Morgunblaðið - 17.02.2010, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2010
Viðarhöfða 6 - Reykjavík / Bæjarhrauni 12 - Hafnarfirði
www.sindri.is / sími 575 0000
Verslanir
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
9
22
3
0
DCD945B2
Öflug 12 V borvél m. höggi
3ja gíra, 0-450/1200/1800
Hersla 44 Nm.
2x2,6 Ah Ni-Mh rafhlöður.
40 mín. hleðslutæki.
Taska fylgir.
Borvél m. höggi 12 V
66.900
Áður kr. 79.900
TILBO
Ð Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
UM helmingur skattaskjóla heimsins
tengist Bretlandi á einn eða annan
hátt og hefur stjórn Verkamanna-
flokksins nánast ekkert beitt sér í að
uppræta spillinguna sem þar fyrir-
finnst frá því hún komst til valda 1997.
Þetta segir John Cristiansen, hag-
fræðingur og formaður ritararáðs
samtakanna Tax Justice Network, al-
þjóðlegs hóps fræðimanna og bar-
áttufólks sem vinnur að rannsóknum
á skattkerfum og ýmsu misferli.
Nægir þar að nefna ýmsa fjár-
glæfra sem við-
gangast í skatta-
skjólum og á
„aflandseyjum“
og alþjóðleg und-
irboð skatta, oft af
hálfu smáríkja.
Aðspurður um
aðgerðir breskra
jafnaðarmanna til
að sporna gegn
skattsvikum segir Christiansen að
Tony Blair, forveri Gordons Browns í
embætti forsætisráðherra, hafi heitið
aðgerðum í þessa veru fyrir kosning-
arnar 1997 en svo lagt áformin á hill-
una eftir valdatökuna.
Christiansen er ekki bjartsýnn á að
þetta muni breytast með líklegri
valdatöku íhaldsmanna, undir stjórn
Davids Camerons, í kosningunum
framundan og vísar til þess að lög-
fræðingurinn John Maples, einn nán-
asti ráðgjafi Camerons, sé tengdur
fyrirtæki á Cayman-eyjum þar sem
hvorki fleiri né færri en 12.000 fyr-
irtæki eru skráð í sama húsinu.
Stefni ekki ríkjum í gjaldþrot
Inntur eftir því hvort hann taki
undir með Martin Wolf, einum rit-
stjóra Financial Times, að Icesave-
byrðin sé of þung fyrir Ísland miðað
við stærð hagkerfisins bendir Christi-
ansen, sem hefur árum saman unnið
með Evu Joly, á að ekki sé skynsam-
legt að stefna ríki í gjaldþrot. For-
gangsmál sé að endurreisa hagkerfið
og rétta yfir fjármálamönnum hafi
þeir gerst brotlegir við lögin.
Christiansen flytur erindi í sal
ReykjavíkurAkademíunnar á fundi
Attac-samtakanna JL-húsinu kl. 20 í
kvöld. Meira á mbl.is
Um helmingur skattaskjóla
er tengdur Bretlandseyjum
Formaður baráttu-
samtaka varar við
Icesave-byrðum
John Christiansen
REIÐI vegna meintra kynferðisbrota
gagnvart unnustu og fleiri stúlkum
var ástæða skotárásar við Þverársel í
Reykjavík sl. haust. Héraðsdómur
Reykjavíkur dæmdi byssumanninn,
Birki A. Jónsson, 25 ára, í sex ára
fangelsi fyrir skotárás og tilraun til
manndráps. Dóminum verður áfrýjað
til Hæstaréttar að sögn Brynjars
Níelssonar, verjanda Birkis.
Birkir var ákærður fyrir tilraun til
manndráps en hann játaði að hafa
hleypt af haglabyssu á húsráðanda.
Réttarhaldið var lokað vegna þáttar
unnustu ákærða í málinu. Unnustan
var einnig handtekin í tengslum við
málið, en hún hafði áður kært mann,
sem var í húsinu sem skotið var á, fyr-
ir kynferðisbrot, þó ekki þann sem
varð fyrir árásinni. Lögregla hafði á
fyrri stigum tekið það mál til rann-
sóknar en lét það niður falla. Unnust-
unni var sleppt úr haldi lögreglu eftir
skýrslutöku.
Mildi að húsráðandi slapp
Mikil mildi þótti að húsráðandi
skyldi sleppa nánast ómeiddur en
Birkir var ákærður fyrir að hafa
bankað á útidyrnar og, þegar húsráð-
andi opnaði, rekið byssuhlaupið í enni
hans og síðan skotið fimm skotum úr
haglabyssunni á húsið. Húsráðandan-
um hafði þá tekist að loka dyrunum og
stóð fyrir innan þær. Tvö skotanna
hæfðu hurðina en þrjú fóru inn í íbúð-
ina í gegnum rúðu við útidyr.
Héraðsdómur segir í niðurstöðu
sinni, að verknaður Birkis hafi verið
stórhættulegur og beinst að lífi og
heilsu mannsins sem hann skaut á. Af
framburði ákærða og vitna verði ráðið
að Birkir hafi verið í hefndarhug þeg-
ar hann hélt af stað með haglabyssu
um nóttina. Þó verði ekki fullyrt að
ásetningur hans til skotárásarinnar
hafi myndast fyrr en húsráðandinn
skellti aftur hurðinni.
