Morgunblaðið - 17.02.2010, Side 21
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2010
✝ Jóna B. Hann-esdóttir fæddist
að Hæli í Vest-
mannaeyjum 27.
mars 1925. Hún lést á
líknardeild Landspít-
alans 10. febrúar síð-
astliðinn.
Foreldrar hennar
voru þau Hannes
Hreinsson, verka-
maður og fiskimats-
maður, f. 2. október
1892, d. 28. maí 1983,
og Vilborg Guðlaugs-
dóttir, f. 29. október
1892, d. 23. október 1932. Systur
Jónu eru Magnea G. Hannesdóttir
Waage, verslunarmaður, f. 21. des-
ember 1922, Ásta S. Hannesdóttir,
snyrtifræðingur, f. 10. mars 1929,
og Hrönn V. Hannesdóttir, leið-
beinandi í leikskóla, f. 22. febrúar
1939.
Eiginmaður Jónu var Árni Guð-
mundsson, f. 25. júní 1926, d. 12.
nóvember 2000. Árni var sonur
Guðmundar Eyjólfssonar og Árnýj-
ar frá Eiðum í Vestmannaeyjum en
fósturforeldrar hans voru Kapitóla
Atli læknir, sérgrein gigtarlækn-
ingar, f. 19. september 1959, eig-
inkona hans er Salvör Jónsdóttir
skipulagsfræðingur. Börn þeirra:
a) Magnús háskólanemi (tónlist), b)
Una háskólanemi (hagfræði).
Jóna og fjölskylda bjuggu í Vest-
mannaeyjum fram að Heimaeyj-
argosi 23. janúar 1973. Og eftir
það var heimili þeirra í Kópavogi.
Langskólanám hennar varð ekki
langt, tíðarandinn í þá daga var sá
að hafna ekki vel boðnu framtíð-
arstarstarfi og strax eftir fyrsta
árið í gagnfræðaskóla Vest-
mannaeyja bauðst henni eitt slíkt
sem var skrifstofu- og versl-
unarstarf hjá Helga Benediktssyni,
kaupmanni og útgerðarmanni, sem
hún vann þar til hún giftist 1946.
Að vísu tókst henni áður að láta
draum sinn rætast, að fara til náms
á húsmæðraskóla á Ísafirði en nám
við húsmæðraskóla var eftirsótt
þá. Hún gekk til liðs við Oddfellow-
regluna árið 1972 og eignaðist þar
góða félaga.
Útför Jónu Bergþóru fer fram
frá Dómkirkjunni í dag, 17. febr-
úar 2010, og hefst athöfnin kl. 13.
Jónsdóttir frá Hlíð og
Jón Þorleifsson vöru-
bílstjóri. Jóna og
Árni gengu í hjóna-
band 1. nóvember
1946. Börn þeirra eru
1) Steinar Vilberg,
lífeindafræðingur
með háskólapróf í
rómönskum málum,
skjalaþýðandi og
dómtúlkur í spænsku,
f. 16. ágúst 1946, eig-
inkona hans er Guð-
rún Norðfjörð sér-
kennari. Börn
Steinars og Guðrúnar eru: a) Árni
Bergþór, viðskiptafræðinemi og ís-
lenskufræðingur. b) Brynja lækna-
nemi, í sambúð með Trausta Skúla-
syni, og eiga þau tvö börn. 2) Þyri
Kap menntaskólakennari, f. 6. nóv-
ember 1948, eiginmaður hennar er
Trausti Leósson byggingafræð-
ingur og eiga þau þrjú börn: a)
Silja arkitekt, gift Florian Zink.
Þau eiga tvö börn. b) Tumi, líf-
fræðingur/doktorsnemi, kvæntur
Jennifer Arseneau. c) Sindri lífeðl-
isfræðingur/doktorsnemi. 3) Jón
Elskuleg amma mín, Jóna Hann-
esdóttir, hefur kvatt þennan heim.
Eitt af því sem minnir mig á ömmu
eru fögur ljóð en hún var afar ljóð-
elsk. Eftir hana á ég fjölmörg afmæl-
is- og jólakort sem geyma fallega rit-
uð ljóð, ásamt hlýjum orðum og
hamingjuóskum. Þessi kort eru mér
nú dýrmæt minning um glæsilega
konu.
Ég þakka ömmu samfylgdina og
bið þess að ljúfir englar ljóss og friðar
leiði hana yfir í annan heim.
Ég kveð þig, ljóð mitt, í ljóði –
Þú líður ennþá um bláinn
sem söngur úr skógi, sem blærinn ber
með blómilmi út yfir sjáinn.
Við sungum það eina sumarnótt –
Við syngjum það aftur við djúpið rótt,
þegar dagurinn hinzti er dáinn.
(Tómas Guðmundsson)
Brynja Steinarsdóttir.
