Morgunblaðið - 17.02.2010, Side 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2010
Sudoku
Frumstig
5 6 2 9
3 8
4 5 2
8 3
4 2 5
6 9
2 7 8 3
4
9 3 6
6 8
3 9 1
2 9 8 6
3 7 8 2
7 2 9 4
6 3 4 1
2 4
3 9 6 8
6
3 8 4 5
5 8 7
4 8
3 7
1 7 9 4
6 1 4 7
5 8 9
9 3
7 2 1 9 3 8 4 6 5
4 6 3 7 1 5 8 2 9
5 8 9 6 4 2 3 7 1
6 7 5 1 8 9 2 4 3
9 4 8 3 2 6 5 1 7
1 3 2 5 7 4 6 9 8
8 1 6 4 9 3 7 5 2
2 5 7 8 6 1 9 3 4
3 9 4 2 5 7 1 8 6
2 4 1 3 6 5 7 8 9
7 5 8 9 2 1 6 4 3
3 9 6 7 8 4 2 5 1
4 7 3 8 1 6 9 2 5
1 8 5 2 9 7 3 6 4
9 6 2 4 5 3 1 7 8
6 3 9 5 7 8 4 1 2
5 1 4 6 3 2 8 9 7
8 2 7 1 4 9 5 3 6
8 3 5 4 7 6 2 1 9
6 4 7 1 2 9 3 8 5
9 2 1 5 8 3 4 6 7
2 8 9 3 4 7 1 5 6
3 1 4 8 6 5 9 7 2
7 5 6 9 1 2 8 3 4
1 9 8 6 5 4 7 2 3
4 6 2 7 3 1 5 9 8
5 7 3 2 9 8 6 4 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 17. febrúar,
48. dagur ársins 2010
Orð dagsins: „Á því munu allir
þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar,
ef þér berið elsku hver til annars.“
(Jh. 13, 35.)
Adam Lennard er dagfarsprúðurLundúnabúi, sem starfar í aug-
lýsingabransanum. Lennard á sér
milljónir aðdáenda og má þakka það
litskrúðugu næturlífi sínu … þegar
hann liggur sofandi í rúminu heima
hjá sér. Lennard virðist nefnilega
lifa mun viðburðaríkara lífi í draum-
heimum en í raunheimum og talar
látlaust upp úr svefni um blóðsugu-
mörgæsir, fjólubláar bólur til sölu og
ábyrgðarlausar endur.
x x x
Kona Adams, Karen, komst aðþeirri niðurstöðu að ekki væri
sanngjarnt að hún fengi ein að sitja
að gullkornum eiginmannsins og tók
að birta þau á netinu. Vefsíðan nefn-
ist „Sleep Talkin’ Man“ og þar er að
finna bæði skrifuð ummæli og hljóð-
dæmi. Þar er tekið fram að skoðanir
Adams þegar hann sefur beri ekki
vitni afstöðu hans þegar hann er
vakandi. Í færslu, sem er dagsett í
gær, segir: „Þú verður að bjarga
gluggatjöldunum, bjargaðu glugga-
tjöldunum, þau geyma svo mörg
leyndarmál.“ Aðfaranótt 14. febrúar
vantaði greinilega aðeins herslu-
muninn: „Ég er með einn. Ég þarf
tvo. Það þýðir ekkert nema ég hafi
tvo. Hafi ég tvo get ég tekið yfir all-
an heiminn.“ Aðfaranótt jóladags
var hins vegar minna í húfi en
heimsyfirráð: „Ég get ekki stjórnað
kettlingunum, of mörg veiðihár, of
mörg veiðihár.“
x x x
Lennard-fjölskyldan reynir nú aðnýta sér vinsældir draum-
óranna. Á vefsíðunni eru til sölu bol-
ir, töskur, svuntur, barnaföt, könnur
og tölvumúsamottur með tilvitn-
unum í Adam. Það er meira að segja
hægt að fá hringitón í símann með
rödd hans. Þus Adams Lennards í
svefni er sennilega ekkert merki-
legra en hjal margra annarra upp úr
svefni. Víkverji hyggst þó ekki taka
upp á því að setja upptökutækið í
gang þegar hann fer að sofa á kvöld-
in í þeirri von að þar hrúgist inn
ódauðleg spakmæli, sem dugi til að
halda úti heilli fjölmiðlasamsteypu
um aldur og ævi. Ekki í bili að
minnsta kosti. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 kría, 4 þyrp-
ing, 7 lofað, 8 óhæfa, 9
kraftur, 11 skelin, 13
fiskurinn, 14 dögg, 15
vegg, 17 ilma, 20 hlass,
22 heldur, 23 hefja, 24
ávöxtur, 25 fugl.
