Morgunblaðið - 17.02.2010, Side 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2010
einfalt & ódýrt!
Passionata
pizzur
Prosciutto
& salami
259kr.stk.
SJÓSUNDMENN halda í fræðslu-
fund í kvöld um ofkólnun og hvernig
má bregðast við henni. Meðal fyrir-
lesara er Heimir Örn Sveinsson sem
mun fjalla um upplifun sína á ofkæl-
ingu. Sjósund nýtur nú mikilla vin-
sælda og um 200 manns hafa gengið
í Sjósunds- og sjóbaðsfélag Reykja-
víkur, SJÓR.
Aðrir fyrirlesarar verða dr. Þór-
arinn Sveinsson lífeðlisfræðingur,
Ófeigur Þorgeirsson, læknir og sjó-
sundsmaður, og Árni Þór Árnason.
Fundurinn er haldinn í Háskóla
Reykjavíkur við Nauthólsvík í fyrir-
lestrarsalnum Betelgás, stofu V1.02.
Frítt er á fræðslukvöldið og veit-
ingar verða í boði SJÓR.
Ræðir um
reynslu af
ofkælingu
Um 200 manns
í sjósundfélagi
Hrollkalt Þó oftast ekki of kalt.
SETTAR verða siðareglur fyrir
starfsmenn Stjórnarráðs Íslands,
samkvæmt nýju stjórnarfrumvarpi
sem lagt hefur verið fram á Alþingi.
Verði frumvarpið að lögum verður
skipuð „samhæfingarnefnd um sið-
ferðileg viðmið fyrir stjórnsýsluna“.
Meðal verkefna samhæfing-
arnefndarinnar verður að stuðla að
því að siðferðileg viðmið séu í háveg-
um höfð í opinberum störfum.
Í frumvarpinu eru einnig lagðar
til breytingar á lögum um umboðs-
mann Alþingis, um réttindi og skyld-
ur starfsmanna ríkisins og á lögum
um ráðherraábyrgð.
Þá verður bannað að láta starfs-
mann gjalda þess að hann greini við-
eigandi aðilum frá lögbrotum eða
brotum á siðareglum sem hann hef-
ur orðið áskynja um í starfi.
Siðareglur
fyrir Stjórn-
arráðið
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
FERÐALANGAR á leið frá landi
þekkja að framvísa þarf ferðagögnum
og skilríkjum sínum eða vegabréfi
nokkrum sinnum áður en komið er út
í flugvél. Án efa hafa þó færri en fleiri
uppgötvað það við brottfararhliðið að
þeir hafi framvísað röngu vegabréfi í
tvígang án þess að við það hafi verið
gerð athugasemd.
Friðrik Rafnsson, verkefnastjóri
hjá STG Multi-Ice og forseti Alliance
française á Íslandi, var nýverið á leið
til Frakklands. Við innritunarborðið í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar afhenti
hann vegabréf sitt og fékk til baka
brottfararspjald. „Við öryggisskoð-
unina stóðu svo
þrír menn, allir
mjög ábúðarmikl-
ir á svip en einn
sýnu mest.“
Þetta þótti
Friðriki eðlilegt
enda hækkað ör-
yggisstig á flug-
vellinum í kjölfar
tilraunar til að
sprengja farþegaflugvél á leið til
Detroit í Bandaríkjunum frá Amster-
dam í Hollandi seint á síðasta ári.
„Sá er virkaði öryggisvarða sam-
viskusamastur spurði út í hvort ég
væri með einhvern vökva eða hættu-
legan varning, fór yfir brottfarar-
spjaldið og vegabréfið. Að því loknu
setti hann brottfararspjaldið að nýju
inn í vegabréfið og afhenti mér.“
Við brottfararhliðið afhenti Friðrik
vegabréfið þriðja sinni. Ung og at-
hugul starfsstúlka flugfélagsins rak
þá upp stór augu og benti honum á að
myndin væri ekki af honum. Friðrik
skoðaði vegabréfið og reyndist hann
hafa gripið vegabréf dóttur sinnar í
misgripum.
„Hún er 18 ára, íðilfögur ljóshærð
stúlka. Þó ég sé reyndar einnig íðil-
fagur er ég um þrjátíu árum eldri,
með hátt og myndarlegt enni og yfir-
vararskegg. Seint verður því sagt að
við séum mjög lík,“ segir Friðrik sem
komst um borð á ökuskírteininu sínu
en varð að fá rétt vegabréf sent út til
Frakklands.
Komst næstum úr landi
á vegabréfi dótturinnar
Friðriki Rafnssyni brá heldur betur í brún þegar hann var
stöðvaður við brottfararhlið í Leifsstöð með rangt vegabréf
Friðrik Rafnsson
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ÁKAFLEGA mikilvægt er að varlega sé farið með
yfirlýsingar sem tengjast Icesave-málinu á þess-
um viðkvæma tímapunkti. Um það sögðust for-
maður Framsóknarflokks og forsætisráðherra
sammála á Alþingi í gær. Formaðurinn lýsti yfir
megnustu óánægju með greinarskrif fulltrúa
Samfylkingarinnar í peningastefnunefnd Seðla-
banka Íslands og spurði hvort ekki ætti að víkja
honum úr nefndinni.
