Morgunblaðið - 17.02.2010, Side 28
28 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 2010
Fólk
Eftir Hólmfríði Gísladóttur
holmfridur@mbl.is
VIÐBURÐAFYRIRTÆKIÐ AM Events stendur í
stórræðum þessa dagana, en það sér um skipu-
lagningu á Söngkeppni framhaldsskólanna sem
verður haldin 10. apríl næstkomandi og fagnar í
ár tuttugu ára afmæli sínu. Fyrirtækið sinnir
meðal annars ýmsum viðburðum á vegum fram-
haldsskólanna og Háskóla Íslands, en að sögn
Andra Geirssonar var það upphaflega stofnað til
þess eins að sinna Söngkeppninni.
„Þetta byrjaði þannig að ég tók þátt í Söng-
keppni framhaldsskólanna 2006 og fannst að það
væri ýmislegt við keppnina sem hægt væri að
bæta. Ég var formaður nemendaráðsins í skól-
anum (FÁ) þetta árið og mér fannst að það mætti
laga skipulagið og gera þetta einhvern veginn
meira að viðburði framhaldsskólanna,“ segir
Andri. Hann segir að sér hafi fundist sam-
skiptum milli skipuleggjenda og skólanna mjög
ábótavant. „Ég sem formaður fékk til dæmis
voðalega litlar upplýsingar um keppnina fyrr en
kannski viku fyrir keppni,“ bætir hann við.
Félag framhaldsskólanema hafði í mörg ár
haft umsjón með keppninni og RÚV sá um hana í
nokkur ár þar á eftir, en árið 2007 hringdu
Andri og félagi hans í formenn allra nemenda-
félaga framhaldsskólanna og fengu samþykki
þeirra til að sjá um þá hlið er sneri að skólunum
sjálfum. Þeir byrjuðu á því að sjá um að miðla
upplýsingum á milli RÚV, framleiðslufyrirtæk-
isins og framhaldsskólanna en tóku að lokum
keppnina alveg að sér.
Söngkeppnin hafði þá í nokkur ár verið haldin
á Akureyri og á höfuðborgarsvæðinu til skiptis,
en árið 2008 var ákveðið að heimili hennar yrði
fyrir norðan. „Þegar við byrjuðum 2007 þá átti
hún að vera fyrir norðan, hún var hérna í
Reykjavík 2006 og mig minnir að það hafi mætt
hundrað, kannski tvö hundruð manns að horfa.
En þegar hún var haldin fyrir norðan mættu
svona 2.000 manns. Þetta er í rauninni enginn
viðburður hérna fyrir sunnan. Það er engin
mæting og engin stemming. Það tóku allir mjög
vel í það að hafa hana fyrir norðan,“ segir Andri
og bætir því við að með því að gera þetta að
ferðalagi líka myndist meiri stemming í skól-
unum fyrir því að fara í hóp á keppnina.
Söngkeppnin verður að venju haldin í íþrótta-
höllinni á Akureyri og verður sjónvarpað í op-
inni dagskrá á Stöð 2. Alls munu 34 skólar taka
þátt í ár og verður keppnin með glæsilegasta
móti í tilefni afmælisins. Andri vill þó ekki gefa
mikið upp. „Það verður afmælisbragur á þessu
öllu. Það á ekki að fara framhjá neinum að söng-
keppnin á afmæli í ár. Eitthvað verður farið í
sögu keppninnar. Hún verður stærri, hún verður
flottari,“ segir hann að lokum.
Skipuleggja 20 ára afmælissöngkeppni
Morgunblaðið/Skapti Hallgríms
Hiti Það var mikið stuð á keppninni í fyrra.
Kvikmyndagerðarmenn ætla
ekki að taka fyrirhuguðum nið-
urskurði ríkisins til kvikmynda-
gerðar þegjandi og hljóðalaust.
Eins og sagt hefur verið frá tók
Ragnar Bragason og Vakta-
gengið hans upp innslög í bens-
ínstöðinni þar sem ævintýrið
hófst, þar sem Georg Bjarnfreð-
arson „leiðréttir“ ýmsan misskiln-
ing.
