Morgunblaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 12
Þjóðræknisfélag
Íslendinga, í
samvinnu við ut-
anríkisráðu-
neytið og ætt-
ingja Neils
Ófeigs Bardals,
gengst fyrir sam-
komu til minn-
ingar um hann í
Þjóðmenning-
arhúsinu á morgun, fimmtudaginn
25. febrúar.
Neil Bardal, útfararstjóri í
Winnipeg í Kanada, var heið-
ursfélagi í Þjóðræknisfélaginu, en
hann lést 13. febrúar sl. Minning-
arathöfn fór fram í Winnipeg 20.
febrúar, en dagskráin á morgun
hefst klukkan 16.00 og eru allir
þeir sem vilja heiðra minningu hans
boðnir velkomnir.
Samkoma til minn-
ingar um Neil Bardal
Neil Bardal
RANNSÓKNASKIPIÐ Árni Friðriksson hélt í
gær af stað til loðnuleitar. Kannað verður hvort
bæst hefur í loðnugöngur sem áður hafa verið
mældar og verður svæðið austan við Vestmanna-
eyjar sérstaklega kannað.
Allmörg loðnuskip voru á Faxaflóa í gær. Þau
sem náðu að kasta fyrri hluta dagsins fengu
þokkalegan afla, en er leið á daginn versnaði veð-
ur. Grétar Rögnvarsson, skipstjóri á Jóni Kjart-
anssyni SU, sagði að loðna væri víða við suður-
ströndina, við Vestmannaeyjar og við Reykjanes.
Ekki væri mikið magn í fremstu göngunni, en
hrogn í henni væru komin lengst í þroska og því
væri helst sótt í hana.
Faxi RE var væntanlegur til Vopnafjarðar í
gærkvöldi með fyrstu loðnuna á vertíðinni, rúm-
lega 1500 tonn. Albert Sveinsson, skipstjóri, sagði
að aflinn hefði fengist í Faxaflóa á einum sólar-
hring, en síðan væri um 30 tíma sigling til Vopna-
fjarðar. Loðnan fer í hrognavinnslu, en miklar
endurbætur hafa verið gerðar á allri aðstöðu á HB
Granda á Vopnafirði síðustu mánuði.
Albert sagðist hafa orðið var við talsvert af
loðnu víða á leiðinni austur fyrir.
Síldin komin inn í Grundarfjörð
Dröfnin fer í vikulokin í síldarleiðangur. Síldin
sem fyrir áramót var við Stykkishólm, er nú komin
inn í Grundarfjörð. Síldin hefur áður haft vetur-
setu þar, en flakk á þessum árstíma þykir sérstakt
og ástæða til að kanna. Sjómaður sem rætt var við
í gær sagði að Grundarfjörður væri fullur af síld.
aij@mbl.is
Enn haldið til loðnumælinga
Dauft yfir loðnuveiðum í Faxaflóa í gær og versnandi veður Faxi með fyrstu
loðnuna til Vopnafjarðar Síldin á flakki fyrir vestan og er nú í Grundarfirði
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010
ÚTFLUTNINGSRÁÐ Íslands og
samtök tölvuleikjaframleiðenda,
IGI (Icelandic Gaming Industry)
hafa tekið höndum saman um að
efla markaðsstarf fyrirtækja innan
vébanda IGI og undirbúa nú þátt-
töku í vörusýningunni Nordic
Game 2010 sem haldinn verður í
Malmö í Svíþjóð dagana 27.-29. apr-
íl nk. Nordic Game er sýning og
ráðstefna tileinkuð tölvuleikjaiðn-
aðinum á Norðurlöndunum og er
hluti af leikjaverkefni undir stjórn
Norræna ráðherraráðsins.
Samtökin hafa með aðstoð Út-
flutningsráðs ráðist í endurprentun
á kynningarefni um IGI sem var
birt nýverið í tímaritinu EDGE, en
það er eitt víðlesnasta tímarit á
þessu sviði.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Leikir Tölvuleikir eiga hug margra.
