Morgunblaðið - 17.02.2010, Side 36
MIÐVIKUDAGUR 17. FEBRÚAR 48. DAGUR ÁRSINS 2010
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
! " #
$ $
!
%& '!& ! (
)*+,-.
*//,)-
)*),+0
*1,10
*),2..
)+,3))
))0,+1
),-)32
).2,..
)+-,/-
456
4 )3" 7585 */)/
)*+,+.
*//,31
)**,)-
*1,--0
*),331
)+,331
)).,/3
),-*/3
).3,2+
)+-,21
*1/,*20
%
9: )*0,/.
*/),)*
)**,2
*1,2)3
*),+*+
)+,+)2
)).,1.
),-*-+
).+,)2
)+2,/*
Heitast 0°C | Kaldast 11°C
Norðaustan 1-7 m/s,
skýjað með köflum eða
léttskýjað og þurrt að
kalla á vestanverðu
landinu » 10
25 myndbönd og 50
stuttmyndir frá 20
löndum á Northern
Wave-kvikmyndahá-
tíðinni á Grundar-
firði. »32
KVIKMYNDIR»
Stór North-
ern Wave
FÓLK»
Stórstjörnur á dreglinum
í Berlín. »35
Crymogea sérhæfir
sig í íslenskum ljós-
mynda- og lista-
verkabókum og
leggur áherslu á al-
þjóðlega útgáfu. »27
BÓKMENNTIR»
Ljósmyndir
og listaverk
TÓNLIST»
Söngkeppni framhalds-
skólanna er 20 ára. »28
AF MÁLMI»
Trivium glímir við sex
höfða sæskrímsli. »31
Menning
VEÐUR»
1. Skíðastúlkurnar eru fundnar
2. Förgun pólsks tóbaks stöðvuð
3. Mestu búferlaflutningarnir
4. Allt sprakk í loft upp
Íslenska krónan styrktist um 0,4%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Himnaríki og
helvíti (Entre ciel
et terre) eftir Jón
Kalman Stef-
ánsson kemur út í
Frakklandi á
morgun. Dómur
birtist í vikuritinu
Hebdomadaire og þar segir meðal
annars að Jón Kalman sé einn mesti
höfundur Íslands á vorum tímum og
með ólíkindum sé að þetta sé fyrsta
bók hans sem þýdd er á frönsku.
Sagan sé sérstaklega fallega sögð og
athyglin verði ávallt að vera vak-
andi, annars sé hætta á að maður
missi af einhverju stórfenglegu smá-
atriði, athugasemd eða orðaskiptum
persónanna.
BÓKMENNTIR
Jón Kalman fær glimrandi
góða dóma í Frakklandi
Stefán Hrafns-
son fór á kostum í
gærkvöld þegar
Skautafélag Akur-
eyrar vann stór-
sigur á Birninum,
6:0, á Íslands-
mótinu í íshokkí.
Stefán skoraði fjögur mörk og sagði
við Morgunblaðið að hann hefði loks-
ins „dottið í gírinn“. Akureyringar
tryggðu sér með þessu réttinn til að
leika til úrslita um Íslandsmeistara-
titilinn en SR og Björninn kljást um
að fá að mæta þeim.
ÍSHOKKÍ
Stefán datt í gírinn og SA
vann þar með stórsigur
Leikritinu Góðir
Íslendingar hefur
verið boðið á leik-
listarhátíðina Neue
Stücke aus Eur-
opa, eða Ný leikrit
frá Evrópu, sem
haldin verður í
Wiesbaden 17.-24. júní. Góðir Ís-
lendingar er í sýningum í Borgar-
leikhúsinu og segir í tilkynningu frá
því að hátíðin sé virtasta alþjóðlega
leiklistarhátíð heims í flokki þeirra
sem einbeiti sér að nútímaleikritum.
Höfundar verksins eru Hallur Ing-
ólfsson, Jón Atli Jónasson og Jón
Páll Eyjólfsson.
