Morgunblaðið - 17.02.2010, Síða 23
Minningar 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2010
✝ Guðjón SkagfjörðJóhannesson
fæddist 13. júlí 1914 í
Garði á Skagaströnd
í Austur-Húnavatns-
sýslu. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Skjóli fimmtudaginn
11. febrúar síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Jóhannes Páls-
son, f. 23. maí 1878,
d. 9. mars 1972, og
Helga Þorbergs-
dóttir, f. 30. apríl
1884, d. 30. sept-
ember 1970. Guðjón var níunda
barn þeirra hjóna en alls urðu
börnin fimmtán og eru þrjú á lífi.
Hinn 8. apríl 1944 kvæntist Guð-
jón Guðbjörgu Magneu Jónsdóttur,
f. 14. mars 1909, d. 10. ágúst 2007,
eignuðust þau fimm börn en fjögur
komust á legg, en fyrir átti Guðjón
eina dóttur Helgu Jóhönnu, maki
Skarphéðinn Haraldsson. Magnea
átti þrjá syni frá fyrra hjónabandi
sem eru 1) Jón Þórens, maki Rósa
Arngrímsdóttir, 2) Róbert Jóhann-
es, maki Aðalheiður
Guðmundsdóttir, 3)
Vignir, maki Fjóla
Tyrfingsdóttir. Börn
Guðjóns og Magneu
eru 1) Grétar Skag-
fjörð, maki Sudwan
Sonpukdee, 2) Magn-
ea Skagfjörð, 3)
óskírður drengur,
lést um tveggja mán-
aða aldur, 4) Þorleif-
ur Guðjón, maki Elín
Bjarnadóttir, 5) Gísli
Þorberg, maki Kol-
brún Ósk Þórarins-
dóttir. Guðjón lætur eftir sig hóp
af barnabörnum og barna-
barnabörn.
Mjög ungur að árum fór hann
að vinna fyrir sér margvísleg
störf, m.a. sveitastörf, og er hann
eltist tók við sjómennska, frysti-
húsvinna og akstur ýmiskonar,
einnig vann hann á Vellinum í
mörg ár.
Guðjón verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju í dag, 17. febrúar,
og hefst athöfnin kl. 13.
Jæja stjúpi minn, nú ert þú búinn
að fá hvíldina.
Ég man þegar ég hitti þig fyrst,
það var í september 1940. Ég var
sendur til móður minnar og þín til
að leita mér læknishjálpar. Þú sótt-
ir mig á Hverfisgötuna og fórst með
mig heim til ykkar.
Ég man þegar þú svo ókst mér
austur yfir fjall og við vorum stöðv-
aðir af breska hernum við varðstöð
sem var ofan Lækjarbotna.
Ég man þegar hægra framhjólið
á vörubílnum hætti að sinna sínu
hlutverki og fór sína leið, á miðri
Áffallsbrúnni.
Ég man þegar þið móðir mín
komuð í heimsókn.
Ég man stríðnisglamppann í aug-
unum þínum.
Ég man brosið þitt sem aldrei var
langt undan.
Ég man smitandi hláturinn og
fannn hjartahlýjuna sem þú áttir
svo mikið af.
Ég man þegar þú varst að hlúa að
móður minni af þinni sönnu alúð.
Ég veit að eftir að móðir mín dó í
ágúst 2007 var lífið breytt fyrir þér
og hvíldin því kærkomin þreyttum
líkama.
Ég trúi því að nú sért þú kominn
heim, og sé fyrir mér stríðnis-
glampann í augunum þínum þegar
þú breiðir út faðminn og segir:
„Magga mín, ég er kominn til þín.“
Hvíl í friði.
Vignir.
Elsku afi, nú ert þú farinn frá
okkur, og eftir er ég svo tóm og
döpur, ég reyni að hugga mig við
það að þú sért þar sem amma er og
þér líði vel, þú varst nú orðinn 95
ára og búinn að segja að þú vildir
fara að komast til hennar Möggu
þinnar, en eigingirnin er svo mikil
að ég vil hafa þig hjá mér lengur,
við viljum það öll. Þeim fækkar óð-
um styrku stoðunum mínum við frá-
fall þitt.
Þú varst besti afi sem nokkur gat
hugsað sér. Sjaldan byrstirðu þig
eða skammaðist en ég man eftir
einu atviki þar sem þú varst pínu
reiður, það var veturinn sem ég bjó
hjá ykkur ömmu, ég þá 16 ára og
mamma og pabbi í Færeyjum. Ég
hafði lent í vatnsslag einn föstudag-
inn í vinnunni og var hundblaut og
labbandi á leið heim þegar þú komst
keyrandi og ætlaðir að sækja mig í
vinnuna af því það var frost og of-
ankoma, en þá var ég komin hálfa
leið heim. Þú varst nú ekki kátur yf-
ir því að ég skyldi hafa ætlað að
labba svona heim, þetta væri stór-
hættulegt og framvegis ætti ég að
hringja ef svona lagað gerðist aftur!