Útflutningsráð
og tölvuleikir
Í DAG, miðvikudag, boðar Félag
um lýðheilsu ásamt Félagi lýð-
heilsufræðinga til opins fundar í
Iðnó um áhrif fjárhagsvanda á lýð-
heilsu í landinu. Fundurinn stendur
kl. 20:00-22:00. Flutt verða fimm
framsöguerindi og að þeim loknum
verður opnað fyrir umræður og
fyrirspurnir úr sal. Farið verður yf-
ir stöðuna frá sjónarhóli þeirra sem
vinna að lausnum ásamt því að
skoða niðurstöður rannsókna og
fjallað um stöðuna sem myndast
hefur hér á landi á undanförnum
mánuðum eftir að fjölgað hefur í
hópi þeirra sem standa illa fjár-
hagslega.
Opinn fundur
um lýðheilsu
Á FÖSTUDAG nk. kl. 10:00-18:00
boðar Háskólinn í Reykjavík til ráð-
stefnu um sjálfbærar samgöngur í
nýju húsnæði skólans í Nauthólsvík.
Tilgangur ráðstefnunnar er að
miðla þekkingu og skapa umræðu
um samgöngur og skipulagsmál og
samtvinnun þeirra. Aðalfyrirles-
arar ráðstefnunnar eru Terry
Moore, verkfræðingur og Ben Ha-
milton-Baillie sem rekur ráðgjafa-
fyrirtækið Hamilton-Baillie Asso-
ciates í Bristol á Englandi. Almennt
ráðstefnugjald er 7.500 kr.
Ráðstefna
um samgöngur
STUTT
Morgunblaðið/Alfons
Góður fiskur og nóg af honum Óskar Sigurpálsson, skipverji á Hafborgu EA, við löndun í Grundarfirði í gær. Aflanum er síðan ekið til Húsavíkur.
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
„ÞAÐ ER ekkert mál að fylla bátinn
af góðum þorski á stuttum tíma, en við
reynum að taka löngu og ýsu með,“
sagði Ólafur Óskarsson, stýrimaður á
Kristínu ÞH 157, í samtali í gær, en
þeir voru þá nýbúnir að leggja línuna
undan Vík í Mýrdal. Guðlaugur Óli
Þorláksson, skipstjóri á Grímseyj-
arbátnum Hafborgu EA 152, tók enn
sterkar til orða um aflabrögðin. „Mig
langaði að prófa einu sinni að róa frá
Grundarfirði og ég ætla aldrei aftur að
leggja net fyrir norðan. Hér er allt
öðru vísi fiskur, stærri, miklu hold-
meiri og með miklu minni haus. Hérna
er bara mok,“ sagði Óli á Hafborginni.
Aflabrögð hafa víða verið góð það
sem af er ári og þá sérstaklega í
Breiðafirðinum. Margir eru langt
komnir með þorskvótann. Sverrir Vil-
bergsson, hafnarstjóri í Grindavík,
sagði að það hefði verið reytingsfiskirí
hjá flestum, en undanfarið hafa yfir
20-25 bátar landað þar.
Fimm lagnir og síðan
landað á sjötta degi
„En það er af og frá að það sé ein-
hver vertíðarstemning yfir þessu, það
er löngu liðin tíð,“ sagði Sverrir.
„Netaveiðar heyra bráðum sögunni til
og þessir hefðbundnu vertíðarbátar
sjást varla lengur. Svo eru margir
kvótalitlir og ef menn fiska of vel þá
lenda þeir í veiðistýringu,“ sagði
Sverrir.
Níu stórir línubátar eru gerðir út
frá Grindavík í vetur, Vísir er með
fimm þeirra og Þorbjörn með fjóra.
Kristín ÞH er eitt þessara skipa og
sagði Ólafur Óskarsson að þeir tækju
fimm lagnir og lönduðu síðan á sjötta
degi, nema þegar búið væri að fylla
skipið fyrr. „Í síðasta túr vorum við á
löngu og þorski sunnan við Eyjar, suð-
ur úr Surtinum, og þar var góð veiði.
