Morgunblaðið - 17.02.2010, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2010
Þórólfur Matthíasson, prófessorvið Háskóla Íslands, gerir það
ekki endasleppt í baráttu sinni fyrir
hagsmunum breskra og hollenskra
stjórnvalda. Eftir að Eva Joly hafði
hirt hann fyrir að skrifa erlendis
gegn íslenskum hagsmunum svarar
hann henni kokhraustur í innlendum
og erlendum blöðum til að tryggja
að sjónarmið hans um Icesave kom-
ist örugglega til skila þar sem þau
geta mögulega skaðað Ísland mest.
Þórólfur telurekki einungis
að Icesave-klafinn
yrði Íslendingum
ekki þungbær,
heldur telur hann
einnig að Íslend-
ingum beri að
leggja á sig þessar
byrðar. Skiptir
engu þótt efna-
hagsleg og lagaleg rök segi annað.
En Þórólfur lætur sér ekki nægjaað skrifa í erlend blöð. Í fyrra-
dag tókst honum að koma sér að í
BBC World Service, þannig að nú
má telja öruggt að skilaboð hans
hafi komist í gegn.
Skilaboð Þórólfs til hlustenda BBCvoru þau að Íslendingar yrðu að
borga. Máli sínu til stuðnings tók
hann stórfurðulegt dæmi um það að
foreldrar yrðu að borga tjónið ef
unglingurinn á heimilinu tæki fjöl-
skyldubílinn og keyrði á vegg.
Á sama tíma og Þórólfur sendi frásér þessi skilaboð sátu menn á
vegum íslenskra stjórnvalda og rök-
ræddu við fulltrúa breskra og hol-
lenskra stjórnvalda.
Engin leið er að segja hversu mikiðógagn málflutningur manna á
borð við Þórólf og áður Indriða H.
Þorláksson, aðstoðarmann fjármála-
ráðherra, hefur gert í þeim við-
ræðum sem verið er að reyna að
koma af stað. Hitt verður ekki af
þeim tekið að þeir gera sitt ýtrasta.
Þórólfur
Matthíasson
Barist fyrir breskum hagsmunum
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 3 skýjað Lúxemborg 0 heiðskírt Algarve 17 skýjað
Bolungarvík -1 skýjað Brussel 2 heiðskírt Madríd 5 alskýjað
Akureyri 0 alskýjað Dublin 5 skýjað Barcelona 11 skýjað
Egilsstaðir 0 snjókoma Glasgow 3 skúrir Mallorca 14 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 2 alskýjað London 4 skúrir Róm 8 skúrir
Nuuk 0 skýjað París 3 heiðskírt Aþena 14 skýjað
Þórshöfn 3 skúrir Amsterdam 2 léttskýjað Winnipeg -16 léttskýjað
Ósló -5 snjókoma Hamborg 0 heiðskírt Montreal -2 alskýjað
Kaupmannahöfn -1 snjókoma Berlín -1 snjókoma New York 0 snjókoma
Stokkhólmur -4 alskýjað Vín -3 skýjað Chicago -1 léttskýjað
Helsinki -9 alskýjað Moskva -11 heiðskírt Orlando 8 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
17. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2.06 0,4 8.12 3,9 14.27 0,4 20.28 3,8 9:17 18:08
ÍSAFJÖRÐUR 4.05 0,3 10.06 2,1 16.31 0,2 22.21 1,9 9:31 18:03
SIGLUFJÖRÐUR 0.30 1,2 6.23 0,2 12.42 1,2 18.44 0,1 9:14 17:46
DJÚPIVOGUR 5.27 1,9 11.37 0,2 17.40 1,9 23.52 0,2 8:49 17:35
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á fimmtudag
Fremur hæg norðlæg átt, en
norðan 8-10 með austurströnd-
inni. Stöku él norðan- og aust-
antil, en annars léttskýjað að
mestu. Frost 3 til 12 stig, kald-
ast í innsveitum.
Á föstudag, laugardag,
sunnudag og mánudag
Norðaustlæg átt, yfirleitt 8-15
m/s og snjókoma eða él, en
þurrt og bjart að mestu um
landið suðvestanvert. Frost 0 til
8 stig, mildast við sjóinn.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Norðaustan 5-10 m/s og él,
einkum norðan- og austantil,
en skýjað með köflum eða létt-
skýjað og þurrt að kalla vest-
anlands. Frost yfirleitt 0 til 5
stig.
