Morgunblaðið - 05.02.2010, Side 22
22 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
✝ Gunnar Guð-mundur Ein-
arsson fæddist að
Hörðuvöllum í Hafn-
arfirði 5. maí 1929.
Hann lést að Hrafn-
istu í Reykjavík 23.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Einar E. Guð-
mundsson stýrimaður
og síðar bifreiðastjóri
f. 29.10. 1904, d. 5.6.
1981, og Svava Lilja
Magnúsdóttir f. 9.6.
1906, d. 26.10. 1976.
Hann var elstur af sex bræðrum en
tveir bræðra hans létust ungir að
árum, þeir Jón Ragnar Einarsson f.
20.9. 1930, d. 7.12. 1953 og Einar
Einarsson f. 3.8. 1934, d. 5.9. 1957.
Eftirlifandi bræður Gunnars eru
Guðleifur Einarsson f. 23.3. 1932,
Gústaf Þór Einarsson f. 12.8. 1936
og Magnús Einarsson f. 10.3. 1939.
Gunnar kvæntist æskuvinkonu sinni
Guðnýju Ingibjörgu Jónsdóttur, f.
22.6. 1927, í október 1956, en hún
lést 25.1. 1979. Þau eignuðust 4
börn, 1) Ragnar Jón arkitekt f. 20.1.
1957, d. 4.3. 2009. Ragnar kvæntist
Freyju Dís f. 23.11. 1992 og Kjartan
Inga f. 31.1. 2002. Gunnar nam hús-
gagnasmíði hjá Víði hf og lauk það-
an sveinsprófi árið 1952 og varð síð-
ar meistari í greininni árið 1956.
Gunnar starfaði um 12 ára skeið við
húsgagnasmíðar á húsgagnaverk-
stæði Kristjáns Siggeirssonar. Hann
flutti til Danmerkur og hóf nám við
húsgagna- og innanhússarkitekta-
skólann Kunst og Håndverkskolen í
Kaupmannahöfn síðla sumars 1964
og lauk þaðan prófi sem húsgagna-
og innanhússarkitekt árið 1967. Að
námi loknu vann Gunnar skamma
hríð á teiknistofu í Kaupmanna-
höfn, en flutti að því loknu heim til
Íslands og hóf störf hjá Teiknistofu
Sveins Kjarval, hvar hann vann
skamma hríð. Gunnar hóf síðan
störf hjá Arkitektastofu Örnólfs
Hall og Ormars Þ. Jónssonar s.f. og
vann þar um 19 ár, ásamt því að
reka eigin stofu undir nafninu GGE
þar til starfsþrek brast. Gunnar
hafði mikinn áhuga á myndlist og
sótti fjölda námskeiða því samfara,
m.a. hjá Myndlistaskóla Reykjavík-
ur og Myndlistaskóla Íslands ásamt
námskeiðum í litafræðum og hönn-
unartækni. Hann var virkur í skáta-
starfi alla ævi og gekk einnig í Frí-
múrararegluna 1978 og tók eftir
það virkan þátt í frímúrarastarfi.
Útför Gunnars fer fram frá Bú-
staðarkirkju í dag, föstudaginn 5.
febrúar 2010, og hefst athöfnin kl.
13.
Guðlaugu Ernu Jóns-
dóttur f. 5.4. 1955,
arkitekt, og eignuðust
þau 2 syni: Hilmi Berg
f. 13.9. 1986 og Arnar
Jón f. 16.7. 1989, en
Guðlaug Erna átti fyr-
ir soninn Janus
Christiansen f. 14.2.
1978, uppeldisson
Ragnars. Ragnar og
Erna skildu. 2) Einar
Berg f. 16.8. 1958
verslunarmann,
kvæntan Svandísi
Báru Karlsdóttur f.
9.3. 1961, sjúkraliða, þau eiga 1 son,
Gunnar Þór f. 26.12. 1985. 3) Þór-
eyju Björgu f. 28.8. 1960 leikskóla-
kennara, gifta Guðbjarti Torfasyni
f. 2.8. 1957 flugvirkja, þau eiga 4
börn: Guðnýju Ingibjörgu f. 20.2.
1983, Sólrúnu Ýr f. 6.1. 1985, Torfa
Má f. 10.12. 1986 og Trausta Rúnar
f. 21.3. 1992, barnabarn þeirra,
dóttir Sólrúnar Ýrar, er Þórey
Edda Marx f. 9.12. 2006. 4) Hafdísi
Lilju f. 11.4. 1965 þroskaþjálfa, gifta
Karli Hákoni Karlssyni f. 19.12.
