Morgunblaðið - 17.02.2010, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 7. F E B R Ú A R 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
39. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«ÍÞRÓTTIRNBA
STJÖRNURNAR TAKI
Á SIG LAUNALÆKKUN
«MENNINGFÓLK
Látlausir og haust-
legir litir ́áberandi
6
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
SEÐLABANKI Íslands hefur stofn-
að einkahlutafélagið Eignasafn
Seðlabanka Íslands ehf. (ESÍ). Félag-
ið var stofnað 30. desember síðastlið-
inn samkvæmt gögnum frá fyrir-
tækjaskrá, en skráður
stjórnarformaður þess er Már Guð-
mundsson seðlabankastjóri. Endur-
skoðendafyrirtækið KPMG veitti
Seðlabankanum ráðgjöf um málið og
sendi stofngögn til fyrirtækjaskrár.
Tilgangur ESÍ er eignarhald á
kröfum og fullnustueignum Seðla-
banka Íslands í kjölfar bankahruns-
ins. Þau veð sem Seðlabankinn leysti
til sín í kjölfar bankahrunsins eru því
inni í félaginu, þar með talinn danski
bankinn FIH. Einnig hefur ESÍ til
umsýslu kröfur á fjármálafyrirtæki
sem ganga nú í gegnum fjárhagslega
endurskipulagningu.
Samkvæmt upplýsingum frá Seðla-
banka Íslands hefur flutningur eign-
anna inn í einkahlutafélagið engin
áhrif á samstæðureikning Seðlabank-
ans. Bankinn segir jafnframt að ESÍ
verði lagt niður þegar allar eignir
þess hafa verið seldar. Mun þá koma í
ljós hvert raunverulegt tap Seðla-
bankans verður af veðlánaviðskiptum
við hina föllnu íslensku banka.
Óljós tímarammi
Samkvæmt upplýsingum frá Seðla-
bankanum verða eignir félagsins
seldar eftir því sem markaðsaðstæð-
ur leyfa. Erfitt sé að marka tíma-
ramma fyrir félagið, þar sem sölu-
tækifæri séu háð þróun efnahagsmála
hérlendis sem og erlendis. Bandaríski
seðlabankinn hefur starfrækt sam-
bærileg eignarhaldsfélög, samkvæmt
upplýsingum frá Seðlabanka Íslands.
Sömu meðulum hafi verið beitt í Sví-
þjóð.
Seðlabanki Íslands stofnar
eigið eignaumsýslufélag
» Félag stofnað utan um kröfur Seðlabankans
» Verður lagt niður er eignir hafa verið seldar
» Segja félagið að erlendri fyrirmynd
MAGN stera sem Tollgæslan hald-
lagði jókst mikið á síðasta ári. Í
fyrra tók tollurinn tólf lítra af fljót-
andi sterum, 2.062 ampúlur og
84.522 töflur, sem er mikil aukning
frá 2008 þegar tollgæslumenn tóku
1,45 af lítra af fljótandi sterum og
12.364 töflur.
Ungur maður, sem í gær var
dæmdur í sex ára fangelsi vegna
skotárásar á hús í Breiðholti í
Reykjavík sl. haust, var m.a. undir
áhrifum stera og áfengis þegar
hann framdi verknaðinn. Að sögn
geðlæknis er þekkt að steranotkun
auki árásargirni manna og hvatvísi.
Á bráðadeild Landspítalans verð-
ur starfsfólk vart við steraneyslu.
„Við verðum alltaf vör við ofbeldi
sem er tengt ofneyslu örvandi lyfja
eða stera, þá oft jafnhliða áfengis-
neyslu. Ég treysti mér þó ekki til
þess að segja til um hvort tilvikum í
tengslum við steraneyslu hafi fjölg-
að að undanförnu,“ segir Elísabet
Benedikz, yfirlæknir bráðadeildar-
innar. Hún segir að á næturvöktum
um helgar leiti oft á bráðadeild fólk
sem orðið hafi fyrir líkamsárásum
frá mönnum í vímuástandi, til að
mynda vegna lyfjaneyslu. Afleið-
ingarnar geti verið mjög slæmar.
