Morgunblaðið - 05.02.2010, Page 24
24 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
✝ Rósu Eiríks-dóttur, „Rósu í
Dagsbrún“ í Neskaup-
stað var við skírn gef-
ið nafnið Ölveig Rósa-
mund, nefnd eftir
föðurmóður sinni.
Hún fæddist 11. ágúst
1907. Hún lést á
hjúkrunardeild Fjórð-
ungssjúkrahússins í
Neskaupstað 26. jan-
úar 2010. Hún fæddist
og ólst upp á Krossa-
nesi við Reyðarfjörð
til 6 ára aldurs, næst-
yngst 10 al- og hálfsystkina. For-
eldrar hennar voru hjónin: Aldís
Stefánsdóttir, f. 1868, d. 1945, frá
Efri-Ey í Meðallandi, dáin í Nes-
kaupstað og Eiríkur Þorleifsson, f.
1869, d. 1958, frá Kirkjubóli í Vöðla-
vík, útvegsbóndi á Krossanesi og
síðar í Neskaupstað. Þau giftust
1898 og eignuðust 7 börn í Krossa-
nesi. Þau voru: Þorleif (Þóra), f.
1899, d. 1983, Ármann, f. 1900, d.
1988, Björn, f. 1903, d. 1996, Guð-
jón, f. 1904, d. 1939, Stefán, f. 1905,
d. 1978, Rósa og Sigríður, f. 1909, d.
1912. Fyrir átti Aldís 4 börn með
Ármanni Hildibrandssyni, f. 1864, d.
1896. Þau giftust 1887. Börn þeirra
voru: Sigurbjörg, f. 1888, d. 1974,
Gestsson, f. 1960, framkvæmda-
stjóri. Börn þeirra: a) Elísabet, f.
1984, viðskiptafræðinemi. b) Rakel,
f. 1988, verkfræðinemi. Sambýl-
ingur: Matthías Vilhjálmsson, f.
1987, viðskiptafræðinemi. Barn
þeirra er Vilhjálmur Atli, f. 2008. c)
Geir, f. 1989, nemi. Þorsteinn, f.
1963, framkvæmdastjóri. Maki:
Stefanía Guðmundsóttir, f. 1964,
snyrtifræðingur. Dætur þeirra eru:
a) Íris Hrund, f. 1985, þjónustu-
fulltrúi. b) Sóley, f. 1991, nemi.
Gunnar Ellert, f. 1968, verkfræð-
ingur. Maki Ingibjörg Hlínardóttir,
f. 1970, táknmálsfræðingur. Börn
þeirra eru: a) Emil Örn, f. 2001, b)
María Rós, f. 2004, c) Daníel Örn, f.
2007 og d) Perla Dís, f. 2009. Auður
Edda f. 1973, myndmennta- og sér-
kennari.
2) Þórdís Kristinsdóttir, f. 1950,
hjúkrunarfræðingur. Frv. maki:
Kristján Karlsson, f. 1949, raf-
magnstæknifræðingur og kennari
við HR. Dætur þeirra: Katla, f. 1980,
tæknifræðingur. Maki Gunnar
Kristinn Magnússon, f. 1973, fram-
kvæmdastjóri. Börn þeirra: a) Krist-
ján, f. 2002, b) Gunnhildur Hekla, f.
2005, og c) Lilja Guðrún, f. 2009.
Kristín Rós, f. 1985, mannfræðinemi
og Kristrún, f. 1988, félagsráðgjaf-
arnemi.
Rósa verður kvödd og jarðsungin
frá Norðfjarðarkirkju í Neskaup-
stað í dag, föstudaginn 5. febrúar,
og hefst athöfnin kl.14.
Stefanía Halldóra, f.
1889, d. 1951, Eiríkur,
f. 1892, d. 1967, og
Pálína, f. 1893, d.
1982.
Rósa giftist árið
1935 manni sínum
Hans Kristni Mar-
teinssyni, f. 1907, d.
1984, frá Litlu Breiðu-
vík í Reyðarfirði,
skipstjóra. Þau eign-
uðust tvær dætur: El-
ísabetu og Þórdísi. 1)
Elísabet Krist-
insdóttir, f. 1935, hús-
móðir og frv. bókasafnsstarfs-
maður. Elísabet eignaðist með
unnusta sínum Pétri Hafsteini Sig-
urðssyni, f. 1932, d. 1957, Kristin, f.