Lýsi þér ljósið bjarta
og leggi þér að hjarta
allt sem best og blíðast er.
Þetta er upphaf einnar af mörgum
vísum sem Jóna systir okkar samdi í
tilefni afmæla í fjölskyldunni til mik-
illar ánægju þeirra sem urðu þess að-
njótandi í það og það sinnið. Utan
þessa var hún oft beðin um vísur eins
og við brúðkaup barna okkar systra
og við fleiri hátíðleg tækifæri þeirra
sem næst henni stóðu.
Jóna var mikill viskubrunnur á ljóð
yfirleitt og var oft leitað til hennar ef
texta vantaði og greiddi hún oftast úr
því sem beðið var um, hvort sem það
voru ættjarðarljóð, dægurlög eða
þjóðhátíðarlög og þótt þau Árni frá
Eiðum, maður hennar, flyttu ekki
aftur til Eyja eftir gosið 1973 voru
þau og börnin þeirra þrjú, sem bera
foreldrum sínum fagurt vitni, sannir
aðdáendur heimabyggðar sinnar,
Vestmannaeyja, þar sem þau áttu
heimili lengst af.
Jóna var miklum hæfileikum
prýdd til munns og handa og þótt hún
væri heilsutæp stóran hluta ævinnar
er ótrúlegt hversu mörgu hún fékk
áorkað af mikilli reisn.
Hún hafði sterka tilfinningu fyrir
því að vinna verk sín vel í stóru og
smáu á fullkominn og óaðfinnanlegan
hátt, var mikill fagurkeri í heimilis-
haldi og matartilbúningi, unni tónlist
og ljóðum enda alin upp við ljóðalest-
ur og tónlist á bernskuheimili sínu
sínu Hæli í Vestmannaeyjum allt frá
unga aldri.
Faðir okkar, Hannes Hreinsson,
var góður bassasöngmaður, söng
mikið með okkur stelpunum heima
og lærðum við systur bassaröddina í
öllum helstu lögum og sálmum sem
hann var þá að æfa í sínum kórum,
sem voru Vestmannakór og Kirkju-
kór Vestmannaeyja, hann var líka
mikill dansmaður og kenndi okkur að
dansa gömlu dansana á eldhúsgólfinu
heima.
Móðir okkar, Vilborg frá Hall-
geirsey, sem við misstum ungar árið
1932, var víst enginn eftirbátur hans
á mörgum þessum sviðum enda voru
þau þátttakendur í ungmennafélags-
hreyfingunni í upphafi í Landeyjum
áður en þau fluttust alfarið til Eyja
1920 og bjuggu fyrst í Breiðholti en
árið 1922 fluttust þau að Hæli við
Brekastíg sem þá var nýbyggt hús.
Við vorum svo gæfusöm að faðir
okkar kvæntist aftur góðri konu, Jó-
hönnu Sveinsdóttur, sem hjálpaði
honum við uppeldi okkar og gekk
okkur í móðurstað og 1939 eignuðust
þau svo saman systur okkar Hrönn.
Við systur Magnea og Ásta minn-
umst ljúfra liðinna stunda með systur
okkar gegnum lífið.
Við biðjum elsku Jónu okkar bless-
unar í æðri heimkynnum og þökkum
henni allan systurkærleika.
Magnea G. Waage
og Ásta S. Hannesdóttir.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson)
Elskuleg systir mín Jóna Berg-
þóra er látin eftir erfið veikindi. Hún
var ein af dætrum Hannesar á Hæli
hér í Eyjum og Vilborgar konu hans
sem lést 1932 frá þremur ungum
dætrum, einnig var á heimilinu Þor-
steinn Gíslason fósturfaðir pabba og
afi okkar systra.
Í hönd fóru erfiðir tímar því pabba
var mikið í mun að halda fjölskyld-
unni saman. Móðir mín Jóhanna
Sveinsdóttir kemur á heimilið, þau
Hannes giftast og ég bætist í systra-
hópinn, þá tóku við góðir tímar, allir
unnu heimilinu sem best þeir gátu,
með reglusemi og ráðdeild blessaðist
allt. Í þá daga höfðu flestir lítið milli
handa en aldrei liðum við skort. Syst-
ur mínar voru stálpaðar þegar ég fór
að muna eftir mér, en mér er minn-
isstæður kærleikurinn og söngurinn
á heimilinu og eins þegar þær voru að
búa sig á böllin, ég starði agndofa og
fannst þær eins og prinsessur í æv-
intýri. Já, söngurinn, þau voru þrjú
sem sungu í kirkjukór Landakirkju,
Jóna, Ásta og pabbi sem söng þar í 30
ár.