sbs@mbl.is | 4
Steramet slegið í tollinum
Sterar sem tollstjóri
hefur lagt hald á
2008 2009
Fljótandi sterar (lítrar) 1,45 12,013
Ambúlur: 2.062
Stykki: 12.364 84.522
Aldrei meira haldlagt Fljótandi
og töflur Margir koma á bráðadeild
Fátt fylgir jafn fastri áætlun og ferðir strætisvagnanna. Æska landsins
lagar sig fljótt að því gangvirki, sem er í raun ágæt æfing í stundvísi, sem
er öllum er mikilvæg. Strætó klikkar aldrei og er býsna öruggur sam-
göngumáti, hvert sem leiðin liggur og erindið er. En þegar stund gefst er
þó í lagi að líta út úr röðinni og brosa til ljósmyndarans, framtíðarinnar og
daganna sem nú verða sífellt lengri.
BÖRNIN BÍÐA EFTIR STRÆTÓ
Morgunblaðið/Ómar
TILEFNI þyk-
ir til bjartsýni í
viðræðum í Ice-
save-deilunni.
Íslenska samn-
inganefndin
hamrar á því að
komi til þjóðar-
atkvæðagreiðslu
um ríkisábyrgð
á þeim samningi sem Alþingi hef-
ur samþykkt verði lögin senni-
lega felld. Þetta óttast Bretar og
Hollendingar. Vonir standa til að
fundað verði fram eftir vikunni.
Þá mun útfærð áætlun nýrra
samningaviðræðna verða kynnt,
þar sem Bandaríkjamaðurinn Lee
Buchheit yrði lykilmaður. »2
Bjartsýni um árangur í við-
ræðunum ytra um Icesave
LANDSSAMBAND smábáta-
sjómanna er ekki sátt við tillögur
bankanna vegna skuldavanda fé-
lagsmanna sinna og leggur til að
erlend lán smábátasjómanna verði
færð aftur til 1. mars 2008. Því
sem eftir standi verði breytt í
óverðtryggð lán sem beri ekki
vexti. Örn Pálsson, formaður sam-
bandsins, segir að illa hafi gengið
að fá fram afstöðu banka og
stjórnvalda til þessarar tillögu.
»12
Vilja að gengið verið fært
aftur til 1. mars 2008
LÖGREGLUNNI á höfuðborgar-
svæðinu barst síðdegis í gær ábend-
ing þess efnis að sjóliðar á þýsku
herskipi við Miðbakkann væru að
bjóða ungum stúlkum, allt niður í
14 ára, sem þeir rákust á í miðborg-
inni, í teiti um borð í skipinu þar
sem boðið yrði upp á áfengi. Lög-
reglan hafði í framhaldinu sam-
band við yfirmenn skipsins sem
tóku hart á uppátæki sjóliðanna og
ákváðu að tvöfalda gæsluna við
skipið, enda eiga engir Íslendingar
að komast um borð.
Hart tekið á fyrirhuguðu
teiti þýskra sjóliða
Morgunblaðið/Golli
ÍSLAND var einn þeirra staða sem
Betötu Morzine Scott hafði lengi
langað til að heimsækja, en hún hefur
alltaf haft gaman af ferðalögum. Hún
er hins vegar ekki viss um að sá áhugi
haldist óbreyttur eftir erfiða lífs-
reynslu á Langjökli nú um helgina, er
hún var týnd í átta tíma í ofsaveðri
ásamt ellefu ára gömlum syni sínum,
Jeremy.
Betata hefur litla þekkingu á jökla-
ferðum og segir almenna skynsemi og
umhyggju fyrir syni sínum einu skýr-
inguna á að hafa brugðist hárrétt við
erfiðum aðstæðum. „Jeremy var
mjög hugrakkur,
ég veit ekki hvað
hefði gerst ef
hann hefði byrjað
að gráta,“ segir
Betata sem hélt ró
sinni við erfiðar
aðstæður þrátt
fyrir að vera orðin
vonlítil um björg-
un. „Jeremy hefur
hins vegar sagt: Engar fleiri vélsleða-
ferðir,“ segir Betata sem kann ís-
lensku björgunarsveitunum góðar
þakkir fyrir lífsbjörgina. |2
Var orðin vonlítil um
að þeim yrði bjargað
Betata Morzine
Scott