Morgunblaðið - 05.02.2010, Síða 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2010
Sudoku
Frumstig
5 2 4 9
6 8 7
9
9 5 1 6 4
6 2 5
8 2 1
4
9 7
7 6 8
8 5 4 6
6 7 3
8
6 3
9 5
7 2 5 4 9 8
9 6
4 7 3
7 8 9
4 9
6 5
3 2
5 4 6 7 9
2 7 3
3
5 6 8 4
3 8 5
1 6
3 7 4 5 6 1 2 9 8
6 2 1 8 9 3 5 4 7
9 8 5 4 7 2 1 3 6
4 9 2 3 8 6 7 1 5
7 3 8 9 1 5 6 2 4
1 5 6 7 2 4 3 8 9
2 1 7 6 4 9 8 5 3
5 6 9 1 3 8 4 7 2
8 4 3 2 5 7 9 6 1
6 7 3 1 8 4 5 9 2
5 2 4 3 7 9 8 6 1
1 8 9 5 6 2 3 4 7
8 4 5 6 9 1 7 2 3
3 6 2 8 5 7 4 1 9
9 1 7 2 4 3 6 5 8
4 3 6 9 2 8 1 7 5
2 5 1 7 3 6 9 8 4
7 9 8 4 1 5 2 3 6
6 3 9 5 2 4 8 1 7
5 7 1 8 6 3 4 9 2
4 2 8 9 7 1 6 5 3
9 5 4 6 8 2 3 7 1
7 1 2 4 3 5 9 8 6
8 6 3 1 9 7 2 4 5
1 8 7 3 4 6 5 2 9
3 9 5 2 1 8 7 6 4
2 4 6 7 5 9 1 3 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 5. febrúar, 36. dagur
ársins 2010
Orð dagsins: Verðið heldur sjálfir heil-
agir í allri hegðun, eins og sá er heil-
agur, sem yður hefur kallað. (1Pt. 1,15)
Það er með ólíkindum hversuþungt og svifaseint opinbera
kerfið getur verið. Víkverji getur til
dæmis ómögulega skilið hvers vegna
það tekur meira en fjórar vikur að
vinna úr beiðni um endurgreiðslu
virðisaukaskatts af vinnu manna við
íbúðarhúsnæði.
x x x
Samkvæmt reglugerð skal end-urgreiða eigendum íbúðar-
húsnæðis og frístundahúsnæðis
100% greidds virðisaukaskatts af
vinnu manna við endurbætur eða
viðhald þess á tímabilinu 1. mars
2009 til 1. janúar 2011. Á skýring-
arblaði með beiðninni segir að end-
urgreiðsla skuli fara fram eins fljótt
og auðið er en „þó ekki síðar en 14
dögum eftir að skattstjóra barst
beiðni“. Þegar Víkverji skilaði út-
fylltri beiðni ásamt greiðslukvittun á
skattstofuna var honum tjáð að end-
urgreiðsla bærist eftir um það bil
fjórar vikur og það gekk eftir.
x x x
Í bréfi frá ríkisskattstjóra þess efn-is að beiðnin um endurgreiðsluna
hefði verið afgreidd var gefið upp
símanúmer hjá innheimtumanni í
sambandi við frekari upplýsingar.
Jafnframt kom fram að inneignin
væri til útborgunar hjá innheimtu-
manni ríkissjóðs og tekið fram að út-
borgun væri háð greiðslustöðu hjá
innheimtumanni vegna annarra op-
inberra gjalda. Víkverji varð því að
hafa samband og óska eftir að
greiðslan yrði millifærð á reikning
hans eftir að hafa borist bréf um að
beiðnin um endurgreiðsluna hefði
verið afgreidd.
x x x
Í stuttu máli þurfti Víkverji fyrstað fylla út beiðni og fara með
hana ásamt greiðslukvittun á Skatt-
stofuna í Reykjavík. Um fjórum vik-
um síðar þurfti hann að hringja í inn-
heimtumann og óska eftir að hann
millifærði endurgreiðsluna á tiltek-
inn reikning. Einfaldast væri auðvit-
að að geta fyllt út beiðni á netinu og
geta tekið þar fram bankareiknings-
númer viðkomandi, en það er líklega
til of mikils mælst. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 rýr, 4 stendur
höllum fæti, 7 verkfær-
in, 8 bert, 9 beita, 11
gefa mat, 13 tvístíga, 14
mergð, 15 brjóst, 17
borðar, 20 spíri, 22
hljóðfæri, 23 hæð, 24
skrika til, 25 sól.