Eftir hefðbundna skólagöngu vann
Jóna skrifstofu- og verslunarstörf og
einn vetur var hún á húsmæðraskól-
anum Ósk á Ísafirði. Ung kynntist
hún Adda sínum, Árna Guðmunds-
syni vélstjóra, fósturforeldrar hans,
Kapitóla Jónsdóttir og Jón Þorleifs-
son, reyndust ungu hjónunum og
börnunum þremur mjög vel í alla
staði, enda voru börnin sólargeislar í
lífi þeirra.
Árni stundaði sjómennsku í nærri
40 ár, lengst á Ísleifi VE. Við Jóna
bjuggum báðar í Eyjum fyrir gos og
áttu fjölskyldur okkar margar
ánægjustundir á afmælum, jólum og
oft þess utan, var þá gjarnan tekið í
spil, líka aðstoðuðum við hvor aðra
við veisluhöld eða sláturgerð, hvað þá
barnapössun. Við systur gengum til
liðs við Oddfellowregluna 1972 og átt-
um þar margar ánægjustundir í fé-
lagi góðra vina.
Jóna systir mín var falleg og hæfi-
leikarík kona og bar heimili hennar
þess fagurt vitni, allt sem hún tók sér
fyrir hendur gerði hún vel, vildi helst
gera betur. Hún talaði kjarngott mál,
hafði mikinn orðaforða, var víðlesin,
ljóðelsk og sérlega hagmælt, hafa
flestir í fjölskyldunni notið þess á
stórum stundum.
Jóna og Addi fluttu ekki aftur heim
til Eyja eftir gosið, en settust að í
Kópavogi, þeirra var saknað. Árni
gerðist húsvörður við Þinghólsskóla
og samdi vel bæði við börn og stjórn-
endur, hann andaðist 12. nóvember
2000, eftir það bjó Jóna ein í Reyni-
grundinni, en átti góða nágranna-
konu, hana Irmu, hafi hún þökk fyrir
sína umhyggju.
Við Þórður og dætur okkar kveðj-
um Jónu með þakklæti og virðingu og
biðjum guð að blessa minningu henn-
ar. Innilegar samúðarkveðjur til
barna hennar og fjölskyldna þeirra.
Kæra systir:
Far þú í friði
friður guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Hrönn V. Hannesdóttir.
Jóna Bergþóra Hannesdóttir
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hóli,
Önundarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð fimmtudaginn
11. febrúar.
Minningarathöfn verður í Digraneskirkju Kópavogi
fimmtudaginn 18. febrúar kl. 13.00.
Jarðsungið verður frá Holtskirkju í Önundarfirði mánudaginn
22. febrúar kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta hjúkrunarheimilið
Sunnuhlíð Kópavogi njóta þess.
Aðstandendur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, stjúpmóðir og
amma,
SIGÞRÚÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
Dúa,
hjúkrunarfræðingur,
Krummahólum 10,
lést á Landspítalanum aðfaranótt þriðjudagsins
2. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Fella- og Hólakirkju
föstudaginn 19. febrúar kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Helga Kr. Olsen, Ingvar Valgeirsson,
Ingólfur M. Olsen, Tinna Sigurðardóttir,
Eydís E. Olsen, Sean Maverich,
Ívar Örn Eðvarðsson, Sandra Dögg Guðmundsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
WALTER HJALTESTED,
Geitastekk 3,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut miðviku-
daginn 10. febrúar, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni föstudaginn 19. febrúar kl. 13.00.
Svandís Guðmundsdóttir,
Kjartan Hjaltested, Katrín Sverrisdóttir,
Margrét Hjaltested, Eiríkur Benónýsson,
Sólrún Hjaltested, Hákon Ísfeld Jónsson
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
ÁRMANN SNÆVARR
prófessor, fyrrv. háskólarektor
og hæstaréttardómari,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
mánudaginn 15. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Valborg Sigurðardóttir,
Sigríður Ásdís Snævarr, Kjartan Gunnarsson,
Stefán Valdemar Snævarr,
Sigurður Ármann Snævarr, Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir,
Valborg Þóra Snævarr, Eiríkur Thorsteinsson,
Árni Þorvaldur Snævarr
og barnabörn.
✝
Kær systir okkar,
ÁRNÍNA GUÐMUNDSDÓTTIR
fv. yfirhjúkrunarkona,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli mánudaginn
15. febrúar.
Fyrir hönd vandamanna,
Kristín Guðmundsdóttir,
Aðalbjörg Guðmundsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, stjúpsonur
og bróðir,
RÖGNVALDUR ÁMUNDASON,
sem lést á heimili sínu mánudaginn 15. febrúar,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 19. febrúar kl. 15.00.
Anatta Ámundason,
Ámundi Rögnvaldsson,
Benoný Þorsteinn Rögnvaldsson,
Eva Jónsdóttir, Benoný Þ. Gunnarsson,
Helga Ámundadóttir og fjölskylda,
Ásdís Ámundadóttir og fjölskylda,
Hrönn Ámundadóttir og fjölskylda.