1962, tæknifræðingi, þau eiga 3
börn: Svein Óskar f. 15.3. 1991,
Nú eru bráðum 24 ár frá því að ég
kynntist Gunnari fyrst, nánar til tek-
ið, þegar ég var að draga mig eftir
Hafdísi dóttur hans sem síðar varð
konan mín. Hann tók mér með hæfi-
legum semingi eins og tilheyrir þeg-
ar ungir menn fara að gera hosur
sínar grænar fyrir yngstu dóttur-
inni.
Við bjuggum heima hjá Gunnari
fyrstu árin og kynntist ég honum vel
þessi ár. Gunnar var hlýr og
skemmtilegur persónuleiki með
skemmtilegan húmor þannig að það
var auðvelt að láta sér líka vel við
hann. Hann var hugmyndaríkur,
vinnusamur og féll aldrei verk úr
hendi. Þegar ég kom seint á kvöldin í
heimsókn til unnustunnar, sat Gunn-
ar í eldhúsinu og steypti gifsplatta í
mót. Þegar ég vaknaði morguninn
eftir var hann löngu vaknaður og
byrjaður að pússa og mála sömu
platta.
Gunnar byrjaði um miðjan níunda
áratuginn að byggja sumarbústað
uppi í Borgarfirði sem hann nefndi
Asparbarð. Þar ræktaði Gunnar á
næstu árum, upp lystigarð á landi
sem var erfitt til ræktunar og marg-
ur hefði gefist upp við. Svona var
Gunnar, það sem hann byrjaði á,
lauk hann við. Svo liðu árin, við Haf-
dís giftum okkur og fórum að eiga
börn. Gunnar var ekki aðeins um-
hyggjusamur faðir og tengdafaðir
heldur fyrirmyndarafi sem vildi allt
gera fyrir barnabörnin.
Árið 1994 festum við Hafdís ásamt
Gunnari kaup á raðhúsi við Skeið-
arvog og bjó hann þar í kjallaranum.
Sumir segja að það sé ekki gott að
búa í nábýli við tengdafólk sitt en
það var í þessu tilviki alrangt. Á
þetta sambýli bar aldrei skugga,
börnin okkar áttu skjól í kjallaran-
um hjá „afa skafa“ eins og þau köll-
uðu hann. Hann hafði alltaf tíma fyr-
ir þau, kenndi þeim að mála og
spjallaði við þau..
Við Hafdís fluttumst með börnin
til Danmerkur 1998 þegar ég hóf
nám í tæknifræði. Það var erfitt fyrir
Gunnar að sjá á eftir fólkinu sínu þar
sem þá var hann í raun orðinn einn í
húsinu eftir að hafa haft félagsskap
undanfarin ár. Engu að síður hvatti
hann okkur eindregið til að fara til
náms. Á árunum sem eftir fóru, var
hann iðinn við að koma að heim-
sækja okkur. Þegar leið að fæðingu
yngsta sonar okkar kom hann í
heimsókn til að taka á móti honum.
Við fluttum heim aftur 2002 og það
var afskaplega hamingjusamur afi
sem tók á móti fólkinu sínu. Næstu
árin fengum við að njóta samvista
við hann, börnin áttu skjól hjá hon-
um sem fyrr, líka sá yngsti sem kom
einhverju sinni með vinkonu sína,
bauð henni inn hjá afa og kynnti
hana fyrir afa sínum sem væri „alltaf
svo skemmtilegur“.
Gunnar flutti á Hrafnistu vorið
2006, þegar þar var komið var hann
kominn með Alzheimer. Hann sat
ekki auðum höndum þar frekar en
annars staðar, málaði og stundaði
handavinnu í iðjuþjálfun auk þess
sem hann setti upp málverkasýn-
ingu. Gunnar var hagur á bæði tré
og járn og auk þess gæddur listræn-
um hæfileikum í ríkum mæli. Eftir
hann liggur mikið magn af teikning-
um og myndum sem prýða heimili
barnanna. Hann var ekki maður
málskrúðs en lét verkin tala, elskaði
fólkið sitt og landið sem við búum í.
Takk fyrir kynnin, tengdi sæll, þú
gerðir tilveruna skemmtilegri.
Karl Hákon Karlsson.