Lóðrétt | 1 þjón-
ustustúlka, 2 hæsi, 3
sníkjudýr, 4 fatnað, 5
frumeindar, 6 duglegur,
10 flandur, 12 miskunn,
13 væla, 15 glampi, 16
kind, 18 orða, 19 dýrin,
20 sóminn, 21 slæmt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 góðgætinu, 8 skælt, 9 nætur. 10 agn, 11 arinn,
13 alinn, 15 mögla, 18 efsta, 21 fen, 22 trant, 23 geðug,
24 Dalabyggð.
Lóðrétt: 2 ólæti, 3 gátan, 4 tunna, 5 nýtni, 6 espa, 7
grun, 12 nál, 14 lyf, 15 meta, 16 glaða, 17 aftra, 18 Eng-
ey, 19 siðug, 20 auga.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. f4 Bc5 3. Rf3 d6 4. Rc3
Rc6 5. Ra4 Bb6 6. Rxb6 axb6 7.
d4 exd4 8. Rxd4 Dh4+ 9. g3 Df6
10. Be3 Rge7 11. Rb5 0-0 12. c3
Be6 13. Rxc7 Hxa2 14. Hxa2 Bxa2
15. Bg2 Bc4 16. Da4 b5 17. Rxb5
d5 18. Kf2 Re5 19. Rd4 Rg4+ 20.
Kf3
Staðan kom upp á Kornax-
mótinu, Skákþingi Reykjavíkur,
sem lauk fyrir skömmu í húsa-
kynnum Taflfélags Reykjavíkur.
Ólafur Gísli Jónsson (1.872) hafði
svart gegn Sævari Bjarnasyni
(2.164). 20. … dxe4+! hvítur
kóngurinn lendur nú á slíkum ver-
gangi að mát verður ekki umflúið.
21. Kxg4 Be6+ 22. Rxe6 Dxe6+
23. Kh5 Df5+ og svartur gafst
upp enda yrði hann mát eftir 24.
Kh4 Rg6#.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Gutti.
Norður
♠ÁK85
♥ÁK8
♦DG84
♣ÁK
Vestur Austur
♠63 ♠DG4
♥D109532 ♥G7
♦K973 ♦Á105
♣2 ♣G10863
Suður
♠10972
♥64
♦62
♣D9754
Suður spilar 4♠.
Augljósir tapslagir eru þrír: tveir á
tígul og einn á tromp, en það er langt
frá því að sagnhafi eigi heimtingu á
hinum tíu. Spilið er frá tvímenningi
Bridshátíðar og víðast hvar vakti vest-
ur á veikum 2♥ eða multi-ígildi þeirrar
sagnar. Þær upplýsingar nýtti Gutt-
ormur Kristmannsson sé til hins ýtr-
asta, en hann hélt um stýrið í suður eft-
ir að Pálmi, eldri bróðir hans, hafði
pínt hann til sagna. Jón Baldursson
kom út með ♣2. Guttormur tók Á-K í
öllum litum og sendi síðan Þorlák Jóns-
son inn á ♠D. Þorlákur spilaði ♣G, sem
Guttormur átti heima. Hann notaði
innkomuna til að spila tígli á drottn-
ingu og endaspila Þorlák þannig í ann-
að sinn. Tíundi slagurinn kom á ♦G.
Galdurinn er að loka útgönguleið
austurs í hjarta með því að taka strax
♥Á-K.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert með ýmsar vangaveltur í
sambandi við fjölskyldu þína. Treystu
gróðavænlegum hugmyndum sem þú
færð í dag, þær gætu borgað sig.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Fólk sem hefur áhrif á vinnu þína er
ósanngjarnt, duttlungafullt og í litlu sam-
bandi við raunveruleikann. Þú berð
ábyrgð á heilsu þinni, enginn annar.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú veist betur en svo að bregðast
við hverri einustu tilfinningu sem ratar í
gegnum taugakerfið. Gættu þess þó að
hunsa þær ekki alveg allar. Sumar eiga
rétt á nánari skoðun.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú þarft að fara í gegnum sam-
band þitt við vini þína og vandamenn. Oft-
ast ertu varkár og ert því þakklát/ur fyrir
daginn.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Nú er kjörið tækifæri til þess að
kynna vini, bjóddu þeim heim t.d. Skatta-
málin geta vafist fyrir sumum þessa dag-
ana. Ekki gefast upp.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þegar þú grandskoðar einkalífið
langar þig til að koma með opinbera yfir-
lýsingu um það. Vertu viss um að þú vitir
hvað þú ert að gera.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Mundu að sjaldan veldur einn þá
tveir deila. Horfðu á kostina og reyndu að
höfða til þess góða í fólki. Hól er alltaf
gott.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Eitthvað það sem þú hefur
treyst á verður ekki og það veldur þér
miklum vonbrigðum. Fimi þín kemur á
einhvern hátt að góðum notum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er ástæðulaust að ganga
um með spurningarnar í maganum.