1956. Fv. sambýliskona Kristins er
Rósa Benónýsdóttir, f. 1957. Dóttir
hennar og fósturdóttir Kristins er
Aina Björk Másdóttir, f. 1978,
fulltrúi. Maki hennar er Steinn Ein-
ir Sveinsson, f. 1976. Börn þeirra
eru: a) Birkir Snær, f. 2005, og b)
Brynja Eik, f. 2007. Núverandi sam-
býliskona Kristins er Pála Svanhild-
ur Geirsdóttir, f. 1958, nuddari.
Maki Elísabetar er Geir H. Þor-
steinsson, f. 1928, læknir. Börn
þeirra: Rósa, f. 1961, meinatæknir
og húsmóðir. Maki: Tómas Jennþór
Fyrsta minningin um ömmu
mína er þegar hún tekur mig fagn-
andi í fang sér og kyssir snáðann
rembingskossi á flugvellinum í
Neskaupstað. Eflaust hefur þetta
verið ein af mörgum sumarferðum
mínum til ömmu og afa og alltaf
hlakkaði ég jafn mikið til að vera
hjá gömlu hjónunum.
Æska mín og ömmu minnar var
ólík, svo ekki sé dýpra í árina tekið.
Ásamt ættmennum sínum fluttist
hún barnung úr Meðallandinu til
Neskaupstaðar. Farið var yfir
mörg og erfið vatnsföll á leiðinni til
„fyrirheitna landsins“ en amma
mín sat þá hnarreist í kistli sem
dreginn var yfir vatnsföllin af hesti
sem riðið var á sund. Án efa mót-
uðu kröpp kjör og hörð lífsbarátta
þess tíma hana Rósu í Dagsbrún,
en amma var ávallt kölluð því
nafni.
Lífsferill ömmu var bæði langur
og merkilegur. Rósa amma náði því
að verða 102 ára gömul og er mér
sérlega minnisstætt 100 ára afmæl-
ið hennar. Stór hópur vina og ætt-
menna samfagnaði henni á þessum
merka áfanga í lífi hennar með
söng og ræðum. Það er um margt
lýsandi fyrir kímnigáfu hennar og
lífsgleði að þegar staðið var upp frá
veisluhöldunum sagði hún: „ Þetta
geri ég aldrei aftur“ og svo skríkti
hún og brosti eins og henni var
einni lagið. Já, amma var góð kona,
alveg eins og ömmur eiga að vera.
Fyrir tveimur árum var ég svo
lánsamur að taka þátt í að und-
irbúa ættarmót fjölskyldunnar,
Dagsbrúnarættarinnar. Eitt af
þeim verkum sem vinna þurfti var
að taka saman sögu ættarinnar.
Við lestur sögunnar kemur margt
fram sem enn einkennir fólkið
hennar ömmu, Dagsbrúnarfólkið.
Lífsgildi Rósu í Dagsbrún og saga
ættarinnar er einn samofinn þráð-
ur: Áræðni, dugnaður, framsýni,
heiðarleiki og hógværð eru sterk
einkenni ættarinnar en þessi lífs-
gildi finnst mér hafa verið einkenn-
andi fyrir ömmu mína.
Eitt það fallegasta sem amma
mín og afi sögðu um samferðamenn
sína var samofið lífsgildum þeirra.
Ef segja átti eitthvað fallegt um
samferðamanninn þá var það
gjarnan viðkvæðið að segja að við-
komandi væri duglegur. Það var
dyggðin æðsta! Þetta þótti mér
alltaf mjög sérstakt en eftir því
sem árin liðu skynjaði maður hið
raunverulega inntak lýsingarinnar.
Eins og nærri má geta spiluðu for-
lögin rullu í lífi ömmu minnar og
höguðu þau því til þannig að amma
ól bróður minn Kristin upp frá
barnsaldri. Amma bar hag hans
fyrir brjósti sem væri hann hennar
eigið. Í samræðum okkar brást það
aldrei að hún spyrði frétta af
„Kidda sínum“. Rósa amma reynd-
ist bróður mínum svo sannarlega
vel og fyrir það ber að þakka.
Hin síðari ár hefur mér fundist
hún amma mín mikið lífsins undur,
já og gott ef ekki Dagsbrúnarundr-
ið eina og sanna.
Blessuð sé minning góðrar konu
og ömmu,
Þorsteinn Geirsson
og fjölskylda.
Láti öldungs tökum við alla jafna
með jafnaðargeði, vitandi að mann-
legu lífi eru takmörk sett en ljúfar
minningar hrannast upp og verða
gleðigjafi. „Rósa í Dagsbrún“,
tengdamóðir mín, hefur leyst land-
festar, 102 ára. Hún lifði tímana
tvenna sem við gerum okkur litla
grein fyrir: Lélegur húsakostur,
ekkert rafmagn eða vatn í húsum.