LEIKLIST
Góðum Íslendingum boðið
á Ný leikrit frá Evrópu
OFT hefur verið bent á mikilvægt gildi íþrótta en það er eitt að æfa með
heilsuna fyrst og fremst í huga og annað að æfa með árangur í keppni að
leiðarljósi. Á dögunum veitti Íþróttabandalag Reykjavíkur um 650 reyk-
vískum íþróttamönnum frá 13 ára aldri viðurkenningar fyrir Íslandsmeist-
aratitla í fyrra. Í hópnum voru þrír bekkjarfélagar í 9. KI í Réttarholts-
skóla, badmintonmeistarinn Sara Högnadóttir, júdómeistarinn Aron
Brandsson og skylmingameistarinn Böðvar Freyr Stefnisson. Meistararnir
setja markið hátt og einn stefnir á Ólympíuleikana 2016. | 15
Þrír meistarar í bekknum
Júdómeistari Aron Brandsson
Morgunblaðið/Golli
Badmintonmeistari Sara HögnadóttirSkylmingameistari Böðvar Freyr Stefnisson
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
NOKKRAR alþjóðlegar hótel-
keðjur hafa sýnt áhuga á að reka
hótel við Austurhöfnina við hlið
tónlistar- og ráðstefnuhússins
Hörpu. Stærð hótelsins er hins
vegar ekki sú sama og gert var ráð
fyrir í upphafi; engar íbúðir er
lengur að finna í hótelinu og her-
bergjum hefur verið fækkað.
Áfram er gert ráð fyrir að þarna
rísi lúxushótel og ef markmið nást
gæti það orðið árið 2013.
Pétur J. Eiríksson, stjórnarfor-
maður Situsar, sem hefur meðal
annars með fasteigna- og rekstrar-
félag hótels við Austurhöfnina að
gera, segir að fyrsta skrefið hafi
verið að gera upplýsingarit um
þetta hótel í hjarta Reykjavíkur.
Þýskt fyrirtæki, sem sérhæfir sig í
hótelbyggingum og -rekstri, vann
skýrsluna. Næst á dagskrá er að
kynna hótelkeðjum verkefnið og
vekja áhuga þeirra og síðan að
finna fjárfesta.
Meiri áhyggjur af fjárfestum
„Þessi skýrsla liggur fyrir og
þreifingar hafa átt sér stað við
nokkrar hótelkeðjur,“ segir Pétur.
„Nokkrar keðjur hafa mikinn
áhuga á Reykjavík og í stöðunni
hef ég meiri áhyggjur af fjár-
festum. Orðspor Íslands hefur beð-
ið hnekki og veikur og sveiflugjarn
gjaldmiðill er ekki aðlaðandi fyrir
fjárfesta. Venjan er sú að fjárfest-
irinn byggir húsnæðið sem hót-
elkeðjan síðan leigir, en þessir að-
ilar útfæra teikningar í samein-
ingu.“
Í deiliskipulagi er hámarkshæð
hótelsins sex hæðir og er enn mið-
að við þá hæð. Grunnflötur getur
hins vegar dregist saman frá því
sem skilgreint er sem hámark í
deiliskipulagi.
„Ég reikna með að húsið verði
minna en reiknað var með í upp-
hafi. Áður var áformað að þarna
risi hótel með 390 herbergjum og
100 íbúðum. Búið er að taka allar
íbúðirnar út og nú er miðað við að
herbergin verði 250-350.
Það er markmið okkar að opna
þetta hótel árið 2013, en þá þurfa
allar okkar áætlanir um samstarf
við hótelkeðju og fjárfesta að
ganga upp,“ segir Pétur J. Eiríks-
son.
Hótelkeðjur sýna áhuga
en hótelið verður minna
Stefnt er að því að lúxushótel á hafnarbakkanum taki til
starfa árið 2013 Ekki er lengur gert ráð fyrir 100 íbúðum
„ÉG er búin að vera á ferðalagi núna
í eitt ár og fjóra mánuði að ég held.
Við erum búin að fara út um allt;
Ástralía, Japan, Ameríka … þetta er
búið að ganga rosalega vel,“ segir
Emilíana Torrini sem heldur þrenna
tónleika í Háskólabíói um helgina.
Hún segir að sig hafi svo langað til
að enda ferðalagið hér heima.
„Þetta er svona afsökun fyrir því
að komast heim! Mér finnst eitthvað
afslappandi við að fara að spila
hérna, og þetta er eiginlega í fyrsta
sinn sem ég finn fyrir slíku.“ | 28
Endalokin Emilíana Torrini.
Langaði að
enda heima