Breyttu heiminum með því að fyrirgefa
og standa með sjálfri/sjálfum þér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú sérð greinilega hvað gengur
upp í lífi þínu og hvað ekki. Ef þú gerir
uppsteyt mun það koma í bakið á þér.
Sýndu sanngirni.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Farðu að öllu með gát í
vinnunni í dag og ekki gefa loforð sem þú
getur ekki staðið við. Taktu áhættu í nýrri
leið til fjáröflunar.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Gættu þess vel að vera heill í sam-
skiptum þínum við aðra. Forðastu mikil-
vægar ákvarðanir næstu daga. Melting-
artruflanir angra suma þessa dagana.
Stjörnuspá
17. febrúar 1954
Áætlunarbíll fór út af veginum
í Bröttubrekku og niður í Mið-
dalsgil. Bílstjórinn komst út á
síðustu stundu en fimm far-
þegar sluppu ómeiddir þrátt
fyrir sextíu metra fall.
17. febrúar 1968
Kolakraninn sem staðið hafði
við Reykjavíkurhöfn síðan
1927 var rifinn. Hann var um
25 metra hár og setti mikinn
svip á umhverfið.
17. febrúar 2007
Sýningar hófust á „Laddi 6-
tugur“, skemmtidagskrá í til-
efni af sextugsafmæli Þórhalls
Sigurðssonar, Ladda. Sýning-
arnar urðu 130 á tveimur ár-
um og var uppselt á þær allar.
Einnig voru seldir 25 þúsund
mynddiskar.
17. febrúar 2008
Samningar náðust á almenn-
um vinnumarkaði með gild-
istíma fram í nóvember 2010.
„Tímamótahækkun fyrir þá
lægst launuðu,“ sagði Frétta-
blaðið.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Ella Halldórsdóttir og Ragnheið-
ur Elsa Snæland héltu tombólu til
styrktar Rauða krossi Íslands fyrir
utan sundlaugina á Álftanesi og
söfnuðu 5.775 krónum.
Hlutavelta
„ÉG ER nú svo heppin að eiga afmæli sama dag og
móðir mín, þannig að hún hefur eiginlega séð um
þetta ansi oft,“ segir Fríða Hrönn Halldórsdóttir,
ráðgjafi hjá fjölskyldu- og fræðslusviði Vest-
mannaeyjabæjar, spurð um afmælisveislur fyrri
ára. Fríða, sem fagnar þrítugasta aldursári sínu í
dag, ætlar að hafa það huggulegt í kvöld með nán-
ustu fjölskyldunni – og auðvitað skála fyrir tvö-
földu afmæli.
Sjálf heldur hún svo upp á tímamótin á öðrum
stað, nefnilega þegar hún hefur komið sér fyrir í
nýju húsi. Þessa dagana er unnið að því að koma
húsinu í flott stand og mála, en ráðgert er að flytja inn fyrir lok mán-
aðarins. Með veislunni sameinar Fríða innflutningspartí og afmæl-
isfögnuð, en auk þess vill svo vel til að hljómsveitin Buff leikur fyrir
dansi í Höllinni í Vestmannaeyjum sama kvöld. Það er því ljóst að
veislugestir koma til með að slíta dansskónum eftir góða upphitun.
Þar með er þó ekki öllu lokið. „Við vinkonurnar erum allar þrítugar
á þessu ári og af fjórtán í hópnum hafa tíu þegar pantað sér ferð til
Berlínar næsta haust,“ segir Fríða Hrönn en um heljarinnar skemmti-
ferð verður að ræða. andri@mbl.is
Fríða Hrönn Halldórsdóttir er þrítug í dag
Heldur upp á það í nýju húsi
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
Reykjavík Rakel Dís
fæddist 27. október kl.
21.09. Hún vó 3.740 g og
var 52 cm löng. Foreldrar
hennar eru Helga Guðrún
Ásgeirsdóttir og Hávarð-
ur Jónsson.
Reykjavík Guðmundur
Sölvi fæddist 7. ágúst kl.
3.08. Hann vó 3.690 g og
var 53,5 cm langur. For-
eldrar hans eru G. Ragn-
heiður Sölvadóttir og Ár-
mann Óskar Guðmundsson.