Morgunblaðið - 17.02.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Þessi í nýju umbúðunum
bráðnar alveg jafn hratt.
Ég tók tímann!
eftirfyrir
rifinn mozzarellaostur í nýjum umbúðum
Þú finnur girnilegar uppskriftir með mozzarellaosti á www.gottimatinn.is
NÝJAR
UMBÚÐ
IR
Mozzarell
a er nú hlu
ti
af Gott í m
atinn
línunni
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
0
-0
0
7
1
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
ORÐ fá ekki lýst þakklæti Betötu
Morzine Scott í garð íslensku björg-
unarsveitanna sem fundu hana og ell-
efu ára son hennar eftir að þau höfðu
verið týnd í átta tíma á Langjökli í
ofsaveðri sl. sunnudag. „Þegar mér
var sagt að 300 manns væru að leita
að okkur ætlaði ég varla að trúa því,“
segir hún. „Þeir björguðu lífi okkar.
Ég var þrekuð og mér var virkilega
kalt. Ég var á síðustu metrunum og
veit ekki í hvaða ástandi þeir hefðu
fundið mig næsta morgun.“
Hárrétt viðbrögð Betötu er hún og
Jeremy, sonur hennar, urðu viðskila
við samferðafólk sitt í vélsleðaferð á
jöklinum hafa vakið aðdáun og eru
talin hafa bjargað lífi þeirra beggja.
Þessi pólski talmeinafræðingur
sem búsettur hefur verið í Edinborg
síðastliðin tuttugu ár kveðst þó ekki
hafa mikla þekkingu á fjalla- eða
jöklaferðum. „Ég er ekki einu sinni í
góðu formi, en almenn skynsemi og
umhyggjan fyrir Jeremy leiddu mig
áfram.“
Betata og Jeremy voru aftast í hóp
ferðalanga er þau týndust. Vélsleði
þeirra hafði drepið á sér skömmu áð-
ur og einn leiðsögumannanna ræst
vélina á ný áður en brunað var af
stað. Hópurinn hélt svo sem leið lá
upp brekku þar sem beygt var til
vinstri, en Betata hafði ekki afl til að
ná beygjunni. „Það þutu allir framhjá
og við horfðum á hópinn hverfa. Við
hrópuðum og veifuðum, en þau héldu
bara áfram.“
Óðagot, hræðsla og reiði út í sjálfa
sig fyrir að missa af beygjunni voru
fyrstu viðbrögð hennar. „Síðan hugs-
aði ég: Þeir koma aftur.“ Þeim datt
líka í hug að reyna að snúa sleðanum
og komast aftur á aðalslóðann. „En
svo drap hann á sér og vildi ekki fara í
gang.“
Hvert áttum við að fara?
Viðbrögð þeirra Jeremys spönn-
uðu allan tilfinningaskalann þessar
átta klukkustundir, en tímaskynið er
gloppótt. Þeim datt vissulega í hug að
ganga af stað og reyna að finna hjálp.
„En bara í sekúndubrot, því hvert
áttum við að fara?“
Hún segir þau hafa misst stjórn á
sér fyrst í stað. „Jeremy grét og ég
líka. Síðan róuðum við okkur og töld-
um að hópurinn kæmi fljótt aftur.
Um tíma sátum við á vélsleðanum, en
þegar vindurinn var farinn að færast í
aukana datt mér í hug að velta hon-
um, en hafði ekki afl til að gera það
ein. Eftir nokkrar tilraunir tókst okk-
ur þó að gera það í sameiningu,“ segir
Betata og kveður þá hugsun hafa
hvarflað að sér að þar með eyðilegði
hún rándýrt tæki.
Henni fannst líka mikilvægt að þau
hefðu nóg fyrir stafni. „Þannig að ég
sagði við Jeremy: Komdu, við skulum
byggja snjóhús.“ Og þau hófust
handa við að reisa vegg út frá hlið vél-
sleðans og fylla í göt sleðans til að
auka skjólið. „Ég braut vindhlífina af
og notaði hana til að moka snjó, en
svo feykti vindurinn henni úr höndum
mér.“ Því næst beygði hún vélarhlíf-
ina til að gera sleðann skjólbetri.
„Þetta snerist allt um að finna eitt-
hvað sem við gætum notað. Ég vissi
líka að það ætti að vera eitthvað dót í
hólfi undir sætinu, en það var læst.“
Sólin kom fram um tíma og þá fylltust
þau von á ný, en það voru erfiðar
stundir er þau heyrðu í þyrlu fyrir of-
an, hoppuðu þá og veifuðu en fengu
engin viðbrögð.
Köld og þróttlítil
Að lokum var Betata orðin vonlítil
um björgun. Hún var köld og þrótt-
lítil og búin að liggja lengi ofan á
drengnum til að halda á honum hita
er björgunarsveitirnar fundu þau.
„Ég varð fyrst vör við þá er ég fann
að það var tekið utan um mig. Síðan
spurði einhver: Er í lagi með þig?
Ertu með meðvitund? Er í lagi með
drenginn? Svo heyrði ég fleiri radd-
ir.“
Betata vill lítið tjá sig um Snow-
mobile.is, fyrirtækið sem þau fóru í
ferðina með.