Þegar heim var komið skipaðir þú
mér að fara í sturtu og fá svo kakó á
eftir því ég skyldi sko ekki veikjast.
Minning mín um þig frá Skaga-
strönd ert þú að borða gellur og
skrælandi kartöflur fyrir mig og
settir fullt, fullt af smjöri og salti á
þær svo ég myndi borða þær.
Það var svo róandi að sitja með
þér og horfa á sjónvarpið og heyra
þig humma og snúa puttum, þau
skilja sem þekkja þetta.
Þið amma voruð hreint gull fyrir
okkur systkinin og erum við mjög
rík að hafa fengið að alast upp í svo
mikilli nánd við ykkur, og búum
alltaf vel að því.
Þær eru margar minningarnar og
ég veit að þær munu ylja mér síðar
meir. Allar ferðirnar til ykkar í
Þjórsárdalinn í hjólhýsið ykkar
fína, þið amma svo stolt af því og þú
hélst því fram að það væri himna-
ríki á jörð. Þú naust þín svo vel þar í
kyrrðinni og sagðir að þetta bjarg-
aði ykkur eftir að við fluttum í bæ-
inn. Og að sama skapi gladdist þú
með okkur Palla þegar ég sagði þér
að við værum að flytja norður aftur,
komst meira að segja í heimsókn og
kíktir í fjárhúsin, og svo kom
mamma með þig í haust í heimsókn
í síðasta sinn. Ég er svo þakklát fyr-
ir að stelpurnar mínar skyldu fá að
kynnast þér og að ég sjálf hafi feng-
ið þau forréttindi að alast upp ná-
lægt þér og ömmu. Ég veit að
amma og pabbi taka vel á móti þér
og það verður glatt á hjalla og mikið
hlegið og trallað.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Elsku afi minn, hafðu þökk fyrir
allt, ég mun ávallt sakna þín, og ég
verð dugleg að tala um þig við dæt-
ur mínar.
Þín
Lillý.
Elsku afi. Ég vil byrja á að þakka
þér fyrir að hafa verið til því þú hef-
ur gefið mér svo margt ómetanlegt í
lífinu. Ég er svo þakklát fyrir að þú
varst afi minn og þú og amma voruð
mér svo góð. Nú ertu kominn þang-
að sem þú vildir fara – til hennar
elsku ömmu, sem ég sakna einnig
svo mikið. Það eru að verða komin
þrjú ár síðan amma kvaddi þennan
heim og þú varst aldrei samur eftir
fráfall hennar.
Elsku afi. Það er sárt að kveðja
þig en innst inni veit ég að þú ert
kominn á góðan stað og þér líður
vel. Þú hefur fengið friðinn og ég er
viss að nú ertu bæði glaður og líður
betur. Hvíldu í friði elsku afi minn.
Ég mun aldrei gleyma þér.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín
Guðbjörg Guðný Grétarsdóttir.
Guðjón Skagfjörð
Jóhannesson
Yndisleg, falleg,
með gott hjartalag –
af hverju hún? Þetta
var það fyrsta sem
kom upp í hugann
þegar ég frétti af
skyndilegu andláti þínu, sennilega
hefur Guð vantað svona góða
manneskju til að hjálpa sér. Ekki
hittumst við oft en alltaf þegar við
hittumst þá geislaði af þér fegurð
og gleði, alltaf svo hress og kát og
til í að spjalla, þannig að það var
alltaf eins og við hefðum hist síðast
í gær. Fyrsta skiptið er ég hitti þig
heima hjá mömmu þinni fyrir rúm-
um tuttugu árum þá hugsaði ég vá,
ekkert smá falleg frænka sem Ing-
ólfur á. Svo kynntumst við betur
bæði í gegnum Sibbu og svo þegar
eldri drengirnir okkar voru litlir og
fjölskyldan hittist á ættarmótum
fyrir austan og í Víðidalnum þar
Halldóra
Benediktsdóttir
✝ Halldóra Bene-diktsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 8.10.
1964. Hún lést af slys-
förum 30.1. sl.