Fram kemur í dóminum, að Birkir
sagðist hafa verið búinn að neyta
áfengis þetta kvöld. Þá hafði hann
einnig tekið 100 ml af hormónalyfinu
testósteróni tvisvar sinnum í viku síð-
ustu þrjá mánuði áður en þetta gerð-
ist. Hann sagðist þó ekki hafa fundið
fyrir skapgerðarbreytingum vegna
þessara lyfja. Auk fangelsisdómsins
var Birkir dæmdur til að greiða hús-
ráðanda bætur sem og málsvarnar-
laun. sbs@mbl.is
Byssumaður fær sex ár
Skaut á hús í Þverárseli Í hefndarhug vegna kynferðislegrar áreitni húsráð-
anda og félaga hans Stórhættulegur verknaður Fimm skot á hurð og rúðu
„HJÓLREIÐAR geta orðið vaxtarbroddur í
ferðaþjónustu ef vel er að því staðið,“ segir
Stefán Helgi Valsson, leiðsögumaður hjá Ice-
land Bike – Reykjavík Bike Tours, fyrirtæki
sem sérhæfir sig í reiðhjólaferðum um borg-
ina með leiðsögn. Í kynningarskyni hefur
fyrirtækið boðið fólki upp á ókeypis hjólreiða-
ferðir, þar sem er lagt upp vestur í bæ og far-
ið um Kvosina, suður í Vatnsmýri og vestur á
Ægisíðu. „Það er afar mismunandi hversu
margir koma með í hvert sinn. Suma daga er
þetta svolítill hópur en í annan tíma er messu-
fall. Einstaka ferðamenn sem koma með okk-
ur í hjólreiðaferð láta okkur fá lítilræði í
þjórfé, en menningin fyrir slíku hér á landi er
ekki sterk. Þegar kemur fram á sumarið er
meiningin að innheimta gjald fyrir þjón-
ustuna,“ segir Stefán Helgi. Hann segir að í
mörgum af helstu höfuðborgum heimsins, til
dæmis Kaupmannahöfn, London, Berlín og
París, séu starfrækt fyrirtæki sem bjóða upp
á samskonar þjónustu.
Á myndinni má sjá Stefán Helga með ferða-
mönnum á Austurvelli í gær. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
HJÓLAR ÓKEYPIS MEÐ FERÐAMENN UM BORGINA
HERMANN Valsson, varaborg-
arfulltrúi VG, greiddi atkvæði með
tillögu Ólafs F. Magnússonar í
borgarstjórn í gær, um að Reykjavík
og Álftanes hæfu sameiningar-
viðræður. Borgarfulltrúar meiri-
hlutans svöruðu útspili Ólafs með
frávísunartillögu. Atkvæðagreiðsla
um þá tillögu fór fram með nafna-
kalli þar sem allir í meirihlutanum
sögðu já. Lína minnihlutans var að
sitja hjá. „Hann situr hjá,“ kallaði
Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi
VG, yfir borgarstjórnarsalinn þegar
ljóst var að Hermann hefði greitt at-
kvæði með tillögu Ólafs. Urðu snörp
orðaskipti vegna þessa. Ákvað for-
seti borgarstjórnar því að endurtaka
atkvæðagreiðsluna þar sem Her-
mann undirstrikaði óbreytta afstöðu
með atkvæði sínu. sbs@mbl.is
Sagði nei en
átti að sitja hjá
Sóley TómasdóttirHermann Valsson
Árásarmaðurinn, Birkir Arnar
Jónsson, var metinn sakhæfur af
geðlækni. Sá telur að Birkir hafi
verið undir áhrifum áfengis þeg-
ar brotið var framið. Þá sé þekkt
að „sterar valdi hegðun-
arbreytingu eins og aukinni
árásargirni og hvatvísi,“ segir í
dómnum. Mál kærustu ákærða
hafi þó verið honum efst í huga
og gert útslagið um gjörðir hans.
Þessi geðrænu einkenni leiði þó
ekki til ósakhæfis, skv. 15 grein
hegningarlaga, eða komi í veg
fyrir fangavist eða refsingu.
Sterar juku hvatvísi
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins mun í næstu viku
mæla með því að aðildarviðræður
hefjist við Ísland. Þetta hafði Reut-
ers-fréttastofan
eftir embættis-
manni hjá ESB í
gær.
„24. febrúar
mun fram-
kvæmdastjórn
Evrópusam-
bandsins senda frá sér álit þar sem
mælt er með að aðildarviðræður
hefjist,“ hafði Reuters eftir
embættismanninum.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði eftir fund með José
Manuel Barroso, forseta fram-
kvæmdastjórnar ESB, í byrjun febr-
úar að ef umsókn Íslands fengi já-
kvæðar viðtökur á fundi
framkvæmdastjórnarinnar yrði hún
tekin fyrir á leiðtogafundi Evrópu-
sambandsins í mars.
Í samtali við ríkissjónvarpið í gær
sagðist Jóhanna fagna þessari nið-
urstöðu. Nú gæti fólk hætt að tengja
saman aðildarviðræðurnar og lausn
Icesave-málsins. Þegar mynd kæm-
ist á umsóknarferlið yrðu viðhorf til
aðildar jákvæðari en þau væru nú.
Mun mæla
með viðræð-
um við Ísland