Morgunblaðið - 24.02.2010, Síða 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
EKKI hefur reynst unnt að opna
skíðasvæðið í Bláfjöllum það sem af
er vetri. Veðurspár gera hins vegar
ráð fyrir að snjóa kunni hér á suð-
vesturhorninu næstu daga og því
ekki útilokað að hægt verði að opna
skíðasvæðið á næstunni. „Við erum
tilbúin að taka á móti snjónum,“
segir Magnús Árnason, fram-
kvæmdastjóri Bláfjalla, en hvatti
þó til hóflegrar bjartsýni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Íslands er vissulega
spáð ofankomu næstu daga en erf-
itt er þó að segja til um hversu mik-
il hún verði. Vel kunni svo að fara
að mikil snjókoma verði á Blá-
fjallasvæðinu, mögulega strax í
kvöld og á morgun, og jafnvel má
gera ráð fyrir einhverri snjókomu
um helgina. Lítið þarf hins vegar
útaf að bera til að það dragi úr lík-
um á góðri ofankomu. „Lægðin
þarf að koma langt upp undir suð-
urströndina til að skila úrkomu-
svæðinu, en þetta er ekki veiga-
mikil lægð þannig að það er ekkert
öruggt,“ sagði veðurfræðingur á
vakt. Eftir helgi gera spár síðan
ráð fyrir að það hlýni í veðri á ný.
Fylgjast með snjóframleiðslu
Er Morgunblaðið hafði samband
við Magnús var hann staddur vest-
ur á Ísafirði ásamt fleiri starfs-
mönnum Bláfjalla til að fylgjast
með snjóframleiðslu. „Þar sem lítið
var að gera þá fórum við starfs-
mennirnir hingað til að fylgjast
með kynningu á snjóframleiðsluvél
frá TechnoAlpin,“ sagði Magnús og
fullvissaði blaðamann um að starfs-
maður á snjótroðara stæði vaktina
fyrir sunnan á meðan. Því yrði allt
til reiðu tæki snjónum loks að
kyngja niður. „Við hin komum
heim á miðvikudag [í dag].“
Í snjóleysinu í vetur hefur gefist
góður tími til lagfæringa á Blá-
fjallasvæðinu og var t.a.m. ný
geymsla fyrir lyftustóla Kóngslyft-
unnar tekin í notkun nú í vetur. Áð-
ur lágu stólarnir á slá sem þeim var
komið fyrir á á hverju kvöldi. Að
sögn Magnúsar fer óneitanlega
betur með stólana að geyma þá í
húsi. „Þeir áttu það til að fjúka af
og skemmast og á núverandi gengi
kostar stóllinn 2 milljónir króna.“
Mikill mokstur hafi líka geta fylgt
því í snjóatíð að koma þeim upp á
lyftu á hverjum morgni. „Þetta gat
verið heilmikil vinna,“ segir hann.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stólageymsla Lítið mál er að flytja stólana úr geymslunni og yfir á lyftuna er skíðafært verður í Kóngsgilinu.
Tilbúin fyrir snjóinn
Spáir ofankomu suðvestanlands næstu daga Lítið þarf þó útaf að bera
til að spár breytist Nógur tími hefur gefist til viðhaldsvinnu í Bláfjöllum
ENN er ósamið í
kjaradeilu stétt-
arfélaga og Norð-
uráls á Grund-
artanga. Sl.
mánudag lögðu
samningamenn
stéttarfélaganna
nýtt tilboð fyrir
forsvarsmenn álversins, sem ætla að
svara því á næsta samningafundi hjá
ríkissáttasemjara á föstudaginn.
Samninganefndin sem semur fyrir
Norðurál lagði tilboð fyrir stétt-
arfélögin á dögunum en því var ekki
vel tekið og þótti rýrt skv. upplýs-
ingum Verkalýðsfélags Akraness.