Útför Halldóru fór
fram frá Vída-
línskirkju 12. febrúar
sl.
sem þið fjölskyldan
voruð oft með
mömmu þinni og
pabba. Alltaf þegar
maður var á leið aust-
ur eða suður og sá bíl
í hlaðinu, þá droppaði
maður við bara svona
til að segja hæ og bæ,
og síðasta skiptið sem
við hittumst var ein-
mitt í einni slíkri ferð
sumarið 2008 og ég
þá á ferðalagi ásamt
manni, dóttur og
tengdaforeldum mín-
um og vorum við öll drifin inn í
kaffi og spjall, þannig að stutt
kveðja varð að löngu spjalli. Það er
alltaf hrikalega erfitt þegar fólk í
blóma lífsins hverfur á braut og
maður skilur ekki tilganginn, en
mín trú er sú að allt í lífinu hafi til-
gang og kveð ég þig í þeirri trú.
Takk fyrir alla hlýju í minn garð
og minna, vonandi hittumst við
seinna, ég votta eiginmanni þínum,
honum Kristjáni, börnunum ykkar,
foreldrum og öðrum vandamönnum
mína dýpstu samúð og megi Guð og
góðar vættir styrkja þau og blessa.
Kær kveðja,
Anna Aðalheiður Arnardóttir.
Elsku amma mín. Þó
að heimsóknirnar hafi
verið fáar undanfarin
ár þá man ég eftir
heimsóknunum til þín í
Naustahlein eins og þær hefðu verið í
gær. Eins og það hafi verið í gær sem
þú stóðst í dyrunum og veifaðir okkur
þangað til bíllinn var farinn, þegar
maður fór inn í kompu og náði í kubb-
ana og skoðaði allt dótið í leiðinni. Allt
dótið sem var í kompunni og mér
fannst svo merkilegt. Ég man eftir
því þegar ég var lítil og fékk að gista.
Þú lánaðir mér alls konar potta, skál-
ar og sleifar sem ég dundaði mér við
og eldaði ljúffenga rétti handa þér og
bauð þér svo í mat. Þér fannst það
ekkert alltaf gaman en þú sagðir mér
oft í leiðinni frá hinum og þessum
listamönnum sem þú varst svo hrifin
af. Þær eru alveg ótal margar minn-
ingarnar sem ég á um þig og þær mun
ég varðveita og geyma þangað til við
hittumst aftur og fáum okkur bláan
Aðalheiður Rósa
Benediktsdóttir
✝ Aðalheiður RósaBenediktsdóttir
fæddist hinn 9. júní
1917 á Mosfelli í
Svínavatnshreppi, A-
Húnavatnssýslu. Hún
lést hinn 1. febrúar sl.
Útför Aðalheiðar
fór fram frá Nes-
kirkju 12. febrúar sl.
Ópal saman. En ef eitt-
hvað er öruggt í þessu
lífi þá er það að við
munum öll á endanum
deyja. En þá hittumst
við aftur í ríki Guðs,
þar sem endalaus kær-
leikur og friður er. Og
þangað ert þú komin
og líður vel. Og hafðu
ekki áhyggjur af litla
rauðhærða hrekkju-
svíninu þínu, honum
pabba. Við mamma og
Loftur skulum passa
hann vel fyrir þig.
En elsku amma ég er búin að sakna
þín lengi og mun halda áfram að
sakna þín og minnast tímanna okkar
saman þangað til við hittumst aftur.
Elska þig.
Þín
Heiða.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að
senda lengri grein. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt
er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Minningargreinar
Vélar & tæki
MultiOne
Eigum á lager nýjar MultiOne
fjölnotavélar í ýmsum stærðum.
Orkuver ehf.
www.orkuver.is
Sími 534-3435
Heitir pottar og þín vellíðan!
Grill og góð stemning. Frábær að-
staða fyrir hópa í Minniborgum. Hver
segir að ættarmót þurfi alltaf að vera
á sumrin?? Við sjáum um grillveisl-
una og morgunverð fyrir þinn hóp.
www.minniborgir.is
Spennandi gisting á góðum stað.
Sendibílar
Til leigu stór sendibíll
Tilvalinn til langflutninga.
Sanngjörn leiga. Trygging.
S. 845-0454.
GistingÖkukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07. Bifhjólakennsla.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Húsviðhald
Pípulagnir
Pípulagnameistarar geta bætt við sig
verkefnum. Allar almennar pípulagnir.
Óttar s: 695 0170 - Gunnar
s: 695 8615. G.Ó. Pípulagnir.
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi. Kaupi
allt gull, nýlegt, gamalt og illa
farið. Leitið til fagmanns og fáið
góð ráð. Upp. á demantar.is, í
síma 699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13 (við Austurvöll).
Verið velkomin.
Smáauglýsingar augl@mbl.is
Farðu inn á mbl.is/smaaugl