Lóðrétt | 1 rekjan, 2
sjávardýr, 3 skylda, 4
þyngdareining, 5 bögg-
ull, 6 rugla, 10 öldruð, 12
sár, 13 skjól, 15 erfiður,
16 illkvittin, 18 fleinn, 19
byggja, 20 snemma, 21
vonds.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 strekking, 8 gárur, 9 rétta, 10 ill, 11 afans, 13
agnir, 15 lúsug, 18 særði, 21 Rín, 22 tuggu, 23 ölinu, 24
Bragagata.
Lóðrétt: 2 terta, 3 eyris, 4 kerla, 5 nótin, 6 egna, 7 gaur,
12 níu, 14 glæ, 15 líta, 16 sigur, 17 grugg, 18 snögg, 19
reitt, 20 iður.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Bb5 Db6 8. Be3
Dc7 9. g4 a6 10. Be2 b5 11. a3 h6 12. f3
Bb7 13. Dd2 Ra5 14. Kf2 d5 15. exd5
Rxd5 16. Rxd5 Bxd5 17. Dc3 Dd8 18.
Kg2 Hc8 19. Dd2 Rc4 20. Bxc4 bxc4 21.
Hhe1 Bc5 22. Df2 0-0 23. Had1 Bxd4
24. Hxd4 f5 25. Dg3 fxg4 26. Dxg4 Df6
27. Hf1 Hc7 28. c3 Hb7 29. Hf2
Staðan kom upp í heimsmeistara-
móti landsliða í Bursa í Tyrklandi. Sá
keppandi, sem stóð sig best á fyrsta
borði, Bandaríkjamaðurinn Hikaru
Nakamura (2.708), hafði svart gegn
heimamanninum Kivanc Haznedar-
oglu (2.498). 29. … Hxb2 30. Bd2 De5
31. Kg1 h5 32. Dg6 Hf6 33. De8+ Kh7
og hvítur gafst upp. Rússar urðu hlut-
skarpastir á mótinu en þeir fengu 15
stig af 18 mögulegum. Tíu lið tóku þátt
í mótinu og fyrir sigur í viðureign feng-
ust tvö stig en eitt fyrir jafntefli.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Bíræfin blekking.
Norður
♠73
♥6
♦G985
♣DG10874
Vestur Austur
♠K1086 ♠9542
♥K1092 ♥G85
♦D1072 ♦ÁK4
♣6 ♣Á93
Suður
♠ÁDG
♥ÁD743
♦63
♣K52
Suður spilar 2♣.
Hvað gera menn eftir vont spil? Sví-
arnir Upmark og Wrang mættu Þresti
Ingimarssyni og Júlíusi Sigurjónssyni
á fyrsta borði í lokaumferð tvímenn-
ings Bridshátíðar. Tvö fyrstu spilin
voru Svíunum hagstæð, en í því þriðja
reyndu þeir 3G með níu-spila samlegu í
spaða og fóru tvo niður. Við sáum það
spil í gær. Ef til vill var sú slæma nið-
urstaða ástæðan fyrir því að Upmark í
norður ákvað að fúlopna á 1G í síðasta
spilinu. Venjulega greiða menn slíkt
gerræði dýru verði, en hér hafði Up-
mark heppnina með sér. Wrang spurði
um háliti með 2♣ og Upmark passaði!
Þröstur var í austur. Hann vissi vel
hvað var á seyði, en sá enga leið út úr
vandanum og sagði líka pass. Vörnin
fipaðist í öllu fárinu og sagnhafi fékk
níu slagi, sem ekki var gott þegar 3-4♠
vinnast í AV.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú elskar öryggi jafn mikið og
hver annar. Óttast ekki annríkið en vilt
helst af öllu vera í einrúmi við vinnu
þína.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þegar þú heldur að samband eigi
eftir að endast skaltu treysta því. Veldu
þá leið frekar en reyna stöðugt að skella
skuldinni á aðra.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Settu þér ekki svo stífar reglur
að þér sé ómögulegt að fara eftir þeim.
Meðalhófið er best, því breytingar breyt-
inganna vegna geta farið illa.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Ástvinir vinna ekki verkið eins og
æskilegt væri, en gera það samt. Mundu
að þú ert ekki einn þegar þú furðar þig á
reglunum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Í stað þess að ýta þér áfram til að
eignast það sem þú álítur þig þurfa,
farðu í öfuga átt. Stundum er betra að
vinna með en reyna að kollvarpa öllu.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er ágætt að staldra við öðru
hvoru og velta fyrir sér hlutunum og at-
huga, hvort einhverju þarf að breyta.