Við fengum mest 24 tonn í lögn og vor-
um komnir með fullfermi eða yfir 70
tonn áður en við náðum fjórum lögn-
um.“
Aðspurður um kvóta sagði Ólafur
að Vísismenn hefðu verið framsýnir
og aflaheimildir væru nokkuð góðar í
flestum tegundum. Hann sagði að á
haustin væri yfirleitt lagt upp á
Djúpavogi og Húsavík, en á vetr-
arvertíð í Grindavík. Auk þessara
staða er Vísir með fiskvinnslu á Þing-
eyri. Fjórtán eru um borð hverju
sinni.
Fæsta daga fara allar
trossurnar sjö í sjó
Fjórmenningarnir á Hafborgu EA,
48 tonna bát frá Grímsey, hafa gert
það gott síðan þeir byrjuðu á þorska-
netum frá Grundarfirði 10. febrúar.
Þeir hafa farið 12 róðra og eru komnir
með 120 tonn af þeim 150 tonnum sem
eftir voru af þorskkvótanum. Tak-
markið er að ná kvótanum fyrir mán-
aðamót. Í gær var kaldaskítur og þeir
voru á landleið upp úr hádegi með átta
tonn úr fjórum trossum.
„Við vorum með 15 tonn á mánudag
og 24 á sunnudag úr sjö trossum, en
fæsta daga fara trossurnar allar í sjó,
segir Óli Þorláksson. Báturinn gæti
borið allt að 30 tonnum, en þá þyrfti
talsvert af aflanum að vera laust. „Hér
í Breiðafirðinum er rosalegur haugur
af fiski um allan sjó. Við erum aðallega
í vandræðum að fá ekki of mikið í
trossurnar. Það er bara dýrðarljómi
að vera hér í Grundafirði. Þó að það sé
hvasst er sjaldan kvika hérna. Á þess-
um tíma vorum við alltaf í haugasjó
við Grímsey.“
Spurður hvort nokkurra mánaða
sumarleyfi tæki við þegar netavertíð-
inni lyki sagði Óli svo ekki vera. Hann
ætti eftir að veiða ufsa og kola á Haf-
borginni og ætti auk þess krókaafla-
marksbát sem hann ætlaði að róa á frá
Grímsey í sumar. Hafborgin er í við-
skiptum við GPG fiskverkun á Húsa-
vík og fá þeir fast verð, rúmlega 300
krónur á kíló. Aflanum er ekið frá
Grundarfirði til Húsavíkur þar sem
hann fer að mestu í salt.
Á fiskmörkuðum hafa undanfarið
fengist um 330 krónur fyrir kíló af
óslægðum þorski, rúmlega 300 krónur
fyrir kíló af ýsu og um 180 krónur fyr-
ir ufsann.
Haugur af fiski um allan sjó
Ekkert mál að fylla bátinn af góðum þorski á stuttum tíma Hefðbundnir
vertíðarbátar sjást varla lengur Ætlar aldrei aftur á þorskanet frá Grímsey
Heildarstaða afla
Þorskur
Aflamark:
127.923
Afli t. aflamarks:
75.572
Hlutfall:
56,7%
Aflatölur í tonnum
Ýsa
Aflamark:
61.887
Afli t. aflamarks:
26.023
Hlutfall:
42,1%
Ufsi
Aflamark:
48.195
Afli t. aflamarks:
22.822
Hlutfall:
47,4%
Karfi
Aflamark:
50.105
Afli t. aflamarks:
25.795
Hlutfall:
51,5%
Langa
Aflamark:
5.888
Afli t. aflamarks:
3.176
Hlutfall:
53,9%
Skötuselur
Aflamark:
2.449
Afli t. aflamarks:
2.010
Hlutfall:
82%
Á netum Guðlaugur Óli Þorláksson
hefur róið frá Grundarfirði í vetur.
Á línu Ólafur Óskarsson stýrimaður
á Kristínu ÞH 157.