Þessi kynslóð vann að þessu með
ótrúlegum dugnaði og nægjusemi
til að búa næstu kynslóð betri
daga. Rósa vandist vinnu strax og
hún var nokkurs megnug enda
vann hún langan vinnudag á stóru
heimili foreldra sinna. Árið 1914
fluttu foreldrar hennar með 10
börn sín frá Krossanesi til Ness
Norðfjarðar. Þau keyptu: „Dags-
brún“, síðar Nesgata 32. Systkinin
eru nú öll horfin yfir móðuna
miklu. Í „Dagsbrún“ var hópur va-
skra systkina: 5 stúlkna og 5 pilta.
Þau reyndust öll vönduð og vel
gerð til munns og handa. Afkom-
endur þeirra eru dreifðir víða um
land og erlendis. Auk þeirra bjó:
Sveinn Þorleifur Guðmundsson
„Denni í Dagsbrún“ frændi þeirra
á heimilinu og vann með þeim í út-
gerð.
Rósu verður vart minnst án þess
að manns hennar: „Kristins í Dags-
brún“ sé getið í sömu andrá. Hans
verður lengi minnst sem fumlauss
og öruggs skipstjóra.
Minningar hrannast upp. Marg-
ar ánægjustundir áttum við hjónin
og krakkarnir er við komum í
heimsókn. Krakkarnir nutu sam-
vista við ömmu og afa á sumrin: Í
berjamó, í bíltúr á Volkswagninum
og bátsferðum á „sjettunni“. Ég
minnist ferða um nærsveitir, Reyð-
arfjörð og um Hérað og heimsóknir
þeirra til okkar. Rósa þjónaði alltaf
öllum sem best hún gat. Hún var
bráðskynsöm kona, lág vexti,
snaggaraleg og lét hendur standa
fram úr ermum enda sjómanns-
kona. Heimsóknir til hennar á
Breiðablik voru líka ánægjulegar,
gestrisni og elskulegheit alltaf í
fyrirrúmi. Hún undi sér vel í
heimabyggð: Í Dagsbrún, á Breiða-
bliki og á hjúkrunardeild FSN.
Hún margrómaði og þakkaði alla
umhyggju, umönnun og hjúkrun
sem hún naut. Það var henni of-
arlega í huga er hún var heimsótt
eða talað við hana í síma. Nú þegar
ég hugsa til háaldraðrar tengda-
móður minnar minnist ég þess að
svo gömul sem hún var orðin og
nærminni farið að förlast, þá spurði
Rósa stundum hve gömul hún væri
orðin. Að svari fengnu var rétt eins
og hún slægi sér á lær og segði:
„Það er bara svona!“
Mér er ljúft og skylt að þakka
„Rósu og Kristni í Dagsbrún“ inni-
lega fyrir samveruna. Barnabörnin
eiga indælar minningar um þau og
þakka af heilum hug. Sum af lang-
ömmubörnum muna eftir Rósu frá
100 ára afmæli hennar í samkomu-
sal kirkjunnar í Neskaupstað 11.
ágúst 2007. Þar var húsfyllir. Við
hjónin þökkum frændfólki, vinum
og samferðafólki í Neskaupstað,
starfsfólki heimilishjálparinnar og
hjúkrunardeildar sjúkrahússins
alla vináttu, tryggð, hjálp og
umönnun. Nú þegar Rósa er horfin
á hljóðlátan hátt, sem hennar var
vandi, kemur mér erindi úr kvæði
Matthíasar Jochumssonar í hug:
Dæm svo mildan dauða,
Drottinn, þínu barni,
eins og léttu laufi
lyfti blær frá hjarni,
eins og lítill lækur
ljúki sínu hjali,
þar sem lygn í leyni
liggur marinn svali.
Geir H. Þorsteinsson.
Rósa Eiríksdóttir
✝ Steinunn Jó-hannsdóttir fædd-
ist að Lágafelli syðra
í Miklaholtshreppi 3.
ágúst 1924. Hún lést á
heimili sínu 25. jan-
úar 2010. Foreldrar
hennar voru Jóhann
Magnús Kristjánsson,
f. 1883, d. 1965, og
Borghildur Júlíana
Þórðardóttir, f. 1897,
d. 1971.
Steinunn var elst
átta barna þeirra Jó-
hanns og Borghildar.
Systkini hennar eru Jóhann Gunn-
ar, f. 1928, d. 2001. Kristján, f.
1929, d. 1999. Sigurður, f. 1930.
hönnu Borghildi, f. 1946, Svein, f.