HUGSANLEGUR flutningur Tilraunastöðvar
Háskóla Íslands að Keldum í Grafarvogi hefur nú
aftur verið tekinn til skoðunar, eftir að hafa verið á
ís allt árið 2009.
Að sögn Sigurðar Ingvarssonar, forstöðumanns
á Keldum, var á sínum tíma búið að teikna þarfa-
greiningaráætlun sem gerði ráð fyrir um 6.000 fm
nýbyggingu vestast í Vatnsmýri þegar málinu var
ýtt til hliðar, en nú verður byrjað upp á nýtt.
Sá hönnunarkostnaður er ekki ljós, en að sögn
Guðmundar R. Jónssonar, prófessors við véla- og
iðntækniskor HÍ, er unnið að því að fyrir frum-
hönnun á fyrsta áfanga yrði hann aldrei hærri en
200 milljónir. Flutningurinn hefur verið til skoð-
unar allt frá árinu 2001 en hvorki verið skilgreind-
ur í fjárlögum né settur á tímaáætlun.
„Við erum að fara af stað með þetta aftur og nú
er verið að spóla aðeins til baka,“ segir Sigurður.
Keldur og Háskóli Íslands vinna að því að endur-
skoða þarfagreininguna, en það er fyrst og fremst
vegna þess að í fyrri áætlun var gert ráð fyrir því
að Læknagarður og Eirberg yrðu rifin.
Vegna kreppunnar hefur nú verið hætt við það
og í staðinn stendur til að nýta þær byggingar að
hluta undir Tilraunastöðina. Hún verður því ekki
byggð frá grunni eftir þörfum starfseminnar eins
og áður stóð til. „Það þarf að hugsa dæmið upp á
nýtt út frá Læknagarði. Nákvæm staðsetning er
ekki ljós, en það liggur alveg fyrir að þetta verður
á sama svæði, nokkrum metrum til eða frá.“
Sigurður segir sannarlega þörf á breytingum.
„Það er stöðug þróun á okkar fræðasviðum og allt-
af að koma öflugri og betri tækni til að keyra þess-
ar rannsóknir í gegn á stærri skala og það krefst
betri aðstöðu, við sækjum nú þegar á þetta svæði
til að nota tæki sem við höfum ekki.“ una@mbl.is
6.000 m² nýbyggingu ýtt til hliðar
Eldri áætlanir um flutning Tilraunastöðvarinnar að Keldum endurskoðaðar
Eftir Ólaf Bernódusson
Skagaströnd | Stóri bramafiskur
(Brama brama) er ekki algengur
fiskur við Ísland. Nokkuð hefur þó
veiðst af honum fyrir sunnan land í
nágrenni Vestmannaeyja og upp
með vestur- og austurströnd lands-
ins. Ekki er vitað til að slíkur fiskur
hafi veiðst inni á Húnaflóa fyrr en nú
fyrir nokkrum dögum.
Sigurbjörn Berg, skipstjóri á
Hildi GK, rak þess vegna upp stór
augu þegar hann fékk einn slíkan á
línuna í Birgisvíkurpollinum, sem er
gjöfult veiðisvæði í vestanverðum
Húnaflóanum. Bjössi, sem verið hef-
ur á sjó í áratugi, hafði aldrei séð
svona fisk áður og kom honum í
hendur BioPol á Skagaströnd en það
fyrirtæki er m.a. í samvinnu við Haf-
rannsóknastofnun.
„Ég þorði ekki að fara með hann
heim og éta hann nema vita hvað
kvikindið héti,“ sagði Bjössi, „Sá
næsti endar í pottinum hjá mér.“
Sjálfsagt hefði verið í lagi fyrir
Bjössa að borða fiskinn því stóri
bramafiskur þykir góður matfiskur
og er vinsæll sem slíkur á Spáni og
Portúgal.
Helstu heimkynni hans eru í Mið-
jarðarhafinu og í Atlantshafinu við
norðvesturstönd Afríku.
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Skrítinn Fiskurinn sem Hildur GK landaði er u.þ.b. 45 sentimetrar á lengd.
„Ég þorði ekki að
fara með hann heim“