Hún hefur þó reynslu af vél-
sleðaferð sem fjölskyldan fór í með
fyrirtæki í nágrenni Kiruna í Svíþjóð
fyrir tveimur árum. „Við fengum
betri hanska þar,“ segir hún. „Þar
fengum við líka þykka ullarsokka og
volduga snjóskó, en hér vorum við í
okkar eigin þunnu sokkum og skóm.“
„Þeir björguðu lífi okkar“
Morgunblaðið/Golli
Erfið reynsla Betata Morzine Scott er kalin eftir dvölina á Langjökli og enn að jafna sig andlega. Jeremy son henn-
ar sakaði hins vegar ekki og var hann staddur í Bláa lóninu ásamt föður sínum og bróður er viðtalið var tekið.
Horfðu á ferðahópinn hverfa er þau misstu af beygju Var orðin vonlítil um björgun og taldi leit
hafa verið hætt Þakkar umhyggju fyrir syninum það að hún gat brugðist rétt við
Skýli mæðginanna á jöklinum
Vi
nd
át
t
Björgunarsveitarmenn
á vélsleðum keyra hvor
sínummegin að þeim
Betata tekur vélarhlífina
af sleðanum og stingur
henni ofan í snjóinn til
að mynda skjól
Jeremy liggur á bakinu
í skjóli við sleðann
Betata leggst ofan á Jeremy
til að halda á honum hita og
skiptir af og til um stellingu
Fætur Betötu
eru ekki í skjóli
fyrir vindinum
og loðfóður í
skóm hennar
fyllist af ís
Þau hlaða
upp snjó
til að auka
skjólið
H
ei
m
ild
:G
uð
m
un
du
rA
rn
ar
Ás
tv
al
ds
so
n,
FB
SR
Um
og
yfi
r
20
m
/s
ek
. o
g m
iki
ll
sk
af
re
nn
in
gu
r
SAMKVÆMT upplýsingum
Morgunblaðsins telja íslensk stjórn-
völd og stjórnarandstaðan að ákveð-
ið tilefni sé til bjartsýni í viðræðum
við Hollendinga og Breta vegna Ice-
save. Samninganefndin úti í London
hafi stöðugt haldið því á lofti að komi
til þjóðaratkvæðagreiðslu um ríkis-
ábyrgð á Icesave-samningunum á
Íslandi verði slík lög að líkindum
felld með 80% atkvæða. Þetta er það
atriði sem Hollendingar og Bretar
munu óttast hvað mest samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins.
Leggja fram áætlun
Vonir manna í gærkvöldi stóðu til
þess að Hollendingar og Bretar féll-
ust á nýjan fund með samninga-
nefndinni á morgun, fimmtudag. Ef
af þeim fundi verður þá verður ný
útfærð áætlun íslensku samninga-
nefndarinnar kynnt viðmælendum
en þar mun bandaríski sérfræðing-
urinn Lee Buchheit gegna lykilhlut-
verki.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði á Alþingi í gær, í
utandagskrárumræðu um stöðu
efnahagsmála, að þjóðin mætti ekki
við frekari töfum í Icesave-málinu.
Nýjustu fréttir frá Lundúnum vektu
hins vegar von um árangur og von-
aðist hún til að sjá jákvæða niður-
stöðu og málið leitt til lykta á skjót-
an hátt.
„Það er lítið hægt að segja um
stöðuna annað en það að þessi við-
ræðulota er ennþá í gangi,“ sagði
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokks, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Stilli væntingum í hóf
Spurður hvort menn væru bjart-
sýnir sagði Bjarni réttast að stilla
öllum væntingum í hóf. „Ég er hins
vegar mjög sáttur við þá samstöðu
sem náðst hefur um það með hvaða
hætti við höfum unnið að málinu
fram til þessa. Málið er í þeim far-
vegi sem lagt var upp með, þannig
að ég er fullkomlega sáttur við það
hvernig staðið hefur verið að málinu
og það hefur þróast fram til þessa.
Ég er líka mjög raunsær varðandi
það að best er að vera ekki með of
miklar væntingar, en um leið vonast
ég til þess að þessi lota skili ár-
angri.“
Tilefni til bjartsýni
Telja ákveðið tilefni til bjartsýni í viðræðunum í London
Benda á að Icesave-samningarnir yrðu kolfelldir
Jóhanna
Sigurðardóttir
Bjarni
Benediktsson
NIKULÁS Þorvarðarson hjá
Snowmobile.is segir um tuttugu
manns hafa verið í hópnum sem
var á Langjökli á sunnudag.
„Á þessum stutta vegarkafla
í bílana, sem var um 1,5 km
langur, var stoppað reglulega
og hópnum þjappað saman.“
Veðrið hafi hins vegar breyst
óvenjuhratt til hins verra. „Ég er
búinn að vera þarna á jöklinum í
mörg ár og hef aldrei upplifað
annað eins,“ segir hann og telur
jákvætt að sýslumaðurinn á Sel-
fossi rannsaki atvikið.
Stoppaði reglulega
Ljósmynd/Þór Kjartansson