eignast.
Alltaf svo bjartsýn, jákvæð, sérlega
drífandi og aldrei voru vandamálin
það stór að ekki var hægt að leysa
þau. Og ég þreyttist aldrei á að hrósa
þér fyrir dugnaðinn og jákvæðnina
og var upptekin af því að segja öllum
það sem vildu heyra. Af því þú áttir
það svo skilið. Þú varst jákvæðasta
manneskja sem ég þekkti. Þú með
þetta stóra heimili og farsæla fyr-
irtæki. Hefði verið mörgum um of,
en ekki þér. Þú einfaldlega rúllaðir
þessu upp.
Við Ingi erum þakklát fyrir allar
okkar samverustundir sem eru
margar í gegnum tíðina. Utanlands-
ferðirnar okkar allar, á sólarstrand-
ir, í skíðalönd og svo borgarferðirn-
ar. Veislurnar og matarboðin við
ýmis tækifæri, öll samveran, í hvaða
formi sem var. Fyrir allt þetta erum
við óendanlega þakklát. Við erum
líka þakklát fyrir hafa verið með þér
þennan síðasta örlagaríka dag og
kvöld. Þú varst svo kát og glöð, við
skemmtum okkur svo vel. Lífið var
yndislegt. Og lífið verður aftur ynd-
islegt. Aldrei eins, en aftur yndislegt.
Það er arfleifðin sem þú skilur eftir
þig. Með þínu viðhorfi, með þína lífs-
skoðun að vopni verðum við sem
elskuðum þig að halda áfram. Hugur
okkar Inga er hjá Stefáni, Ingu
Láru, Ástu, Benna, Söndru og Birtu,
sem nú fá ekki að hafa þig hjá sér
lengur. Sú tilhugsun er svo óskap-
lega sár. Kæra vinkona, megi guðs
englar vaka yfir þeim á þessum erf-
iðu tímum. Við Ingi munum gera allt
sem í okkar valdi stendur til að halda
minningu þinni á lofti um alla fram-
tíð. En söknuðurinn verður óendan-
lega mikill. Dugnaður þinn og elju-
semi átti sér engan líka. Nú er það
okkar að fylgja fordæmi þínu á þess-
um erfiðu tímum. Við sendum okkar
innilegustu samúðarkveðjur til Stef-
áns og fjölskyldunnar allrar í þessari
miklu sorg.
Þínir vinir,
Thelma og Ingi.
Fleiri minningargreinar um Erlu
Magnúsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010