Nú hefur Grímur Hákonarson
sett fyrsta innslag sitt af sex á
YouTube, þar sem dagskrárstjóri
innlends efnis hjá ríkisútvarpinu
fær á baukinn. Dagur Kári Pét-
ursson leikstjóri situr á fundi með
dagskrárstjóranum og kynnir
honum hugmyndina að Nóa
albinóa, í von um að RÚV vilji
taka þátt í verkefninu, að vinna
kvikmynd upp úr handritinu.
Dagskrárstjórinn, leikinn af Jó-
hannesi Hauki Jóhannessyni, efast
um að sagan sé efni í kvikmynd
og spyr hvort ekki væri nær að
vinna upp úr henni spil eða söng-
leik. Grímur segir ekki ólíklegt að
einhver innslaganna verði sýnd á
Edduverðlaunahátíðinni. „Er RÚV
að sinna menningarhlutverki
sínu?“ er yfirskrift innslaga
Gríms og fæst ekki betur séð en
að í hans huga sé svarið: Nei.
Andspyrnuinnslög frá
Grími á YouTube
Í gær barst inn á borð menning-
ardeildar tilkynningar frá tveimur
metnaðarfullum kvikmyndahátíð-
um sem eru haldnar úti á landi.
Annars vegar er um að ræða Al-
þjóðlegu stuttmyndahátíðina
Northern Waves á Grundarfirði,
sem fjallað er um hér á síðum blaðs-
ins og annars vegar Hreindýraland,
sem fram fer á Egilsstöðum 20.
mars næstkomandi. Báðum hátíð-
um er stýrt af konum (Dögg Mós-
esdóttir, Kristín Scheving) eins og
reyndar er með RIFF (Hrönn Mar-
ínósdóttir) og svo kvikmynda-
miðstöð (Laufey Guðjónsdóttir).
Kvikmyndageirinn er því vel kven-
lægur eftir allt saman. Nú vantar
bara fleiri leikstjóra.
Kvikmyndahátíðir í
krafti kvenna
Út er komin hljómskífa með lög-
unum úr leiksýningunni Algjör
Sveppi – Dagur í lífi stráks en leik-
ritið er sýnt í Íslensku óperunni um
þessar mundir. Sýningin er byggð á
barnaplötu Gísla Rúnars Jónssonar,
Algjör sveppur, og er leikstýrt af
Felix Bergssyni. Platan inniheldur
öll lögin sem er að finna í sýning-
unni.
Hljómplata með lög-
unum úr Algjör Sveppi
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
SÖNGKONAN Emilíana Torrini heldur þrenna
tónleika um helgina, á föstudag, laugardag og
sunnudag. Fara þeir fram í Háskólabíói en þriðju
tónleikunum var bætt við eftir að uppselt varð á
hina á augabragði. Og ekki að undra sosum, en
Emilíana hefur líklega aldrei notið jafnmikillar al-
mannahylli og einmitt nú. Besta plata hennar til
þessa, Me and Armani, kom út 2008 og heillaði
bæði hökustrjúkandi poppspekinga sem og al-
menning. Hið ægigrípandi „Jungle Drum“ átti svo
eftir að njóta mikillar hylli; sat í fyrsta sæti þýska
vinsældalistans í tvo mánuði – árangur sem er ein-
stakur fyrir íslenskan listamann. Emilíana hefur þá
verið á löngu og yfirgripsmiklu tónleikaferðalagi
um heim allan vegna plötunnar en törninni verður
svo slitið með áðurnefndri tónleikaþrennu.
Æft og svo af stað!
„Ég er búin að vera ferðalagi núna í eitt ár og
fjóra mánuði að ég held,“ segir Emilíana blaða-
manni. „Við erum búin að fara út um allt; Ástralía,
Japan, Ameríka …þetta er búið að ganga rosalega
vel.“
Emilíana segir ferðalagið ekki það lengsta til
þessa en nú hafi verið farið til fleiri landa, auk þess
sem staðirnir hafi verið stærri.
„Þetta voru kannski 3.000 manna hallir. Svo tók-
um við líka slatta af tónlistarhátíðum.“
Emilíana segir að það hafi ekki verið neitt sér-
staklega erfitt að koma plötunni til skila á tón-
leikum.