Tengdafaðir minn Gunnar Einars-
son er látinn. Við vissum öll, að-
standendur Gunnars, að hverju
stefndi síðustu mánuðina en ekki
hefur það létt kveðjustundina. Ég
kynntist honum fyrst fyrir um 30 ár-
um þegar hann bjó í Fellsmúlanum,
þá önnum kafinn við teikniborðið
heima fyrir. Íbúðina hafði hann ný-
lega standsett og þar upplifði ég
handverk fagmanns og listamanns í
eigin persónu.
Gunnar var einstakt glæsimenni,
uppstrílaður og flottur, tilbúinn á
fund hjá Frímúrunum og bar alla
múnderinguna einstaklega vel.
Hann var samt náttúrubarn og fljót-
ur að fara í jogging-gallann þegar sá
gállinn var á honum og drífa sig út í
garð. Hann var alltaf áhyggjulaus
um hvernig aðrir hugsuðu um hann
og kom alltaf fram eins og hann var
klæddur. Það var oft ótrúlegt að
fylgjast með honum hvernig hug-
myndir hans fengu líf og kraftinn
sem bjó í honum þegar að fram-
kvæmdum kom.
Aldrei hef ég fyrir hitt hjálpsam-
ari og umhyggjusamari mann, hvort
um var að ræða framkvæmdir eða
aðstoð við börnin, alltaf kominn og
tilbúinn að leggja sitt af mörkum.
Vinnusemin átti sér stundum engin
takmörk, en mér fannst óþarfi að
hann sæi um að halda mínum garði
við líka svo ég einsetti mér eitt árið
að vera á undan honum að klippa
hekkið og ganga frá garðinum mín-
um fyrir vorið. Það hafðist eitt árið
og safnaðist saman stór haugur af
greinum og öðrum úrgangi fyrir
framan húsið. Það dróst eitthvað að
fjarlægja hauginn og dag einn er ég
kom úr vinnu var hann horfinn. Ég
hafði Gunnar lengi grunaðan um að
hafa fjarlægt hann þó svo að ég hafi
fengið staðfestingu á því seinna að
svo hafi ekki verið. Þetta er lýsandi
fyrir þann firnakraft sem mér fannst
hann búa yfir þó kominn væri vel til
ára sinna.
Listamaðurinn og hönnuðurinn
var aldrei langt undan og listinn af
munum, myndum og verkum eftir
hann er langur. Hann var sívinnandi
að hugðarefnum sínum og áttu dæt-
ur hans oft fullt í fangi með að halda
þeirra stuðli í hreinlæti innan sinna
velsæmismarka. Þegar aldurinn
færðist yfir fór meira fyrir náttúru-
unnandanum og átti sumarbústaður-
inn hans í Borgarfirði og garðrækt
hug hans allan síðustu árin, en mest
gladdi hann þegar börnin og barna-
börnin voru hjá honum. Það var
sama sagan með bústaðinn eins og
annað hjá Gunnari, þar var melum
og mýrum snúið við og ræktaður
lystigarður af einstakri alúð. Það var
einstaklega sárt og mikil eftirsjá hjá
honum að geta ekki haldið því verki
áfram en starfsþrekið var farið og
veikindin farin að hrjá hann sem
komu í veg fyrir að hann fengi að
njóta afrakstursins síðustu árin.
Gunnar bjó á Hrafnistu í Reykjavík
frá 2006 en síðasta ár var honum og
öllum aðstandendum ákaflega erfitt.
Þegar síðustu jól og áramót gengu í
garð vantaði stærsta manninn við
borðið, gleðin var einhvern veginn
fjarlæg og söknuður í lofti. Þegar
nær dró var og ljóst að hverju
stefndi sáum við mann saddan líf-
daga kveðja, ennþá glæsilegur og
fallegur. Ég kveð þig með söknuði
og þakka árin sem ég fékk að njóta
með þér.
Guðbjartur I. Torfason.
Þá er komið að leiðarlokum hjá
Gunnari tengdaföður mínum.
Upp í hugann koma margar minn-
ingar.
Það eru meira en þrjátíu ár síðan
ég hitti fyrst verðandi tengdafor-
eldra mína. Gunnar spurði mig auð-
vitað hverra manna ég væri, þegar
ég kynnti mig fyrir þessum stóra en
jafnframt vinalega manni. Eftir
fyrsta handtakið var ég fullviss að ég
var velkomin.
Matarboðin urðu mörg og oft var
það Gunnar sem eldaði af mikilli list
og oft var spurt „hvernig er sósan,
Dísa“
Þetta vekur upp góðar minningar.