Hafðu í huga að allir þurfa hvíld.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ef ágreiningur rís upp meðal fjöl-
skyldumeðlima þarf að komast að mála-
miðlun. Reyndu að beina athyglinni að
björtu hliðum lífsins og mundu að fæst
orð bera minnsta ábyrgð.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú verður að ljúka við þau
verkefni, sem þú hefur tekið að þér, áður
en þú gerir þér dagamun. Haltu fast um
budduna og horfðu í hina áttina.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þetta er góður dagur til að
kafa í ákveðin málefni. Lundin léttist og
þú öðlast nýtt sjónarhorn. Líttu bara um
öxl og sjáðu hverju þú hefur áorkað.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er gott að vita hvert stefnt
er og þú átt hrós skilið fyrir að hafa gef-
ið þér tíma til þess að hugleiða þau mál.
Friðarviljinn sem þú sýnir er smitandi.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Haltu þínu striki í peningamál-
unum, þótt einhverjir séu að gera þér
gylliboð. Gefðu þér tíma til að hitta ætt-
ingja og vini og spjalla um gömlu dag-
ana.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Afstaða þín getur gert útslagið í
ákveðnu máli. Ef þú horfist í augu við þá
reynast þeir ekki eins hræðilegir og þér
fannst í fyrstu.
Stjörnuspá
5. febrúar 1988
Jóhann Hjartarson sigraði
Viktor Kortsnoj í und-
ankeppni einvígis um rétt til
að skora á heimsmeistarann í
skák með 4,5 vinningum gegn
3,5. „Mesta afrek í íslenskri
skáksögu,“ sagði blaðið Dag-
ur. Jóhann tefldi ári síðar við
Anatoly Karpov í átta manna
úrslitum en beið lægri hlut.
5. febrúar 1994
Sameining Keflavíkur, Njarð-
víkur og Hafna var samþykkt í
kosningum. Þetta er nú
fimmta stærsta sveitarfélag
landsins, Reykjanesbær, með
rúmlega fjórtán þúsund íbúa.
5. febrúar 1997
Mikið eignatjón varð en lítil
meiðsl á fólki í fjöldaárekstri í
hálku á Kringlumýrarbraut,
undir göngubrúnni. „Tuttugu
og þrír bílar í einni kös,“ sagði
Morgunblaðið og hafði eftir
lögreglunni að þetta væri
mesti fjöldi bíla í einu umferð-
aróhappi.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Arnheiður Breiðfjörð Gísladóttir,
Ásthildur Elísa Ágústsdóttir og
Margrét Krístín Th. Leifsdóttir af-
hentu formanni Vestur-Barða-
strandarsýsludeildar Rauða kross-
ins afraksturinn af tveim tombólum
sem þær héldu í janúarmánuði,
samtals 5.346 krónur.
Hlutavelta
„ÉG er lítill afmælismaður og á því ekki von á að
ég geri eitt eða neitt í tilefni dagsins,“ segir Gils
Stefánsson húsgagnasmiður sem verður 65 ára í
dag.
Það er ekkert allt of gott hljóð í Gils þessa dag-
ana, en hann er einn af um 17 þúsund Íslendingum
sem eru án vinnu. „Ég veit ekki hvernig staðan
væri ef stjórnvöld hefðu ekki slegið skjaldborg um
heimilin. Þessi skjaldborg sem þau reistu er hrein
hryggðarmynd.“
Gils sagði að yfirlýsingar núverandi ráðamanna
í október 2008 um það sem gera þyrfti til bjargar
heimilunum í landinu bentu ekki til að mikið hefði verið að marka
þær. Hann sagðist raunar ekki telja að þeir sem nú væru í stjórnar-
andstöðu stæðu sig neitt betur.
Gils spilaði handbolta með FH á árum áður og lék síðast á Íslands-
mótinu 1979. Sonur hans, Héðinn Gilsson, var einnig liðtækur hand-
boltamaður og lék með landsliðinu í nokkur ár. Gils sagðist mæta á
leiki með FH og hann fylgdist að sjálfsögðu vel með handboltalands-
liðinu á EM í Austurríki. Það hefði glatt sig að sjá hvað landsliðið
hefði staðið sig vel. egol@mbl.is
Gils Stefánsson húsgagnasmiður 65 ára
Afmæli í skugga atvinnuleysis
Nýirborgarar
Selfoss Freyja Mjöll
fæddist 26. nóvember kl.
15.24. Hún vó 3.595 g og
var 50 cm löng. Foreldrar
hennar eru Harpa Íshólm
Ólafsdóttir og Gissur Kol-
beinsson.
Reykjavík Sólgerður
fæddist 3. ágúst kl. 2.03.
Hún vó 16 merkur og var
52 cm löng. Foreldrar
hennar eru Þura Sigríður
Garðarsdóttir og Kristófer
Rósinkranz Magnússon.
Akureyri Ríkey Svan-
fríður fæddist 9. sept-
ember kl. 16.18. Hún
vó 4.075 g og var 52
cm löng. Móðir henn-
ar er Kristín Ísleifs-
dóttir.