1948, Kristján Má, f. 1951, og Ingi-
björgu, f. 1958. Magnús lést árið
2009. Júlíana er fráskilin. Börn
hennar eru Fríða Björk Gylfadóttir,
f. 1965, og Halldóra Sif Gylfadóttir,
f. 1967. Jóhanna er fráskilin. Börn
hennar eru Magnús Björnsson, f.
1964, Ágúst Björnsson, f. 1968, og
Torfi Björnsson, f. 1972. Kona
Sveins er Guðrún Hinriksdóttir.
Börn Sveins eru Magnús, f. 1966,
Hinrik, f. 1973, Gunnar, f. 1975, og
Steinar, f. 1979. Kona Kristjáns
Más, er Snjólaug Brjánsdóttir. Börn
hans eru Jón Magnús, f. 1973,
Sandra Hlíf, f. 1980, Krista Björk, f.
1991, og Matthías Már, f. 1995. Eig-
inmaður Ingibjargar er Sigurður
Guðmundsson. Börn hennar eru
Ragnar, f. 1985, og Steinunn, f.
1988. Barnabarnabörn Steinunnar
eru 28.
Útför Steinunnar fer fram frá Ví-
dalínskirkju í dag, föstudaginn 5.
febrúar, og hefst athöfnin kl. 15.
Þórir, f. 1929. Sig-
valdi, f. 1932. Sess-
elja, f. 1934 , d. 2009.
Vigdís, f. 1939.
Steinunn giftist
Magnúsi B. Sveins-
syni 1945. Þau skildu
1967. Árið 1971 gift-
ist hún Ragnari Ragn-
arssyni. Síðustu þrjá-
tíu og sex árin hafa
þau búið í Goðatúni
12 í Garðabæ, en áður
í Safamýri og Rauða-
læk í Reykjavík.
Ragnar og Steinunn
áttu ekki börn saman.
Magnús og Steinunn eignuðust
fimm börn: Júlíönu, f. 1945, Jó-
Minning um hlýja, góða og kær-
leiksríka ömmu birtist okkur þegar
við hugsum til ömmu Steinunnar,
lífshlaupi hennar hér er því miður
lokið en ótal minningar lifa með okk-
ur. Við bræður erum að eilífu þakk-
látir fyrir að hafa átt ömmu Stein-
unni að sem fyrirmynd og vin, á sinn
hægláta hátt var hún alltaf kjarninn í
fjölskyldunni. Nú, sem aldrei fyrr,
stöndum við með Ragga afa, hinum
góða og trausta vini, kærleiksríkt
hjónaband þeirra var okkur öllum
fyrirmynd.
Við sjáum að dýrð á djúpið slær,
þó degi sé tekið að halla.
Það er eins og festingin færist nær,
og faðmi jörðina alla.
Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo brjóst þitt fái svala.
Nú strýkur hann barm þinn blítt og
hljótt,
svo blaktir síðasti loginn.
En svo kemur dagur og sumarnótt,
og svanur á bláan voginn.
(Davíð Stefánsson.)
Með virðingu og söknuði, minning
þín mun lifa með okkur.
Magnús, Ágúst
og Torfi.
Steinunn
Jóhannsdóttir
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
RÖGNVALDAR ÁRNASONAR,
áður til heimilis
Einilundi 2,
Akureyri.
Lína Þorkelsdóttir,
Þorkell Ingi Rögnvaldsson,
Una Sigurlína Rögnvaldsdóttir, Óskar Smári Haraldsson,
Heiðar Rögnvaldsson,
Heimir Rögnvaldsson, Guðrún Björg Steinþórsdóttir,
afa- og langafabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
vegna andláts eiginmanns míns, föður, tengda-
föður, afa og langafa,
SIGURGEIRS GUÐMUNDSSONAR
vélstjóra.
Þórunn Jónsdóttir,
Ágústína Sigurgeirsdóttir, Bjarni Friðriksson,
Guðrún Leifsdóttir, Sigurður Óskarsson,
Arndís Leifsdóttir, Guðmundur Benediktsson,
Bragi Þór Leifsson, Hildur Ríkharðsdóttir,
Jón Trausti Leifsson, Oddný S. Jóhannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
GUÐJÓNS ÁRNA GUÐMUNDSSONAR
húsasmíðameistara,
Máshólum 2,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki
gjörgæsludeildar Landspítalans í Fossvogi.
Guðlaug Kristófersdóttir,
Birgit Guðjónsdóttir, Christian Alexander Klempert,
Guðrún Jónína Guðjónsdóttir,
Kristinn Helgi Guðjónsson, Jóna Svava Sigurðardóttir
og barnabörn.