Ég sé hann fyrir mér sitjandi inni
í vinnuherbergi með penna í hönd,
vinnusemi var hans einkenni.
Eftir andlát Guðnýjar og við Ein-
ar flutt í okkar eigin íbúð, kom í ljós
hjálpsemi hans og tryggð. Þegar
eitthvað þurfti að gera þá var hann
mættur. „Þetta verk þurfti að
klára.“
Oft var líka komið í heimsókn
drukkið kaffi og spjallað en svo var
hann farinn, fleiri verkefni biðu.
Eftir að Gunnar nafni hans fæðist,
þá var ósjaldan komið við og litið á
drenginn. Oft kom hann eldsnemma
um helgar, drengurinn drifinn í föt
og tekinn með í bíltúr.
Trjárækt var Gunnari hugleikin
Gunnar Guðmundur
Einarsson
Kæri afi Hannes!
Þú varst langbesti
afi í öllum alheiminum, þú varst sá
skemmtilegasti, fyndnasti og mikið
mikið meira. Þú leyfðir okkur alltaf
að leika okkur á háaloftinu og niðri
á jörðinni.
Eyþór Aron Wöhler (7 ára).
Kæri afi Hannes!
Þú varst sá afi sem allir óskuðu
sér og vildu eiga að. Við hlökkuðum
alltaf til að hitta þig, tala við þig.
Tvö lengstu metin mín í að tala í
síma voru við þig og ömmu, mig
langaði mikið að hitta þig og sjá þig
þá.
Frans Vikar Wöhler (11 ára.)
Hannes Árni
Wöhler
✝ Hannes Árni Wö-hler fæddist í
Reykjavík 2. nóv-
ember 1939. Hann
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi sunnudag-
inn 3. janúar síðast-
liðinn.
Útför Hannesar
var gerð frá Bú-
staðakirkju 8. jan-
úar.
Elsku afi Hannes!
Ég mun ávallt muna
eftir því þegar við sát-
um saman löngum
stundum úti á svölum á
öllum þessum hótelum
sem við fjölskyldan
höfum heimsótt saman
gegnum tíðina. Þar
sem við ræddum um
lífið, tilveruna og veg-
inn. Við létum ekki
mikinn aldursmun
stoppa okkur og alltaf
gátum við eytt fleiri og
fleiri tímum talandi um
hin ýmsu málefni, allt frá fótbolta
til þýskrar menningar. Ég mun
aldrei gleyma þegar við fórum til
Þýskalands saman og þar sást lang-
ar leiðir að þú varst á heimavelli og
það mun alltaf lifa í minningunni.
Það gleymist aldrei þegar þú fékkst
mig til að setjast niður með þér í
Logalandinu og horfa á hinar og
þessar bíómyndir sem ég hafði eng-
an áhuga á að horfa á, en svo á end-
anum var þetta alltaf hin besta
skemmtun. Ég gæti haldið lengi
áfram að telja upp góðar minningar
um okkur saman. Þín er sárt sakn-
að.
Hinrik Wöhler.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reit-
inn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa
borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áð-
ur en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar
✝
Ástkær eiginkona mín,
GUÐFINNA MAGNÚSDÓTTIR,
Árdal,
Strandasýslu,
er andaðist á Heilbrigðisstofnuninni Hólmavík
föstudaginn 29. janúar, verður jarðsungin frá
Hólmavíkurkirkju laugardaginn 6. febrúar kl. 13.00.
Jarðsett verður í Óspakseyrarkirkjugarði.
Indriði Sigmundsson.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGURLAUG KRISTINSDÓTTIR,
Katrínarlind 2,
Reykjavík,
lést á Landspítala við Hringbraut að kvöldi
þriðjudagsins 2. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Einar Eggertsson,
Eggert Ólafur Einarsson, Anna Sigurveig Magnúsdóttir,
Magnea Einarsdóttir, Þorsteinn Sverrisson,
Unnur Einarsdóttir, Jóhannes Helgason,
Áslaug Einarsdóttir, Gunnlaugur H. Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar og vinkona mín,
INGIBJØRG JOHANNESEN,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn
22. janúar.
Bálförin hefur farið fram.
Þökkum alla velvild í hennar garð, fyrr og síðar.
Jón Á. Ásgeirsson,
Halldóra Ásgeirsdóttir,
Ingibjörg Ásgeirsdóttir,
Eiríkur Bjarnason.