„Ég veit það ekki … við bara æfðum lögin og fór-
um af stað (hlær). En svo breytast lög alltaf eitt-
hvað þegar þau eru spiluð svona oft og lengi, það er
ekki hægt að halda þeim frosnum.“
Hún segir að sig hafi svo langað til að enda ferða-
lagið hér heima.
„Þetta er svona afsökun fyrir því að komast
heim! Við spiluðum hérna reyndar alveg í upphafi
og þess vegna langaði mig til að enda þetta líka
hérna. Við ætlum að taka tónleikana upp og svona.
Mér finnst eitthvað afslappandi við að fara að spila
hérna, og þetta er eiginlega í fyrsta sinn sem ég
finn fyrir slíku.“
Plata er plata
Emilíana segir að bransinn hafi breyst mikið á
síðustu tíu árum, kröfur til listamanna séu mun
meiri.
„Viðtölin eru orðin fleiri og lengri, það er útvarp
og sjónvarp og svo þarftu að teikna líka fyrir tíma-
ritin! (Mojo og Uncut hafa verið með efnisþætti þar
sem stjörnurnar teikna sjálfsmyndir.) Svo áttu allt-
af að vera mjög persónulegur og skemmtilegur. Ég
hef aldrei verið neitt sérstakur kandídat í svona
lagað. Og ef þú spilar ekki með þá ertu algjör fáviti
– í „þeirra“ augum. Það er ætlast til mjög mikils
fyrir mjög lítið.“
Hún segist þá hafa skrítnar tilfinningar hvað vel-
gengni „Jungle Drum“ varðar.
„En þetta var voða gaman … ég er fegin að það
var svona asnalegt og skemmtilegt lag sem sló í
gegn frekar en eitthvað annað.“
Emilíana segir að lítil mynd sé komin á næstu
plötu, hún sé þó byrjuð að skrifa lög.
„Það er svona að gerast í rólegheitum. Ég er í
fyrsta skipti að prufa mig áfram með nýja aðferð.
Ég ætla að skrifa 25 lög og velja svo úr. Leyfa bara
öllu að flæða – ekkert stopp. Ég hef nefnilega alltaf
skrifað bara eins og þarf til að fylla plötu. Aldrei
neinar b-hliðar eða neitt og það hefur fengið menn
til að klóra sér í kollinum úti, þeir eru ekki vanir
slíkum vinnubrögðum. En ég hef séð tilganginn í að
gera meira. Plata er plata.“
Farsæl „Mér finnst eitthvað afslappandi við að fara að spila hérna, og þetta er eiginlega í fyrsta sinn sem ég finn fyrir slíku.“
Allt flæðir, ekkert stopp
Emilíana Torrini heldur þrenna tónleika í Háskólabíói um helgina Klárar
ferðalag vegna Me and Armani sem hefur staðið í tæpt eitt og hálft ár
ÞANNIG var fyrirsögnin í
dómi Atla Bollasonar í blaði
þessu um Me and Armani,
þriðju plötu Emilíönu Torrini
sem út kemur á erlendri
grundu.
„Geirinn sem Emilíana hef-
ur valið sér er fullur af auð-
gleymanlegum skífum, en
hún og Armini bera höfuð og
herðar yfir þær. Þau hafa
skapað sannkallað listaverk,
og það er verðmætara en öll
hlutabréf,“ sagði hann í nið-
urlaginu. Í viðtali, rétt áður
en platan kom út, sagði hún
svo frá tilurð lagsins sem
átti eftir að fanga hjörtu
þýskra, „Jungle Drum“.
„Ég varð ástfangin og
sagði við þann sem ég var
skotin í með stjörnur í aug-
unum: „Ég skrifaði handa þér
lag...“ (bregður fyrir sig
stelpulegri rödd). Ég verð al-
veg hrikalega „uncool“ þegar
ég verð ástfangin! Ég á
margar mjög „embarrassing“
minningar sem tengjast því
ástandi og er fyrir löngu búin
að sætta mig við þetta „eðli
mitt“. En allavega, hann hélt
að þetta væri þá ljóðrænt og
fallegt ástarlag en þá var það
bara „Jungle Drum“ (hlær).“
„Sannkallað listaverk“