Umrædd grein birtist í vefritinu Vox EU en þar
er nær eingöngu fjallað um fjármál. Í grein sinni
frá 13. febrúar sl. segir Anne Sibert, fulltrúi Sam-
fylkingarinnar í peningastefnunefndinni, að Ís-
land sé ekki of lítið land til að standa undir skuld-
bindingum sínum gagnvart Bretum og
Hollendingum. Þetta taldi Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokks, óvið-
unandi. Hann sagði tímasetninguna með stökustu
ólíkindum og að skrifin gætu verið skaðleg í þeim
viðræðum sem eiga sér stað milli Íslendinga og
Breta og Hollendinga.
Sigmundur sagði greinina eingöngu ganga út á
að hægt væri að kreista hverja krónu út úr Íslend-
ingum og það í vefriti sem lesið væri af embættis-
mönnum í Brussel og starfsmönnum ráðuneyta í
Bretlandi. Hann sagði skrif Sibert hljóta að vekja
undrun, reiði og hneykslan forsætisráðherra, áður
en hann spurði hvort henni yrði ekki vikið úr
nefndinni.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra viður-
kenndi að hafa ekki lesið greinina, en hún væri
fullkomlega sammála Sigmundi ef lýsing hans
reyndist rétt. Hún sagðist jafnframt ætla að
kynna sér efni greinarinnar. Hún sagðist hins veg-
ar ekki ætla að víkja Sibert úr peningastefnu-
nefndinni. Það væri ekki í hennar verkahring, þó
svo að hún væri sammála Sigmundi, nefndin og
Seðlabankinn störfuðu sjálfstætt.
„Afar óheppileg ummæli“
Formaður Framsóknarflokks vill að Anne Sibert víki úr peningastefnunefnd SÍ
vegna greinarskrifa Forsætisráðherra segir slíkt ekki í sínum verkahring
Jóhanna
Sigurðardóttir
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Anne
Sibert
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
SKIPTAR skoðanir voru á Alþingi í
gær um ágæti aðgerða ríkisstjórnar-
innar í efnahagsmálum. Formaður
Sjálfstæðisflokksins benti á fyrirheit
stjórnarinnar þegar hún tók við völd-
um og sagði árangurinn alls engan.
Formaður Framsóknarflokks sagði
stjórnina fresta öllu sem hægt væri að
fresta. Forsætisráðherra og fjármála-
ráðherra sögðu betur hafa gengið en
vonir hefðu staðið til, en Icesave-mál-
ið ylli óvissu um þessar mundir.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokks, sagði efnahagsmál-
in mestu máli skipta fyrir Alþingi
þessi misseri og að leggja ætti aukinn
kraft í umræðu um þau. Hann þuldi
upp fyrirheit stjórnarinnar, s.s. um
skjaldborg heimilanna og velferðar-
brúna, og spurði hvað hefði orðið um
þau. Þá benti hann á að sökum þess að
ríkisstjórnin hefði lagt meiri áherslu á
skattahækkanir en aðhald í ríkisfjár-
málum biði enn hrikalegur niður-
skurður.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði reyndar rétt hvað
varðaði niðurskurðinn að gífurlega
myndi taka á við fjárlagagerð næsta
árs, enda væri komið að þolmörkum
velferðarkerfisins. Hún sagði að sú
vinna yrði gríðarlega erfið.
Margt gott verið gert
Þrátt fyrir það sagði Jóhanna að
margt gott hefði verið gert og minnt-
ist sérstaklega á viðskiptabankana
sem búið væri að fjármagna að fullu.
Þeir hefðu borð fyrir báru til að mæta
áföllum, gætu tekið til við endur-
skipulagningu fjármála heimila og
fyrirtækja auk þess að útvega fjár-
magn til atvinnureksturs. Það sagði
hún gríðarlega mikilvægt.
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra vísaði til þess að í kjölfar
hrunsins hefði verið spáð 10-12% at-
vinnuleysi og 10-12% samdrætti
landsframleiðslu á árinu 2009. Reynd-
in hefði hins vegar verið að samdrátt-
ur landsframleiðslu hefði verið 7,5-
7,7%, atvinnuleysi um 8%, stýrivextir
væru komnir niður fyrir 10% og verð-
bólga væri 7% og á niðurleið.
Þannig hefði árið 2009 gengið betur
en spár hefðu gert ráð fyrir, þó svo að
horfurnar væru nú óvissari og spár
um samdrátt færu aftur versnandi.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
sagði ríkisstjórnina fyrirstöðu endur-
reisnarinnar. „Það gerist ekki neitt
nema ríkisstjórnin grípi til þeirra rót-
tæku aðgerða sem þarf til að bregðast
við þeim vanda sem við erum í. Það
átti ríkisstjórnin að gera í fyrstu vik-
unni en þess í stað frestar hún öllu
sem hægt er að fresta,“
Hann bætti við að það þyrfti ríkis-
stjórn sem veitti framtíðarsýn og
væri tilbúin að ráðast í þær aðgerðir
sem þyrfti.
Óvissan hefur aftur aukist
Tekist var á um
stöðu efnahags-
mála á Alþingi
Morgunblaðið/Ómar
Átök Forsætisráðherra sagði að mikið myndi taka á við fjárlagagerð næsta árs. Áfram verður annasamt á Alþingi.