Farið var yfir málin á samn-
ingafundi sl. mánudag og þar lögðu
stéttarfélögin fram nýtt tilboð fyrir
viðsemjandann. Vilhjálmur Birg-
isson, formaður Verkalýðsfélags
Akraness, segir menn bíða nú eftir
svari Norðuráls sem vegi það og
meti. Verkalýðsfélagið hefur lýst því
yfir að samningar verði ekki und-
irritaðir nema launakjör starfs-
manna Norðuráls verði jöfnuð við
laun hjá öðrum stóriðjufyrirtækjum.
Vega og
meta nýtt
tilboð
Svara tilboði stéttar-
félaga á föstudag
BROT 36 ökumanna voru mynduð á
Barónsstíg í Reykjavík í fyrradag.
Fylgst var með ökutækjum sem var
ekið Barónsstíg í suðurátt, á milli
Freyjugötu og Fjölnisvegar.
Á einni klukkustund, eftir hádegi,
fór 101 ökutæki þessa akstursleið og
því ók meira en þriðjungur öku-
manna, eða 36%, of hratt eða yfir af-
skiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu var
rúmlega 43 km/klst en þarna er 30
km hámarkshraði. Fjórir óku á 50
km hraða eða meira en sá sem hrað-
ast ók mældist á 61, að sögn lögreglu
höfuðborgarsvæðisins.
Eftirlit lögreglunnar á Barónsstíg
var tilkomið vegna ábendinga frá
íbúum í hverfinu en þeir hafa kvart-
að undan hraðakstri á þessari götu
að undanförnu. Áfram verður fylgst
með ökuhraða á þessu svæði, að
sögn lögreglunnar.
Ökumenn
óku hratt á
Barónsstíg
Mikil umferð hefur verið í
Hlíðarfjalli allt frá áramótum
og gætir þeirra áhrifa ekki
síður á veitinga- og gisti-
stöðum inni á Akureyri. „Við
fengum svo frábæran skíða-
snjó á milli jóla og nýárs að
fólk var farið að streyma í
bæinn strax í jólafríinu,“ seg-
ir María Tryggvadóttir, verk-
efnisstjóri ferðamála hjá Ak-
ureyrarbæ, og kveður gisti-
staði vel bókaða í bænum.
„Það er vinsælast að komast
í stéttarfélagsíbúðir eða bú-
staði, en það hefur líka verið
mikið bókað hjá hótelum og gistihúsum, þótt enn megi finna eitthvað
laust.“ Hún segir veitinga- og kaupmenn ekki verða síður vara við
ferðamannastrauminn og þá njóti Leikfélag Akureyrar einnig góðs af.
„Þetta smitast út í allt. Fólk er í fríi og leyfir sér að njóta lífsins þegar
það kemur í skíðafrí til Akureyrar.“
Alls komu um 15.000 manns í Hlíðarfjall sl. laugardag sem fer nærri
því að vera metaðsókn, en meiri fjöldi hefur sótt fjallið sem af er vetri
en undanfarin ár.
Að sögn Alfreðs Almarssonar, skrifstofustjóra í Hlíðarfjalli, vantar
heldur ekki snjóinn þessa dagana og engin þörf á að nýta snjófram-
leiðsluvélarnar. „Það hefur gengið á með hríð í dag [gær] og hér eru
allar leiðir opnar.“ Nóg er af svokölluðum púðursnjó og mikið að gera
hjá þeim sem manna snjótroðarana. „Hér eru þrír troðarar og þeir
mæta síðla kvölds og eru að troða alla nóttina til að gera brekkurnar
klárar fyrir næsta dag, því að þetta er 40-50 hektara svæði.“
Brekkurnar troðnar alla nóttina
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hlíðarfjall Púðursnjór er í fjallinu.
LINDBERG KID/TEEN
margverðlaunaðar
barnaumgjarðir sem farið
hafa sigurför um heiminn
– vega aðeins 2,3 grömm
eða 0,01% af meðalþunga
6 ára barns
3ja ára ábyrgð!